Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
5
Fréttir
Brunamálastofnun:
Úttekt á hús-
næði fatlaðra
um allt land
í framhaldi af frétt DV um aö unn-
iö væri að uppsetningu eldvarna-
kerfa í allt húsnæði Ríkisspítala,
fengust þær upplýsingar hjá Bruna-
málastofnun ríkisins aö verið væri
aö gera úttekt á öllu húsnæði á
landinu þar sem fatlað fólk býr, þar
á meðal húsnæði Öryrkjabandalags-
ins í Hátúnshúsunum. Væri búið að
gera skýrslu um ástandiö á 26 stöð-
um og búið að safna upplýsingum
um alla aðra staði þar sem fatlaðir
búa. Ekki fengust nánari upplýsing-
ar um ástand þessa húsnæðis, þar
sem verið er að vinna að skýrslum
um málið.
Er úttekt þessi gerð að beiðni fé-
lagsmálaráðuneytisins. Þar fengust
þær upplýsingar að þessi mál væru
alltaf í skoðun. -hlh
Fékk Ifik í trollið
Ómar Garöaisson, DV, Vestmarniaeyjum:
Togbáturinn Vonin ST 6 fékk lík í
trollið í fyrri viku þar sem báturinn
var að veiöum djúpt suö-austur af
Stórhöfða. Líkið var sent til Reykja-
víkur og rannsakað þar og að sögn
lögreglu hafa verið borin kennsl á
líkið. Um er að ræða líkamsleifar
Guðfinns Þorsteinssonar, Brekastíg
6 hér í bæ, sem fórst með mb Hvít-
ingi 2. september sl. Tveir voru á
bátnum, auk Guöfmns var Óli Krist-
inn Sigurjónsson á Hvítingi.
Frábært úrval af jogginggöllum
heimta heggur í
kaupmáttinn
- Þjóðhagsstofnun ræðst á stjóm ríkisfjármála
í spá Þjóðhagsstofnunar er þungur
áfellisdómur yfir ríkisfjármálum.
Þar er bent á að tekjuhalli ríkissjóðs
í maílok sé 3,2 milljörðum meiri en
ætlað hafði verið að hann yröi í árs-
lok. Hrein lánsþörf ríkissjóös fyrstu
fimm mánuði ársins var því 4,1 millj-
aröur sem hefur að langmestu leyti
verið mætt með yfirdrætti við Seðla-
bankann sem nemur tæpum 4,3 mill-
jörðum.
Þá er vakin athygli á því að fyrstu
fimm mánuði ársins hefur ríkissjóð-
ur aukið eftirspurn í hagkerfmu um
2,9 milljarða. En til samanburðar
má nefna að stefnt hafði veriö að því
að ríkissjóður drægi úr eftirspurn
um rúmlega 4 milljarða þegar á allt
árið er litið.
Þetta gerist þó ríkissjóöur hafi auk-
ið skattheimtu sína gífurlega. Gert
er ráð fyrir að kaupmáttur atvinnu-
tekna á mann verði því sem næst
óbreyttur milli áranna 1987 og 1988.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á
mann er hins vegar tahnn dragast
saman um 1%. Hagfræðingar Þjóð-
hagsstofnunar útskýrðu þennan
mun með aukinni skattheimtu.
í lok spár Þjóðhagsstofnunar segir
að veruleg umskipti þurfi að verða í
ríkisfjármálum til að áætluð sam-
dráttaráhrif ríkissjóðs birtist í efna-
hagslífinu. -SMJ
Ari Þorsteinsson, forstöðumaöur
tækni- og þróunardeildar KASK, sem
unnið hefur að undirbúningi fyrir
þessa vinnslu síðasthðin tvö ár og
að koma humrinum á markað er-
lendis.
Hingað til hefur aðeins hluti hum-
arsins verið nýttur, þaö er halinn,
en nú er skepnan öll sett í eins kílóa
fahegar pakkningar. Humarinn þarf
aö vera tandurhreinn og algjörlega
laus við sortamyndun. í vor voru
settar humarþvottavélar í tvo báta
og hafa þær reynst vel.
Allmikinn vélabúnað þarf fyrir
þvott, hreinsun og kemíska efna-
blöndu, sem þarf að vera mjög ná-
kvæm og er breytileg eftir því hvert
humarinn er seldur. Búið er að vinna
14 tonn og senda til Danmerkur,
Frakklands og Sviss og voru kaup-
Ari Þorsteinsson, forstöðumaður tækni- og þróunardeildar KASK, og Arni
Scheving, verkstjóri í humarfrystingunni, með fallegan humar.
DV-mynd Ragnar
endur mjög ánægðir og hafa borist
fleiri pantanir en hægt verður að
sinna í sumar. Danir eru svo milhlið-
ir um sölu á humrinum til Ítalíu.
Sjómenn fá 25-30% hærra verð fyrir
heilan humarinn en halana.
Ari Þorsteinsson sagði að nú ættu
ahir byrjunarörðugleikar í þessari
framleiöslu aö vera úr sögunni. Nú
væri bara að vinna og selja og það
væri óneitanlega mjög gaman þegar
framleiðandinn fengi tækifæri til að
selja sína vöru beint til viðtakenda.
Þettá væri byggðastefna í hnotskum,
sú eina og sanna byggðastefna, sagði
Arí.
»hummel^
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40 REYKJAVÍK SlMI 83555
Júlía Imsland, DV, Höfiv
Ný aðferð í vinnslu humars hefur
verið reynd með góðum árangri hjá
fiskiðju KASK - Kaupfélagi Austur-
Skaftfelhnga - í sumar og er hún í
því fólgin að pakka humrinum heil-
um í neytendapakkningar. Það er
Aukin skatt-
litur:
blátt/
lilla/grátt
Verö 4.380,-
Póstsendum
HUMMEL BARNA-JOGGINGGALLAR
MEIRI HÁTTAR ÚRVAL
Litir: rautt, blátt, grænt
Verð 2.460,-
Unnið við humarinn i fiskiðju KASK.
DV-mynd Ragnar
Heili humarinn
slær í gegn
- Ekki hægt að afgreiða í sumar allar pantanir sem berast