Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLl 1988.
Fréttir
Pétur Bjarnason, Jón Bjarnason og Omar Pétursson, þrír af aðstandendum Fjörs 88, stökkva ofan af hljómsveitar-
pallinum. DV-mynd gk
Fjör 88 í Eyjafirði:
„Við reiknum með
7-8 þúsund manns“
Gyli Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er allt að verða klárt hér á
Melgerðismelum og við reiknum
með að fá hingað 7-8 þúsund manns
um helgina," sagði Jón Bjarnason,
einn aðstandenda Fjörs hf„ sem
stendur að útihátíðinni Fjör 88 á
Melgerðismelum í Eyjafirði um
verslunarmannahelgina, við DV.
Forráðamenn hátíðarinnar sögðu
að þeir gætu hæglega tekið á móti
10-11000 manns inn á svæðið, þar eru
framkvæmdir á lokastigi, búið að
koma fyrir um 70 fermetra sviði,
danspalli, setja upp söluskúra, hrein-
lætisaðstöðu og áfram mætti telja.
Sérstakar fjölskyldubúðir verða á
svæðinu og bílastæði eru nær óend-
anleg á melunum fyrir ofan aðal-
svæðið. AIls munu um 250 manns
vinna við mótið.
Lið skemmtikraftanna, sem
skemmtir á hátíðinni, er fjölskrúð-
ugt. Hljómsveitir, sem skemmta
fostudagskvöld, laugardagskvöld og
sunnudagskvöld frá kl. 20 til 4, eru
Skriðjöklar, Sniglabandið, Sálin
hans Jóns míns, Stuðkompaníið,
Rokka billy bandið, Víxlar í vanskil-
um og ábekingur og færeysku fjör-
kálfarnir í Viking band.
Aðrir skemmtikraftar eru Spaug-
stofumennimir Sigurður Siguijóns-
son, Öm Árnason og Karl Ágúst Úlfs-
son, sem einnig veröa kynnar hátíö-
arinnar. Hljómsveitakeppni 10
hljómsveita víðs vegar af landinu
verður háð, íslandsmót í sand-
spymu, aflraunakeppni fyrir al-
menning, aflraunasýning valinna
kraftajötna og flugeldasýning. Varð-
eldur verður með öllu tilheyrandi,
sviölugsýning og hestaleiga. Þá er
ætlunin að setja heimsmet í fallhlíf-
arstökki með því að stökkvarinn
ætlar að lenda á hestinum Guttormi
og verður það án efa sniðug lending.
Melgerðismelar era um 20 km fyrir
innan Akureyri. Þar hafa hestamenn
byggt upp mjög góöa aðstöðu. Þar er
mjög skjólsælt og ætti ekki að væsa
um mótsgesti.
DV
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum:
„Astæða til
bjartsýni“
- segir framkvæmdasljóH þjóðhátíðamefndar
Ómar Garðaisson, DV, Vestmaimaeyjum:
Um næstu helgi verður haldin hin
árlega þjóðhátíð Vestmannaeyinga
og er þetta í 114. sinn, sem hún er
haldin. Undirbúningur hefur staðið
síðustu vikur og í gær, þegar rætt
var við Gunnar Andersen, fram-
kvæmdastjóra þjóðhátíðarnefndar,
sagði hann undirbúning á lokastigi.
íþróttafélagið Þór sér um hátíðahöld-
in að þessu sinni. Aðgangseyrir verð-
ur 4000 kr. og er reiknað með um sjö
þúsund manns á þjóðhátíð.
„Það er ekki ástæða til annars en
bjartsýni. Allur undirbúningur hef-
ur gengið vel og aldrei hefur verið
lagt meira í skreytingar en nú. Sem
dæmi má nefna að hátt í 3000 Ijósa-
perur munu lýsa upp Heijólfsdal á
nætumar, auk þess sem Ijós verða á
öllum sviðum. Brennan á Fjósakletti
er okkur sérstakt tilhlökkunarefni
því hún hefur aldrei verið stærri en
núna. Kveikt verður á henni á föstu-
dagskvöldið. Þá má ekki gleyma
hinni frábæru flugeldasýningu á
laugardagskvöldinu og varðeldinum
á sunnudagskvöldið, sem að margra
áliti er hápunktur þjóðhátíðar, þegar
mörg þúsund manns syngja í einum
kór svo undir tekur í klettunum,“
sagði Gunnar framkvæmdastjóri.
Vandað er til dagskrárinnar og
ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi. Margt verður til skemmtunar
fyrir þá yngstu og reyndar fyrir alla
aldurshópa. Greifamir leika fyrir
dansi á kvöldin, HLH-flokkurinn,
Halli og Laddi skemmta, svo fátt eitt
sé nefnt. Dagskrá verður á daginn
og kvöldin. Þá gat Gunnar þess að
sjúkraþjónusta og eftirlit meðan á
þjóðhátíð stendur verður í höndum
hjálparsveita og björgunarfélaga í
Eyjum ásamt lögreglu.
Állur ágóði rennur til starfsemi
íþróttafélagsins Þórs, sem verður 75
ára á þessu ári. Veitingasala er í
Gunnar Andersen, framkvæmda-
stjóri þjóðhátíðarnefndar. DV-mynd
Ómar.
höndum hinna ýmsu íþróttadeilda í
bænum. í tilefni þjóðhátíðar er gefið
út sérstakt blað, sem Þorsteinn
Gunnarsson ritstýrir, og er sérstak-
lega til þess vandað núna. Þjóðhátíð-
arlagið í ár er eftir Ólaf Lámsson við
texta Guðjóns Wægi. „Veðurútlit er
gott, straumurinn liggur hingað,"
sagði Gunnar að lokum.
í dag mælir Dagfari
Fréttatengsl í stað frétta
Bylgjan virðist hætt að rísa og
öldufaldurinn eitthvað á niðurleið.
Nú ætlar Bylgjan aö hætta að út-
varpa fréttum en flytja þess í stað
fréttatengt efni af og til, eins og það
er kallað. Hljóta allir að sjá að á
þessu tvennu er stór munur, enda
em fréttir bara til bölvunar, eins
og allir vita. Má til dæmis benda á
að Ríkisútvarpiö er farið að hafa
bamatíma á kvöldin klukkan átta
á sama tíma og fréttatími Sjón-
varpsins hefst. Sögöu útvarpsmenn
að þetta væri gert til að reyna að
koma í veg fyrir að böm væm að
horfa á fréttimar því að þar kæmi
margt voðalegt á skjáinn sem ekki
væri hollt ungum bömum. En
frjálsu útvarpsstöðvamar hafa svo
sannarlega ekki gleymt bömunum.
Það er ekki nóg með að þær hafi
orðið þess valdandi að bömin gala
ekki lengur vitleysistexta eins og
Atti katti nóa eða Göngum, göngum
upp í gilið heldur hafa þær fært
grislingunum menningarljóð eins
og það stendur ekki á mér, dú jú
lov mí og feitar konur. Þar fyrir
utan sjá þær bömunum fyrir hollri
tómstundaiðju á borð við það að
safna gostöppum úr göturæsinu.
En það tók nokkum tíma fyrir
fijálsu stöðvamar að átta sig á
hvaða hlutverki þær ættu að gegna.
Til að byija með vom þær til dæm-
is með samtalsþætti á dagskrá á
kvöldin þar til kom í ljós að slíkt
er aðeins í verkahring ófijálsra
stöðva. Slíkum þáttum var því
kippt út snarlega og nú er helst
ekki talað meira en nemur kynn-
ingu á næsta lagi og getraunasam-
keppni. Enda má engan tíma taka
frá tónlistinni sem þama er flutt
og er jafnnauðsynleg hlustendum
og blóðið sem rennur í æðum
þeirra. Það er því eðlflegt að Bylgj-
an skeri niður fréttimar og fari að
dæmi Stjömunnar sem framleiðir
hinar stórmerku Stjömufréttir af
miklum móð og vakið hafa mikla
athygli allra þeirra sem ekki hlusta
á þær. Einstaka nöldurseggir em
af og tfl að fetta fingur út í dagskrá
frjálsu stöðvanna og rásar tvö og
segja að þetta sé allt sami grautur
í sömu skál. Þessir menn gera sér
auövitað enga grein fyrir því í
hveiju hið raunverulega útvarps-
frel^i felst. Það felst í því að spila
sömu lögin aftur og aftur allan sól-
arhringinn öllu hugsandi fólki tfl
óblandinnar ánægju og fróðleiks.
Alveg á sama hátt og stöð tvö sýnir
sömu bíómyndimar aftur og aftur
með það í huga að aldrei sé góð
vísa of oft kveðin. Þegar á allt er
litið er það hárrétt ákvörðun hjá
Bylgjumönnum að vera ekki að
sperrast þetta í almennum fréttum,
enda er fréttatengdi akurinn miklu
áhugaverðari. Allir geta verið sam-
mála um að það sé frétt ef maður
dettur ofan af svölum á tíundu hæð
og sleppur ómeiddur. Þeir fjölmiðl-
ar sem sinna fréttum greina auðvit-
að frá þessu og koma með skýring-
ar eða tilgátur um hvemig stóð á
því aö maöurinn lamdist ekki tfl
bana eða stórslasaðist. En frétta-
tengdu útvarpsstöðvamar taka
öðmvísi á málinu. Þær greina frá
því hver eiginkona mannsins er,
leita upplýsinga um hvemig sam-
komulag sé með þeim hjónum,
hvað þau skuldi í íbúðinni, hve
mörg böm þau eigi og á hvaða
aldri. Sömuleiðis er háöldrað
amma mannsins heimsótt á elli-
heimiliö og hún spurð í þaula um
hvort slys eða óhöpp hafi átt sér
stað í familíunni síðustu hundrað
árin eða svo. Svona má endalaust
finna fréttatengt efni sem vekur
áhuga fólks sem hefur ekki mikinn
áhuga á fréttum. Svo má ekki
gleyma því að auglýsingar eru
kjörið efni í fréttatengda þætti og
vænlegt tfl aö treysta fjárhagslegan
grundvöll fijálsu stöðvanna sem
ekki em með lögbundna rukkunar-
heimfld á þá sem leggja við hlustir.
Þeir sem vflja hlusta á hefðbundn-
ar fréttir stilla á Gufuna og þeir
sem vflja horfa á langar og flóknar
útskýringar á slagsmálum götulýðs
í Asíu kveikja á sjónvarpinu og fá
í kaupbæti langa fyrirlestra um
sjávarútvegsmál. Aðrir sem kjósa
frekar að fylgjast með því sem fram
fer innanlands og utan lesa DV og
Moggann. Allir hafa því aögang að
fréttum og fréttatengdu efni við sitt
hæfi eins og vera ber. Hitt er svo
annað mál aö Dagfari hefur enn
ekki skilið hvers vegna frétta-
tengdu stöðvamar telja nauðsyn-
legt að fréttatenglar þeirra hrópi
svo hátt í eyru hlustenda og tali svo
hratt aö þeim liggur ítrekaö viö
andköfum. Maður hefði haldið að
þeir sem á hlýddu væru almennt
ekki famir að tapa heym fyrir ald-
urs sakir.
Dagfari