Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Page 25
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
25
ilenska landsliðinu gegn Pólverjum í gær og skoraði tvö mörk.
Símamynd/Reuter
Stærsti sigur
á A-Evrópuþjóð
frá upphafi
- ísland sigraði Pólland 26-15 í Dessau eftir 14-5 í hléi
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Halle:
„Vörnin var sterkasti hlekkur
liðsins í leiknum, markmennimir
stóðu einnig vel fyrir sínu. Pólverjar
hafa reyndu liði á að skipa en þeir
áttu samt enga möguleika gegn okk-
ur. Að leggja landa sína að velli er
sérstök tilfinning en ég er umfram
allt þjálfari íslendinga í handknatt-
leik og á þeim vettvangi hef ég mik-
inn metnað að standa mig vel,“ sagði
Bogdan Kowalczyck, landsliðsþjálf-
ari íslands, í samtali við DV eftir að
íslendingar höfðu sigrað Pólverja
26-15 á austur-þýska handknattleiks-
mótinu í Dessau í gærkvöldi. íslend-
ingar höfðu yfirburðaforystu í hálf-
leik, 14-5. Þetta er langstærsti sigur
íslendinga á Austur-Evrópuþjóð frá
upphafi.
Pólverjar áttu ekkert svar
Pólverjar náðu að skora fyrsta
markið en íslendingar náðu síðan
undirtökunum. Pólverjar áttu ekkert
svar við góöum varnarleik íslenska
hðsins. Einar Þorvarðarson varði
mark íslands í fyrri hálíleik og varði
oft á tíðum glæsilega. Greinilegt aö
með hverjum leik verður íslenska
liðið sterkara þrátt fyrir að Bogdan
sé enn ekki farinn að þjálfa leikkerfi
sem neinu nemi. Einungis þrekæf-
ingar hafa verið stundaðar á síöustu
fimm vikum.
í fyrri hálfleik varð markamunur-
inn sífellt meiri en mestur var hann
í hálfleik eða níu mörk.
Ajlir fengu tækifæri
í síðari hálfleik gaf Bogdan leik-
mönnum sem lítið hafa fengið aö
spreyta sig í keppninni tækifæri og
skiluðu þeir hlutverki sínu vel.
Brynjar Kvaran fór í markið í
seinni hálfleik og varði frábærlega,
þ. á m. tvö vítaköst.
Besti kafli Pólverja
Pólverjar áttu sinn besta leikkafla
í upphafi síðari hálfleiks en þá skor-
uðu þeir fjögur mörk í röð og minnk-
uðu muninn í 5 mörk. Lengra komst
pólska liðið ekki gegn geysisterku
íslensku liði. íslendingar breyttu
stööunni í 19-9 á næstu mínútum og
spurningin var aðeins hversu stór
sigurinn yrði.
Þrumufleygar frá Sigurði
Sigurður Sveinsson lék í sóknar-
leiknum í síðari hálfleik en Kristján
Arason lék þess í stað aðeins í vörn-
inni. Sigurður skoraði tvö glæsimörk
með þrumufleygum sem yljuðu
áhorfendum í íþróttahöllinni í Des-
sau.
Eins og áður sagði er góður stíg-
andi í leik íslenska liðsins. Liðið er
í mjög góðu líkamlegu formi og með
hverjum leik kemst það í betra leik-
form.
Mætum Kínverjum á morgun
Á morgun mætir íslenska liðið Kín-
verjum og ef íslenska liðið sigrar
Kínverja mætum við Sovétmönnum
á fóstudag 'í undanúrslitunum. Með
sigri þar kemst liðið í úrslit en ann-
ars leikum viö um 3.-4. sæti.
Dómarar í leiknum voru frá Aust-
ur-Þýskalandi og dæmdu vel.
Alfreð og Þorgils
Óttar markahæstir
Alfreð Gíslason var markahæstur
ásamt Þorgils Óttari Mathiesen en
þeir gerðu 5 mörk hvor. Sigurður
Sveinsson gerði 4 mörk, þar af tvö
úr viti, Kristján Arason og Guð-
mundur Guðmundsson gerðu þrjú
mörk hvor, Páll Ólafsson og Bjarki
Sigurðsson skoruðu 2 mörk hvor og
Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson
gerðu eitt hvor.
Mörk Pólverja: Lebinedzinski 5,
Klusznik 2, Szygula 2 og þeir Niepon,
Kedziora, Maslon, Skalski, Mistak og
Staszewski 1 hver.
Góð sóknarnýting
Þess má geta að sóknarnýting is-
lenska liðsins var 59,5 prósent sem
er sannarlega glæsilegt.
Áhorfendur voru 2500 og troðfylltu
íþróttahöllina í Dessau. Flestir voru
á bandi íslenska liösins.
íslensku leikmennirnir voru sam-
tals í 10 mínútur utan vallar en þeir
pólsku í sex mínútur.
m
m
ta
ir
mnm mms
VALUR FRAM
Á HLÍÐARENDA
í kvöld kl. 20
Valsmaður leiksins fær 10 kassa af pepsí
Sá Valsmaður sem skorar þrennu fær 30 kassa af pepsí