Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. 21 Iþróttir Hart er barist í NBA-deildinm í köríuknattleik: Detroit Pistons hef url náð bestum áranpi - Spurs og Lakers töpuöu naumlega. Erfitt hjá Boston Mjög hörö barátta var í tveimur leikjum í NBA-deildinni bandarisku í körfuknattleik sem fram fóru í gær. Los Angeles Lakers tapaði fjórða leik sínum á keppnistímabilinu er liðið beið lægri hlut gegn Milwaukee Bucks en lokatölur urðu 95-94, Milwaukee í vil. Þá lék San Antonio Spurs gegn Portland Trail Blazers. Lið Péturs Guð- mundssonar mátti þola tap í mjög jöfnum leik. Portland sigraði 128-123 eftir framlengingu. I NBA-deildinni er keppt á austur- og vesturströndinni. Á hvorri strönd er síöan keppt í tveimur deildum. Lið Detroit Pistons hefur nú náð bestum árangri allra lið- anna á austurströndinni og er með hæsta vinningshlutfallið af öllum liðum NBA-deildarinnar. Liðið hef- ur leikiö 20 leiki og unnið 16 þeirra. Los Angeles Lakers er efst á vestur- ströndinni og kemur víst fáum á óvart. Hins vegar má glögglega sjá á stöðunni í NBA-deildinni hér á eftir hversu mikilvægur Larry Bird er liði sínu, Boston Celtics. Bird á við meiðsli að stríða og hefur lítið sem ekkert getað leikið með liðinu í vetur og staöa liðsins er eftir þvi. En þannig er staðan í dag í NBA- deildinni: (Fyrst er leikjatjöldi, þá unnir leikir, síðan tapaðir leikir og loks vinningshlutfal) AUSTURSTRÖNDIN Atlantshafsdeild 1. NYKnicks....19-13-6-68,4% 2. 76ers.......20-12 - 8 - 60,0% 3. Boston.........19-9-10-47,4% 4. NJNets.........21-8-13-38,1% 5. Charl.Hornets. 17—5—12—29,4% 6. Washington...18-4-14-22,2% Miðdeild 1. Detroit Pistons.20 - 4 -16 - 80,0% 2. Cieveland....17-13-4-76,5% 3. Atlanta......20-12 - 8 - 60,0% 4. Milwaukee....17 -9-8-52,9% 5. Chicago......19-10-9-52,6% 6. Indiana......18-4-14-22,2% VESTURSTRÖNDIN Midvesturdeild 1. ÐenverNuggets .................20-13 - 7 - 65,0% 2. UtahJazz.....19-12-7-63,2% 3. Dallas.......18-11-7-61,1% 4. Houston......20-12-8-60,0% 6- 11-35,3% -0-16-0,0% :ild 15-4-78,9% 10- 8-55,6% 11- 9-55,0% 9-9-50,0% 8-10-44,4% 7- 12-36,8% 3-14-17,6% • Tvennt vekur öðru fremur at- hygli þegar staðan er skoðuð. Ann- ars vegar gott gengi Cleveland Cav- aliers í miðdeildinni á austur- ströndinni og hins vegar endemis slakt gengi nýja liðsins, Miarai Heat, í miðvesturdeild vestur- strandar en liðið hefur ekki enn unmðleikídeíldinni. -SK SA Spurs ...17-■ Miami Heat.... <—16- Kyrrahafsde LA Lakers ...19- PhönixSuns.. ...18- Portland ...20- Seattle ...18- Golden State... ...18-: LAClippers..., ...19-' Sacramento..., ...17-: • Larry Bird - Boston gengur mjög illa án hans. • Isiah Thomas og félagar Detroit eru bestir. • Michael Jordan og Chicago gengur frekar illa. • Erwin „Macig“ Johnson hefur átt sniildarleiki með Lakers. Víkingur áfram í öðru sæti Þrír leikir fóru fram um helgina í 1. deild kvenna í handknattleik. í Vestmannaeyjum áttu Víkingsstúlk- ur í basli með heimamenn og unnu nauman sigur, 23-18. Þórsarar máttu svo þola tvö stórtöp í ferð sinni suð- ur. Á fóstudag lutu þær í lægra haldi fyrir frískum Stjörnustúlkum, 31-19, og á laugardag fyrir FH, 34-13. ÍBV-Víkingur 18-23 Víkingar þurftu svo sannarlega aö hafa fyrir sigri sínum á ÍBV. Víking- ar leiddu leikinn, sem var allan tím- ann mjög harður, og unnu sann- gjarnan sigur, 23-18. Staðan í hálfleik var 12-8. Stefanía Guðjónsdóttir átti góðan leik með ÍBV og dreif lið sitt áfram með krafti sínum. í liði Vík- ings áttu þær Svava Baldvinsdóttir og Halla Helgadóttir góöan leik. • Mörk ÍBV: Andrea 5, Stefanía 3, Ólöf, Berglind og Elísabet 2 hver, Ingibjörg og Sædís 1 mark hvor. • Mörk Víkings: Inga Lára og Svava 5 hvor, Valdís og Halla 4 hvor, Jóna 3, Heiða og Katrín 1 mark hvor. Stjarnan-Þór 31-19 Frískar Stjörnustúlkur með Erlu Rafnsdóttur i fararbroddi unnu ör- uggan sigur á Þór á föstudag. Eftir að hafa leitt í hálfleik, 16-8, héldu þær uppteknum hætti og endaði leik- urinn með tólf marka mun, 31-19. Stjörnustúlkurnar voru mjög frískar í leiknum og skoruðu mörg marka sinna úr hraðaupphlaupum. Erla Rafnsdóttir átti stórleik og skoraði alls 13 mörk þrátt fyrir að vera tekin úr urnferð í síðari hálfleik. Valdís Hallgrímsdóttir átti góðan leik fyrir Þór og einnig átti unglingurinn í lið- inu, Harpa Örvarsdóttir, góða spretti. • Mörk Stjörnunnar: Erla Þuríður 13, Herdís 5, Guðný Gunnsteins 4, Hrund og Helga 3 hvor, Guðný Guðnad. 2 og Ingibjörg 1 mark. • Mörk Þórs: María 6, Valdís 5, Inga Huld 4, Harpa 2, Steinunn og Hugrún 1 hvor. FH-Þór 34-13 Eins og tölurnar gefa til kynna var um einstefnu að ræða og öruggur sigur FH aldrei í hættu. Lokatölur leiksins urðu 34-13 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-7. • Mörk FH: Eva 7, Heiða og Björg 5, Kristín og Sigurborg 4, Rut 3, Ingi- björg, Berglind og Arndís 2 hver. • Mörk Þórs: María 6, Valdís 4, Inga Huld 2 og Bergrós 1 mark. Staðan í 1. deild: 12 10 8 5 5 4 Víkingur 6 5 0 1 122-91 FH 5 4 0 1 98-76 Stjarnan 6 1 1 3 129-103 Haukar 5 2 1 2 88-91 Valur 5 2 0 3 74-80 Þór A ....8 1 0 7 112-184 ÍBV 7 1 0 6 89-150 2 2 ÁBS/EL Gösta Zéllin frá Svíþjóð, sem er forseti alþjóðakeilusambandsins, er staddur hér á landi þessa dagana og leið- beinir íslenskum keiluspilurum í keilusalnum í Öskjuhlíð út þessa viku. Zéllin hefur mikið álit á ísienskum keiluleikurum og telur að í það minnsta konurnar geti unnið til verðlauna á alþjóðlegum mótum eftir tvö ár. Zéllin mun aðstoða við upp- byggingu íslenskra landsliða á næstu árum. Mun hann verða með annan fótinn hér á landi næstu þrju árin. Á myndinni er Gösta Zéllin fyrir miðju. Til vinstri er Jón Hjaltason, eigandi Keilusalarins í Öskjuhlíð, og til hægri er Guðmundur Harð- arson, formaður Keilufélags Reykjavíkur. -SK/DV-mynd KAE Noregur - handknattleikur: Steinar fékk rautt Heimandur Sigrmmdsson, DV, Noregi: Runar, lið Steinars Birgissonar og Snorra Leifssonar í Noregi, vann efsta lið norsku fyrstu deildarinnar, Stavanger, á útivelli um helgina, 19-22. Bar það helst til tiðinda í leikn- um að Steinar Birgisson fékk rautt spjald. Fyrir helgi tapaði Runar, 28-26, á útivelli fyrir Skiens BK. Hvorki Steinar né Snorri komust á blað yfir markahæstu menn. Vestur-Þýskaland: Csernai rekinn frá Frankfurt Pal Csemai, þjálfari Eintracht Frankfurt, var i gær rekinn frá félaginu. Csernai var kennt um ófarir liðsins á keppnistímabilinu en liðið hefur aðeins sigrað í flórum leikjum af sautján, Csemai kom til félagsins í septem- ber og var ætlað að gera stóra hluti með liðið en það fór á annan veg. Csernai var þjálfari Bayem Múnchen þegar Ásgeir Sigurvínsson lék með liðinu en Ásgeir náði ekki að komast í náðina hjá Csemai og fór frá félaginu. Ekki hefur enn verið ákveðið hver verður eftirmaður Csernai en ákvörðun ætti að liggja fyrir á næstu dögum. -JKS Islandsmótið í blaki: KA öruggt með sigur í Eftir 3-2 sigur á ÍS í 1. deild karla í blaki um helgina eru KA-menn orðnir öruggir með deildarmeistara- titilinn, svo framarlega sem þeir tapa ekki fyrir Fram og HSK. Leikur KA og IS var hraður og spennandi, en ekki að sama skapi vel leikinn, og óhætt er að segja að úrslit- in hafi ráðist á „dramatískan" hátt í lokin. Eftir að ÍS hafði komist í 2-1, náði liðið góðri forystu í 4. hrinu og komst í 14-10. Þá kom „smass“ frá KA sem lenti utan vallar og ÍS fagn- aði sigri í hrinunni og leiknum þar með. En skyndilega kom línuvörður til skjalanna, dæmdi að hávöm ÍS hefði snert boltann og þrátt fyrir áköf mótmæli stúdenta varð því ekki haggað. KA skoraði svo 6 stig í röð, vann hrinuna, 16-14, og einnig loka- hrinu leiksins. • KA og ÍS léku einnig í kvenna- flokki. KA hélt í við stúdínur í fyrstu hrinu sem lauk 16-14 fyrir ÍS en eftir að Hrefna Brynjólfsdóttir, kjölfestan í liði KA, meiddist var öll von úti fyrir KA og ÍS vann tvær næstu hrin- ur létt og leikinn því 3-0. • Tveir leikir fóru fram í Neskaup- stað á laugardaginn. í 1. deild karla var hörð barátta á milli botnliðanna, Þróttar Nes. og Fram. Leiknum lauk með sigri Þróttar, 3-2, og er því Fram eina liðið sem ekki hefur unnið leik í deildinni. Hrinurnar fóru: 15-6, 14-16, 15-17, 15-4 og 16-14. Þróttarar hafa fengið liðsstyrk því Sigfinnur l.deild Viggósson var nú löglegur. • Breiöablik fór aðeins með tvær stúlkur úr byrjunarhði austur og þurfti að hafa mikið fyrir sigri sínum en sá leikur endaði einnig 3-2. Þrótt- arar unnu fyrstu tvær hrinurnar, 15-11 og 15-9, en UBK náði að metja þá þriðju, 17-15. Fjórðu hrinu vann UBK, 15-9, og fimmtu, 17-16. • Hjá HK og Þrótti R. í kvenna- flokki var hörkuslagur. Þróttarar áttu einn sinn besta leik í vetur og var Snjólaug Bjamadóttir langbest. Þróttur vann fyrstu tvær hrinurnar, 15-11 og 15-6, og virtist HK þá ekki hafa áhuga á að vinna leikinn. Stúlk- urnar tóku sig þó á í þriðju hrinu og sigruðu í henni, 15-11, og einnig í fiórðu hrinu, 15-13. í úrslitahrinu var Þróttur mun sterkari og vann 15-9.. • í karlaflokki vann HK nokkuð auðveldan sigur á Þrótti R. enda vantaði Leif Harðarson, uppspilara og fyrirliða Þróttar. HK vann fyrstu hrinu, 15-11, og þá næstu, 15-7. Þrótt- arar voru ekki alveg tilbúnir að gef- ast upp og sigruöu í þriðju hrinu mjög örugglega, 15-4. Fjórða hrina var jöfn upp í 7 stig en þá fór Einar Ásgeirsson í uppgjöf hjá HK og breytti stöðunni í 13-7. HK vann svo hrinuna, 15-7. Bestur hjá HK var Geir Hlöðversson en Einar Ásgeirs- son átti einnig góðan leik þó svo að hann gerði nokkur mistök í sókninni. -GK/B Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, á neðangreindum tíma: Ásbraut 21, 2. hæð t.h., talinn eig. Sólrún Þorgeirsdóttir, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur em Friðjón Öm Friðjónsson hdl. og Jón Ingólfsson hdl. Fagranes v/Vatnsenda, þingl. eig. Ami Ómar Sigurðsson, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.20. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Gjaldheimtan í Reykjavík, Skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi og Sig- urður Georgsson hrl. Hófgerði 20, kjallari, þingi eig. Ró- bert Guðmundsson o.fl, fimmtud. 15. des. '88 kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur em Bæjarsjóður Kópavogs og Búnað- arbanki íslands. Vesturvör 9, jarðhæð, þingl. eig. Hamrar hf., föstud. 16. des. ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur em Fjár- heimtan M. og Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, á neðangreindum tíma: Álfaheiði 15, talinn eig. Ómar Jónas- son, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.25. Uppboðsbeiðendur em Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, Bæjarsjóður Kópavogs og Friðjón Óm Friðjónsson hdk_________________________________ Daltún 32, þingl. eig. Guðrún H. Kristjánsdóttir, funmtud. 15. des. ’88 kl. 10.25. Uppboðsbeiðendur em Veð- deild Landsbanka íslands og Bmna- bótafélag Islands. Efstihjalli 13, 1. hæð f.m., þingl. eig. Þórarinn Þórarinsson, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.05. Uppboðsbeiðendur em Tryggingastoínun ríkisins og Friðjón Öm Friðjónsson hdl. Fagrabrekka 32, þingl. eig. Guðmund- ur Antonsson, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.25. Uppboðsbeiðendur em Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, Ari Isberg hdl. og Veðdeild Lands- banka Islands. Fannborg 7, 4. hæð t.v., þingl. eig. Sigurlaug Þorleiísdóttir, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka Islands og Verslunarbanki íslands. Hamraborg 12, 5. hæð, þingl. eig. Marbakki hf., fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.20. Uppboðsbeiðendur em Jóhann H. Níelsson hrl., Ólafúr B. Ámason hdl., Skattheimta ríkissjóðs í Kópa- vogi og Ingólfur Friðjónsson hdl. Hófgerði 15, aðalhæð, þmgl. eig. Helga Sólveig Jóhannesdóttir, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.05. Upp- boðsbeiðandi er Baldur Guðlaugsson hrl. Kársnesbraut 51, íbúð 02.02, talinn eig. Hafdís H. Heimisdóttir, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.10. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Kjarrhólmi 16, 4. hæð, þingl. eig. Maríanna Einarsdóttir, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.10. Uppboðsbeiðendm- em Veðdeild Landsbanka Islands og Guðjón Armann Jónsson hdl. Sæbólsbraut 26, íbúð 02-01, þingl. eig. Óskar Guðjónsson, fimmtud. 15. des. ’88 kl. 10.20. Uppboðsbeiðandi er Bæj- arsjóður Kópavogs. Selbrekka 40, talinn eig. Sighvatur Blöndal, fóstud. 16. des. ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur em Landsbanki íslands, Verslunarbanki íslands, Út- vegsbanki íslands, Iðnaðarbanki ís- lands hf, Ingvar Bjömsson hdl. og Bmnabótafélag Islands. BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI Cruyff tekjuhæsti þjáHarí heims - tekjumar nema 48 milljónmn ári Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Hollendingurinn Johan Cruyff er hæst launaði knatt- spyrnuþjálfari heims um þessar mundir, segja hreyknir forráðamenn spænska stórveldisins Barcelona. Cruyff fær 48 milljónir króna í föst laun á ári og auk þess tvöfaldan bónus leikmanna fyrir unna leiki. Eins ekur hann um á dýrustu tegundinni af Benz en leigu fyrir lúxusíbúðina sína í Barcelona greiðir hann sjálfur, litlar 350 þúsund krónur á mánuði! íþróttir Sigurður á fðrum frá ÍBK níutíu prósent líkur, segir Sigurður Björgvinsson Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Miklar líkur eru á því að 1. deild- ar lið Keflvíkinga sjái á bak fyrir- liða sínum og reyndasta leikmanni fyrir næsta keppnistímabil. Sigurð- ur Björgvinsson hugsar sér til hreyfings frá Keflavík en í samtali við DV sagðist hann ekki hafa ákveðið með hvaða liði hann léki næsta sumar. „Það má segja aö 9Q prósent líkur séu á því að ég skipti um félag en ég tek ekki endanlega ákvörðun fyrr en eftir áramótin," sagði Sig- urður við DV. Sigurður er þrítugur og hefur leikið með Keflvíkingum í 1. deild- inni frá 17 ára aldri. Hann er leikja- hæsti leikmaður ÍBK í 1. deild frá upphafi, hefur spilað 188 leiki með| liðinu í deildinni. Keflvíkingar hafa þegar misstl þrjá lykilmenn frá síðasta tímabili, Grétar og Daníel Einarssyni í Víðif og Ragnar Margeirsson í Fram, og ef svo heldur fram sem horfir eiga þeir erfitt sumar framundan í l.| deildinni. Tennis: Cash vann loks sigur í Ástralíu Ástralinn Pat Cash kom á ný fram í sviðsfiósið um helgina á stórmóti í tennis sem fram fór í Ástralíu. Cash hefur átt við meiðsli að stríða í fjóra mánuði en virtist vel á sig kominn á mót- inu. Pat Cash sigraði Johan Ander- son í úrsMtaleik, 6-7, 6-1, 6-2. Cash vann sigur, eins og kunnugt er, á Wimbledon 1987 en síðan hefur hann átt erfitt uppdráttar þangað til á mótinu um helgina. Næsta stórmót tennisfólks verð- ur opna ástralska mótið sem veröur í janúar. Cash lék á síðasta ári á því móti en tapaði fyrir Mats Wiland- er í úrslitaleik. -JKS Stuttgart á heimaleik Sigurður Bjömssan, DV, V-Þýskalandi: Ásgeir Sigurvinsson og félagar í Stuttgart fá heimaleik í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu en til þeirra var dregið á sunnudag. Stuttgart fær Kaiserslautem í heimsókn og ætti að eiga mikla raöguleika á að komast í undanúrslitin. Stórleikur umferðarinnar verð- ur í Hamborg þar sem Hamborg- arar fá meistara Werder Bremen í heimsókn. Dortmund, sem vann Schalke 3-2 á útivelM á laugar- dagskvöld, fær heimaleik við Bayem Múnchen eða Karlsruher og Leverkusen leikur heima gegn Aachen eða Uerdingen. Garðar á Skagann Siguigeir Sveinsson, DV, Akranesi: Skagamenn hafa fengið til Mðs við sig sóknarmanninn Garðar Jónsson sem hyggst leika með þeim í 1. deildinni næsta sumar. Garðar lék lengi með Skaliagrími en síðustu árin hefur hann þjálf- að og leikið með Hvöt og Dalvík í 3. og 4. deild og jafnan skoraö mikiö af mörkum. Hann er bróðir Gunnars Jónssonar sem lék með Skagamönnum sl. sumar. Teg. Scala Litir: svart og hvítt Verð aðeins kr. 66.150, stgr. Teg. Asolo Bæsuð eik Verð kr. 71.200, stgr. NÝJAR SENDINGAR Reykjavíkurvegi 66 - sími 54100.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.