Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
Sandkom
Hvað ersvonafor-
kastanlegt...?
„Hvaðersvona
forkastanlegt
viðárásinaá
írönskuþot-
una?"spyr
Moggiílýrir-
sögnáfrétta-
skýringan>istli
ígær.íheilagri
vandlætingu
yfir því gaðra-
foki sem skotæfing bandariska Qot-
ans á Persaflóa olli. Vissulega eru
hörmuð þau hræðiJegu mannlegu
mistök að 290 saklausir borgarar
skyldu láta lífið í æfingunni en ýmis-
legt er nú hægt að tína til, mönnunum
til málsbóta. Það kom í ljós að loft-
vamakerfiö, sem talið erþaðfuli-
komnasta i heimi, ogvarum borð í
herskipinu, hefur aldrei verið próiað
fyllilega. Svo er einnig bent á að koll-
egi skipherrans á Vincennes hikaöi
við að skjóta á aðvifandi flugvél fyrir
rúmu ári. Þar reyndist um herþotu
að ræöa og 37 sjóliöar týndu lífi. Því
hefði verið fullkomlega réttlætanlegt
núna að hika ekki heldur skjóta.
Skjótafyrstogspyijasiðan! Eins og
sagt er í kúrekamyndunum.
Meirl skilningur!
ífréttaskýring-
unnierárásiná
írönskufar-
þegavéiinabor-
insamanviö
þaðvoðaverk
ersovéskar
herþoturskutu
niðurs-kóreska
farþegavélmeð
269mannsinn-
anborðsfyrir
fimm árum....má telja hinum sið-
arnefndu (Bandaríkjamönnum) til
tekna að þeir viðurkenndu mistök sin
10?; stundu eftir atvikið en langur
tími ieið áður en Sovétmenn viöur-
kenndusínmistök." Þessistaðreynd
hiýtur að sefa sorg ættingja hinna
látnu og fá þá til að gleyma þessu
leiöinlega óhappi! Fréttaskýringin
heldur áfram:, ,Þessi staðreynd kann
líka aðeiga sinn þátt í því að árásin
á Persaflóa, á alþjóðlegri fiugleið,
skuli mæta meiri skilningi en atvik
þaö er Sovétmenn „eyddu skotmarki
sínu“ innan sovéskrar lofthelgi.'‘ Þar
höfum við þaö! Sovétmenn, ,eyddu
skotmarki sínu“ á meðan Banda-
rikjamönnum urðu á „hræðileg tnis-
tök“!
Tvö hundruð og
tuttugu dagar!
Þorstlátir
mennhalda
áfram að rífa af
þjórdagatalmu
sínu.Meðdeg-
inumídageru :
nákvæmlega
tvöhundruðog
tuttugudagar
þartilíslend-::
ingargeta
keyptbjórlög-
lega, ánþessað
þurfaaðleggja
á sig langar og strangar utanlands-
ferðir. Bjórdagatalið er reyndar ekki
eini undirbúningur bjórunnenda hér
á landi fyrir daginn stóra. Einn góö-
kunningi Sandkoms vildi hafa vaðiö
fýrir neðan sig og er þegar búinn að
sækj a um vikufW fr á störfum frá og
með 1. mars! Hann hefur einnigkvatt
vini sína til aö gera slíkthiö sama svo
að þeir geti i sameiningu fagnað bjór-
komunni á viðeigandi hátt.
Rómantíkin lifi!
Miðaldrahjón
síitusíimaní
stofunnieitt
laugardags-
kvöldoglásu,
hann dagblað
enhúnljóða-
bók.þarsem
sjónvarpið
þeirra varbil-
að. Skyndilega
hróparkonaní
heilagrivand-
lætingu:„Þetta
er þó það grófasta og frekasta sem
ég hef séð! Hér er einh ver náungi sem
kallar sig Tómas Guðmundsson bú-
hm að stela frá orði til orðs kvæðinu •
sem þú ortir til mín þegar viö trúlof-
uðumokkur!“
Umsjón Axel Ammendrup
Fréttir
Merkingar á matvælum
í hrikalegum ólestri
- allt fljótandi í litar- og rotvamarefnum sem enginn veit af
Að undanfórnu hafa aukaefni þau
sem í matvælum finnast orðið að
umtalsefni í kjölfar margendurtek-
inna brota matvælafyrirtækis. Við-
brögðin við þessum fréttum hafa ver-
ið sterk og margir orðið til að lýsa
yfir óánægju sinni með ástandið hér.
Einn viðmælenda blaðsins tók svo
sterkt til orða að segja að við íslend-
ingar værum áratug á eftir öðrum
þjóðum hvað varðar eftirlit og um-
fjöllun um þessi efni og væri í raun
ótrúlega lítil umræða um það hvað
við látum ofan í okkur.
Blaðamaður DV fékk tvo einstakl-
inga, sem hafa látið þessi mál mikið
til sín taka, í verslunarleiðangur með
sér. Var ætlunin að rýna lítillega í
þau matvæli sem á boðstólum eru
og reyna aö velta fyrir sér raun-
verulegu efnainnihaldi þeirra og hve
auðvelt væri að komast að því. Það
voru þau Davíð Gislasson læknir og
Sigríður Jóhannsdóttir sem góðfús-
lega féllust á að koma í þennan leið-
angur.
„Náttúruleg litarefni og leyfileg rot-
varnarefni" voru merkingar sem
skreyttu pakka af islenskri sild.
„Þetta segir okkur ekkert um inni-
haldið," sögðu Davíð og Sigriður.
DV-myndir GVA
Ofnæmisvaldar eru víða
Davíð hefur fengist við ofnæmis-
sjúkdóma og því kynnst mjög vel
áhrifum þeirra aukaefna sem í mat
finnast. Davíð var ómyrkur í máli
yfir ástandinu og sagði að brýnt væri
að grípa til einhverra aðgerða strax.
Ofnæmisvaldar væru geysilega víða
í mat og það án þess að þaö sé tekið
fram á viðunandi hátt. Viðunandi
lagasetning hefur látið á sér standa
þótt brýnt sé að herða reglur um
merkingar matvæla.
Sigríður hefur ofnæmi fyrir fiski
og fiskafurðum og hefur á liönum
árum þurft að hafa mikiö fyrir því
að finna þau efni sem koma henni
illa. Sagði hún aö það væri ótrúlegt
hve víða fiskafuröir væru notaðar.
Það kæmi mjög oft fyrir að ekki
væri unnt aö sjá á umbúðum hvað
væri í matvælum og hún þyrfti á
kvalafullan hátt að prófa sig áfram.
Fimmtán prósent þjóðarinnar
með ofnæmi
Það eru kannski margir sem velta
því fyrir sér hvort það skipti í raun
nokkru máh hvaða efni eru notuð í
matvæli, svo framarlega sem þau eru
ekki bráðhættuleg. Það er hins vegar
svo að mörg aukaefni, sem í matvæl-
um eru, valda ofnæmi hjá stórum
hluta fólks. Það er svo að sjálfsögðu
misjafnt hve iila fólk fer út úr þessu
ofnæmi, einkenni geta verið væg hjá
sumum meðan þau eru lífshættuleg
hjá öðrum.
Davíð sagði að um 15% þjóðarinnar
þjáðust af svokölluöu bráðaofnæmi.
Fæðuofnæmi, eins og Sigríður er
með, er hins vegar sjaldgæfara.
Það er hins vegar ljóst að nútíma-
maðurinn býr við langvarandi
neyslu á alls kyns aukaefnum í mat
sem mörg hver eru bæði tilgangslaus
og hættuleg. Ýmsar vangaveltur hafa
sprottið upp um áhrif þess á hkam-
ann aö innbyrða allt þetta magn og
hafa sumir bent á mögulega fylgi-
fiska. Heyrst hefur sú saga frá
Bandaríkjunum, sem hafa lengst
allra búið við þessi efni, að svo hátti
nú þar að lík séu hætt að rotna í
kirkjugörðum vegna áratugalangrar
neyslu á rotvarnarefnum. Þessi saga
er sögð innan bandaríska heilbrigð-
iskerfisins án þess að hún sé studd
vísindalegum rökum. Margir segja
þó að hún sé um margt táknræn um
ástandið.
„Leyfileg litarefni“:
Fullyrðing sem mikið er notuð
Eitt af-því fyrsta sem þau Davíð og
Sigríður bentu á var furðuleg merk-
ing sem var víða á umbúðum. í stað
þess að gera grein fyrir hvaða htar-
og rotvamarefni eru í matnum stóð
aöeins: „Leyfileg litarefni“ eða
„Leyfileg rotvarnarefni.“
„Þetta segir manni auðvitað ekkert
um þaö hvaða efni eru í vörunni,"
sagði Sigríður og Davíð benti á að
það væri varla nóg aö gefa upp núm-
erið á efnunum, helst þyrfti að taka
fram hvaða efni er um að ræða. Dav-
íð tók síldardós úr hillu og benti á
áletrunina: „Náttúruleg htarefni og
leyfileg rotvarnarefni." „Þetta er
hrikalegt dæmi um merkingu sem
segir manni ekkert."
„Óhugnanlegt hvað
rotvarnarefni eru víða“
„Eitt af því sem mér þykir óhugn-
anlegast er hvað rotvarnarefni eru
víða í matvælum. Hefur þú t.d. at-
hugað að flatkökur sem keyptar eru
í búö geymast mjög lengi og harðna
ekki eins og kökur sem eru bakaðar
heima," sagði Sigríður. Hún sagði að
fólk áttaði sig ekki á því í hve mörg-
um matvörum rotvamarefni væru.
Sagði hún að þau fyndust í hveiti og
sykri og mörgum öðrum matvörum.
Þetta væru vörur sem engum dytti í
hug að óreyndu að innihéldu rot-
varnarefni.
Þau Davíð og Sigríður voru þó sam-
mála um að alvarlegast væri þegar
rotvarnarefni væru í ferskum mat.
„Fólk verður að geta treyst því að
vara sem seld er sem fersk sé án
rotvarnarefna, það á aö vera vara
sem fólk getur borðað umhugsunar-
laust,“ sagði Davíð.
Hann benti á að í ferskt kjöt væri
oft blandað saltpétri til að tryggja að
það sé rautt og ferskt 1 útliti. Salt-
pétur væri hins vegar efni sem hefði
margvíslegar aukaverkanir. Þá sagð-
ist Sigríður hafa rekið sig á að græn-
meti væri úðað rotvamarefni. Þar
væri þó helst um að ræða innlent
efni.
„Hvarer appelsínið
og grapeið?“
Forvitnilegt var að athuga ýmsar
vörur sem flestir ganga út frá sem
vísu að innihaldi ákveðin efni. Þau
Davíð og Sigríður tóku fram eina
flösku af „þjóðardrykk“ íslendinga,
appelsíni frá Agli, og sýndu blaða-
manni merkimiða: „Hvar er appelsí-
nið, hér stendur aðeins að í drykkn-
um séu sítróna og litarefni, ekkert
um appélsínur," sögðu þau og bættu
við: „Það er líklega af og frá aö þetta
komi í stað þess að boröa appelsín-
ur.“ Sama mátti segja um grape-
drykk, þar var ekki nema sítróna.
Litarefni sáu hins vegar um aö gefa
vörunni rétt yfirbragð.
Þau sögðu að merkingar á gos-
drykkjum væru yfirleitt bágbornar
og tóku sem dæmi klassískan drykk
eins og Coke í glerflöskum. Þar var
ómögulegt að sjá nokkra innihalds-
lýsingu.
Ekki var ástandið betra í djúsnum.
„Mér hefur nú alltaf fundist þessi
vöruflokkur dáhtið ótrúlegur, en það
veröur þó að segjast að hann hefur
batnað mikiö,“ sagöi Davíð.
Fátæklegar
merkingar á kryddi
Á ýmsum vörum voru merkingar
ákaflega fátæklegar og voru íslensk-
ar vörur margar hverjar sérstaklega
slæmar. Á merkimiöa sást aöeins
nafn vöru og framleiðanda. Á sum-
um erlendu vörunum eru merkingar
til fyrirmyndar en á öörum síðri.
Erlendar vörur eru oft merktar með
tilliti til trúarskoðana neytenda, sem
t.d. borða ekki svínakjöt. Sagði Sig-
ríður að það kæmi henni stundum
vel.
Nokkrar íslenskar kryddvörur
voru nánast ómerktar og sögöu Dav-
ið og Sigríður aö það væri slæmt
vegna þess að í kryddi væri mikill
fjöldi vafasamra aukaefna.
-SMJ
Heilbrigðiseftirlitið:
Ætlar í hörku
út af bannefnum
nöfn fyrirtækja sem nota ólögleg efrii verða birt
„Við höfum fundið vörur frá
Efnagerðinni Val hingað og þangað
og viö höfum reynt að hreinsa þær
út eftir því sem efni og ástæður
segja til um,“ sagði Oddur Rúnar
Hjartarson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur,
þegar hann var spurður aö því
hvemig gengi að hreinsa úr versl-
unum vörur frá Efnagerðinni Val.
Þær reyndust sem kunnugt er
innihalda litarefnið azurrubin sem
lengi hefur verið bannað að nota
hér. Þó langt sé um liðið síöan
komst upp að efnið hefði verið not-
að er ekki enn búið að hreinsa allar
verslanir af vörum með efninu. Það
tefur vitaskuld fyrir að efnagerðin
hefur ekki sýnt neitt frumkvæði í
þvi að innkalla vörur meö þessu
efni.
„Sem betur fer er framferði
þeirra hjá Val einstakt. Þeir virðast
ekki gefa sig fyrr en við alvarlegar
hótanir," sagði Oddur Rúnar þegar
samskiptin við Efnageröina Val
voru rædd.
Það hefur vakiö furðu margra
hve lengi verksmiðjan hefur kom-
ist upp með að hundsa fyrirmæli
heilbrigðisyfirvalda. „Það má segja
að við höfum sýnt ótrúlega þolin-
mæði enda seinþreyttir til vand-
ræða. Því er hins vegar ekki að
neita að við erum orðnir lang-
þreyttir á Val. Við höfum því
ákveðið að stytta okkur leiöina í
framtíðinni og birta nöfn þeirra
fyrirtækja sem fara ekki aö fyrir-
mælum okkar.“
Oddur sagði að merkingar á mat-
vælum væru ekki góðar. Sérstak-
lega ætti það við um innlendar vör-
ur og einnig sumt af því erlenda.
Oddur sagði að nú væru mjólkur-
vörur í sérstakri athugun hjá heil-
brigðiseftirlitinu en síðan væri ætl-
unin að snúa sér að kjötvörum.
Þær væru í flestum tilvikum mjög
illa merktar.
-SMJ