Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988. Sviðsljós Ólyginn sagði... Rod Stewart aö róast? Þetta er spurningin sem margir breskir sjónvarpsáhorf- endur spuröu sjálfa sig eftir aö Rod gaf út þá yfirlýsingu í viðtali að hann ætlaði sér aö kvænast Kelly Emberg. Þau Kelly eiga nú þegar eitt barn saman og annað er á leiðinni. Brúðkaupið átti aö fara fram í enda júnímánaðar. Whitney Houston > kætti mjög ítaiska aðdáendur sína á dögunum þegar hún var á ferð í Róm. Eins og margir aðrir sem þangaö fara ákvað hún að njóta sólarinnar og fór í sólbaö á svölunum á hótelinu þar sem hún gisti. Áöur en hún vissi af hafði safnast saman fyrir neöan sval- imar stór hópur aðdáenda og var Alberto Tomba meðal þeirra. ít- alska ríkissjónvarpiö sagði að sá orðrómur hefði gengið að hún hefði ætlað að stökkva af svölun- um. Á meðan hrópuðu aðdáend- urnir „sei forte“ eða þú ert frá- bær. Chevy Chase sagði að eftir aö hann var á Betty Ford-stofnuninni vissi hann að hann myndi aldrei framar taka piUu til þess einfaldlega að koma í veg fyrir að hann þyrfti nokkurn tímann að fara þangað aftur. Hann sagði að hann hefði hatað fyrirlestrana um hversu lágt hann hefði lagst. „Mér fannst ég ekki vera á svo lágu plani, mér fannst ég bara þurfa að losna við pillumar," sagði hann. Sextugsafmæli Steingríms Herniannssonar Páll Pétursson afhenti Steingrími Hermannssyni bréfapressu i líki Stjórnarráðsins fyrir hönd þingflokks framsóknar- manna. Meö pressunni fylgdu þau orð að í upphafi hefði flokkurinn nú ætlað að gefa honum lítinn jeppa en þar sem hann ætti nú Blazerinn þá var hætt við það. Einnig kom upp sú hugmynd að gefa afmælisbarninu smíðatól en þau gætu reynst of hættuleg og því var einnig hætt við það. Aftur á móti hefði allt gengið vel þegar Steingrímur var hæstráðandi í Stjórnarráðshúsinu og fylgdu gjöfinni óskir um að hann kæmist þangað aftur sem fyrst. Að sjálfsögðu var afmælisbarninu færður stór vöndur af rauðum rósum frá þingflokki Alþýðuflokksins. Var það fjármáiaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, sem afhenti vöndinn. Margt tiginna gesta var i veislunni og hér má sjá forseta vorn, Vigdísi Finn- bogadóttur, Þorstein Pálsson forsætisráðherra, Eddu Guðmundsdóttur, eig- inkonu Steingríms, afmælisbarnið, Steingrím Hermannsson utanríkisráð- herra, og Albert Guðmundsson, þingmann Borgaraflokks. Fyrir hönd þingflokks Alþýðubandalagsins færði Svavar Gestsson Stein- grími forláta útgáfu af Sturlungu. Konurnar við spilduna skemmdu. DV-mynd Ómar Sárin grædd í Vestmannaeyjum Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum: Síðastliðinn fóstudag fóru nokkrar konur úr Sjálfstæðiskvennafélaginu Eygló í Vestmannaeyjum í gróður- setningarferð og völdu þær sér stað þar sem nýja hraunið nær út á Skansinn gamla. Þarna hafa þær valið sér spildu sem er skemmd af völdum gossins og þykir þetta við hæfi þar sem nú eru að verða 15 ár frá því að gosi lauk á Heimaey árið 1973. Hvíld er að finna Þær voru vaktar af værum blundi þessar tvær af Ijósmyndara DV þar sem þær hvíldu á vegg gamla kirkjugarðsins við Suðurgötu. Eitthvað voru þær að stelast því þær harðneituðu að segja til nafns enda áttu þær að vera við vinnu fyrir innan vegginn. Þær höfðu þó komið sér vel fyrir með svefn- poka að heiman. Þaö er þó ekki oft sem hægt er að vekja þá er í kirkju- garði hvila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.