Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1988, Side 40
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988.
Arás á varðstjóra:
Sló allt í
einu til mín
- segir Sveinn Georgsson
„Þetta geröist rétt áöur en ég fór
af vaktinni í gærmorgun. Þessi mað-
ur sló allt í einu til min tvisvar sinn-
um. Ég náöi reyndar að beygja mig
undan svo aö þetta varö alls ekki
eins mikið og látið hefur verið í veðri
vaka. Ég fékk blóðnasir og það er enn
smábólga í nefmu en það er ekki
brotið,'1 sagði Sveinn Georgsson, lög-
regluvarðstjóri í Hafnarfirði, við DV
í morgun en handtekinn maður réðst
á hann með tveimur höggum á lög-
reglustöðinni í fyrrinótt.
Aðdragandi málsins er sá að lög-
reglan var kvödd að bílastöð í Hafn-
arfirði vegna óláta þar. Var einn
maður handtekinn en annar fylgdi
með á lögreglustöðina. Þegar Sveinn
var að tala við mennina réðst annar
þeirra fyrirvaralaust á hann og sló
hann tvisvar í andlitið.
Hinn maðurinn lét öllum illum lát-
um í fangaklefanum og náði að valda
þar einhverjum skemmdum. Telur
lögreglan aö mennimir hafi ekki ver-
ið ölvaðir heldur undir áhrifum ein-
hverra lyfia eða fíkniefna. „Ég er
búinn að vera í lögreglunni í tæp 30
ár og hef aldrei orðið fyrir svona lög-
uðu áður. Ég sé nú enga ástæðu til
að gera neitt mikið úr þessu en það
vekur vissulega athygli að lögreglu-
maður verði fyrir svona árásum."
-hlh
Verslunarmannahelgin:
ÚtJHjð gott
um allt land
Samkvæmt upplýsinginn Veður-
stofunnar er nú útlit fyrir að bæri-
legt veður verði um land allt um
verslunarmannahelgina. Engin stór
lægð er á leiðinni til landsins þannig
að ástæða er til bjartsýni fyrir alla
landsmenn þessa mestu ferðahelgi
ársins. Það gæti þó orðið skýjað í
einhverjum landshlutum og Norður-
landiö helst nefnt til.
Á morgun verður síðan gefin út góð
spá fyrir helgina. Enn sem komið er
hefur aðeins reynst unnt að spá
nokkuð ábyggilega fram á laugardag.
-SMJ
Hafa ekki neitt
vit í kollinum
- segir Steingrímur Hemiannsson
„Ég er eindregið þeirrar skoðun-
ar að við eigum að vinna okkur út
úr verðtryggingunni. í svona mik-
illi verðbólgu er það afar erfitt. En
ég er þeirrar skoðunar aö það eigi
að taka ákveðin skref í þá átt eins
og aörar þjóðir, sem hafa tekiö
þetta föstum og ákveðnum tökum,
hafa gert,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson utanrfidsráðherra.
„Ég lagði til á rfldsstjómarfundi
í síðustu viku að skipuð yrði nefnd
með fulltrúum flokkanna til aö
vinna að samþykkt rikisstjómar-
innar um afiiám verðtryggingar.
Ég vænti þess að viðskiptaráðherra
sé með málið í athugun. Hann tók
þessari tillögu miirni ekki illa.“
Þú telur ekki mögulegt að byggja
á niðurstöðum verötryggingar-
nefhdar viðskiptaráöherra?
„Ja, hún svarar ekki þessari
spurningu. Hún segir að þetta sé
bara ekki tímabært Vitanlega
hefði hún getað komið með tillögur
um að þegar verðbólga væri komin
niöur mætti afnema verðtrygging-
una að hluta. í þessari nefnd em
menn sem em hvergi með tengsl
inn í atvmnulifið sem er að kikna
undan þessum fjármagnskostnaði.
Þetta eru menn sem sitja á ein-
hverjum skrifstofúm i Reykjavík
og em ágætir til sfns brúks þar."
Nefiidin talar um framtíðar-
skipulag á íslenskum fjármagns-
markaði. Getur atvinnulífið beöiö
eftir að slíkt skipulag nái fótfestu?
„Þau fyrirtæki 1 Reykjavík, sem
mokuðu upp peningum í þensl-
unni, em jafnvel að stöðvast eða
það les maður í blöðunum.
Það sem er alvarlegast í þessum
vöxtum er aö vextir á verðtryggð-
um lánum hafa hækkað enn meira
en vextir á óverötryggðum lánum.
Nýlega hækkuðu bæði Iðnaðar-
bankinn og Verslunarbankinn
vexti á verðtryggöum lánum upp í
lö,S af hundraði.“
Bankarnir hafa því unnið gegn
markmiöum ríkisstjórnarinnar.
„Já, við töidum að bankamenn
heföu eitthvert vit í kollinum sjálf-
ir. Þaö virðist ekki vera,“ sagöi
Steingrímur. -gse
Maöurinn, sem féll fjóra metra niður á stétt, var þegar fluttur á
sjúkrahús. Á innfelldu myndinni má sjá hversu hátt fallið var.
Maðurinn var að mála glugga á annarri hæð og sést plankinn,
sem hann stóð á, liggja frá svölunum og út á bríkina. DV-mynd s
AH—j BHmf *
x . lHMf"
LOKI
Þá er bara spurningin hvor
ráðherranna er litblindur!
Veðrið á morgun:
Norð-
austan
kaldi
Á 'morgun verður noröaustan
kaldi með skúrum við noröur- og
austurströndina en björtu veðri
sunnan- og vestanlands.
Hiti verður 6 til 15 stig.
Rokið í gær:
Nokkrar
skemmdiren
engin slys
á fólki
Rokið í gær hafði nokkrar
skemmdir í för með sér en engin
umtalsverö slys á fólki svo vitað sé.
í Vík í Mýrdai fauk samkomutjald
á tvo bíla og skemmdi þá nokkuð en
olli ekki slysum á fólki.
Umferð um Mýrdalssand tepptist
um tíma vegna sandroks og í Vest-
mannaeyjum segir lögreglan að
varla hafi sést milli húsa meiri hluta
dagsins vegna ryksins frá landi.
í Reykjavík fauk landgangur á flug-
vélarvæng vélar frá Sverri Þórodds-
syni og skemmdi hann. Vinnupallar
við hús Ellingsen á Granda fuku um
koll og ollu nokkrum skemmdum á
húsinu.
Á sunnanverðum Heydalsvegi á
Snæfellsnesi vait bíll í gærmorgun
en bílstjórinn slapp ómeiddur. -hlh
60 bflar færðir
til skoðunar
Lögreglan í Reykjavík gerði í gær
skyndiskoðun á bílum. Voru 60 bílar
færðir til skoðunar. Þar af var núme-
rið klippt. af 19, en restin fékk frest
eða rauöan miða. -hlh
Féll fjóra
metra niður
ástétt
Maður, sem var að mála gluggana
á íbúö sinni á annarri hæð í Kópa-
vogi, féll til jarðar og slasaðist í gær-
kvöldi. Hafði maðurinn staðið á
planka, sem lá milli svalanna og
bríkar á húsinu, þegar hann féll eina
fjóra metra niöur á stétt og rotaðist.
Rankaði maðurinn við sér þegar sjú-
krabíll kom á vettvang.
Ekki er vitað nákvæmlega um or-
sök fallsins en plankinn, sem maður-
inn stóð á, var mjór og ekki festur
við húsið. -hlh
Landhelgisdeilur:
Það eru engin
grá svæði til
- segir Halldór Ásgrimsson
„Það er allavega ljóst að það eru
engin „grá svæöi" í íslenskri land-
helgi, hún er alveg skýr,“ sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráöherra þegar hann var spurður um
landhelgisbrot Færeyinga fyrir norð-
an land. Halldór sagði að deilur um
einhver „grá svæði" ættu aldrei að
geta orðið ástæða fyrir því að ekkert
væri gert frekar í máúnu. Eins og
kunnugt er sleppti Landhelgisgæslan
færeysku loðnuskipi sem tekið var
við ólöglegar veiðar fyrir norðan
Melrakkasléttu á sunnudag.
Hjá Gunnari Bergsteinssyni, for-
stjóra Landhelgisgæslunar, fengust
þau svör að ef skip yrðu tekin aftur
á þessu svæði ..þá yrði beitt
ákveðnari aöferðum", án þess þó að
vilja taka fram hvað í því felst. Dóms-
málaráðherra hefur hins vegar sagst
treysta á að brotin verði ekki endur-
tekin. -SMJ