Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Stjórnarflokkamir eiga aðeins
helming af fylgi stjómarinnar
- enginn stuðningsmanna Alþýðubandalagsins á móti stjórninni
Samkvæmt skoöanakönnun DV
eru aðeins 51,9 prósent þeirra, sem
sögðust fylgjandi ríkisstjórninni, til-
búin til þess að kjósa einhvern af
þeim flokkum sem standa að ríkis-
stjórninni. Fjórðungur af fylgi
stjórnarinnar kemur frá þeim sem
eru óákveðnir í afstöðu sinni til
flokka. Stór hluti affylgi stjórnarinn-
Alþýðuflokkur
Fylgjandi 70.3%
Andvígir 5.4%
Óákveönir 24.3%
ar kemur síðan frá Kvennalista en
einnig lítillega frá Sjálfstæðisflokki,
Þjóðarflokki og Borgaraflokki.
Annað sem vekur athygli, þegar
borið er saman fylgi einstakra stjórn-
armálaflokka og stuðningur fylgis-
manna þeirra við stjórnina. er að
enginn þeirra sem sögöust kjósa Al-
þýðubandalagið var á andvígur rík-
Fylgi Alþýðuflokksins
skiptist þannig í
afstöðunni til ríkis-
stjórnarinnar:
Fylgjandi.........70,3%
Andvígir...........5,4%
Óákveönir.........24,3%
Fylgi ríkisstjórnarinnar eftir stjómmálaflokkum
■ Alþýðuflokkur
s Framsóknarfl.
□ Sjálfstæðisfl.
Alþýðubandal.
□ Borgarafl.
□ Kvennalisti
§§ Þjóðarflokkur
□ Óákveðnir
Fylgi ríkisstjórnar-
innar skiptist þannig
eftir stuðningsmönn-
um einstakra
stjórnmálaflokka:
Alþýöuflokkur.....10,1 %
Framsóknarflokkur. 27,1 %
Sjálfstæðísflokkur.... 3,5%
Alþýðubandalag....14,7%
Borgaraflokkur.....0,4%
Kvennalisti........16,7%
Þjóðarflokkur......1,2%
Óákveðnir..........26,3%
Fylgi Framsóknar-
flokksins skiptist
þannig í afstöðunni til
ríkisstjórnarinnar:
Fylgjandi..........88,6%
Andvigir............3,8%
Óákveðnir...........7,6%
Sjálfsteðisflokkur
Fylgjandi 9.17%
Andvígir 70.7%
Öákveönir 19.2%
Framsóknarfl.
Fylgjandi W 88.6%
Andvígir 3.8%
Óákveðnir 7.6%
Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins skiptist
þannig í afstöðunni til
ríkisstjórnarinnar:
Fylgjandí............9,1%
Andvigir............70,7%
Óákveðnir......... 19,2%
Svara ekki...........1,0%
Fylgi Alþýðubanda-
lagsins skiptist þannig
í afstöðunni til
ríkisstjórnarinnar:
Fylgjandi..........92,7%
Andvígir........... 0
Óákveðnir...........7,3%
Alþýðubandal.
Fylgjandl w 92.7%
Andvígir 0.0%
Óákveðnir 7.3%
isstjórninni. Það hlýtur að vekja at-
hygli í ljósi þess hversu blendin af-
staða miðstjórnar flokksins var
gagnvart stjórnarþátttöku.
Þegar litið er á hvað stendur á bak
við fylgi ríkisstjórnarinnar kemur í
ljós að af fylgjendum hennar segjast
27,1 prósent ætla að kjósa Framsókn-
arflokk, 14,7 prósent ætla að kjósa
Alþýðubandalagið og 10,1 prósent
Alþýðuflokkinn. Stjórnarflokkarnir
eiga því 51,9 prósent af fylgi stjórnar-
innar.
Af stuðningsmönnum ríkisstjórn-
arinnar gátu 26,3 prósent ekki gert
úpp hug sinn varðandi stjórnmála-
flokka.
Frá stjórnarandstöðunni fær ríkis-
stjórnin 21,8 prósent af fylgi sínu.
16,7 prósent koma frá stuðnings-
mönnum Kvennalistans, 3,5 prósent
frá Sjálfstæðisflokkunum, 1,2 pró-
sent frá Þjóðarflokknum og 0,4 pró-
sent frá Borgaraflokknum.
Afstaða stuðningsmanna ein-
stakra flokka
Þegar htið er til hver afstaöa fylgj-
enda einstakra ílokka er til ríkis-
stjórnarinnar kemur í ljós aö 70,3
prósent þeirra, sem sögðust styðja
Alþýöuflokkinn, eru fylgjandi ríkis-
stjóminni en 5,4 prósent andvíg. 24,3
prósent eru óákveðin í afstöðu sinni
til stjórnarinnar.
Af fylgjendum Framsóknarflokks-
ins eru 88,6 prósent stuðningsmenn
stjórnarinnar en 3,8 prósent eru and-
víg henni. 7,6 prósent eru óákveðin
í afstöðu sinni til stjórnarinnar.
Af þeim sem sögðust kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn eru 70,7 prósent and-
víg ríkisstjórninni en 9,1 prósent
fylgjandi. 19,2 prósent stuðnings-
manna flokksins eru óákveðin í af-
stöðu sinni og 1 prósent neitaði aö
gefa upp afstööu sína.
Af stuðningsmönnum Alþýðu-
bandalagsins eru 92,7 prósent fylgj-
andi ríkisstjórninni en enginn sagð-
ist vera andvígur henni. Hins vegar
voru 7,3 prósent óákveðin.
Mikill meirihluti fylgismanna
Borgaraflokksins var andvígur ríkis-
stjóminni, eða 88,9 prósent, en 11,1
prósent sagðist fylgja henni.
Afstaða þeirra, sem sögðust kjósa
Kvennalistann, var þannig að 46,2
prósent sögðust fylgjandi ríkisstjórn-
inni en 22,6 prósent andvíg henni.
Óákveðin í afstöðu sinni til stjórnar-
innar voru 30,1 prósent og 1,1 prósent
neitaði að gefa upp hug sinn til
stjórnarinnar. _gse
Borgaraflokkur Fylgi Borgaraflokks- ins skiptist þannig í afstöðunni til ríkisstjórnarinnar: Fylgjandi 11,1% Andvígir 88,9% Óákveðnir fl
Fylgjandl 11.1% Andvígir 88.9% Óákveðnir 0.0%
Fylgi Kvennalistans
skiptist þannig i
afstööunni til
ríkisstjórnarinnar:
Fylgjandi..........46,2%
Andvígir...........22,6%
Óákveðnir..........30,1%
Svaraekki............1,1 %
Fylgjandi 46.2%
Andvígir 22.6%
Óákveðnir 30.1%
Einungis marg-
reynd gengis-
fölsunarleið
- segja iðnrekendur um bráðaaðgerðir stjómarinnar
„Þessar aðgerðir mismuna at-
vinnugreinum en leysa engan
vanda eins og reynslan frá fyrri
árum ber glöggt vitni um. Þetta er
einungis margreynd gengisfólsun-
arleið sem ávallt hefur magnað tap-
rekstur í útílutnings- og samkeppn-
isgreinum samhliða auknum halla
ríkissjóðs og miklum viðskipta-
halla,“ segir í ályktun stjómar Fé-
lags íslenskra iðnrekenda um
bráðaaðgerðir ríkisstjómarinnar í
efnahagsmálum.
í ályktuninni gagnrýna iðrekend-
ur fleiri af stefnumiðum stjórnar-
innar en millifærsluna.
„Iönrekendur vilja einnig vara
alvarlega við þeim fyrirætlunum
ríkisstjórnarinnar að skattleggja
vexti af sparifé. Við núverandi að-
stæður, þar sem enn er meiri eftir-
spurn en framboð fjármagns,
myndu slík áform einungis leiða til
hækkunar á raunvöxtum í landinu
og auka þannig á erfiðleika fram-
leiðsluatvinnuveganna," segir í
ályktuninni.
-gse
Stj ómmálaforingj amir tippuðu:
Steingrímur var
með ellefu rétta
- Þorsteinn með 9 og Jón Baldvln með 8
Steingrim vantaði aðeins einn til að
vinna til verðlauna
Þrátt fyrir amstur og þras í stjórn-
málum undanfarna daga gáfu for-
menn stjórnarflokkanna fyrrver-
andi, þeir Jón Baldvin Hannibalsson,
Steingrímur Hermannsson og Þor-
steinn Pálsson, sér tíma til að tippa
fyrir DV á getraunaseðil þann er Is-
lenskar getraunir og Handknatt-
leikssamband íslands settu í umferð
fyrir ólympíuleikana. Úrslit voru
ekki mjög óvænt en þó þurfti að feta
mjóa veginn og það varlega.
Steingrímur Hermannsson var
nærri því aö ná vinningi, hann náði
ellefu réttum leikjum á tvær raöir.
Steingrímur setti tvö merki: einn og
tvo á leik íslands og Júgóslavíu en
sá leikur endaði jafntefli. Hann spáði
rétt um alla aðra leiki á seðlinum.
Steingrímur fær þó ekki vinning.
Fjórtán raðir komu fram með 12 rétta
og fær hver röð 23.595 krónur. Ekki
verður borgaður út vinningur fyrir
ellefu rétta því að vinningar náðu
ekki lágmarksupphæðinni, 500 krón-
ur. Alls var potturinn 330.365 krónur
og rann óskiptur til þeirra fjórtán
aöila sem náðu öllum tólf leikjunum
réttum á eina röð.
Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálf-
stæðisflokksins, gat rétt um níu leiki
á seðlinum en Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýöuílokksins,
gat rétt um átta leiki á seölinum.
E.J.