Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. Útlönd Skipulags- leysi hamlar hjálparstarfi Hjálparstarfsmenn, sem þurfa að beijast við lélegt skipulag, mikla flugumferð, sem gerir flugvélum með hjálpargögn erfitt fyrir með að koma aðstoð til skjálftasvæðanna, og illa byggð hús, sem hrundu eins og spila- borg, keppa nú við tímann við aö finna íleiri lifandi í rústunum eftir jarðskjálftann mikla. Þaðjteldur þeim einnig vandræö- um að búist er við snjókomu og kulda á svæðinu sem verst varð úti í skjálft- anum. Um eitt hundrað þúsund manns fórust og talið er að um hálf milljón manna hafi misst heimili sín. Gorbatsjov skammaði um helgina þá sem hann telur að séu að reyna að hagnast á ógæfu annarra og einn- ig þá sem hann telur að hafi ekki sýnt nægilega tillitssemi vegna hör- munganna. Hann fordæmdi þá Arm- ena sem eru með kröfur um yfirráð á Nagorno-Karabakh, sem nú er und- ir stjórn Azerbajdzhan. Aö sögn Tass-fréttastofunnar hafa sérþjálfaðar sveitir björgunar- manna, sem Frakkar, ítalir og Aust- urríkismenn sendu, bjargað hátt á sjötta þúsund manns úr rústunum. Aðstoð heldur áfram að berast frá ijörutíu og sex löndum. Valentín Nikiforov, aðstoðarutan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær að enn væri hægt að greina neyðaróp úr rústunum þegar fimm dagareru liðnir frájaröskjálftanum. Tíminn er hins vegar á þrotum. Sérfræðingar segja að aðeins sé hægt að leita í sjö daga vegna hættu á far- sóttum. Tvö flugslys hafa varpað enn frek- ari skugga á hjálparstarfið. Áttatíu og fimm manns fórust í þeim. Fyrst var það sovésk vél sem flutti her- menn sem hrapaði og meö henni fór- ust sjötíu og átta manns. Hin vélin var júgóslavnesk flutningavél og með henni fórust sjö manns. í franska sjónvarpinu var það haft eft- ir flugmanni að flugvélar lentu og tækju sig á loft á tveggja mínútna fresti í Jerevan, höfuðborg Armeníu. Embættismenn hafa sagt blaöa- mönnum að þrátt fyrir mikið álag sé flugumferðarstjórn örugg og sam- kvæmt alþjóðlegum reglum í Jere- van og Lenínakan, sem nær eyðilagð- ist í skjálftanum. Leonid Bibin, háttsettur embættis- maður með yflrumsjón með bygging- um, sagði að rannsókn væri þegar hafin á því hvers vegna mörg ný- byggð hús heföu hrunið í skjálftan- um. Sagði hann aö hver sá sem yrði uppvis að því að hafa ekki farið eftir settum reglum yrði sóttur til saka. Sovéskir flölmiðlar héldu í gær áfram að gagnrýna lélega skipulagn- ingu á björgunarstarflnu og skort á bj örgunartækj um. í gær var tveimur ísraelskum her- ílugvélum, sem voru með lækna og hjálparsveitir innanborðs, snúið við er þær voru á leiðinni til jarðskjálfta- svæðanna eftir að sovéskir embætt- ismenn sögðu að ekki væri þörf á meiri þess konar aðstoð. Talsmaður ísraelshers sagöi að ílutningavélarnar hefðu snúið aftur til Tel Aviv til að þar væri hægt að hlaöa þær með lyflum og öðru því som skortur er á á skjálftasvæðun- um. Talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði aö þetta atvik væri til komið vegna þess að aðstæður væru rugl- ingslegar á hörmungarsvæðunum en ekki vegna þess að Sovétmenn væru að hafna ísraelskri aðstoð. Sovét- menn tóku undir það og hafa sér- staklega þakkað ísraelum skjót og góð viðbrögð þeirra. Reuter Kona, sem komst lífs af úr jarðskjálftanum mikla I síðustu viku, fær hér aðhlynningu hjá lækni á spítala i Jerevan, höfuðborg Armeniu. Símamynd Reuter Sovéskir sjálfboðaliðar, námuverkamenn frá Ukraínu, lyfta hér Narineh Eritsuan, fimm ára gamalli, sem hafði verið föst í rústunum i fimm daga. Litla stúlkan dó á leiðinni á spítala. Faðir hennar er illa haldinn. Símamynd Reuter Björgunarfólk og fólk, sem komst lifs af úr jarðskjálftanum, ráfar hér i rústum Lenínakan um helgina. simamynd Reuter Vopnaðir hermenn standa nú vörð umhverfls aðalstöðvar Samelnuðu þjóðanna f Genf f Svlss þar sem Yasser Arafat mun halda ræðu f dag. Simamynd Reuter Ræðu Arafats beðið með eftirvæntingu ísraelskir hermenn settu á út- göngubann á Gazasvæðinu í gær- kvöldi í tilefni ræðu Yassers Ara- fat, leiötoga samtaka Palestínu- manna, PLO, á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag. Fréttaflutningur af herteknu svæð- unum verður einnig takmarkaður og svæði lokuð af eins og þurfa þykir til að koma í veg fyrir mót- mæli Palestínumanna. Er þetta í annað sinn á tæpri viku að herinn beitir shkum aðgeröum til að koma í veg fyrir óeirðir. Fyrra skiptiö var þegar ár var liöiö frá því að upp- reisnin hófst en þann 9. desember, á ársafinælinu, efndu Palestinu- menn til tveggja sólarhringa alls- hetjarverkfalls. Utanríkisráöherra ísraels, Shim- on Peres, hvatti í gær PLO tii þess aö beina málflutningi sínum gegn ísrael en ekki Bandaríkjunum. Sagði Peres að sameiginleg tilvera Palestínumanna og ísraels yröi að vera í Miðausturlöndum og ekki í NOTður-Ameríku. ísraelsmenn bíða þess nú í of- væni hvort Arafat gefur þaö mikið eftir í ræðu sinni á aUsherjarþing- inu að Bandaríkjamenn verði reiöubúnir til viöræöna viö þá. Bandaríska utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær að Bandaríkjamenn væru fusir til viðræöna ef Arafat vlöurkenndi tilverurétt ísraels, hafnaði hryðjuverkum og viður- kenndi ákvarðanir Sameinuðu þjóðanna varðandi frið við ísrael. ísraelskir leiötogar, og þá sérs- taklega Yitzhak Shamir forsætis- ráðherra, eru hræddir úm að viö- ræður Bandaríkjamanna viö PLO leiði til aukins þrýstings á ísraels- menn um að þeir dragi sig til baka frá herteknu svæðunum án þess að þeir geti tryggt öryggi sitt fyrsL Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.