Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Side 30
30
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLl 1988.
Lífsstm
Viðtal við Gísla Hjartarson fararstjóra:
„Vildi heldur ganga til heivítís en ríða á Hombjaig"
Ferðamátinn setur okkur skorður
Ævintýraferð um Homstrandir:
- segir Jón Björgvinsson kvikmyndagerðarmaður sem festi ferðina á filmu
sagði presturinn á Stað um eina torfæruna á leiðinni
Gísli Hjartarson fararstjóri er fremstur á myndinni. Fyrir aftan hann
standa nokkrir hestamannanna.
í viðtali sem tekið var við Gísla
Hjartarson fararstjóra áður en lagt
var upp í ferðina, 6. júlí síðastlið-
inn, sagði hann að ferð sem þessi
hafi líklega aldrei verið farin áður
og skýringin á því er að ýmsar tor-
færur á leiðinni gera hana erfiða,
til dæmis yfir Skálakamb. Skála-
kambur er nafnið á brekkunni frá
Hlöðuvík og upp í fjallið að Hlöðu-
víkurbænum en þar er mjög brött
brekka. í árbók Ferðafélags Islands
frá 1977 er kafli sem fjallar ein-
göngu um Skálakamb. Þar er háft
eftir séra Magnúsi Runólfi, sem
lengi var prestur á stað í Aðalvík,
að hann vUdi frekar fara fótgang-
andi til helvítis en ríðandi norður
að Horni. En Horn er nyrsti bærinn
í sókninni og þurftu menn að fara
yfir Skálakamb.
Gísb sagði að viðbúið væri að
nokkra vinnu þyrfti að leggja í það
að laga götuna upp kambinn.
„Megintilgangur ferðarinnar er,
utan ánægjunnar, að gefa Jóni
Björgvinssyni kost á að gera mynd
um ferðina, Homstrandir og ís-
lenska hestinn. Ég á ekki von á því
að þessi ferð verði leikin eftir vegna
þess hve erfið þessi mun verða.
„Endanleg ferðaáætlun er þannig
að eftir komuna til Hesteyrar ætl-
um við að dvelja þar í tvær nætur.
Daginn eftir verður reyndar riðiö
yfir til Aðalvíkur og aftur til baka
aðallega til að róa hestana og venja
þá við. Segja 'má að aðalferðin hefj-
ist ekki fyrr en á föstudag en þá
verður riðið frá Hesteyri yfir til
Aðalvíkur og þaðan fram til Fljóta-
víkur. Frá Fljótavík er áætlað að
fara yfir til Hlöðuvíkur og frá
Hlöðuvík til Homvíkur. Þá bggur
leiðin til Bolungarvíkur á strönd-
um og þaðan til Höföastrandar í
Jökulfjörðum um Hraunfjörð, þ.e.
yfir Bolungarvíkurheiði en ekki
um Furufjörð. Síðan verður farið
yfir Grunnavík og að Bæjum í ísa-
fjarðardjúpi þar sem ferðin end-
ar,“ sagði Gísli.
- Hvemig leggst ferðin í þig?
„Ferðin leggst vel í mig. Ég er
stressaöur núna á leiðinni norður-
yfir sem eðblegt er. En þegar ég
verð kominn í land á Hesteyri og
albr hestar og menn komnir með
fast land undir fót er ég að eigin
ábti fær í allan sjó.“
Jón Björgvinsson kvikmyndagerðarmaður ásamt Ola Erni Andreasen
hljóðupptökumanni.
Jón Björgvinsson kvikmynda-
gerðarmaöur hafði beðiö farastjó-
rann, Gísla Hjartarson, sérstaklega
um að þessi ferð yröi farin.
„Ég hafði samband við Gísla þeg-
ar hann hafði farið ferðina á Glámu
og skammaði hann fyrir að festa
ferðina ekki á filmu. Kom okkur
þá saman um að fara enn betri
ferð,“ sagði Jón Björgvinsson í
samtab viö DV.
Hans verk í þessari ferð var að
kvikmynda leiðangurinn með að-
stoð Óla Arnar Andreasen hljóð-
manns.
Jón hefur m.a kvikmyndað ferð
Hafþórs Ferdinandssonai; þvert
yfir landið, frá Öndverðarnesi að
Dalatánga. Jón kvikmyndaði einn-
ig Vatnajökulsleiðangurinn sem
sýndur var í ríkissjónvarpinu á
jóladag.
- Er náttúra íslands helsta mynd-
efni þessarar ferðar?
„Já, en það eru nú kannski hest-
arnir sem heilla mig mest, sérstak-
lega í þessu umhverfi á Horn-
ströndum.
- Hefurðu gert mynd áður svipaða
þessari?
„Þær eru auðvitað allar álíka
þessar svaðilfarir okkar. Það má
segja a6 vissir hlutar úr þessari
ferð líkist ferðum sem viö höfum
áður farið. í samanburði man ég til
dæmis eftir því þegar við fórum á
Langanes. Það var svipaður út-
kjálki sem við mynduðum á sínum
tíma.“
- Nú er hljóðmaður með þér í fór.
Er nóg að hafa myndavél og míkra-
fón til aö gera kvikmynd sem
þessa?
„Ferðamátinn setur okkur skorð-
ur. Það er ekki margt hægt aö taka
með sér á hestbak. Við höfum allan
ferðabúnað í lágmarki. Þannig er-
um við vanir aö vinna.
Ég stóla bara á guð og náttúruna
því það er alltaf erfitt að vera með
aðeins eina kvikmyndatökuvél.
Þegar við vorum í leiðangrinum
hans Hafþórs þá vorum við sem
betur fer með tvær kvikmynda-
tökuvélar vegna þess að önnur
brotnaði. í þeirri ferð var talsvert
um slysfarir og óhöpp. En nú höf-
um við aðeins eina vél, þar af leið-
andi verður bara að hálda um þessa
einu eins og á barninu sínu og vona
allt það besta.“
- Hvenær megum við eiga von á
aö sjá myndina í sjónvarpi?
„Það er erfltt aö segja til um
vegna þess að við fórum af stað
með þetta verkefni án þess að gera
nokkurn samning við sjónvarp eöa
aðra aðila. Það er einnig vegna þess
að svo mörg verkefni eru framund-
an hjá okkur aö ég get veitt þessu
verkefni forgang. Ég hef því engan
fastan sýningartíma en trúlega
verður hún sýnd næsta vor eða
næsta vetur."
Þröngt var á þingi um borð í Fagra-
nesinu.
útur og voru hestarnir furðu rólegir
meðan á sigbngunni stóð. Þegar
komið var inn í Hesteyrarfjörö var
skipinu siglt að eyrinni þar sem rúst-
ir gömlu síldarverksmiðjunnar
standa. Innsigbngin er mjög aðdjúp
og gat því Fagranesið siglt upp aö
Qöru.
Var þá komið af því sem menn
höfðu kviðið fyrir allan tímann - að
koma hestunum í land. Það átti að
gera með því að opna hbðið útbyrðis
og ýta þeim í land. En horflö var frá
þeirri tilhögun þar sem hrossin voru
ófús að fara í sjóinn.
Var þá brugðið á það ráð að hífa
eitt hross í einu, í hestakassa, út fyr-
ir síðu skipsins og slaka kassanum í
sjóinn þar sem hann var opnaður.
Syntu þá hrossin beina leið í land án
nokkurra erfiðleika.
Var það mál manna að gengiö hefði
betur að koma hestunum í land en
nokkum hafði órað fyrir.
Ferðin var kvikmynduö af kvik-
myndagerðarmanninum Jóni Björg-
vinssyhi og verður hún sýnd ein-
hvern tíma á næstunni.
Einn blautur kemur í land.
Siguijón J. Sigurösson, DV, isafiröi:
Hópur ferðafólks lagði í sögulega
hestaferð fyrir skömmu en slík ferð
hefur aldrei áður verið farin á hest-
um svo vitað sé.
Hópurinn lagði af stað frá Hnífs-
dalsbryggju með ms. Fagranesi og
var fyrsti áfangastaður á Hesteyri í
Jökulíjörðum þar sem hestarnir
voru látnir synda í land. Við Hnífs-
dalsbryggju voru hestarnir 39, sem
eru í eigu 16 manna, teknir um borð
í Fagranesið og gekk það furðuvel
þótt hestarnir væru heldur tregir til.
Þegar loks tókst að koma öllum
hestunum fram á dekk var heldur
en ekki þröngt á þingi enda er þetta
fjölmennasta hestaferð með Fagra-
nesinu sem farin hefur verið, að sögn
Hjalta Hjaltasonár skipstjóra. Hann
sagði að hingað til hefðu mest verið
fluttir 30 hestar með Fagranesinu,
þá til Grunnavíkur.
Komiö að landi viö rústirnar af síld-
arverksmiðjunni á Hesteyri.
Hestarnir syntu
beina leið í land
Sigbngin til Hesteyrar tók 90 mín-
Dægradvöl
Hestaferð sem aldrei
hefur verið farin áður