Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988.
Jarðarfarir Fréttir
„Falleinkunn í fjánnálastjóm“:
Viðskiptaráðherra í full-
trúaráði Landakotssprtala
Meðal þeirra sem Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra
hefur geflð „falleinkunn í fjármála-
stjórn“ vegna reksturs Landakots
er samráðherra Jóns Baldvins og
flokksbróðir, Jón Sigurðsson við-
skipta-, dóms- og kirkjumálaráð-
herra.
Jón Sigurðsson á sæti í fulltrúar-
áði St. Jósefsspítala ásamt stórum
hópi valinkunnra manna. Þetta
fulltrúaráð kýs framkvæmdastjórn
spítalans. Samkvæmt starfsreglum
ráðsins skal leggja íjárhagsáætlun
sjúkrahússins fyrir þaö til stað-
festingar. Fyrir fundi ráðsins skal
og leggja allar meiriháttar ákvarð-
anir um rekstur spítalans. Sam-
kvæmt venju varðandi innra eftir-
lit fyrirtækja ætti það að vera full-
trúaráðið sem ber hina endanlegu
ábyrgð.
Formaður ráðsins er Óttarr Möll-
er, fyrrverandi forstjóri Eimskips.
Meðal annarra ráösmanna eru Jó-
hannes Nordal seðlabankastjóri,
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
Verslunarbankans, Valur Valsson,
bankastjóri Iðnaðarbankans, Er-
lendur Einarsson, fyrrverandi for-
stjóri Sambandsins, Sigurður
Helgason, fyrrverandi forstjóri
Flugleiða, Gunnar J. Friðriksson,
formaður - Vinnuveitendasam:
bandsins, Hallgrímur Sigurðsson,
forstjóri Samvinnutrygginga, Har-
aldur Ólafsson lektor, Bjöm Ön-
undarson tryggingayfirlæknir,
Gunnar Friðriksson, eigandi skipa-
innflutninga með sama nafni, Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, deildar-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu,
Unnur Ágústsdóttir, formaður
Bandalags íslenskra kvenna, Logi
Guðbrandsson, framkvæmdastjóri
Landakots, Ólafur Öm Amarson,
yflrlæknir á Landakoti, Bjarni
Jónsson læknir, Jón Ingimarsson
lögfræðingur og systir Hildegardis
nunna.
Þessu fólki öllu hefur Jón Bald-
vin Hannibalsson gefið „fallein-
kunn í fjármálastjórn".
-gse
Verðfall á íslenskum
fiski í Bretlandi
Guðlaug Sigurjónsdóttir verður.
jarðsungin frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 27. júlí kl. 13.30.
Andlát
Lára Skarphéðinsdóttir lést á Hrafn-
istu sunnudaginn 24. júlí.
Helgi Gunnarsson andaðist á Borgar-
spítalanum laugardaginn 23. júlí.
Siguijón Guðjónsson lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands fóstudaginn 22. júlí.
Gunnar Þorkelsson lést á Landspítal-
anum aðfaranótt 25. júli.
Ólafur Þorkelsson lést á Kumbara-
vogi aöfaranótt 25. júlí.
Magnús Óskar Magnússon lést á
Borgarspítalanum laugardaginn 23.
júlí.
Sýningar
Myndlistarsýning í Ferstiklu
Nú stendur yfir sýning á myndverkum
eftir Bjama Þór Bjamason frá Akranesi
í Ferstiklu á Hvalfiarðarströnd. Á sýn-
ingunni em olíukrítarmyndir, collage og
grafík (einprent). Myndimar em til sölu
og stendur sýningin til 13. ágúst nk.
Ferðalög
Utivistarferðir
Miðvikudaginn 27. júli og fimmtudaginn
28. júlí verða famar Þórsmerkurferðir
kl. 8, sérstaklega ætlaöar sumardvalar-
gestum. Hægt er að dvelja til fóstudags,
sunnudags, mánudags eða lengur. Uppl.
og farm. á skrifst., Grófmni 1, simar 14606
og 23732. Sjáumst.
Ferðafélag íslands
Verð á íslenskum ferskfisk lækk-
aði á fiskmörkuöum í Bretlandi i
gær og í dag. í síðustu viku fékkst
metverð fyrir þorsk og ýsu og með-
alverð fór j'fir hundrað krónur
kílóiö.
„Þaö kaupir enginn til lengdar
fisk á hundrað kall kílóiö, frekar
borða menn kjúklinga,“ segir Gúst-
af Einarsson hjá mnboðsfýrirtæk-
inu ísbergi í Hull. Þeir umboðsaðil-
ar, sem DV ræddi viö, voru á einu
máli um það að markaðsverö á
þorski og ýsu hefði verið óeðlilega
hátt í síöustu viku og vaninn væri
að eftir metvikur færi markaður-
inn í „þynhku“ og verð lækkaði.
Síðustu 3 vikur hafa verið i gildi
útfiutningstakmarkanir á íslensk-
um ferskfiski og til stóö að helm-
inga það magn sem var flutt út í
fyrra.
Jón Olgeirsson hjá Fylki í Grims-
by sagði að ætlun íslenskra stjórn-
valda að stjóma breskum fisk-
mörkuöum gæti ekki heppnast til
lengdar. Hann sagði þaö sjálfsagt
að reyna að komast hjá verðfalli
vegna ofíramboðs en þær takmark-
anir, sem nú giltu, væru skot yfir
markiö. „Ég hef stundum sagt aö
tilraun til að stjórna markaöslög-
málum væri eins og að sfjórna Qóöi
og fjöru," segir Jón.
í dag og í gær fékkst álíka meðal-
verð fyrir íslenskan fisk i Bretlandi
og á sama tíma í fyrra en þá voru
ekki takmarkanir á ferskfiskút-
flutningi. Á meðan meðalverðið á
Bretlandsmarkaöi er í kringum
75-80 krónur fyrir þorskkílóið er
það selt á 35-40 krónur á íslenskum
mörkuðum. Það kostar um 17-20
krónur að flytja hvert kíló í gám á
Bretlandsmarkaö.
Umboösmenn í Bretlandi töldu að
verð mundi aftur hækka í lok vik-
unnar og í næstu viku. Þeir vildu
þá ekki spá hvort meðalverð yrði
jafnhátt og í síðustu viku en töldu
aðþaöyröivelviðunandi. pv
Athugasemd fra
Stuðmönnum
Jakob Frímann Magnússon hefur
óskaö birtingar á eftirfarandi at-
hugasemd fyrir hönd Stuðmanna: ‘
„Það er aö okkar mati mjög alvar-
legt mál þegar blaðamenn fara vísvit-
andi með ósannindi eins og Gísli
Kristjánsson, blm. DV á Akureyri,
gerðist sekur um í gær. Hann hafði
sjálfur samband viö Tómas Tómas-
son bassaleikara til að bera undir
hann sögusögn en fékk hins vegar
tvímælalaust staðfest að Egill, Ragn-
hildur, Jakob, Þóröur, Tómas og As-
geir munu öll leika með Stuðmönn-
um næstkomandi fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld í Atlavík.
Gegn sinni betri vitund gefur
blaðamaður DV á Akureyri allt ann-
að í skyn í slúðurdálki sínum.
Og nú spyr maður sig: Hverra
hagsmunum heldur hann sig vera
aö þjóna?“
Miövikudaginn 27. júlí kl. 20 verður
kvöldferð í Bláíjöll og upp á fjallið með
stólalyftunni.
Tillcyimiiigar
Loftbrú til Vestmannaeyja
Um verslunarmannahelgina verður
leiguflug Sverris Þóroddsonar með loft-
brú til Vestmannaeyja. Flogið verður frá
Hellu og Reykjavík. Upplýsingar í síma
28011 í Reykjavík og 98-75165 á umboðs-
skrifstofunni á Hellu.
Heyrn og tal rannsakað
á Norðurlandi vestra
Móttaka verða á vegum Heymar- og tai-
meinastöðvar íslands á Norðurlandi
vestra 8.-13. ágúst. Þar fer fram greining
heymar- og talmeina og úthlutun heym-
artækja. Áætlað er að vera á Ólafsfirði
8. ág., Siglufirði 9. ág., Sauðárkróki 10.
ág., Blönduósi 11. ág. og fram til hádegis
12. ág., Skagaströnd 12. ág. frá kl. 13 og
Hvammstanga 13. ág. Sömu daga að lok-
inni móttöku Heymar- og talmeinastöðv- *
arinnar verður almenn lækningamót-
taka sérfræðings í háls-, nef- og eyma-
lækningum. Tekið er á móti viðtalsbeiðn-
um á viðkomandi heilsugæslustöð.
Jafn hæfilegur hraði
sparar bensín og minnkar
slysahættu. Ekki rétt?
UMFERÐAR
RÁÐ
Kaupfélagshúsið sem verður ráðhús Selfyssinga i framtíðinni.
Selfoss:
Kaupfélagshöllin fór
á 57 milljónir króna
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Kaupfélag Ámesinga hefur selt hið
stóra og reisulega verslunar- og
skrifstofuhúsnæði við Austurveg á
Selfossi, eitt tignarlegasta hús lands-
ins, sem byggt var fyrir rúmum 40
árum. Kaupendur eru Selfossbær og
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.
Kaupverðið er 57 milljónir króna.
Áður hafði Gjáin keypt hálfan kjall-
ara hússins.
Eignaraðild skiptist þannig milli
kaupenda: Selfossbær 58%, Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga 35% og
Gjáin tæp 7%. Selfossbær og Ámes-
sýsla fá hálfan kjallaranú og Selfoss-
bær fær alla fyrstu hæöina fyrir
Héraðsbókasafn Árnessýslu og þar
er meðal annars hiö stórmerka bóka-
safn sem séra Eiríkur 'J. Eiríksson
heitinn og eiginkona hans, Kristín
Jónsdóttir, gáfu fyrir nokkmm
árum.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
fá aðra hæðina og þar verður einnig
aðstaða fyrir Fræðsluskrifstofu Suð-
urlands, Fasteignamat ríkisins og
fleiri skrifstofur. Risið verður sam-
eiginleg eign. Aíhending til Selfoss-
bæjar veröur eftir eitt ár en til sam-
takanna innan tveggja ára frá undir-
skrift samiiingsins.
Við undirskrift samningsins voru
margar snjallar ræður fluttar en
nokkrir ræöumanna hörmuöu þó
hvað langan tíma kaupin á húsinu
hefðu tekið. Þá vom góðar veitingar,
kafíi og rjómatertur og var létt yfir
mönnum. Hjörtur Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga, hélt eftirfar-
andi ræðu:
Kaupin á húsinu kveiktu mörg orð
en kaupendur hættu loks að þrátta.
Að síðustu skrifa og set hér á borð
sjö hundruð og fjörutíu og átta.
Hinn ungi bæjarstjóri Selfoss, Karl
Bjömsson, lét í ljós ánægju sína með
kaupin og sagði að þau skertu ekki
mjög ráðstöfunarfé bæjarins. Hann
fór svo í sumarfrí þegar frá öllu hafði
verið gengið. Þess má geta að við
undirritun samningsins var helm-
ingur kaupverðsins greiddur en af-
gangurinn er til 15 ára.