Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Qupperneq 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988.
Afmæli
Sváfnir Sveinbjamarson
Sváfnir Sveinbjai'narson, pró-
fastur á Breiöabólsstaö í Fljótshlíð,
er sextugur í dag.
Sváfnir fæddist á Breiðabólsstaö.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1948, guöfræðiprófi frá HÍ 1952 og
var við framhaldsnám í Þýskalandi
veturinn 1965-66. Hann vígðist að-
stoðarprestur að Breiöabólsstað
1952, var sóknarprestur á Kálfa-
fellsstað í Suðursveit ásamt Hofs-
prestakalli í Öræfum 1952-63 og
prófastur í Skaftafellsprófasts-
dæmi 1954-63. Hann var sóknar-
prestur á Breiðabólsstað frá 1963
og prófastur í Rangárvallaprófasts-
dæmi frá 1973.
Sváfnir hefur verið í stjórn
kirkjubyggingasjóðs frá 1966, í
stjórn kirkjugarðssjóðs frá 1987 og
í stjórn prófastafélagsins frá 1982.
Hann var hreppsnefndarmaður og
varaoddviti í Fljótshlíðarhreppi
1966-86, varaþingmaður í Suður-
landskjördæmi 1978-79 og sat á
þingi 1979.
Sváfnir kvæntist 10.9.1950 Önnu
Ehnu Gísladóttur frá Bakkagerði í
Reyðarfirði, f. 29.4. 1930, d. 20.2.
1974. Börn þeirra eru: Þórhildur,
fóstra í Kaupmannahöfn, gift John
E. Björkskov, eiga eina dóttur;
Gísli, kennari í Reykjavík, kvæntur
Guðrúnu Björgu Guömundsdóttur,
eiga tvö börn; Hulda, íþróttakenn-
ari í Reykjavík, gift Jasoni ívars-
syni, eiga þrjár dætur; Ehnborg,
húsmóðir í Hjahanesi í Landsveit,
gift Kjartani G. Magnússyni, eiga
þrjár dætur; Sveinbjöm, hljóð-
færaleikari í Kaupmannahöfn; Vig-
dís, við nám í Kaupmannahöfn;
Sigurlinn hjúkrunarfræðingur og
Sigurjón rafvirki.
Sváfnir kvæntist öðru sinni 18.3.
1983 Ingibjörgu Þórunni Halldórs-
dóttur, f. 26.1.1936 en hún var áður
gift Torfa Guðbjartssyni yfirflug-
virkja, d. 2.10. 1977, og eru synir
þeirra: Guðbjartur Ingvar flug-
virki, kvæntur Þóreyju B. Gunn-
arsdóttur, eiga þrjú börn, og Ás-
björn Elías, við nám í rafmagns-
verkfræði.
Foreldrar Sváfnis eru Sveinbjöm
Högnason, prestur, prófastur og
alþingismaður á Breiðabólsstað í
Fljótshhö, f. 6.4. 1898, d. 21.4. 1966,
og kona hans, Þórhildur Þorsteins-
dóttir, f. 20.1.1903, dóttir Þorsteins
í Laufási í Vestmannaeyjum, Jóns-
sonar og Elínborgar Gísladóttur,
Engilbertssonar.
Sveinbjöm var sonur Högna, b. í
Sólheimakoti, Jónssonar, b. í Pét-
ursey, Ólafssonar, b. í Eyjahólum,
Högnasonar, b. að Ytri-Sólheimum,
Sigurössonar, prests, Högnasonar,
prestafóður, prests að Breiðabóls-
stað. Bróðir Sigurðar var Ögmund-
ur, afi séra Tómasar Ejölnismanns
á Breiðabólsstað. Annar bróðir Sig-
Sváfnir Sveinbjarnarson.
urðar var Böðvar, faðir Þorvaldar,
prófasts í Holti, fóður Þuríðar,
langömmu Vigdísar forseta.
Guðjón Baldvinsson
Guðjón Baldvinsson, fyrrv.
deildarstjóri, Hagamel 27, Reykja-
vík, er áttræður í dag.
Guðjón fæddist að Refsstöðum í
Hálsasveit en ólst upp að Barði í
Reykhólasveit hjá fósturforeldrum
sínum, Lárusi Jónssyni og Ólöfu
Grímsdóttur.
Hann nam við Alþýöuskólann á
Laugum 1926-28 og var síðan á
námskeiðum í bókfærslu og tungu-
málum.
Guðjón var verkamaður í Reykja-
vík 1931-34, starfsmaður hjá skipu-
lagsnefnd atvinnumála 1934-35, hjá
Tryggingastofnun ríkisins 1936-46,
hjá Skattstofunni í Reykjavík frá
1946 og deildarstjóri þar en starfs-
maður hjá BSRB frá 1962.
Guðjón sat í' samstarfsnefnd
BSRB og ríkisins í fjölda ára og í
stjóm BSRB frá stofnun 1942 og í
áratugi og ritari þar í fjölda ára.
Hann átti sæti í Kjararáði og í
Starfsmannafélagi ríkisstofnana
1939-59 og þá ýmist formaður eða
varaformaður. Hann var í stjórn
FUJ 1931-39 og í stjórn SUJ um
skeið frá 1932. Þá sat hann í stjórn
Jafnaðarmannafélags íslands, Al-
þýöuflokksfélags Reykjavíkur og
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar.
Hann var fulltrúi á ASÍ-þingum
1932-38 og var varaþingmaður
1934-37. Hann er nú formaður Sam-
bands lífeyrisþega ríkis og bæja frá
1981. Þá sat Guðjón í stjóm Guð-
spekifélagsins um nokkurt skeið
og var forseti félagsins í eitt ár.
Fyrri kona Guðjóns var Stein-
unn, f. 29.3. 1907, Jónsdóttir, b. að
Hóh í Höfðahverfi, Jónssonar.
Guðjón og Steinunn skildu en
börn þeirra eru: Valgerður Jóndís,
ráðskona í Kópavogi, f. 1931; Bald-
vin Láms, sjómaöur í Garöabæ, f.
1933, og Hilmar Gylfi, múrari og
eigandi Hellushpunar í Kópavogi,
f. 1935.
Seinni kona Guðjóns er Anna, f.
12.6. 1900, dóttir Guðmundar Ein-
arssonar, múrara í Reykjavík. Son-
ur Guöjóns og Önnu er Baldur
Freyr, tölvufræðingur í Horsholm
í Danmörku, f. 1942.
Guðjón er þriðji í röð átta systk-
ina sem öh era á lífi.
Foreldar Guöjóns voru Baldvin
Jónsson, b. að Grenjum í Álftanes-
hreppi, og kona hans, Benónía Þið-
riksdóttir
Föðurforeldrar Guðjóns voru
Jón, b. aö Búrfehi í Hálsasveit,
Gíslason og Ástríður Guðrún Hall-
dórsdóttir. Faðir Benóníu var Þið-
rik Þorsteinsson, b. á Háafehi í
Hvítársíðu.
Guðjón verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Guðmundur M. Ólafsson
Guðmundur M. Ólafsson sjómað-
ur, Fjarðarstræti 6, ísafirði, er sjö-
tíu og fimm ára í dag.
Guömundur fæddist í Bolungar-
vík og ólst þar upp í foreldrahúsum
th tuttugu og eins árs aldurs. Þá
flutti hann th Akraness og var þar
á bátum í tvö ár. Hann fór síðan
th Reykjavíkur 1937 og var þar
kokkur á bátum th 1943.
Guömundur var á Arinbimi
hersi og særðist þar ásamt öðnun
félögum sínum er þýsk Hankel-
flugvél réðst á þá í skoska kan-
alnum 22.12. 1940 en hann var
frá vinnu í tæpt ár vegna þeirra
sára.
Guðmundur flutti síðan th ísa-
fiarðar 1943, þá orðinn fiölskyldu-
maður, en á ísafirði hefur hann
búið síðan og lengst af stundað sjó-
inn. Hann starfaði í mötuneyti MÍ
í fiögur ár og í kjötvinnslu Norður-
tangans í átta ár en um síðustu
áramót hætti hann störfum vegna
aldurs.
Kona Guömundar er Lára, f. 26.3.
1921, dóttir Veturiiða Guðbjarts-
sonar, verkamanns á ísafiröi, og
Guðrúnar Hahdórsdóttur.
Guðmundur og Lára eignuðust
sjö böm. Þau eru: Jóhann, vega-
gerðarmaður á ísafirði, f. 9.7.1942,
en hann á einn son; Guðrún, hús-
móðir á ísafirði, f. 24.12. 1943, gift
Hjalta Hjaltasyni, skipstjóra á
Fagranesinu, en þau eiga fiögur
böm; Sigurhna, húsmóðir á Akra-
nesi, f. 19.7. 1945, gift Kristófer
Bjamasyni skipstjóra en þau eiga
fiögur böm; Salome, húsmóðir á
Ákranesi, f. 17.9.1946, gift Guðjóni
Bergþórssyni skipstjóra, en þau
eiga eina dóttur; Sverrir, lengst af
skipstjóri en nú verslunarmaður í
Hnífsdal, f. 16.12. 1947, kvæntur
Amalíu Pétursdóttur frá Súganda-
firði, en þau eiga fimm böm; Ólaf-
ur, félagsfræðingur, f. 1.11.1952, d.
1985, en kona hans var Katrín
Fjeldsted Jónsdóttir og eignuðust
þau tvær dætur, og Lára Kristín,
húsmóðir á Akranesi, f. 26.2.1958,
gift Frímanni Jónssyni vélvirkja,
en þau eiga tvö börn. Langafabörn
Guðmundar em nú orðin átta tals-
ins.
Guðmundur átti fimm bræður en
á nú einn bróður á lífi.
Foreldrar Guðmundar vom Ólaf-
ur Ólafsson, sjómaður í Bolungar-
vík, og Jóhanna Kristjánsdóttir.
Föðurforeldrar Guðmundar voru
Ólafur, b. á Hrauni í Skálavík ytri,
Guömundsson, og Sæunn Sigurð-
ardóttir úr Ögursveit. Móðurfor-
eldrar Guðmundar voru Kristján
Þorkelsson, b. í Gmnnavík, og
Guðríður Aradóttir, stúdents,
Jónssonar.
Guðmundur verður ekki heima á
afmæhsdaginn.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra
til að senda því myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa
að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
95 ára
Margrét Ihugadóttir, Syöri-
Hömrum I, ÁsahreppL
Elsa Kristjánsdóttir, Áhheimum
70, Reykjavfk.
80 ára
Signý Gisladóttir, Víkurbraut 26,
Hafnarhreppi.
Hörður J. Gunnarsson, Safamýri
34, Reykjavík.
50 ára
Guðni Þ. Guðmundsson, Spóa-
hólum 4, Reykjavik.
Jón Þ. Brynjólfsson, Sævangi 53,
Hafharfirði.
Sigríður Erla Ólafsdóttir, Rjúpu-
fehi 35, Reykjavik.
Sigurbjörg Árnadóttir, ffiahavegi
1E, Njarövíkum.
40 ára
75 3r3 Sigfriður Steingrimsdóttir,
------------------------------- Skútahrauni 4A, Skútustaða-
Stefanía Axelsdóttir, Hlaðbrekku hreppi.
1, Kópavogi. örn Þorvarðarson, Grettisgötu 2,
Reykjavík.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Öldut-
70 ára
Þórunn Guðmundsdóttir, Dala-
landi 2, Reykjavík.
Vigdís Ingimarsdóttir, Mávahhö
45, Reykjavík.
úni 6, Hafnarfiröi.
Sigurður Kr. Einarsson, Mána-
vegi 1, Selfossi.
ErlaMagnúsdóttir, Lerkilundi 19,
Akureyri.
Fanný Laustsen, Ránargötu 10,
Grindavík.
Ámi S. Sigurjón6son, Heiðvangi
~ 17, RangárvallahreppL
60 ára Lárus Ingólfsson, Skólagerði 16,
------------------------------- Kópavogi.
Kristín Friöriksdóttir, Skipholti Einar Kristjánsson, Bakka-
s53, Reykjavík. hvammi 3, Laxárdalshreppi.
Jenný Jónsdóttir
Jenný Jónsdóttir húsmóðir, th
heimilis að Eyjólfsstöðum í Vatns-
dal, er níræö í dag.
Jenný fæddist að Kornsá í Vatns-
dai og ólst upp í Vatnsdalnum. Hún
var viö nám í Kvennaskólanum á
Blönduósi veturinn 1921.
Jenný giftist 23.7. 1922, Bjama
Jónassyni, f. aö Sauðanesi í Ásum,
8.3. 1896, d. 22.12. 1981. Foreldar
Bjarna voru Jónas Jóhannsson og
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Jenný og Bjarni eignuðust sex
börn en misstu þrjú þeirra í fmm-
bemsku. Þau böm sem upp kom-
ust em: Ingibjörg, húsmóöir aö
Eyjólfsstööum í Vatnsdal, f. 1923,
gift Ingvari A. Steingrímssyni b.
þar, en þau eiga flögur börn; Jón,
b. aö Bakka í Vatnsdal, f. 1925,
kvæntur Kristínu Ingibjörgu Lár-
usdóttur, en þau eiga fimm syni,
og Jóhanna, búsett aö Eyjólfsstöð-
um, f. 1929.
Jenný átti þijár hálfsystur og
Jenný Jónsdóttir.
eina fóstursystur en þær em nú
allar látnar
Foreldar Jennýjar vora Jón Bald-
vinsson og Ingibjörg Kristmunds-
dóttir.