Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Side 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
Utlönd
Ghulam Ishaq Khan, sem var settur
forseti Pakistans þegar Zia forseti
beið bana í flugslysi i ágúst, var í
gær kjörinn forseti landsins.
' Simamynd Reuter
Ishaq Khan
kosinn forseti
Pakistan verður í dag lýðveldi eftir
elleíu ára herstjórn þegar Ghulam
Ishaq Khan tekur viö sem kjörinn
forseti. Þingmannanefnd kaus hann
í gær sem forseta landsins. Ishaq
Khan, sem er 73 ára, mun 'gegna
embætti forseta næstu fimm árin.
Hann er þriðji kjömi forsetinn í Pa-
kistan.
Ekki var búist við öðru en að Ishaq
Khan yrði kjörinn þar sem bæði
flokkur Bhuttos forsætisráðherra og
múhameðska lýðræðisbandalagið
höfðu ákveðið að styðja hann.
Reuter
ísöld í
New York
Geysilegt kuldakast gekk yfir aust-
urhluta Bandaríkjanna um helgina
og sér ekki fyrir endann á þvi. Vegna
heimskautavinda varð kaldara en
nokkum tímann áður á þessum árs-
tíma víða á svæðinu.
í New York tilkynnti lögreglan að
að minnsta kosti tvéir, sem talið var
að hefðu veriö heimilislausir, hefðu
fundist látnir á víðavangi í gær.
Fólk á leið í og úr vinnu sást varla
undir mörgum lögum af treflum
peysum og kápum þar sem það kom
upp úr neðanjarðarlestunum til að
berjast áfram í kuldanum.
Skýli fyrir heimilislausa vom troð-
full því að þeir sem ekki eiga þak
yfir höfuðið þyrptust þangaö inn úr
kuldanum.
í New York borg var lýst yfir neyð-
arástandi vegna kulda og lögreglan
fékk leyfi til að taka með illu þá sem
búa á götum borgarinnar og ekki
vildu koma inn úr kuldanum með
góðu.
Víða í New York fór hitinn niður
fyrir mínus tuttugu gráður á Celsíus.
Reuter
Neyddist til
afsagnar
Dómsmálaráðherra Sviss, Ehsa-
beth Kopp, neyddist til að segja af sér
í gær, aðeins tæpri viku eftir að hún
var kjörin varaforseti landsins. Af-
sögn hennar tengist hneykslismáli
hjá fyrirtæki sem eiginmaður henn-
ar starfar hjá. Kopp vísaði því á bug
að hafa breytt ranglega en kvaðst
taka pólitískum afleiðingum af því
að hafa varað eiginmann sinn við að
fyrirtækið, þar sem hann er vara-
formaður, væri bendlaö við fjármála-
hneyksli.
Afsögn Kopp, sem var fyrsti kven-
ráðherrann í Sviss, þýðir að kona
verður ekki forseti í Sviss á næst-
unni. Kopp heföi orðið forseti í eitt
ár árið 1990 samkvæmt reglum sem
kveða á um að ráðherrar skipti því
á milh sín. Konur í Sviss fengu ekki
rétt til að kjósa í sambandskosning-
um fyrr en árið 1971.
Eiginmaður Kopp sagöi upp starfi
sínu sama dag og hún varaði hann
við. Kopp viðurkenndi ekki fyrr en
á föstudag að hún væri viðriðin af-
sögn eiginmannsins og var hún þá
hvött th að segja af sér. Reuter
<P*
SNORRABRAUT29
SÍMl 62-25-55
HAFNARFJÖRÐUR
DAtSHRAUN 13
SfMI 65-19-57
r~ i
/ O * ir
1 D - 1 D
1
BÖNDSTEC
1 6
CKÍfCK ÖgfíKJSr 0 7
TfMg H
PÖWfeH 4 9
0,gAfi 6 0 v \J
EINN FULLKOMNASTI OG BESTI
ÖRBYLGJUOFNINN
Á MARKAÐNUM!
GETUM NÚ BOÐIÐ TAKMARKAÐ
MAGN AF ÞESSUM FULLKOMNA
BONDSTEC OFNI. Á EINSTÖKU
JÓLABOÐI. VERÐIÐ GILDIR AÐEINS
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST.
650 VATTA ELDUNARORKA.
10 ORKUSTIG. 32 LÍTRA INNANMÁL.
99 MÍN. OG 99 SEK. KLUKKA.
MATREIÐSLUPRÓGRÖM.