Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Page 36
36
Lífsstm
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
Fjallafatnaður er dýr á íslandi og
úrvalið er mikið.
Flestir þeir sem fjárfesta í útifatn-
aði byrja á þvi að kaupa sér heppi-
lega gönguskó. Hversu dýrir og
íburöarmiklir þeir eru fer svo eftir
því til hvers á að nota þá. Ef einung-
is á að nota þá í útilegu í Skaftafelli
eða í léttar gönguferðir á Þingvöllum
verða menn aö velja á milli þess að
kaupa sér dýra gönguskó eða ein-
hverja skó á miðlungsverði. i
Annan fatnaö til að nota í fjalla-
ferðir kaupa menn yfirleitt smám
saman. Flestir búa svo vel að eiga
ýmiss konar fatnað sem hægt er að
nota í útilegur og léttari göngur. En
þegar menn eru komnir á bragðið
og vilja helst eyða öllum sínum tíma
í óbyggðum er nauðsynlegt að eiga
góðan fjallafatnað því veður eru oft
válynd fyrir ofan byggð. Og þá er
nauðsynlegt aö huga vel að efnum
og annarri gerö fatnaöarins.
Tískan hefur yfirleitt ekki mikii
áhrif á hvernig fatnað menn velja til
að nota á fjöllum uppi. Er sennilega
tvennt sem einkum veldur því; ann-
ars vegar að menn kaupa fjallafatnað
með því hugarfari að hann endist í
nokkur ár og svo hins vegar að þessi
fatnaður verður í senn að vera skjól-
góður og hlýr og þýðir þá lítt að hafa
dagskipunina: aðskoriö í dag en vítt
á morgun.
Mikilvægasti útbúnaðurinn
Fótabúnaöurinn er einn mikilvæg-
asti útbúnaðurinn fyrir alla þá sem
hyggja á göngur, hvort sem þær eru
langar eöa stuttar. Því eru góðir
gönguskór eitt af því fyrsta sem
menn fjárfesta í. Hægt er að skipta
skóm í tvo flokka: skó úr leðri og skó
úr öðrum efnum, til að mynda plasti
eða gúmmíi. Leðurskór hafa þá kosti
umfram skó úr plasti og gúmmíi að
þeir anda en á móti kemur að þeir
eru ekki vatnsþéttir og krefjast mik-
illar umhirðu af eiganda sínum. Til
eru tvenns konar leðurskór, stífir og
mjúkir, og fer það eftir gerð sólans
hvorum flokknum skómir tilheyra.
Það er eins gott að klæðast hlýjum fatnaði þegar haldið er til óbyggða. DV-myndir KAE
Búnaöurinn greinilega í góðu lagi og ekki mikil hætta á að fólk verði úti.
Límdur sóli: Yfirleðrið er þá límt
milli innri og miðsólans. Yflrleitt eru
þetta mjúkir skór og henta aðeins í
léttar göngur.
Skór saumaðir að innan: Ekki ólík-
ir skóm með límdum sóla. Yfirleðrið
er klemmt inn á milli innri sóla og
miðsóla, síðan er allt saumað saman.
Að lokum er slitsólinn saumaður á.
Norskur randsaumur: Yfirleöriö er
fyrst saumað á sérstakan hátt við
innri sólann og síðan er yfirleðriö
aftur saumað við miðsólann. Þar
undir kemur shtsóli. Þessi tegund af
skóm er talin mjög sterk.
Goodyear randsaumur: Fyrst er
yfirleðrið saumað við innri sólann
en um leið er fest leðurræma allan
hringinn, sem síöan er brotin yfir
sauminn og saumuö við miðsólann.
Að lokum er slitsólinn límdur undir.
Sennilega er auðveldara að vatns-
verja skó sem saumaðir eru með
Goodyear randsaum en með norsk-
um saum.
Til að hægt sé að vatnsveija leð-
urskó með einhverjum árangri er
mikilvægt að skórnir séu saumaðir
eins fáum saumum og mögulegt er.
Einnig er æskilegt að leðrið í skónum
sé tvöfalt og aö saumar standist ekki
á. Tungan ætti að vera saumuð fóst
í skóinn allt upp aö ökkla til að halda
vatni úti. Á vönduöum skóm er yfir-
leitt brydding að ofna úr mjúku leðri.
Blauta leðurskó á aldrei aö þurrka
Léttur anorak sem hlífir vel gegn veðri og vindum.