Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
13
Uflönd
Miklum jarðskjálfta
spáð í San Francisco
Anna Bjaraason, DV, Denver:
íbúar norðurhluta Kalifomíu
búa sig nú undir „stóra skjálf-
tann“ eftir aö yfirvöld báðu íbúa á
San Francisco-svæöinu að vera
sérstaklega á verði fram á sunnu-
dag gagnvart jarðskjálftahættu.
í varúðartilkynningunni segir að
auknar líkur séu á áframhaldandi
skjálftavirkni og jaröfræðingar
búist viö skjálfta sem verði allt að
6,5 á Richter.
Á mánudaginn lék allt á reiði-
skjálfi í strandhéruðunum sunnan
við San Francisco er skjálfti sem
mældist 5,1 á Richter gekk yfir.
Ekkert manntjón varð en lítils
háttar eignatjón.
Þetta var þriðji skjálftinn á San
Francisco-svæðinu á tveimur sól-
arhringum. Það er mesta skjálfia-
virkni sem orðiö hefur á San
Andreas-sprungunni síðan 1906 er
skjálftar ollu gífurlegu tjóni og
eyðileggingu í San Francisco. Stór-
ir skjálftar með miklum náttúru-
hamfóram hafa or ðið á þessu s væði
með nokkuð jöfnu millibili og er
nú kominn tími á slikan jarð-
skjálfta líkt og íslenskir jarðfræð-
ingar telja varðandi Suðurlands-
skjálfta.
Yfirvöld í Suður-Kóreu siepptu fjörutíu og sex samviskuföngum í morgun
og var Kim Kun-Tae, sá þekktasti þeirra, þar á meðal. Símamynd Reuter
Umsjón:
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
og
Halldór
Valdimarsson
Hópar vinstri sinnaðra í E1 Salva-
dor hafa undanfarna daga haft í
frammi nokkrar mótmælaaðgerðir í
tengslum viö fyrirhugaða komu Ge-
orge Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til landsins. Shultz
kemur til E1 Salvador í dag frá Guate-
mala.
Vinstrisinnar kveiktu í gær í vöru-
flutningabifreið fyrir utan háskól-
ann í San Salvador, höfuðborg lands-
ins, í mótmælaskyni vegna heim-
sóknarinnar. Sjónarvottar segja að
hópur grímuklæddra og vopnaðra
manna hafi komið út úr háskólalóð-
inni. Hafi þeir stöðvað sendiferðabif-
reið frá brauðgerð í borginni svo og
strætisvagn og kveikt í báðum.
Brennuvargarnir ílúðu síðan eftir
að hafa dreift flugriti þar sem eftir-
farandi yfirlýsing birtist: „Fyrir
hverja handtöku og morð sem framið
Slökkviliðsmenn i San Salvador
slökkva eld i bifreið sem mótmæl-
endur kveiktu i.
Simamynd Reuter
George Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, ræðir við Vinicio Cerezo,
forseta Guatemala, í gær. Shultz lofaði forsetanum meðal annars framlagi
frá Bandarikjamönnum til Guatemala sem nemur sjötíu og fimm milljónum
dollara.
Símamynd Reuter
er af hermdarverkamönnum stjórn-
arhersins mun þjóðin svara með
hertri byltingarbaráttu."
Shultz kemur sem fyrr segir til E1
Salvador í dag til viðræðna við leið-
toga hers og ríkisstjórnar landsins.
I gær var Shultz í heimsókn í Gu-
atemala þar sem hann átti meðal
annars viðræður við Vinicio Cerezo,
forseta landsins.
Shultz hrósaði mjög efnahagsleg-
um og stjórnmálalegum framförum
sem hann telur hafa orðið í þeim Qór-
um ríkjum Mið-Ameríku sem hann
telur lýðræði ríkja í. Við sama tæki-
færi gagnrýndi Shultz harkalega
stjómvöld í Nicaragua en það land
telur hann undantekninguna í fram-
faramálum í þessum heimshluta.
Samviskuföng
um sleppt
Þekktasti samviskufanginn í Suð-
ur-Kóreu, Kim Kun-Tae, var látinn
laus í morgun með takmarkaða sak-
aruppgjöf. Hann hét því að hefja þeg-
ar baráttu fyrir frelsi annarra fanga.
Kim Kun-Tae var árið 1986 dæmd-
ur til fimm ára fangelsisvistar og
gefið aö sök að hafa reynt að steypa
stjórninni.
Fanginn, sem árið 1987 hlaut
mannréttindaverðlaun Roberts
Kennedy, sakaði í morgun stjórn
Suður-Kóreu um að vera að reyna
blekkja þjóðina með því að sleppa
honum úr fangelsi. Sagði hann stjórn
Roh Tae-Woos sleppa nokkrum en
setja síðan miklu fleiri bak við lás
og slá.
Fjörutíu og sex samviskufangar
voru látnir lausir í morgun. Stjórn-
völd segja aðeins áttatíu og einn sam-
viskufanga vera enn í haldi. Stjórn-
arandstöðuflokkar og mannréttinda-
samtök telja að þeir séu að minnsta
kosti fjögur hundruð.
Mótmæli vegna komu
Shultz til B Salvador