Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988. 19 T iffcsHll Fólkið á götunni: Alltof dýrt, fer sjaldnar, hef ekki efni á... Tíðindamaður DV fór á stjá um mið- bæ Reykjavíkur og hitti þar að máli nokkra vegfarendur. Þeir voru meö- al annars spurðir um hvort þeir færu oft/sjaldan út að borða og hvað þeim fyndist um veitingahúsamenning- una á íslandi. Páll Ólafson frá Patreksfirði sagði htið úrval á sínum heimaslóðum af veitingastöðum. „Ég hef mjög gaman af því aö fara út að bofða og geri það oft þegar ég kem til Reykjavíkur en ég vildi sann- arlega fara enn oftar en ég geri. Því miður er þaö allt of dýrt, líka þaö að koma til Reykjavíkur og þurfa að kaupa sér dýran veitingahúsamat. Ég myndi vissulega fara oftar út að borða ef þetta væri ekki svona dýrt,“ sagði Páll. Agnes og Björn Steffensen kváðust mjög ánægð með úrvalið af veitinga- stöðum í bænum og voru ánægð með þróun matarmenningarinnar, að breiddin væri sífellt að aukast. Hins vegar voru þau sammála um að þaö væri í dýrara lagi. Agnes sagði að þau hjónin færu einstaka sinnum út að borða, en ekki mjög oft. „Það breytir engu fyrir okkur þótt verðlagiö hækki á veitingahúsamat. Við færum ekki oftar á matsölustaði þótt verðið væri lægra. Okkur finnst ágætt að borða heima og þá frekar að bjóða fólki með okkur eða fara í heimahús." Gunnar Hjálmarsson sagöi aö sér fyndist maturinn hér á landi fokdýr miðað við erlendis en gæöin á matn- um hér heima væru orðin mjög mik- „Ég vildi sannarlega fara oftar út að borða,“ sagði Páll Ólafsson. il og úrvalið einnig. „Ég er mjög ánægður með úrvahð en ég fer mun sjaldnar á dýra eða finni veitinga- staði en ég áður gerði vegna þess aö ég hef einfaldlega ekki efni á því. Ég held að ungt fólk fari yfirleitt ekki á þessa staði núorðið. Það fer miklu fremur á ódýrari skyndibitastaði eða pitsustaði. Mér finnst allt í þessu þjóðfélagi allt of dýrt. Það er bara það sama með veitingahúsamat og annaö í þessu þjóðfélagi." Auður Jensdóttir sagðist aldrei nokkurn tíma fara út að borða. „Það er allt of dýrt að fara á matsölustaði. Ég er hins vegar mjög ánægð með að svo margir matsölustaðir séu á höfuðborgarsvæðinu og mér fyndist upplagt að sleppa við eldamennsk- una öðru hverju og fara út að borða. „Ég fer sjaldnar á dýra veitinga- staði,“ sagði Gunnar Hjálmarsson. Ég myndi hiklaust gera það ef þaö kostaði ekki svona mikið,“ sagði Auður. Tíðarandi Magnea Gunnarsdóttir og Björg Hauksdóttir sögðust báðar fara frem- ur sjaldan út aö borða. „Ég fer ekki út að borða nema af einhveiju sérstöku tilefni. Ég hef fá tækifæri til að fara út að borða vegna þess að ég vinn þannig vinnu,“ sagði Magnea. Björg tók í sama streng og sagöi að það væri hvorki þeirra hfs- „Þaö væri upplagt að sleppa við eldamennskuna öðru hverju," sagði Auður Jensdóttir. stíh að fara út að borða né heföu þær peninga til þess. „Ég er sannfærð um að ef þetta væri ódýrara myndi fólk hiklaust fara oftar út að borða,“ sagði Björg. Parísarbúar, sem áttu leið um Austurstræti, sögðust vera á heim- leið eftir tveggja vikna dvöl. „Við ætluðum upphaflega að vera í þijár vikur en við verðum að fara heim núna vegna þess að allt okkar fé er uppurið,“ sagði Birgitte Laglasse, einn ferðamanna. „Það er rosalega dýrt aö borða hérna en þó skárra í Reykjavik en úti á landi.“ „Sjáðu bara,“ sagöi Birgitte og dró 'saltstauk upp úr vasa sínum. „Þessi saltstaukur kostar hér í búð 49 krón- ur. Svona saltstaukur kostar 10 krón- ur íslenskar út úr búð í París.“ Og „Við verðum að fara heim viku fyrr vegna féleysis,“ sagði Birgitte La- glasse Parísarbúi. bætti svo við. „Það er ekki furða að veitingahúsamatur sé svona dýr á íslandi fyrst saltstaukurinn kostar fimm sinnum meira en París. En því er ekki að neita aö það er mjög góður matur á íslandi og fjöldi veitingahús- anna kom okkur á óvart.“ „Okkur fmnst alveg sjálfsagt að borga hátt verð fyrir góða þjóunstu og góðan mat,“ sögðu systurnar Halldóra og Linda Sólbjartsdætur, „en þaö eru allt of margir matsölu- staðir of dýrir miðað við gæði. Að þvi leytinu til eru allt of margir léleg- ir matsölustaðir.“ Hahdóra sagðist fara út að borða einu sinni í mánuði, en yngri systir- in, Linda, sagðist fara mun sjaldnar. „Okkur finnst ágætt að borða heima,“ sögðu hjónin Agnes „Það er ekki okkar lífsstíll að borða úti,“ sögðu Björg Hauks- „Sjálfsagt að borga þetta verð fyrir góðan mat og góða þjón og Björn Steffensen. dóttir og Magnea Gunnarsdóttir. ustu,“ sögðu systurnar Halldóra og Linda Sólbjartsdætur. Þingkonur og -menn: Fara alþingismenn oft út að borða? Haft var samband við nokkra þing- menn og þeir spurðir hvort þeir færu oft út að borða og hvað þeim fyndist um verðið á matnum. Guðrún Helga- dóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði að hún færi ekki oft út að borða en það kæmi þó fyr- ir. „Mér finnst af- skaplega lítill verðmunur á 1. flokks og miðlungs veitingastöðum. Þeir virðast ekki gera mun á 1. og 2. flokki. En miðað við Skandinava stöndum .við vel að vígi. Við eigum mjög góða veitingastaöi. Verðið hér á landi er hins vegar ókristilegt. Ég held að kreppan sé hjá veitinga- húsamönnum sjálfum. Ef þeir byðu upp á mat á skaplegra verði stæðu þessi veitingahús mun betur að vígi og næðu því til stærri kúnnahóps. Svo finnst mér allt of mikiö af ein- hhða veitingastööum hér á landi. Mér finnst nauðsynlegt að fjöl- skyldur komist út að boröa öðru hveiju. Sjálf hef ég afar gaman af því að fara út að borða með skemmtilegu fólki.“ Guðrún Agnars- dóttir, Kvenna- hsta, sagði hins vegar að ferðir á matsölustaði væru ekki ríkj- andi þáttur í sínu lífí um þessar mundir. Hins vegar væri nokkuð um matarfundi sem fylgdu þingmanns- starfinu. „Ég nýti frekar þann litla tíma sem ég á aflögu th þess að vera heima með fjölskyldunni. Það er hrein hvíld aö fá að vera heima og ég hef mjög gaman af því að búa til mat sjálf. Ef ég gegndi ekki þessu starfi gæti ég vel ímyndað mér að ég færi oftar út að borða. Matreiðslumenningin hefur tekiö gríðarlegum framfórum hér á landi, t.d. finnst mér mjög jákvætt hvað þeir hafa getað nýtt sér náttúruleg íslensk hráefni. Það kennir okkur hinum hvernig á að fara að. Gallinn er sá uð það er allt of dýrt að fara út að borða. Ég heyri mikið á fólki, ekki bara að veitingahúsamatur sé of dýr, heldur aht annað. Júlíus Sólnes, Borgaraflokki, kvaðsthafaaukið. það nokkuð að fara út að boröa í kjölfar þess að hann varð þing- flokksformaður, ■' þaö fylgdi starfinu. ars. „Það er allt of dýrt að fara út að borða. Ég myndi tvímælalaust fara oftar ef það væri ódýrara. Dýrtiðin sýnir bara hve allt er orðið snarvit- laust í þessu þjóðfélagi. Að öðrum kosti er ég mjög hrifinn af þeirri veit- ingahúsamenningu sem sprottin er upp hér á landi en ég hef enga trú á því að öll þessi veitingahús eigi eftir að lifa lengi." Eiður Guðnason, Alþýðuílokki, fer afar sjaldan út að borða að eigin sögn. „Það er helst aö maöur borði á veitingastöðum úti á landi á ferðalögum tengdum starfinu. En þaö er ekki mikið um En færi lítið ann- það hér í Reykjavík. Það er helst að ég fari á ódýra staði eins ogúlfar og Ljón, þá sjaldan sem það gerist. Mér sýnist verðlagið vera svipað hér og í Skandinavíu en mun hærra en í Bandaríkjunum.“ Eiður sagðist ekki vera nógu kunn- ugur verðlagi á veitingahúsamat en haíði heyrt að það væri mjög dýrt að borða úti, kvaðst mundu fara oftar ef verðlag væri lægra. „Maturinn sem ég hef fengið á veit- ingastöðum hérlendis hefur alla tíð verið afar góður," sagði Eiður. Salóme Þorkels- dóttir, Sjálfstæð- isflokki, sagði aö hún og eigin- maður hennar færu lítið út að borða að tilefnis- lausu, vhdu frek- ar nýta frítímann heima hjá sér. Því væri hún ekki dómbær á verölagið á veitingahúsunum. „Ég geri mér samt grein fyrir því að ef þ^ð væri mun ódýrara að fara út að borða heíði það viss áhrif. Hins vegar er ég mjög ánægð með veit- ingahúsamenninguna, hvernig hún hefur þróast, t.d. hvernig matreiðslu- mennimir hafa nýtt sér íslenska lambakjötiö og fiskinn. Mér þætti leitt ef þessi litlu veitingahús, sem eru í miðborginni, hrykkju upp af. En þá staöi þekki ég helst þar sem ég vinn í miöbænum. Jóhann Ein- varðsson, Fram. sóknarílokki, sagðist ekki flokkast undir þá sem fara oft á fírini veitinga- hús. „Ég bý í Keflavík og verö því ahtaf að borða einhvers staðar í hádeginnu vegna vinnu minnar í Reykjavík og borða yfirleitt f matsal Alþingis. Einnig kemur oft fyrir aö ég „snarla“ á kvöldin í Reykjavík og það er einn- ig vegna vinnunnar. Ég fer yfirleitt aldrei út að boióa að tilefnislausu, enda gerir maöur sér ekki ferö til Reykjavíkur til þess eins að fara út að borða. „Það er auðvitað afar dýrt að borða á fínum veitingastöðum en ég veit um marga staði þar sem ekki er dýrt að borða.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.