Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
13
pv Útlönd
Falsarar herja
á Danmörku
Gizur Helgason, DV, Reersnæs:
íbúar frá Asíulöndum með falskar
ávísanir, vegabréf og greiðslukort
valda nú miklum vandræðum í Dan-
mörku og Vestur-Þýskalandi. Lög-
regluyfirvöld landanna tveggja hafa
nú haflð nána samvinnu í því skyni
að stöðva falsanimar.
í Vestur-Þýskalandi er talið að As-
íumönnunum hafl tekist á örfáum
dögum að svíkja út um þrjátíu millj-
ónir króna. Lögreglan í Kaupmanna-
höfn hefur nú handtekið nokkra af
sökudqlgunum en talið er aö á bak
við falsarana standi hringur glæpa-
manna í Thailandi.
Yfirmaður þeirrar defldar innan
dönsku lögreglunnar er hefur með
fjársvikamál að gera sagði í útvarps-
viðtali í gærkvöldi aö óvenju mikið
hefði verið um falskar ávísanir og
greiðslukort á þessu sumri.
Um helgina voru fimm Thailend-
ingar handteknir en þeim hafði áður
tekist að svíkja út um eina milljón
króna.
Njósnaraskipti
í undirbúningi
Gizur Helgason, DV, Reeisnæs:
Vestur-þýska blaðið Bild hefur
greint frá því að nú sé í undirbún-
ingi skipti á fjölda njósnara á milli
austurs og vesturs.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
er um aö ræða skipti á tuttugu v-
þýskum njósnurum, sem hafa setið
í fangelsi í Austur-Evrópu, og flöl-
mörgum stómjósnurum frá Sovét-
ríkjunum og Austur-Þýskalandi.
Smíða skip fyrir
5 þúsund farþega
Gizur Hejgason, DV, Reersnæs:
Fjórar v-þýskar skipasmíðastöðvar
hafa nú fengið þaö verkefni að smíða
risavaxið skemmtiferðaskip fyrir
norskan útgerðarmann. Ef flárhags-
legir endar ná saman er hér um að
ræða pöntun sem nemur um 50 millj-
örðum íslenskra króna.
Skipið á að vera 380 metra langt
og 77 metra breitt með klefa fyrir
5.600 farþega. Áætlað er að áhafnar-
meðlimir veröi 1.800. Þetta verður
fljótandi borg með leikhúsi fyrir 2.500
manns, bókasafni með 100.000 bókum
og mörgum tennisvöllum. í þar til
gerðri höfn, sem hggja á djúpt inni í
skipsskrokknum, eiga að vera flórir
bátar sem taka farþega og hægt er
að nota til skemmri skoðunarferða.
Skipið verður hið fyrsta af hinum
svonefndu sumarleyfisparadísar-
fleyjum sem koma til með að orsaka
byltingu innan ferðamannaþjón-
ustunnar. Það á að sigla með ríka
Ameríku- og Evrópumenn á Karíba-
hafi.
Það er norski skipajöfurinn Knut
Kloster sem stendur að baki verkefn-
inu en hann á nú þegar fiölda lúxus-
fleyja sem flyfla árlega þúsundir
ferðamanna um eftirsóttustu hafnir
jarðarinnar.
Það eru flórar skipasmíðastöðvar í
V-Þýskalandi sem hafa tekið að sér
verkefnið í sameiningu. Þessi glæsi-
legi farkostur verður smíðaður í flór-
um einingum og síðan settur saman
í Kiel. Samkvæmt samningunum
milli útgerðarinnar og skipasmíða-
stöðvanna eiga þær að sjá um að út-
vega bróðurpartinn af flármagningu
til verkefnisins.
Nú er komið til kasta Bonnstjórn-
arinnar og hennar er að ákveða
hversu miklu hún vill fórna til þess
að v-þýsku skipasmíðastöðvarnar
hafi næg verkefni út árið 1992. At-
vinnutækifærum í v-þýskum skipa-
smíðastöðvum hefur farið fækkandi
úr 80.000 á síðasta áratug niður í
36.000 í dag.