Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR 14. JÚLl 1988.
Lífsstfll
Yfirstærðir:
Konur eiga oft
erfitt með að fá
fallegan fatnað
„Eg ætla að fá dökkbláar buxur,
kápu og skyrtu númer 52," segir
kona nokkur. „Viltu ekki máta?"
spyr afgreiðslustúlkan í grandaleysi.
„Nei, nei," segir konan. „Ég veit að
þetta númer passar mér alveg." Af-
greiðslustúlkan finnur það sem beðið
var um. Konan borgar fyrir flíkurnar
^ og heldur heim með fótin í poka þar
sem hún þorir loksins að ganga úr
skugga um hvort þau passa.
Stórar konur eiga oft í vandræðum
með að fá á sig falleg fót sem klæða
þær. Flestar verslanir selja eingöngu
fót i númerunum 36-42 og sumar
Tískan
kannski upp í númer 44. Einstaka
verslun hefur svo kannski eina flík
í stórum númerum.
Háðsglósur í verslunum
Lengi hefur verið alið'á minnimátt-
arkennd þess hóps sem notar fót í
yfirstærðum. Ef kona, sem notar stór
fatanúmer, hefur komið inn í tísku-
fataverslanir hefur hún oft mátt
sætta sig við háöslegt augnaráö og
glósur eins og: Viö eigum alveg ör-
ugglega ekkert sem passar á þig.
Þetta, ásamt öðru, hefur svo orsakað
-fcþað að konur missa virðingu fyrir
eigin útliti og líkama. Það eina sem
þær velta fyrir sér er hvort einhvers
staðar séu til fbt til aö hylja nekt
þeirra án tillits til þess hvort fatnað-
urinn sé fallegur. Margar hafa líka
orðið að sætta sig við þaö að fá ekki
Hvítur og dökkblár
sparikjóll en hann fæst í
flestum númerum.
á sig fót nema í svörtu eða dökkbláu,
litum sem sagt er að grenni án þess
að það sé alltaf raunin. Sniðin skipta
alveg jafnmiklu máli í þvi sambandi.
Það er útbreiddur misskilningur að
dökk fót séu þau sem henta í öllum
tilvikum best. Þrekvaxnar konur
geta eins og allar aðrar konur gengið
í öllum regnbogans litum, svo fram-
arlega sem liturinn og sniðin henta
vaxtarlagi þeirra.
Verslunum fjölgar hægt
Lengst af hafa stórar konur orðið
að láta sérsauma á sig fatnað eða þá
að fara után og kaupa hann þar.
Ekki er ýkja langt síðan farið var
að selja fatnað í yfirstæröum hér á
landi en nú á síðustu árum hefur
þeim verslunum farið fjölgandi sem
hafa shkan fatnað á boðstólum þó
enn séu ekki margar verslanir sem
selja fatnaö í stærðum frá 50-60 en
þeim fer fjölgandi. Enda má ef til
vill segja að markaðurinn fyrir fatn-
að í númerum 36-42 sé löngu orðinn
mettur.
DV leit inn í nokkrar verslanir sem
selja fatnað í stórum númerum. Það
skal tekið fram að ekki er hér um
neina tæmandi könnun að ræða, ein-
ungis er stiklað á stóru og því hafa
einhverjar verslanir, sem selja fatn-
að í yfirstærðum, getað orðið útund-
an.
Fatnaður í öllum regnboqans
litum
Verðlistinn við Laugalæk hóf sölu
á fatnaði í yfirstærðum árið 1965. Þar
geta konur fengið finnsk og dönsk fót
í öllum númerum, sama hvort þær
nota númer 36 eða 56. Úrvahð af fatn-
aði í versluninni er gott því þar er
hægt aö fá buxur, boli, kápur, skyrt-
ur, pils og svo framvegis, eða allan
aimennan klæðnað.
M. Manda í Kjörgarði sérhæfir sig
Léttur rykfrakki en þeir fást
í öllum númerum.
■
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
síma, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 5.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
Klæðileg dragtfrá Verðlistanum.
DV-myndir GVA
eingöngu í fatnaði í yfirstærðum.
Fötin þar eru ýmist innflutt eða
María Manda saumar þau sjálf og svo
er hluti af því sem fæst í versluninni
hannaöur af Möndu og saumaður á
saumastofum hér. í versluninni er
hægt aö fá margs konar fatnað í öll-
um regnbogans htum. Má þar nefna
gallabuxur, skyrtur, kjóla, gott úrval
af jökkum, boli og peysur og þar hef-
ur einnig verið til sölu leðurfatnað-
Fatnaður í yfirstærðum er
ekki dýrari en fatnaður í
standardstærðum
Stelpulegur sumarfatnaður í
dökkbláu og hvitu.
Það eru ekki margar versl-
anir sem selja fatnað í yfir-
stærðum en þeim fer fjölg-
andi.