Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Mönnum blöskrar verð
á veitingahúsamat
- mætti vera 10 til 15% hsetra, segir Pétur Snæbjömsson hótelstjori
„Þaö er engin spurning aö íslend-
ingum og erlendum feröamönnum
blöskrar verölagiö á veitingahúsum
hér á landi," sagöi Pétur Snæbjörns-
son, hótelstjóri á Hótel Húsavik, í
samtali viö DV.
„Þaö er augljóst aö við gætum feng-
ið miklu fleiri ferðamenn hingaö og
fleiri íslendinga út að boröa allan
ársins hring ef verðlagið væri ekki
svona hátt. Verðlagið er hins vegar
ekki i valdi okkar veitingahúsaeig-
enda. Verðið á mat á veitingahúsum
hér á landi rétt svarar kostnaöi. Viö
erum skattpíndir og til aö vera vissir
um aö halda velli þyrfti verð á veit-
ingahúsamat að vera 10 til 15%
hærra."
Seint í vetur kom í ljós aö veitinga-
rekstur almennt á íslandi dróst veru-
lega saman vegna verðlags. Erna
Þórarinsdóttir, hótelstjóri á Eddu-
hótehnu á Laugarvatni, sagöi aö
júnímánuður heföi verið verri en oft
áður og fleiri tóku undir þaö.
Tryggvi Guömundsson hjá Ferða-
skrifstofu ríkisins sagöi að verðlag
gæti ekki verið lægra en það er á
Edduhótelunum. Meðalverð á fisk-
réttum þar er um 800 krónur en fin
nautasteik kostar um 1450 krónur.
Tryggvi sagðist skilgreina þann
kostnað þannig að 35% væri hráefn-
iskostnaður, 25% laun til starfs-
manna, önnur 25% söluskattur og
15% færi í húsaleigu, rafmagn og
fleira, þannig að verðlagið gæti ekki
verið lægra.
„Verðlagið hækkaði um 10% með
matarskattinum og það er fyrir utan
almennar kostnaðarhækkanir. Áður
en hann kom til um áramótin greidd-
um við aðeins söluskatt af álögðu
verði en nú greiðum við einnig sölu-
skatt af hráefniskostnaði. Það er á
mörkunum að þessi veitingastarf-
semi sé ekki rekin með tapi," sagði
Tryggvi.
Hótel Valhöll er einnig rekið af
Ferðaskrifstofu ríkisins en þar er til
í grófum dráttum skiptist svona niður verð nautakjötsrétta sem almenning-
ur leggur sér til munns á Edduhótelum landsins: 35% er hráefniskostnað-
ur, 25% söluskattur, 25% launakostnaður og 15% hiti, rafmagn og fleira.
Meðalverð þar er um 1450 krónur en verð á nautasteik á veitingastöðum
borgarinnar og á hótelum borgarinnar er almennt um 200 til 300 krónum
hærra. Þá raskast hlutfallið eitthvað - margir vilja segja að hærri fjár-
magnskostnaður og meiri launakostnaður raski hlutföllunum.
dæmis verð á nautasteik 1660 krón-
ur.
Við spuröum Tryggva hverju það
verð sætti?
„Valhöll er nokkru fínni staöur og
þar er lagt meira upp úr þjónustu
og fleiru heldur en almennt gerist
með Edduhótehn. Hún er í dýrari
klassa.“
DV kannaöi verð almennt á nauta-
steikum og kom í ljós að verðið á
svokölluðum a la carte seðlum víðs
vegar á höfuðborgarsvæðinu og úti
á landi er í svipuðum flokki og á
hótel Valhöll eða um 1660 krónur.
Pétur Snæbjörnsson sagðist helst
finna fyrir því að Bandaríkjamenn
og fólk frá Mið-Evrópu teldi verðlag-
ið allt of hátt en sagði að í Skandinav-
íu væri verðlag ekki ósvipað og hér.
Hann sagöi ennfremur að yfir vetrar-
tímann væri launakostnaður við út-
seldan mat yfir 50% en 25% á sumrin.
-GKr
Japanska kaupandanum leist bara vel á karfann úr Oddeyrinni, ef marka
má brosið á andliti hans, en Japanir eru tilbúnir að borga vel fyrir nýfryst-
an karfa. DV-mynd GVA
Karfi á Japansmarkað:
Hundrað kiónum
meira fyrir kílóið
- en ef hann væri seldur á innanlandsmarkaði
„Já, þetta verður selt á Japans-
markað í fyllingu tímans en það eru
sömu kaupendur og verið hefur og
það er þvi ekkert óvenjulegt við þessi
viöskipti. Hvað verðið verður er ekki
ákveðið og um það get ég ekki sagt
fyrr en kaupin hafa tekist,“ sagði
Jónas Hallgrímsson, starfsmaöur hjá
Samheija h.f„ sem gerir út Oddeyr-
ina.
Oddeyrin er frystitogari og fékk 109
tonn af karfa í síðasta túr sem munu
verða seld heilfryst til Japan.
Samkvæmt heimildum DV fengust
120 krónur fyrir kílóið í síðustu sölu
og vonast menn til að verðið verði
ekki lægra. Jónas Hallgrímsson
sagði að það væri ekkert óvenjulegt
að karfinn til Japan seldist á hærra
verði en á fiskmörkuðunum hér
heima, en á fiskmörkuðunum er
verðið 20-24 krónur á kílóið. Þessi
karfi væri frystur, hausaður og búið
aö taka innyflin úr honum.
Oddeyrin er frystitogari og mun
ekki selja til Japan í gegnum hin
hefðbundnu sölusamtök. Miklu
skiptir fyrir verðiö aö karfinn líti
sem best út og munu Japanirnir vilja
hafa hann sem rauðastan. Þess vegna
er hann heilfrystur strax, því eftir
nokkra tíma án frystingar fer litur-
inn að dofna.
Flugleiðir ræða við þrjá starfshópa
„Flugfreyjur sendu inn bréf og
óskuðu eftir viðræðum og því hefur
verið svarað jákvætt. Eins og marg-
oft hefur verið sagt htur félagið ekki
á þetta sem samningaviðræður þar
sem samningar eru bundnir í lög
fram í apríl 1989, en Flugleiðir er allt-
af tilbúnar að ræða við starfsmenn
um stöðu félagsins og stefnu,“ sagði
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða.
Ekki hefur verið dagsettur fundur
Flugleiða og flugfreyja en hann mun
verða á næstunni. Munu þá Flugleiö-
ir eiga í viðræðum við þrjár starfs-
stéttir, flugmenn, flugvirkja og flug-
freyjur. Það sem aðallega mun vera
rætt er túlkun á kjarasamningnum
og vinnutimareglur en einnig var
rætt við flugmenn um tilhögun leigu-
verkefna og þá einkum útivistar-
tíma.
JFJ
Ókyrrð við Kröflu:
Skjálftatíðni svipuð
og síðast þegar gaus
- segir jarðfræðingur í Mývatnssveit
„Hér er mjög ákveðið landris og
skjálftatíðni meiri en eðlilegt getur
talist, 50-60 skjálftar á sólarhring.
Það er svipað og var fyrir fjórum
árum þegar síðast gaus. Líkumar á
eldgosi eru meiri en undanfarið
vegna landrisins en ég myndi ekki
telja þær miklar. Þegar skjálfta-
virkni eykst hlýtur eitthvað aö láta
undan í jaröskorpunni, annaðhvort
verður kvikuhlaup, það er landsig,
ellegar eldgos. Spumingin er hvað
jarðskorpan þolir áður en fer að
gjósa,“ sagði Armann Pétursson
jarðfræðingur sem staddur var í
Mývatnssveit í morgun.
„Með landrisi er vaxandi þrýsting-
ur á kvikuhólfinu og þvi meira álag
á jarðskorpunni sem viö vitum ekki
hvaö er sterk. Ef hún rofnar verður
eldgos. Ég tel ekki mjög miklar líkur
á eldgosi en það er erfitt að meta í
tölum. Ef við miöum við fyrri tíma
myndi ég telja minni en helmings lík-
ur á eldgosi þó að slíkar tölur séu
lítils virði,“ sagði Guðmundur E. Sig-
valdason, forstööumaður Norrænu
eldfj allastöðvarinnar.
Almannavarnanefnd Skútustaöa-
hrepps hefur stöðvað umferð um
Leirhnjúkssvæöið á meðan jarð-
skjálftavirkni er þetta mikil. Guð-
mundur E. Sigvaldason sagði að
meðan þrýstingur færi vaxandi og
einhverjar líkur væm á eldgosi eða
gufusprengingum væri ekki á það
hættandi að láta fólk vera þar á ferð-
inni.
Um gufubólstra viö Heklu sagði
Guðmundur að þeir sæjust oft, eink-
um þegar gott væri veður. Tindur
eldfjallsins væri heitur og því kæmu
oft gufur og reykjarbólstrar frá því,
þar hefðu hins vegar ekki veriö nein-
ir skjálftar. Siguijón Pálsson, bóndi
á Galtalæk, sagði að hann hefði ekki
orðið var við neina gufubólstra frá
Heklu, það væri misskilningur. Eng-
ir skjálftakippir hefðu fundist og allt
í mestu rólegheitum. JFJ
Gersamlega út í hött
- seglr Þórður Friðjónsson um harðar ásakanlr Jóns Baldvins
„Þetta er aö sjálfsögðu út í hött.
Viö höfum engan áhuga á aö lýsa
stöðu ríkissjóðs betri eða verri en
hún er í raun,“ sagði Þórður Friö-
jónsson, forstööumaöur Þjóðhags-
stofnunar, í viðtali viö DV í morgun
um harðar ásakanir á Þjóðhags-
stofinun, sem koma frá gármála-
ráðherra, í Alþýöublaöinu í dag.
Þórður sagði, að þetta væri ekki
ágreiningur um staöreyndir heldur
hvaö staöreyndirnar segðu. Fjár-
málaráöuneytið vildi segja stöðu
ríkissfjóös öðruvísi en Þjóðhags-
stofnun sæi hana. Þjóöhagsstofnun
byggði aö mestu á tölum frá fyrstu
5 mánuöum ársins en síöan á síð-
ustu áætlun fjármálaráöuneytisins
sjálfs, þar sem kæmi fram aö halli
ríkissjóðs yröi á árinu 573 milljónir
króna. Fyrstu 5 mánuðina_ heföi
hallinn verið 3,7 milljarðar. í texta
Þjóðhagsstofnunar væri einungis
lýst staöreyndum, svo sem að mik-
ið aöhald þy rfti síðari hluta ársins.
Jón Baldvin segir í Alþýðublaö-
inu í dag aö texti Þjóöhagsstofnun-
ar sé svo villandi aö hann geti ekki
flokkast undir annaö en rangfærsl-
ur aö yfirlögöu ráöi. í þjóöhags-
spánni segi aö tekjuhalh á A-hluta
ríkissjóðs hafi veriö 3,7 milljaröar
fyrstu 5 mánuði ársins. Réttar tölur
um tekjuhallann fýrstu 6 mánuð-
ina séu hins vegar 2,9 miiljarðar.
Fjármálaráðherra virðist því
vera aö tala um fyrstu 6 mánuðina,
þar sem Þjóðhagsstofnun segist
hafa byggt á áætlun fjármáiaráöu-
neytisins fyrir sjötta mánuöinn.
-HH
JFJ