Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Side 41
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988.
41
Gunnar Bjömsson
Gunnari Bjömssyni fríkirkjupresti
hefur veriö sagt upp störfum af
hálfu stjómar Fríkirkjusafnaðar-
ins. Gunnar er fæddur 15. október
1944 í Rvík og varð stúdent frá VÍ
1965. Hann lék í Sinfóníuhljómsveit
íslands 1960-1970 og lauk einleiks-
prófi í sellóleik frá Tónlistarskól-
anum í Rvík 1967. Gunnar lauk
guðfræðiprófi frá HÍ 1972, var
prestur í Bolungarvík 1972-1982 og
hefur verið fríkirkjuprestur í Rvík
frá desember 1982.
Gunnar kvæntist 30. september
1967 Veronicu Margaret Jarosz, f.
24. maí 1944, kennara og verka-
konu. Þau skildu. Foreldrar Ver-
onicu era Wlodzimierz Antoni Ja-
rosz, flugstjóri í breska hernum, er
lést 1943, og Margaret Joan Shac-
kleton. Börn Gunnars og Veronicu
eru Ingibjörg, f. 31. mars 1968, stúd-
ent, og Bjöm Ólafur, f. 12. febrúar
1970. Gunnar kvæntist 30. október
1982 Ágústu Ágústsdóttur, f. 20.
júní 1937, söngkonu. Foreldrar
Ágústu eru Ágúst Jónsson, sjómaö-
ur á Þingeyri í Dýrafirði, og kona
hans, Guömunda Jónsdóttir.
Systkini Gunnars eru Björn, f. 26.
janúar 1948, b. á Horni á Kjalar-
nesi, kvæntur Hrönn Scheving
læknaritara, Ragnar, f. 3. janúar
1949, veitingamaður í Mosfellsbæ,
kvæntur Ástu Jónsdóttur hjúkr-
unarfræðingi, Ragnheiður, f. 26.
desember 1952, gleraugnafræðing-
ur, gift Ásmundi Vilhjálmssyni,
framkvæmdastióra vinnumála-
nefndar ríkisins, og Oddur, f. 15.
september 1959, fyrsti básúnuleik-
ari SinfóníuhjómsYeitarinnar,
sambýliskona hans er Ásta Kristín
Gunnarsdóttir sjúkraliði. Bróðir
Gunnars, samfeðra, er Jón, f. 7.
september 1941, byggingameistari í
Rvík, sambýliskona hans er María
Alexandersdóttir.
Foreldrar Gunnars eru Björn R.
Einarsson, hljóðfæraleikari í Rvík,
og kona hans, Ingibjörg Gunnars-
dóttir. Föðursystkini Gunnars eru
Elín Hulda, sem lést 1963, gift Helga
Loftssyni skipstjóra, og Guðmund-
ur R., hljóðfæraleikari í Rvik,
kvæntur Höllu Kristinsdóttur.
Björn er sonur Einars, hárskera í
Rvík, Jónssonar, b. í Hraunkoti í
Grindavík, Jónssonar. Móðir
Bjöms var Ingveldur Bjömsdóttir
Rósenkranz, kaupmanns í Rvík,
Ólafssonar Rósenkranz háskólarit-
ara Ólafssonar, b. á Miðfelli, hálf-
bróður Jóns Guðmundssonar rit-
stjóra. Móðir Björns var Hólmfríö-
ur Bjömsdóttir, prests í Holti undir
Eyjafjöllum, bróður Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Bjöm var sonur Þorvaldar,
prófasts í Holti, Böðvarssonar og
konu hans, Kristínar Bjömsdóttur,
prests í Bólstaðarhlíð, Jónssonar.
Móðir Ingveldar var Elín, systir
Einars, fóður Steindórs, forstjóra
Steindórs, afa Geirs Haarde. Systir
Elínar var Ingveldur, móðir Sveins
Þórarinssonar hstmálara. Elín var
dóttir Bjöms, b. á Litla-Hálsi í
Grafningi, Oddssonar, bróður
Kristínar, langömmu Gissurar,
fóður Hannesar Hólmsteins. Móðir
Björns var Jórunn Magnúsdóttir,
b. í Þorlákshöfn, Beinteinssonar,
lögréttumanns á Breiðabólstað í
Ölfusi, Ingimundarsonar, b. í Hól-
um, Bergssonar, b. í Brattholti,
Sturlaugssonar, ættföður Bergs-
ættarinnar.
Móðursystkini Gunnars eru Jó-
hanna, framkvæmdastjóri, er látin,
var gift Gunnari Guðmundssyni,
aðalbókara Útvegsbankans, Ragn-
heiður, gift Braga Hannessyni
bankastjóra, Elísabet, gift Júlíusi
P. Guðjónssyni stórkaupmanni, og
Ólafur rithöfundur, kvæntur Elsu
Benjamínsdóttur. Ingibjörg er dótt-
ir Gunnars, bílstjóra í Rvík, bróður
Ásbjarnar stórkaupmanns. Gunn-
ar var sonur Olafs, kaupmanns í
Rvík, Ásbjörnssonar, b. í Innri-
Njarðvík, Olafssonar, b. í Njarðvík,
Ásbjömssonar, b. í Njarðvík,
Sveinbjarnarsonar, bróður Egils,
fóöur Sveinbjarnar rektors og
skálds. Móðir Ólafs kaupmanns
var Ingveldur, systir Sigríðar,
ömmu Bjama blaðafulltrúa, Guðna
rektors og Sigríðar Guðmunds-
dóttur, konu Halldórs Halldórsson-
ar prófessors. Ingveldur var dóttir
Jafets, gullsmiðs í Rvík, bróöur
Ingibjargar, konu Jóns forseta.
Annar bróðir Jafets var Ólafur,
faðir Þorláks Johnsons, kaup-
manns í Rvík. Jafet var sonur Ein-
ars Johnsens, kaupmanns í Rvík,
bróður Sigurðar, föður Jóns for-
seta.
Móöir Gunnars var Vigdís, systir
Ólafs, fóður Odds, fyrrv. yfirlæknis
og alþingismanns. Vigdís var dóttir
Ketils, b. og dbrm. í Kotvogi, Ketils-
sonar. Móðir Ketils var Vigdís
Jónsdóttir, b. og dbrm. í Stóru Vog-
um, Darúelssonar, fóður Magnúsar
Waage, ættfóður Waageættarinn-
ar.
Móðir Vigdísar Ketilsdóttur var
Vilborg, systir Sigríðar, langömmu
Kristjönu, móður Garðars Cortes.
Vilborg var dóttir Eiríks, b. á Litla-
Fólk í fréttum
Gunnar Björnsson.
landi í Ölfusi, Ólafssonar og konu
hans, Helgu Jónsdóttur, b. á Vind-
ási á Landi, Jónssonar, b. á Vind-
ási, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk,
Halldórssonar, ættfóöur Víkings-
lækjarættarinnar.
Móöir Ingibjargar var Ragnheið-
ur Bogadóttir, kaupmanns í Búö-
ardal, Sigurðssonar, bróður Björns
bankastjóra, afa Níelsar P. Sigurðs-
sonar sendiherra. Móðir Ragn-
heiðar var Ragnheiður, systir
Bryndísar, ömmu Geirs Hallgríms-
sonar. Ragnheiöur var dóttir Sig-
uröar Johnsens, kaupmanns í Flat-
ey, og konu hans, Sigríðar Brynj-
ólfsdóttur, kaupmanns í Flatey,
Bogasonar, fræðimanns á Staðar-
fehi, Benediktssonar, ættfóður
Staðarfellsættarinnar.
Afmæli
Sigurður Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson, Eiríks-
götu 21, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Sigurður er fæddur að Borgum í
Nesjahreppi í Austur-Skaftafells-
sýslu. Hann flutti ársgamall að
Reykjanesi í Grímsnesi og þaðan
að Nesi í Selvogi árið 1928. Sigurður
vann í Nesi til ársins 1948 en flutti
þá til Reykjavíkur og starfaði hjá
Mjólkurfélagi Reykjavíkur sem bíl-
stjóri til 1955. Þá hóf hann störf á
Sendibílastöðinni og starfaði síðan
að mestu leytl hjá ÁTVR, en hann
hætti störfum árið 1984 vegna veik-
inda.
Siguröur er giftur Laufeyju Þor-
valdsdóttur, dóttur Þorvalds Ólafs-
sonar, sjómanns í Reykjavík, sem
var ættaður úr Keflavík, og Þór-
unnar Halldórsdóttur sem var ætt-
uö úr Selvogi.
Synir Sigurðar og Laufeyjar eru
Sigurður Guðmundsson.
Guömundur, bifreiðastjóri í Kópa-
vogi, f. 1.9. 1952; Öm, rafvirki í
Reykjavík, f. 21.3. 1954, og Sigurð-
ur, rafvirki hjá Rarik, f. 4.8.1955.
Börn Laufeyjar frá fyrra hjóna-
bandi eru Guðbjörg Ásgeirsdóttir
hjúkrunarfræðingur, f. 3.4.1939, og
Þorvaldur Ásgeirsson bygginga-
tæknifræðingur, f. 1.1.1948.
Af systkinum Sigurðar em fjögur
á lífi. Þau eru Málfríður, Jón, Þor-
björg og Nanna. Þijú systkini hans
eru látin, Bergljót, Ragnar og Ari.
Hálfsystir Sigurðar var Magnea en
hún bjó á Selfossi. Uppeldisbróöir
Sigurðar er Haukur Guðmunds-
son.
Foreldrar Sigurðar voru Guö-
mundur Jónsson og Ingibjörg
Jónsdóttir. Foreldrar Guðmundar
voru Jón Guðmundsson, b. að
Borgarhöfn í Suðursveit, og kona
hans, Málfríður Jónsdóttir frá
Odda á Mýrum í Austur-Skafta-
fellssýslu. Foreldrar Ingibjargar
-voru Jón, b. í Dal í Lóni, og Þórunn
Jónsdóttir.
Sigurður dvelst á sjúkrahúsi um
þessar mundir.
Bjarney Guðmundsdóttir
Bjarney Guðmundsdóttir, Elli-
heimilinu á ísafirði, Mánagötu 5,
er níræð í dag.
Bjarney fæddist að Hrafnabjörg-
um í Ögurhreppi og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hún stundaði öll
almenn sveitastörf sem unglingur
og var síðan í kaupamennsku á
bæjum í Djúpinu, auk þess sem hún
var við fiskverkun á Isafirði.
Bjarney réðst ráðskona að
Hraundal í Nauteyrarhreppi við
Djúp 1938 og var húsfreyja hjá
Guðmundi b. þar Eyjólfssyni til
1947 er þau fluttu til ísafjarðar. Þau
bjuggu síðan á ísafirði þar sem
Guðmundur stundaði almenna
verkamannavinnu en hann lést
1984.
Dóttir Bjarneyjar er Kristín Jóns-
dóttir, húsmóðir á ísafirði, gift
Gunnari Ólafssyni húsasmið þar.
Þau eiga þrjá syni og eina dóttur.
Bjarney átti fimm systur og tvo
bræður en systkini hennar eru nú
öll látin. Þau voru: Elísabet; Hans-
ína; Guðmundína; Halldóra, sem
dó á barnsaldri; Jón og Jón Her-
mann, sem báðir dóu á barnsaldri,
en hálfsystir Bjameyjar, samfeðra,
var Kristín Guömundsdóttir.
Foreldrar Bjarneyjar vom Guð-
mundur, útvegsb. í Hrafnabjörg-
um, Bjarnason á Langadalsströnd
og i Hagakoti, Einarssonar, og kona
hans, Kristín Benediktsdóttir.
Leiðréttingar
í afmælisgrein um Málfríði Sigfús-
dóttur, sem varð níræð mánudaginn
11. júlí, féll niður málsgrein um sam-
býlismann hennar, Eggert Loftsson,
f. 1906, sem lengi var starfsmaður hjá
Loftleiðum. Foreldrar Eggerts: Loft-
ur Guðmundsson, b. á Strönd, og
kona hans, Guðbjörg Björnsdóttir.
Eggert á eina systur á hfi, Guðleifu
Loftsdóttur.
Ingibjörg Bryndís Eiríksdóttir varö
áttræð miðvikudaginn 6. júlí. Seinni
kona fööur hennar var Kristín Ein-
arsdóttir og eignuðust þau níu börn.
Ingólfur Skúlason, sem var sagöur
fertugur laugardaginn 9. júlí, átti af-
mæh 9. júní.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og að-
standendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Jóhann
Egill
Hólm
Jóhann Egill Hólm, matsveinn á
Sjúkrastöðinni Vogi, er fertugur í
dag.
Hann er kvæntur Helgu Jóns-
dóttur og búa þau að Hraunbæ 198
í Reykjavík.
Jóhann Egill Hólm.
Til hamingju með daginn
85 ára
Frímann S. Jónsson, Karfavogi 27,
Reykjavík.
80 ára_____________________
Alfreð Friðgeirsson, Álfhólsvegi 53,
Kópavogi. Hann verður ekki heima
á afmælisdaginn.
75 ára
Guðrún María Jónsdóttir, Hrísa-
lundi 4F, Akureyri.
Baldur Eiríksson, Mánabraut 24,
Akranesi.
70 ára__________________________
Pálína Hraundal, Hvassaleiti 56,
Reykjavík.
Unnur Vilhjálmsdóttir, Snorra-
braut 71, Reykjavík.
Gerður Guðgeirsdóttir, Öldugötu
13, Reykjavík.
60 ára________________________
Stella Lange Sveinsson, Bogahlíö
26, Reykjavík.
Jón örvar Skagfjörð, Austurvegi
26, Selfossi.
50 ára______________________
Svanborg Tryggvadóttir, Brekku-
byggö 83, Garðabæ. Hún tekur á
móti gestum nk. laugardag á milli
klukkan 15 og 19 í Volvo-húsinu við
Vegmúla.
Sigurður Gylfi Böðvarsson, Rauða-
gerði 68, Reykjavík.
Jón Þórðarson, Grænuhlið, Hjalta-
staðahreppi.
40 ára___________________________
Jón B. Bjarnason, Ási, Áshreppi.
Guðmunda Brynjólfsdóttir, Bár,
Búlandshreppi.
Helena Sigtryggsdóttir, Núpasíðu
6H, Akureyri.
Guðlaug Sigmarsdóttir, Garðars-
braut 71, Húsavík.
Sjálfur de Gaulle stööugur og fastur
i sessi - hann riöaði til falls í stúd-
entaóeirðunum i París '68.
Hvað hefði gerst ef tekist hefði að
ráða Rudi Dutschke af dögum eins
og hvatt var til með fluguritum?
Um þetta og fleira.
Tilvalinn tækifœrisgjöf.