Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Side 22
22
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
Iþróttir
Þaö gekk á ýmsu er Frakkar
glímdu viö Argentínumenn í íþrótt-
inni rugby á dögunum en franska
liðið hefur verið í keppnisför um
Suður-Ameríku. Slagsmál brutust
margsinnis út í viðureigninni og
kunni enginn aö stilla til friðar þegar
verst lét. Létu leikmenn ekki af þess-
um ósóma fyrr en þeir voru orðnir
móðir af tómum slagsmálum.
Þess má geta að Argentínumenn
unnu leikinn,-18-0.
Frakkar létu þó ekki deigan síga
þótt þeir hefðu beðið lægri hlut fyrir
Argentínumönnum. í síöasta leik
sínum í keppnisförinni unnu þeir
nefnilega stærsta sigur í sögu Rug-
by-íþróttarinnar. Lögðu þá Paragvæ,
106-12.
-JÖG
L'ORÉAL
NÝJAR ANDLITSSNYRTIVÖRUR SEM VIÐ-
HALDA EIGINLEIKUM UNGRAR HÚÐAR.
PLÉNITUDE línan er afrakstur 10 ára rannsóknar-
starfs og sérstaklega framleidd til þess að koma í veg
fyrir ótímabærar aldursbreytingar húðarinnar.
PLÉNITUDE snyrtivörurnar verða kynntar í Kjöt-
miðstöðinni, Garðabæ, á morgun, föstudag.
Notið tækifæriö og þiggið góð ráð um rétta umhirðu húð-
arinnar.
Dreifingaraöili:
ifjifl mojlw vmmMWwmw & mWuWWu
Skútuvogi lOa, 104 Reykjavík, sími 686700
Þungbrýnn kylfingur
Greg Norman, einn fremsti kylf-
ingur heimsins, hafði ekki erindi sem
erfiði á opna bandaríska meistara-
mótinu, en sú keppni fór einmitt
fram á dögunum. Norman, sem er
Ástralíumaður og efstur á heimsaf-
rekalista kylfmga, setti kylfuhausinn
í grjót í einu högginni og fékk fyrir
bragðið áverka á vinstri höndina.
Mátti hann draga sig í hlé vegna
þeirra meiðsla. Curtis Strange varð
hlutskarpastur á mótinu eins og áður
hefur komið fram í DV.
Þótt Norman standi framarlega í
golfmu er hann ekki meðal tekju-
hæstu manna í íþróttinni en listi
tekjuhæstu manna er þannig:
1 Nick Faldo 111,304 pund
2 Mark McNulty 104,328
3 Jose-Maria Olazabal 94,845
4 MarkJames 81,790
5 Severiano Ballesteros 75,356
6 Eamonn Darcy 66,798
7 Ian Woosnam 66,094
8 RodgerDavis 61,459
9 Ronan Rafferty 60,061
10 Denis Durnian.......58,967
11 Bernhard Langer.....57,740
12 BarryLane...........52,795
13 SandyLyle...........49,400
14 Christy O’Connor....48,403
15 MikeHarwood.........48,384
16 WayneRiley..........46,434
17 DerrickCooper.......45,395
18 RogerChapman........42,321
19 MiguelMartin........42,210
20 GordonBrand.........41,348
-JÖG
Stórstjömur
piyddu bekkina
Þessar kempur, þeir Jack Nichol-
son og Warren Beatty, voru mættar
á pallana er rotarirtn Mike Tyson tók
-nafna sinn Spinks í karphúsið á dög-
unum. Leikararnir eru báöir miklir
áhugamenn um íþróttir og hafa sjálf-
sagt ekki sleppt augum af hringnum
meðan Spinks stóð uppi. Þess má
geta að viðureign þeirra Tysons og
Spinks stóð aðeins í 90 sekúndur og
fékk meistarinn rúmar 10 milljónir
fyrir hverja þeirra en áskorandinn
sýnu minna eða rúmar 6. Dýrt var
að festa sér sæti í keppnissalnum og
má ætla aö þeir hafi fengið lítið fyrir
sinn snúð sem skruppu á pylsubar-
inn á meðan hinn örskammi leikur
stóð yfir. -JÖG
Becker
kátur
Boris Becker leikur í undanúrslit-
um Wimbledon-mótsins í tennis
ásamt þeim Miroslav Mecir, sem
lagði Mats Wilander í átta manna úr-
slitum, Stefan Edberg, sem vann
Patrick Kuhnen, og Ivan Lendl, sem
bar sigurorð af Tim Mayotte. Sjálfur
vann Becker meistara síðasta árs,
Ástralann Pat Cash. -JÖG