Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Side 40
40
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
Lífsstíll
Ekki þarf flókinn útbúnað til að grilla silunginn strax að veiði lokinni. Kol, kveikilög, grind og álpappir. Steinar settir með hliðunum til að halda grindinni.
DV-myndir JAK
Silungur
Nú stendur veiði í ám og vötnum
sem hæst. Menn draga að landi fall-
ega fiska tii matar en margir hverjir
standa ráðþrota þegar kemur að
matreiðslunni.
Einfaldasta matreiðsluaðferðin á
veiðistaðnum er að grilla fiskinn viö
kol. Samt sem áður er engin nauðsyn
að taka með sér að heiman grill, nóg
er að hafa kol, kveikilög og grind.
Hins vegar fást hér í búðum lítil,
ódýr grill sem þægilegt er að hafa
með sér í stuttar ferðir.
Þegar grillað er án sérstaks grill-
tækis verður aðeins að muna eitt og
það er að skilja vel við og skemma
ekki neitt.
Grillaður heill silungur
1 silungur á mann (u.þ.b. 500 g)
Smjör
kryddsalt eða venjulegt salt
sítrónupipar eða venjulegur
pipar
Silungurinn er hreinsaður og
hreistraður vel. Smjörið er kryddaö
eftir smekk með kryddefnunum og
brætt við vægan hita. (Ath. að bræða
má smjöriö í íláti ofan á glóðunum).
Silungurinn er penslaður með smjör-
inu að utan og innan. Silungurinn
er lagður á grindina og glóöaður þar
til hann losnar frá beinunum. Fiskin-
um er snúið einu sinni eða tvisvar
og penslaður með smjörinu í hvert
skipti. Borið fram með grænmeti og
bökuðum kartöflum. Sérstaklega er
gott að kreista sítrónu yfir.
Gott er að nota sérstaka glóðar-
grind fyrir fisk. Grindin er þannig
að hún klemmist utan um fiskinn og
minni hætta er á að hann losni í
sundur þegar honum er snúið. Einn-
ig eru til hentugar grilltangir með
stórum, flötum spaða sem nær vel
yfir fiskinn.
Nætursaltaður og soðinn
Gott er til tilbreytingar að nætur-
salta silunginn. Silungurinn er flak-
aður og stráð yfir þunnu lagi af salti.
Látiö bíða á köldum stað yfir nótt.
Fiskurinn er síðan soðinn á venjuleg-
an hátt. Varist að silungurinn er
þunnur fiskur og þolir ekki mikið
salt né mikla suðu.
Jurtakryddaöur silungur
a marga vegu
Silungurinn er flakaöur og lagður á álpapir.
og kryddblanda þar yfir. Síðan er hitt flakið lagt yfir og að lokum krydd-
blöndu stráð yfir. Siðan er silungnum pakkað vel inn í pappírinn og farg
sett ofan á hann. Geymt í kæli undir fargi í einn sólarhring.
Borið fram með soðnum eða bök-
uðum kartöflum og salati.
Grafinn silungur
Grafinn silungur er ekki síðri en
grafinn lax. Mjög einfalt er að grafa
silunginn og ánægjan með heima-
grafinn silung er mikil.
1-2 flakaðir silungar
(eftir stærð)
1 msk. sykur
1 msk. salt
1 msk. dill (kúfuð ef notað
er ferskt dill, sléttfull ef
notað er þurrkað)
nýmulinn pipar
Jurtakryddaður silungur
Eftir aö heim er komið með feng-
inn, sem veiðst hefur, er hægt að
matreiða silunginn á margan máta.
Hér er silungurinn bakaður í ofni.
4-6 sneiðar silungur
'/« tsk. salt
ló dl smátt skorin steinselja
/2 dl smátt skorinn graslaukur
'/2 dl smátt skorið dill
1- 2 dl vatn
2- 3 msk. smjör
Blandið öllum jurtunum saman.
Setjið helminginn í botninn á eld-
fóstu móti. Leggið silungssneiðarnar
þar yfir og saltið. Hellið vatninu í
mótið og leggið smjörklípur yfir fisk-
inn.
Steikið flskinn í 30-35 mínútur í
225° heitum ofni. Berið fram með
soðnum kartöflum og bræddu
smjöri.
Grillaður silungur
með tsatsiki
Silungur í sneiðum
(200 g á mann)
olía til að pensla með
salt og pipar
Hafið sneiðarnar ca 2 'A sm þykkar.
Penslið sneiðamar og glóðið á báðum
hliðum. Færið ristina ofar og glóðið
sneiðamar áfram þar til þær em
steiktar í gegn.
Tsatsiki
1 litil agúrka
1 dós sýrður rjómi
'/2 dós hrein jógúrt
2 tsk. sykur
2 marin hvítlauksrif
Rífið agúrkuna niður og sigtið
vökvann frá henni. Blandið saman
sýrðum rjóma og jógúrt. Setjið sykur
og hvítlauk saman við. Rifna agúrk-
an er hrærð saman við og tsatsikið
látið bíöa í kæli í tvo tíma minnst.
Helst þyrfti að fjarlægja öll beinin
úr flakinu með flísatöng, en beinin í
silungnum em mjög smá svo hægt
er að sleppa því. Kryddinu er blandað
vel saman og síðan er V, af blönd-
unni stráð á álpappír. Flakiö er lagt
á álpappírinn með roðhlið niður.
Helmingnum af kryddblöndunni
stráð yfir og hitt flakið lagt ofan á.
Afgangurinn settur yfir roðhlið efra
fiaksins.
Álpappímum er pakkað þétt utan
um fiskinn og ;hann geymdur undir
léttu fargi í kæh í 1-2 sólarhringa.
Snúið flökunum einu sinni á sólar-
hring.
-JJ
Grillaður silungur með tsatsiki
Matur