Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
Erlend myndsjá
Palestínsk kona við rústir heimilis síns í flóttamannabúðunum Bourj al-Barajneh í Beirút. Simamynd Reuter
Vígi kvatt
Eftir þriggja mánaða bardaga um flóttamannabúðirnar Bourj al-Baraj-
neh í Beirút sigruðu skæruliðar Abu Musa, sem studdir eru af Sýrlending-
um, skæruliða Arafats, leiðtoga Frelsishreyfmgar Paiestínumanna, þann
7. júlí síðastliðinn.
Bardagarnir undanfama mánuði hafa kostað hundrað mannslíf og gert
íbúunum lífið óbærilegt. Þótti þeim sex mánaða umsátur amal shita árið
1986, með hungursneyðinni sem því fylgdi, skárra þar sem þá var barist
gegn óvininum. Nú bárust hins vegar bræður á banaspjótum.
Skæruliði úr Frelsishreyfingu Palestínumanna
kveður fjölskyldu sína. Konur og börn grétu
er feður, synir og bræöur gengu úr búðunum
eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir Palestínu-
mönnum sem hliðhollir eru Sýrlendingum.
Símamynd Reuter
Vopnaður stuðningsmaður Arafats, leiðtoga
Frelsishreyfingar Palestinumanna, með lítinn
félaga sem hann tók með sér er hörfað var
úr flóttamannabúðunum.
Símamynd Reuter
Helsta vígi Arafats, flóttamannabúðirnar Bourj
al-Barajneh í Beirút, kvatt.
Simamynd Reuter
Flýja hitann
Ekki njóta allir sömu tækifæranna til að kæla sig í hitabylgju. Gölturinn
á meðfylgjandi mynd, sem tilheyrir húsdýrum bónda nokkurs í Bandaríkjun-
um, sá þann kost vænstan að grafa sig í leðju en feröalangarnir í Madrid
leigðu sér bát og reru í skuggann þar sem þeir lögðust til að hvíla lúin bein.
w
Hattaklipping
Hatturinn er alveg mátulegur.
Simamynd Reuter
Brasilíumaðurinn Tadeo de Espir-
ito Santo, sem alltaf gengur með hatt,
varð leiður á stríðni félaganna sem
meðal annars fólst í því að þeir tóku
af honum hattana.
Santo er þó ekki alveg laus við
græskulaust gaman sjálfur og til að
stríða kunningjunum á móti fór
hann til hárskera og pantaði hatta-
klippingu sem virðist hafa tekist
ágætlega.
Ekki fylgir sögunni hvort vinirnir
hafa reynt að taka af honum nýja
hattinn.
Léleg skotmörk
Bush þykir ekki gott skotmark skop-
teiknara. Sömu sögu má segja um
Dukakis sem þykir hrútleiðinlegur
vegna þess hve aðgætinn hann er.
Simamynd Reuter
Skopteiknurum í Bandaríkjunum
þykir forsetaframbjóðandinn Duk-
akis svo leiðinlegur og Bush svo
væskilslegur að hætta er á að þeir
nenni ekki að eyða tíma í teikna þá.
Teiknurunum þykir Reagan ennþá
besta skotmarkið.
Segja þeir Dukakis vera svo aðgæt-
inn og gefa fá tækifæri á sér fyrir
skopteiknara. Það er helst að þeir
geti núorðið gert sér mat úr því hvað
hann er leiðinlegur og nýlega teikn-
aði einn kind sem var að telja „Duk-
akisa“. Bush þykir ekki jafnaðgæt-
inn og var einu sinni teiknaður þar
sem hann var að beijast við skugg-
ann af sjálfum sér.
Herkúles sigraði
Á Spáni keppa sniglar árlega um
það hver þeirra getur dregið 240
gramma stein lengst í 10 mínútur.
Simamynd Reuter
Snigillinn Herkúles sigraði með
yfirburðum í hinni árlegu drag-
keppni snigla á Spáni á dögunum.
Keppnin gengur út á það hversu
langt þátttakendur geta dregið tvö
hundruð og fjörutíu gramma steina
í tíu mínútur.
Eigandi Herkúlesar, sem er átta
ára gamall, gat fagnað sigri með hon-
um því engum öðrum tókst að draga
sinn stein jafnlangt og Herkúles eða
hvorki meira né minna en fjörutíu
og tvo og hálfan sentímetra.
Hann sigraði sjötíu og átta kepp-
endur sem margir hverjir voru
dæmdir úr leik þar sem þeir fóru í
vitlausa átt eða skriðu upp á stein-
ana. Nokkrir keppenda komu alls
ekki út úr húsum sínum.