Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Qupperneq 30
30
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
LífsstOI
Jólagóðgæti
handa sæl-
gætísgrísum
Þaö er ekki ónýtt að eiga mömmu sem býr til konfekt af bestu gerö. Aö vísu fær maður ekki alltaf aö sitja svona viö
og háma í sig sælgæti, bara um jólin. DV-myndir Kristján Ari
Fyrir utan mat og drykk yfir jólahá-
tíðina er sælgæti á borðum flesta
dagana, sem gerir hátíðina samfellda
sætabrauðsdaga. í dag er sælgæti
orðiö fremur hversdagslegt góðgæti
á flestum heimilum, alla vega þetta
venjulegasta. Til að gera jólasælgæt-
ið öðruvísi og hátíðlegra er annað-
hvort keypt konfekt í fallegum köss-
um eða heimilisfólkið gerir sitt eigið
konfekt, sem er það alskemmtileg-
asta.
Mest er gaman ef allir fá að gera
eítthvað, börn og fullorðnir. Því ætti
að reyna að gera eitthvað einfalt sem
börn ráða við. Það sem þarf er
marsipan, hnetur og/eða möndlur,
súkkulaði og einhver bragöefni. Síð-
an má bæta ýmsu við, alls kyns
^þurrkuðum og nýjum ávöxtum,
rjóma og fleiru. Súkkulaðið, sem
notaö er, má annaðhvort vera hjúp-
súkkulaði eða suðusúkkulaði, allt
eftir efnum og ástæðum.
Súkkulaðikúlur
250 g súkkulaði
1 A dl hakkaðar döðlur
1 /i dl hakkaðar hnetur/möndlur
2 msk. sultaöur appelsínubörkur
Bræðiö súkkulaðið yfir vatnsbaði
og varist að vatn eða gufa komist að
•^iví. Kælið það aðeins og blandið
döðlum, hnetum og appelsínuberki
saman viö.
Mótið kúlur með tveim teskeiöum
og setjið á bökunarpappír. Kæliö og
geymið í vel lokuðu og þéttu boxi.
Sælgæti fyrir
fullorðna
250 g steinlausar sveskjur
1 dl portvín
75 g og 100 g af marsipani
150 g súkkulaði
1 msk. matarolía
Skraut
valhnetur, sykruð kokkteilber eða
kökuskraut
Setjið sveskjurnar í pott meö vatni
og látið suðúna koma upp. Takið
sveskjurnar úr vatninu og látið
renna vel af þeim. Setjið sveskjurnar
i skál, hellið portvíninu yfir og geym-
ið yfir nótt. Látið renna aftur af
sveskjunum og setjið lítinn marsip-
anbita inn í hverja. Notið minni
marsipanskammtinn.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði
og hnoðið sveskjurnar saman við
afganginn af marsipaninu. Mótið í
rúllur og hjúpið þær vel með súkku-
laðinu. Notið til þess tannstöngla eða
gaffal. Kælið konfektið á rist og sker-
ið síðan í sneiðar. Einnig má skera
konfektið niður áður og hjúpa hverja
sneið fyrir sig;
Sólblómasælgæti
Þetta sælgæti er fremur ,,hollt“ ef
hægt er að segja að eitthvert sælgæti
sé hollara en annað.
y< dl sólblómafræ
'A dl fínt hakkaðar rúsínur
1 'A dl fínt hakkaðar döðlur
2-3 msk. hnetusmjör
1 msk. hunang
'A dl kókosmjöl
'A dl sesamfræ
Hitið ofninn í 175°. Myljið sólblóma-
fræin í blandara eða í mortéli þar til
þau verða mjölkennd. Hrærið öllum
efnunum saman, nema kókosmjöli
og sesamfræjum, þar til úr því verð-
ur þykkt deig. Ef efnin loða ekki
nógu vel saman bætið þá meira
hnetusmjöri viö. Bakiö kókos og ses-
amfræin í ofninum í 10 mínútur.
Kælið.
Mótið deigið í rúllu og veltið henni
upp úr kókos/sesamblöndunni.
Geymið í kæli, innpakkað í álpappír.
Hnetubitar
100 g smjör
örlítið salt (A kryddskeið)
1 'A dl síróp
1 'A dl rjómi
1 dl sykur
125 g mjólkusúkkulaði
3 dl heslihnetukjamar
Bræðið smjörið í rjómanum í þykk-
botna potti. Hrærið sykur og síróp
saman við og látið suðuna koma upp.
Bijótið súkkulaðið í bita og setjið
saman við hræruna. Prófið hvort
blandan er orðin nógu seig með því
að setja dropa í glas með köldu vatni.
Ef dropinn heldur lögun sinni er
hræran tilbúin. Setjið hakkaða
hnetukjarna saman við hræruna og
hrærið vel. Jafnið hrærunni vel yfir
smurða bökunarplötu og kælið. Þeg-
ar karamellurnar eru orðnar nógu
kaldar eru þær skornar niöur í smáa
ferninga.
Rjómakaramellur
Þetta em gamaldags rjómakaramell-
ur sem bragðast alveg sérstaklega
vel og eru einfaldar í allri gerð.
2 dl ijómi
2 msk. smjör
2 'A dl sykur
2 dl ljóst síróp
Bræðið smjöriö í ijómanum í þykk-
botna potti og blandið síðan sykri og
sírópi saman við. Látiö sjóða við
vægan hita í nokkrar mínútur. Próf-
ið hvort karamellan er orðin nægi-
lega seig (sjá að ofan). Skiptið hrær-
unni í litil pappírsmót á bökunar-
plötu klædda bökunarpappír. Hafið
mótin tvö fyrir hverja karamellu.
Einnig má hella hrærunni á smurða
bökunarplötu og skera karamelluna
í teninga áður en hún er fullköld.
-JJ
Á mjög auðveldan hátt er hægt að búa til einfaldar marsipankúlur. í þessa
lögun var notaður marsipanmassi sem heitir ökonomimarsipan en 500 g
kosta um 190 krónur. Skiptið massanum í (ernt og bætið bragðefnum i.
Bragðefni geta verið líkjörar eða dropar (essensar) eftir smekk. Hnoðið
kúlur, helst jafnar að stærð, og hjúpið þær með súkkulaði. Kúlunum má
siðan dýfa í kókosmjöl, hnetu- eða möndluspæni eða kökuskraut. Bragð-
gott konfekt sem allir, börn og fullorðnir, geta gert og alls ekki dýrt.
Konfekt steypt í mót
Húsmóðir ein í Mosfellsbænum,
Björg Ólafsdóttir, hefur um nokk-
urt skeið steypt sitt eigiö konfekt í
mótum. Mótin hefur hún flutt sjálf
inn og hefur um nokkurn tíma ver-
iö að þróa heppilega blöndu í
súkkulaðið. Ef þiö hafið einhvers
konar mót til konfektgerðar er al-
veg tilvaliö að nota hennar aðferð.
Eins og stóra myndin sýnir bræðir
hún fyrst hvítt súkkulaöi í neðsta
lagið. Það er hins vegar val hvers
og eins hvort það er gert. Fyrsta
lagið er látið storkna vel og síðan
er sprautað þunnu lagi af súkkul-
aðiblöndunni og látið storkna. Síð-
an er fyllingin sett í mótið og
Matur
súkkulaðiblöndu sprautað með-
fram fyllingunni og yfir. Aftur er
svo súkkulaðiö látið storkna. Súkk-
ulaðið á að storkna við stofuhita
en ekki í kæli.
Fylling í konfektiö getur verið
hvað sem er. Einhvers konar
hnetukjarnar, marsipan og/eða
súkkulaöifylling, bragðbætt með
dropum eða líkjör (piparmyntu,
Cointreau, Tia Maria eða Grand (
Marnier).
Björg gaf okkur uppskriftir að
súkkulaðiblöndunni sinni og einn-
ig súkkulaðifyllingunni.
Konfektsúkkulaði
200 g Síríus hjúpsúkkulaði
100 g Opal hjúpsúkkulaði
50-100 g Síríus suðusúkkulaði
Allar súkkulaðitegundirnar eru
brotnar niður í skál eða pott og
bræddar yfir vatnsbaði. Varist að
vatn eða gufa komist að súkkulað-
inu og bræðiö súkkulaðiö hægt.
Súkkulaðið er sett í sprautupoka
sem búinn er til úr einfoldum plast-
poka. Pokinn er settur í hátt vatns-
glas með efsta lagið breitt yfir glas-
barmana meðan verið er að fylla
hann.
Súkkulaðifylling
1 egg
100 g suðusúkkulaði
50 g palmín
Bræðið súkkulaði og palmín sam-
an í skál eða potti. Þeytið eggið
saman vel saman viö og bragö-
bætið fyllinguna eftir smekk með
dropum eða líkjör.
Hnetusælgæti
Björg gaf líka uppskrift að þessu
góða hnetusælgæti, sem einfalt er
í allri gerð.
'A bolli hnetur
/» bolli smjör
1 bolli flórsykur
2 msk. hnetusmjör
2 msk. crisco eða palmín
1 % bolli M og M
3 bollar kornflögur
Öll hráefnin, að undanskildu
M&M og kornflögum, eru sett í
pott og hituö við vægan hita. Síðan
er M&M og kornflögum bætt út í
og stappað saman við með sleif.
Sett í lítil pappírsform og látið
storkna. -JJ