Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
17
Lesendur
.'!' •<*«
■ .
Bilbelti og ökuljós eru geymd en ekki gleymd hjá andstæc'ingum íslenskrar reglugerðar um notkun
Bflbelti og ökuljós
Reynir hringdi:
Eg var að hlusta á útvarpsstöðina
Bylgjuna í gærkvöldi (8. des.) milli
kl. 18 og 19, í þættinum Reykjavík
síðdegis. Þarna kemur nú margt
fram líkt og í lesendadálkum DV. Eg
tel þetta líka vera þá einu tvo vett-
vanga þar sem almenningur getur
komið sjónarmiðum sínum á fram-
færi í stuttu máli svo skammlaust sé,
án þess þó að þurfa að setjast niður
og skrifa lærðar greinar.
Nú, en þarna í Bylgjuþættinum
kom fram maður og var hann að tala
um bílbelti og ökuljós. Ég man því
miður ekki hvað þessi maður hét,
hringdi á Bylgjuna og ætlaði að
spyija að því og taka þá undir meö
honum, - en það er alltaf sama sag-
an, þar eru símalínur svo uppteknar
að maður nær ekki í gegn.
Ég vil því í lesendadálki DV taka
undir með þessum manni því hann
talaði bæði skýrt og skilmerkilega
og á þann hátt að fólk tók eftir því.
Hann færði góð og gild rök fyrir því,
að skyldunotkun bílbelta og ökuljósa
yfir hábjartan daginn eins og hér er
skylda, t.d. að sumri til, er hrein vit-
leysa.
Hann ræddi mikiö um bílbeltin sem
hann sagði að ætti að láta fólk sjálf-
rátt um að nota og tók dæmi um að
þau hefðu hreinlega valdið alvarlegri
meiðslum en þar sem þau hefðu ekki
verið notuð. - Um ökuljósin geta víst
allir verið sammála að ekki þurfi að
nota að degi til, enda þekkist slíkt
hvergi í heiminum nema hér og í
Svíþjóð og Finnlandi, vegna hags-
muna Volvosamsteypunnar sem'
auglýsir bílana sína með sjálfvirkum
ljósum alltaf þegar bíll er í gangi.
Ég skora á þennan mann að gefa
sig fram og hringja aftur til Bylgj-
unnar eða senda inn lesendabréf um
þetta mál sem hann flutti svo rök-
fastur í símaþætti stöðvarinnar.
Kannski er hann tilbúinn að skrifa
grein um málið. Og hann má vita,
að hann á stóran hóp fylgismanna
hér á landi, miklu stærri en hann
heldur.
I GuWmlr (aKtónf ty11'
I
l ..—
ASfn«i»ift*>uktaM..
/ilallmóíin------
sasffscL
boðtkap------* ..
K*rtók*háltft ——■
ptóotur ta>»a
jiugsun í oTðun® ——
ÁHamb og Hclg*
bóndadóölr-—(
& hagkvæm atfitaS *
veldúx
dular-
fullurn
blfc.90
Jólasaga:
Fjársjóður í Qárhúsi
Kjörinn féla&l
NÝTT
HEFTI
Á
BLAÐ-
SÖLU-
STÖÐUM
UM LAND
ALLT
ÁSKRIFT:
o
27022
KAUPMENN, ATHUGIÐ
Skapið
jóiastemningu.
Kaupið fallega
jólapoka.
Pap^xrspokagerðin
AKRO,
Vitastíg 3, síiuar 11266 og 75477
V
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og sölum.
Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö.
Einkamál. Já, paö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auðvitaö einkamál hvers og eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gaetu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa pau.
Þú hringir...27022
Við birtum...
Þad ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
ffl ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐK)