Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Page 25
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988.
49
Afmæli
Karvel Ögmundsson
Karvel Ögmundgson, fyrrv. oddviti
og útgerðarmaður, til heimilis að
Sjávargötu 18, Njarðvíkum, er átta-
tíu og fimm ára í dag.
Karvel fæddist á Hellu í Beruvík
á Snæfellsnesi og ólst þar upp. Hann
naut barnaskólafræðslu á Hellis-
sandi fjóra vetur og stundaði nám
við Stýrimannaskólann á ísafirði
1926-27.
Hann byrjaði sjóróðra frá Hellis-
sandi ellefh ára að aldri, var formað-
ur á árabátum frá fjórtán ára aldri
og formaður þar á vetrarskipi nítján
ára. Karvel var skipstjóri á mb,-
Eggerti Ólafssyni frá Isafirði, mb.
Höfrungi, mb. Pælot, mb. Vöggog
mb. Sigurkarfa sem allir voru frá
Njarðvíkum.
Karvel flutti frá Hellissandi til
Njarðvíkur 1933. Hann var oddviti
Njarðvíkurhrepps frá 1942-62, for-
maður Útvegsbændafélags Kefla-
víkur í átján ár og formaður Oliu-
samlags Kefla víkur í þrj átíu ár.
Karvel var gæslumaður barna-
stúkunnar Sumargjafar i fimmtán
ár, formaöur Vinnuveitendafélags
Suðurnesja í tíu ár og í hreppsnefnd
Keflavíkur frá 1938-42. Þá var hann
formaður Sjálfstæðisfélags Kefla-
víkur og síðar formaður Sjálfstæðis-
félags Njarðvíkur og heiðursfélagi
þess. Hann sat í stjórn Sjúkrahúss
Keflavíkur, í fyrstu stjórn Ung-
mennafélags Keflavíkur, var einn
af stofnendum Rotaryklúbbs Kefla-
víkur, í stjórn Oíufélagsins hf. í
Reykjavík frá upphafi og fram á
þennan dag, í stjórn Samvinnu-
trygginga um langt skeið.
Karvel var sæmdur heiðursmerki
Sjómannadagsráðs Keflavíkur 1968,
heiðursmerki sjómannadagsráðs
Hellissands 1976, er heiðursborgari
Njarðvíkur frá 1978 og var sæmdur
Riddarakrossi íslensku fálkaorð-
unnar 1979.
Fyrri kona Karvels var Anna M.
Olgeirsdóttir húsmóðir, f. á Hellis-
sandi 14.1.1904, d. 26.4.1959. For-
eldrar Önnu voru María Guð-
mundsdóttir frá Stór-Hellu, Hellis-
sandi og Olgeir Oliversson frá Gröf
í Grundarfirði.
Börn Karvels og Önnu eru Olga
María, f. 16.8.1928, húsmóðir; Guð-
laug Svanfríður, f. 12.12.1929,
sjúkraliði; Líneik Þórunn, f. 27.8.
1932, íþróttakennari; Ester, f. 23.8.
1933, kennari; Sólveig, f. 19.12.1940,
kennari; Ögmundur, f. 10.3.1936,
flugvirki og Eggert, f. 13.11.1943, d.
22.5.1962, sjómaður.
Seinni kona Karvels er Þórunn
M. Guömundsdóttir húsmóðir, f.
19.9.1933, dóttir Giíðmundar Kr.
Guðmundssonar, skipstjóra í Kefla-
vík, og konu hans Ingibjargar Bene-
diktsdóttur frá ísafirði.
Sonur Karvels og Þórunnar er
Eggert verkamaður, f. 22.5.1964.
Fósturbörn Karvels eru Guð-
mundur R. Mýrdcd, f. 9.10.1950,
sjúkraliði; Kristján S. Kristjánsson,
f. 5.3.1953, smiður; Helgi Kristjáns-
son, f. 19.10.1954, sjómaður; Ingi-
björg Dagmar bankastarfsmaður, f.
30.1.1957 og Magnús Þór Kristjáns-
son, flugvirki, f. 11.5.1963.
Foreldrar Karvels voru Sólveig
Guömundsdóttir húsfreyja, f. í
Purkey á Breiðafirði 2.9.1873, d. 10.6.
1942, og Ögmundur Andrésson
bóndi, f. að Einarslóni 11.7.1855, d.
11.1.1923.
Karvel verður erlendis á afmælis-
daginn.
Karvel Ögmundsson.
Haraldur Ágúst Snorrason
Baldur Brjánsson
Haraldur Ágúst Snorrason málari,
til heimihs að Gnoðarvogi 28,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Haraldur fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Vorsabæjarhóli í Gaul-
verjabæjarhreppi frá fimm ára aldri
og fram að fermingu en unglingsár-
unum eyddi hann síðan í Reykjavík.
Hann hóf nám í málaraiðn árið
1928 hjá Guðmundi Filipussyni mál-
arameistara og stundaði síðan mál-
arastörf í nær samfelld fimmtíu ár.
Síðustu starfsárin var hann bað-
vörður í Hagaskólanum í Reykjavík,
eðatilársins 1984.
Guðmundur hefur starfað mikið
að íþróttamálum en hann var
sæmdur gullmerki Knattspyrnu-
sambands íslands með krossi.
Kona Haraldar er Jóhanna Fann-
ey Ólafsdóttir húsmóðir, f. 1.4.1917,
dóttir Ólafs Péturssonar b. að Sell-
átranesi og síðar í Hænuvík í Rauða-
sandshreppi.
Börn Haraldar og Jóhönnu Fann-
eyjar eru Ólafía Kristrún, f. 18.3.
1938, húsmóðir; Adolf Steinar, f. 5.8.
1939, húsasmiður; Lilja, f. 6.3.1951,
húsmóðir og Fjóla, f. 1.6.1954, hús-
móðir.
Sonur Haraldar frá því fyrir
hjónaband er Gunnar, f. 5.4.1935.
Haraldur átti fjögur alsystkini
sem öll eru látin. Hálfsystkini hans
urðu sjö og eru fimm þeirra á lífi.
Foreldrar Haraldar voru Snorri
Magnússon sjómaður, f. í Efstabæ í
Garði,4.9.1884, d. 11.2.1921, og Jó-
runn Álfsdóttir húsmóðir, f. 19.8.
1888, d. 26.3.1961, en þau bjuggu
lengst af í Reykjavík.
Foreldrar Jórunnar voru Álfur
Jónsson, b. á Eystri-Loftsstöðum og
á Hól í Stokkseyrarhverfi og Rann-
veig Ólafsdóttir, b. í Stapakoti, síðar
á Giljum í Hvolhreppi Guðmunds-
sonar, b. og læknis í Hellisholtum í
Ytrihreppi Ólafssonar.
Álfur var sonur Jóns yngri, b. í
Tungu í Flóa og síðar á Eystri-Lofts-
stööum Ólafssonar, b. og hrepp-
stjóra á Eystri-Loftsstööum Vern-
harössonar, b. á Vestri-Loftsstöðum
Ögmundssonar, b. á Vestri-Lofts-
stöðum Magnússonar, b. á Skúms-
stöðum á Eyrabakka Sveinbjörns-
sonar, b. á Skúmsstöðum, Geir-
Haraldur Ágúst Snorrason.
mundssonar, lögréttumanns á Há-
eyri, Jónssonar, prests í Hruna,
Héðinssonar. Kona Ólafs var Ses-
selja Aradóttir, b. í Götu á Stokks-
eyri, Bergssonar, hreppstjóra i
Brattsholti, Sturlaugssonar, ætt-
fóður Bergsættarinnar.
Haraldur heldur upp á afmælið
með fjöldskyldu sinni.
Kristín
Guðmundsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir, til heimilis
aö Dvalarheimilinu Hraunbúðum í
Vestmannaeyjum, er áttatíu og
fimmáraídag.
Kristín fæddist að Ketilstöðum í
Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu og
ólst upp að Litlu-Hólum í Mýrdal.
Systkini hennar urðu tólf, sex bræð-
urogsexsystur.
Kristín giftist Jóhanni Stíg Þor-
steinssyni, vélstjóra og síðar verka-
manni, f. 3.9.1897, d. 17.8.1970. For-
eldrar hans voru Þorsteinn Vigfús-
son og Sigurbjörg Stígsdóttir.
Kristín og Jóhann fluttu til Vest-
mannaeyja 1923 og hófu þar búskap.
Þau eignuðust þrjú börn.
Foreldrar Kristínar voru Guð-
mundur Guðmundsson b. og kona
hans Rannveig Guðmundsdóttir, en
þau bjuggu lengst af á Brekkum í
Mýrdal.
Kristín tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar, að Kirkjuvegi
67, Vestmannaeyjum, fóstudágs-
kvöldið 30.9. n.k.
Kristin Guðmundsdóttir.
Baldur Brjánsson, hótelstjóri á Hót-
el Borg, til heimilis aö Flúðaseli 32,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Baldur fæddist að Skáldalæk í
Svarfaðardal og ólst upp á Akur-
eyri. Hann vann skrifstofustörf hjá
vélsmiðjunni Héðni árin 1972 til 1983
og var meö eigin atvinnurekstur til
ársins 1985. Síöustu árin hefur Bald-
ur starfað hjá Ólafi Laufdal, fyrst
sem framkvæmdastjóri veitinga-
hússins Hollywood og síðan sem
hótelstjóri Hótel Borgar.
Baldur var um árabil skemmti-
kraftur og sýndi sjónhverfmgar við
góðar undirtektir.
Baldur er kvæntur Sólveigu Þórð-
ardóttur, f. 14.5.1952, verslunar-
manni, dóttur Margrétar Erlu Ein-
arsdóttur húsmóður og Einars Leó
Guðmundssonar skósmiðs, en hann
er stjúpfaðir Sólveigar. Faðir henn-
ar, Þórður Jónsson, lést 2.1.1972.
Börn Baldurs og Sólveigar eru
Erla Dröfn, f. 28.10.1972, og Ragn-
heiður Mjöll, f. 8.3.1974. Baldur á
einnigBjörgu, f. 18.9.1969.
Systkini Baldurs eru Júlíus
Brjánn, f. 28.4.1951, leikari; Guðjón
S., f. 22.5 1955, félagsráðgjafi; Björk
Eva, f. 23.7.1959, bankastarfsmaður;
Snjólaug Jónína, f. 26.7.1962, starfs-
Baldur Brjánsson.
maður á Sólborg; Þráinn, 16.8.1965,
verslunarmaður.
Faðir Baldurs er Brjánn Guðjóns-
son, f. 19.11.1923, deildarstjóri KEA
á Akureyri. Móðir Baldurs er Ragn-
heiður Hlíf Júhusdóttir, f. 10.7.1927,
húsmóðir. Þau búa að Rauðumýri
18áAkureyri.
Valdimar
Fr.
Gíslason
Valdimar Fr. Gíslason kaup-
maður, Stangarholti 24, Reykjavík,
er áttræður í dag.
Valdimar er kvæntur Kristjönu
Þorsteinsdóttur húsmóður.
Valdimar Fr. Gislason.
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og
aðstandendur þeirra til að
senda því myndir og upplýs-
ingar um frændgarð og starfs-
sögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi þremur
dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Til
85 ára
Elínborg Pétursdóttir,
Vestmannabraut 59, Vestmanna-
eyjum.
80 ára___________________
Sveinn Nikódemusson,
Grænubrekku 2, Sauðárkróki.
Sveinn tekur á móti gestum i
Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki
laugardaginn 1. október.
75 ára
Sigurleif Tryggvadóttir,
hamingju
Lyngholti 11, Akureyri.
Jóhannes Þorbjarnarson,
Gunnlaugsgötu 21b, Borgamesi.
70 ára
Sigurður Ólason,
Munkaþverárstræti 31, Akureyri.
Bjöm M. Magnússon,
Lönguhlíð 7, Suöurfjaröarhreppi.
með daginn
50 ára
Nicolai Gissur Bjarnason,
Hlíðarvegi 24, Njarðvík.
Guðmundur A. Sveinsson,
Laugarbraut 25, Akranesi.
Gunnar Kristinn Guðmundsson,
Setbergi 23, Þorlákshöfn.
Magnús Gíslason,
Vestmannabraut 60, Vestmanna-
eyjum.
Bjarni Már Jónsson,
Hlíöarvegi 86, Njarðvík.
Hilmar Ingólfsson,
Hraunholti 7, Akureyri.
Guðborg Elisdóttir,
Framnesvegi 14, Keflavík.
Steinunn Brynjólfsdóttir,
Hlíðarbyggö 3, Garðabæ.
Jón Bjarni Þorsteinsson,
Ljósumýri 3, Garöabæ.
60 ára
40 ára
Guðmundur Jakobsson,
Seiðakvísl 10, Reykjavík.
Kristin Marsellíusdóttir,
Völusteinsstræti 18, Bolungarvik.
Gyða Bárðardóttir,
Birkigrund 3, Kópavogi.
Stefán Bjarnason,
Suðurgötu 40, Sandgerði.