Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Qupperneq 17
17
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 19b,
Lesendur
Afbakaður fréttaflutningur:
Era
þeldökkir
sérfyrir-
brigði?
Harpa Karlsdóttir hringdi:
Ég vil gera athugasemd við frétta-
flutning hjá tveimur fjölmiðium hér-
lendis! Annars vegar er það dag-
blaðið Tíminn og hins vegar Stjaman
sem telja sér skylt, að því er virðist,
að taka fram sérstaklega.aö viðkom-
andi aðili (einn eða fleiri) hafi verið
„þeldökkur“!
Þetta kann ég ekki við, ef til vill
einkum og sér í lagi vegna þess að
við íslendingar þykjumst vera al-
gjörlega andvígir kynþáttafordóm-
um og höfum lýst sérstökum stuðn-
ingi við baráttu „þessara þeldökku"
í Suður-Afríku.
Mig langar einnig til að koma að í
leiðinni smágagnrýni á Stjörnuna og
Bylgjuna fyrir nokkuö einhæfan
flutning tónlistar, a.m.k. að deginum
til. Mér finnst sem uppistaðan sé
mest gömul diskólög, ásamt vin-
sældalistunum margþvældu. Ein-
hver mætti nú fjölbreytnin vera og
t.d. mætti spyrja; Hvar er David
Bowie þessa dagana? Og eflaust
mætti spyrja um fleiri, eftir smekk
og tilfinningu.
Hér er David Bowie í einni útgáfu af mörgum.
í vellystingum í
Hannes Tómasson hringdi: Ég hélt upp á 75 ára afmæh mitt
Ég hringi til að láta í ljós þakk- þarna fyrir austan hinn 17. júní sl.
læti mitt til starfsfólks Valhallar á og varð ekki fyrir vonbrigöum með
Þingvöllum fýrir frábæra fyrir- það.
greiöslu og þjónustu. Allt starfslið þarna á bestu þakk-
Valholl
ir skildar fyrir góða þjónustu í
mat, kaffl og meðiæti.
Maður naut þess svo sannarlega
að vera þama.
Kærar kveðjur
Auglýsingin frá landlæknisembættinu:
Siðferði kanínunnar
Borgari skrifar:
Ásdís Erlingsdóttir ritar hugvekju
til landlæknis vegna þess sem ég vil
kalla klámmynd embættisins. Hún
fékk fremur kaldar kveðjur sem svar
við henni, þar sem sá talaði sem þótt-
ist vita.
Hvað sem landlæknir eða stað-
gengill hans segja, er þessi mynda-
sýning emættisins afar ósmekkleg. -
Myndir af þessum toga æsa fremur
ti þeirra hluta sem varað er við, og
virðist leikmanni sem þarna sé um
aö ræða annarlegar hvatir.
Það liggur beinast við aö spyrja,
af gefnu tilefni: Var landlæknir eða
staðgengill hans viöstaddur upptök-
una?
Það er því miður orðið þannig að
bæði myndsóðar og ritsóðar hafa
átölulítið fengið að vaða yfir almenn-
ing með sýningar af þessu tagi með
myndir og ritað mál, sem ekki hæfir
til sýninga fyrir allan þorra fólks.
Sem betur fer hafa íslendingar ennþá
annað siðgæðismat en kanínan.
Reynt hefur verið leynt og ljóst að
brengla siðgæðismat fólks með klám-
sýningum í sjónvarpinu, en sem bet-
ur fer hefur meirihluti þess and-
styggð á sýningum af þessu tagi.
Það ber að fordæma landlæknis-
embættiö fyrir ósmekklegan þátt á
þessu sviði. Við erum ekki á sama
þroskastigi og kanínan. Eða hvaö?
Og enn er spurt: Megum við eiga von
á að sýnd verði „homma-sena"? - Það
væri miklu nær, þar sem þessi kyn-
sjúkdómur er tengdur þess konar
fólki, þótt aðrir geti einnig sýkst.
Ósmekklegar auglýsingar, bæði í
blöðum, sjónyarpi og jafnvel á plast-
pokum sem fólk ber varning heim til
sín í, ætti embætti landlæknis að láta
hverfa og hafa til þess einurð að við-
urkenna að þetta voru gróf mistök.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
B OD
Timapantanir 13010
\
SELJUM OG LEIGJUM
VERKPALLA OG STIGA
Margar stærðir og gerðir
Opið alla virka daga frá kl. 8-18
og laugardaga 10-1
PALLALEIGAN
STOÐI
Síðumúla 22 - Sími 32280
IL HWA
Ginsengte og -þykkni
til forvarnalækninga
(drykkir er auka athafnaþrótt)
1. Virmur ginseng gegn of háum blóðþrýstingi?
2. Virrnur ginseng gegn vöðvabólgum?
3. Vinnur ginseng gegn of háu kólestroli í blóði?
4. Vinnur ginseng gegn liðagigt?
5. Vinnur ginseng gegn stressi?
6. Vinnur ginseng gegn þunglyndi?
Margt bendir til þess að svo sé. í 5000 ár hafa kín-
verskir læknar gefið ginseng við fjölda kvilla. í Kóreu
er gestum gefið ginsengte svo þeim líði sem best
hjá gestgjafanum.
Dreifing Lljlintttl, Skemmuvegi 6, Kópavogi
Útsölustaðir: Hagkaup, heilsubúðir, apótek og nokkrar betri
matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu.
Lyfsölujeyfi
er forseti íslands veitir.
Lyfsöluleyfi Borgarnessumdæmis (Borgarness Apó-
tek) er auglýst laust til umsóknar.
Fráfarandi lyfsala er heimilaö að neyta 11. gr. laga
um lyfjadreifingu nr. 76/1982, vai-ðandi húsnæði
lyfjabúðarinnar og íbúð lyfsala (húseignin Borgar-
braut 23).
Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1.
janúar 1989.
Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa bor-
ist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 28.
júlí nk.
Heilbrigóis- og tryggingamálaráðuneytið,
27. júní 1988.
Það verður heilmikið að gerast hjá hesta-
mönnum um helgina. Sjö hestamannafé-
lög á Vesturlandi og Vestfjörðum munu
standa aðfjórðungsmóti hestamanna á
Kalármelum. Hafa 35 hryssur og 11 stóð-
hestar áunnið sér rétt til þátttöku í mótinu
sem einstaklingar.
Heilmiklarframkvæmdir hafa veriðfyrir
þetta stórmót. Búið er að gera nýjan
hringvöll og setja upp tvö hús, annað
fyrir skrifstofu og hitt fyrir dómpall. Einn-
ig verður dancpallur á svæðinu. Nóg
verður af tjaldstæðum og hægt verður
að kaupa allan mat innan mótssvæðis-
ins. Á kvöldin verður hægt að kaupa mat
af útigrilli. Nánar verðursagtfrá Fjórð-
ungsmóti Vesturlands í DV á morgun.
Á hverju ári í nokkur ár hefur verið stað-
ið fyrir sumartónleikum í Skálholtskirkju.
Hefur mörgum þótt þetta gott innlegg í
menningarlíf landsins á þeim árstíma sem
það annars liggur í hálfgerðri lægð, ekki
síst vegna þess að samhliða því að fá að
hlusta á fagra tónlist í fallegri kirkju hafa
tónlistarunnendur ástæðu til aö fá sér
góðan sunnudagsbíltúr um frjósamar
sveitirÁrnessýslu.
Dagskráin á sumartónleikum Skálholts-
kirkju er fjölbreytt og taka bæði innlend-
ir og erlendir listamenn þátt í flutningi.
Sagt verður frá fyrstu tónleikahelginni í
DV á morgun.