Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUK 14. DESEMBER 1988.
Fréttir
Útflutningsbætur greiöa fyrir heimaslátrun:
Slátra heima og fá
lömbin tvígreidd
- slátruuarskýrslur bænda verða skoöaöar
Gríðarleg heimaslátrun hefur átt
sér stað í sveitum landsins það sem
af er árinu og eru flestir sammála
um aö magnið núna sé gjörólikt því
sem áður hefur þekkst. Ástæður
þess munu vera samspil kvóta og
matarskatts.
Að sögn bónda nokkurs á Suður-
landi er töluvert um að bændur
slátri 60 til 100 lömbum heima hjá
sér og selji framhjá afurðastöðvun-
um. Þessi sami bóndi áætlaði að
magnið í ár væri 1200 til 1500 tonn
sem heimamarkaöurinn velti. Þaö
er tala sem samsvarar 100.000
skrokkum miðað við 15 kg meðal-
þunga. Þetta er ótrúleg tala enda
hafna forráðamenn bændasamtaka
þessu - telja að umfangið sé mun
minna.
Mikil eftirsókn er í kjöt af heima-
slátruðu, enda ódýrara. og þá þykir
sumum það betra. Þá hafa margir
bændur reynst duglegir í markaðs-
setningu og hefur áöur verið sagt
frá því hér í DV að þokkalegar
pylsugerðir hafi sprottiö upp í
sveitum.
Það finnst hins vegar mörgum
óþarfi að útflutningsbætur skuli
borga fyrir kjöt af skepnum sem
slátrað er heima og selt þar. Málið
er þannig vaxið að bændur fá
greiddar 158 krónur fyrir hvert kíló
sem vantar upp á fullvirðisrétt
þeirra'. Þegar bændur selja svo
þetta kjöt selja þeir það 50 krónum
undir viðurkenndu útsöluverði og
hirða því 100 króna mismun. Þeir
græða 100 krónur á hverju kílói
sem þeir selja framhjá afurðastöðv-
unum - þökk sé útflutningsbótun-
um.
Þá hafa margir bændur áhyggjur
af því hvaða áhrif þessi mikla
heimasala hefur á framkvæmd bú-
vörusamninga. Þar eð mikið magn
kjöts skili sér framhjá afurðastöðv-
unum verði að endurskoða það
magn sem bændum verði tryggt
fullt verð fyrir.
Bændur verða skoðaðir
Að sögn Hákonar Sigurgrímsson-
ar hjá Stéttarsambandi bænda hafa
margir haft samband við þá og sagt
svipaða sögu. Hann sagði að um 100
milljónir króna ættu að fara í að
greiða bændum sem framleiddu
ekki upp í fullvirðisrétt. Sú upphæð
er tekin af útflutningsbótafé og er
það rökstutt þannig að skynsam-
legra sé að koma í veg fyrir fram-
leiðslu sem síðan yrði að senda út.
Þá eru 300.kr. greiddar með kílóinu.
Hákon sagði að fyllsta ástæða
væri til að fylgjast með því hvort
framleiðsla minnkar verulega á
milli ára og yrði keyrt saman slátr-
unin nú og ásetningurinn í fyrra
og ef eitthvað afbrigðilegt kæmi í
Ijós yrði það skoðað.
Gert er ráð fyrir að þessar 100
milljónir verði greiddar út í janúar
en í október voru greiddar 27 millj-
ónir til mjólkurframleiðenda sem
náðu ekki að framleiða upp í full-
virðisrétt sinn á því verðlagsári
sem lauk í september.
-SMJ
Ríkisstjórnin gefur
eftir verkfallsréttinn
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra lýsti því yfir á fundi í efri
deild í gærkvöldi, við umræður uní
bráðabirgðalögin, að felld yrði úr
j"' sú málsgrein bráðabirgðalag-
•".a þar sem kveðið er á um að
óheimilt sé með verkföllum, verk-
bönnum eða öðrum aðgerðum að
knýja fram önnur laun en felast í
bráöabirgðalögunum. Afram verða
þó í gildi ákvæði sem framlengja alla
gildandi kjarasamninga til 15. febrúar.
Þessi yfirlýsing vakti mikla at-
hygli?Hún kom rétt fyrir kl. 19 en
hafði verið samþykkt á ríkisstjórnar-
fundi fyrr um' morguninn. Umræð-
um um bráðabirgðalögin var frestað
um kl. 23 en 2. umræðu verður fram
haldið i dag. Forráðamenn launþega-
hreyfinganna komu fyrir fjárhags-
og viðskiptanefnd í morgun og gerðu
grein fyrir afstöðu sinni til þessara
breytinga.
Forsætisráðherra neitaði því alfar-
ið að þe3si ákvörðun væri tilkomin
vegna þess að bráðabirgðalögin
hefðu ekki stuðning stjórnarliða.
Hann sagðist hins vegar vera sann-
færður um aö þessi ákvörðun gerði
viðræður við launþegahreyfmgarnar
auðveldari enda væri með þessu ver-
ið að koma til móts við vilja þeirra.
-SMJ
Stjómarandstaðan:
Björgunaraðgerðir
hjá Steingrími
„Þessi breyting hefur enga emis- Þorsteinn sagði að þetta hefði ekki er i gildi launafrysting," sagði Dan-
lega þýðingu því allir samningar
eru framlengdir til 15. febrúar og
því er óheimilt aö breyta þeim með
verkföllum þangað til,“ sagði Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins. „Annaöhvort hef-
ur ríkisstjórin ekki kunnað skil á
efhi laganna eða hún hefur verið
aö blekkja. Það er vitaö mál að
þetta kom upp í ríkisstjórninni af
því hún hefur ekki meirihlutafyrir
bráðabirgðalögunum í eigin liði.“
áhrif á sameiginlega breytingatil-
lögu stjórnarandstööunnar viö
bráöabirgðalögin.
„Það er eindregin stefna min aö
samningar verði gefnir frjálsir og
því skiptir þessi samþykkt miklu
máli,“ sagði Aöalheiður Bjarn-
freösdóttir, þingmaður Borgara-
flokksins, um yfirlýsingu Stein-
gríms en vildi ekki tjá sig að öðru
leyti um málið.
„Það má ekki gleymast að ennþá
fríöur Skarphéðinsdóttir, þing-
flokksformaöur Kvejmalistans.
Hún sagði að vissulega mætti túlka
þetta svo aö ríkisstjórnin væri aö
átta sig en einnig væri þetta björg-
unaraðgerð hjá ríkisstjórninni.
Hún sagðist ekkert vilja tjá sig um
þaö hvort þetta heföi áhrif á afstöðu
Kvennalistans til bráðabirgðalag-
anna að öðru leyti.
-SMJ
Rlkissjóöur:
Ekki afgangur
á næsta ári
í áætlunum fjármálaráðherra er
gert ráð fyrir að með hækkun á bens-
íngjaldi, áfengi og tóbaki muni af-
koma ríkissjóðs á næsta ári rétt
skríða yfir núllið.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra lýsti því yfir á þingi í gær
aö hallinn á ríkissjóði á þessu ári
stefndi í um 7 milljarða. Þetta er ekki
byggt á áætlun fjármálaráöuneytis-
ins. Hallinn í lok nóvember var um
6 milljarðar. Gert er ráð fyrir aö út-
koman á árinu öllu veröi um 5 til 6
milljarðar. Þessi halli gerir álíka'
stórt gat í fjárlög næsta árs.
Á móti um 5,5 milljörðum í nýja
skatta og niðurskurð á næsta ári
kemur að útgjöld hafa hækkaö um
400 milljónir. Fjármálaráðherra hef-
ur því rúma 5 milljarða upp í 5 til 6
milljaröa gat á næsta ári. Til viöbótar
bætist hækkun á bensíni og áfengi
sem skila einhverjum hundruðum
milljóna. Með þeim hætti verður rík-
issjóður hallalaus en án tekjuaf-
gangs. -gse
Helgi og Margeir
með 6,5 af 9
Helgi Ólafsson og Margeir Pét-
ursson hlutu 6,5 vinninga í 9
umferðum á opna skákmótinu í
Júgóslavíu. Sex skákmenn deildu
með sér efsta sætinu og hlutu 7
vinninga. Jón L. Árnason hlaut
4,5 vinninga.
Efstu menn mótsins voru Hul-
ak, Gurevits, Psakhis, Polugajev-
ski, Naumkin og Pigusov. Þeir
eru allir frá Sovétríkjunum nema
heimamaöurinn Hulak.
Átta efstu menn mótsins unnu
sér rétt til að tefla um sæti í
heimsbikarkeppninni í skák.
Margeir var aöeins hársbreidd
frá áttunda sætinu en styrkleiki
andstæðinganna réð röð skák-
manna sem voru jafnir að vinn-
ingum. -pv
Kolbrún Haraldsdóttir, móðir þriburastúlknanna sem fæddust 18. október,
tekur við jólaglaðningi upp á 150 þúsund krónur úr hendi Ragnheiðar Vig-
gósdóttur, formanns kvenféiagsins Hringsins. Með á myndinni er Helga
Hafsteinsdóttir, gjaldkeri Hringsins - og þríburasysturnar að sjálfsögðu.
DV-mynd GVA
Jólaglaöningur frá kvenfélaginu Hrmgnum:
Gáfu þríburamóður
150 þúsund krónur
* . # ^ o • -
Kvenfélagið Hringurinn ákvað sam-
hljóða á fundi fyrir skömmu að gefa
Kolbrúnu Haraldsdóttur, móður þrí-
burasystranna sem fæddust 18. okt-
óber síðastliðinn, 150 þúsund krónur.
Ragnheiður Viggósdóttir, formaður
Hringsins, afhenti Kolbrúnu þennan
jólaglaðning í gærdag.
Kolbrún er gift Magnúsi ívari Þor-
valdssyni prentara og eiga þau eina
tveggja ára stelpu fyrir, Maríu, sem
var í leikskólanum þegar blaða-
mann, ljósmyndara og gefendur bar
að garði. Kolbrún á auk þess tvo
stóra stráka, 19 og 20 ára.
Vel lá á þríburasystrunum við
þetta skemmtilega tækifæri og létu
þær sér fátt um finnast þótt stofan
fylltist allt í einu af ókunnugu fólki
- og flassljósi ljósmyndarans.
Þríburasysturnar fóru heim með
mömmu sinni 1. nóvember, daginn
sem íjórburarnir fæddust. Kolbrún
er sjálf tvíburi og verður fertug í
febrúar. Þá á að skíra þríburasyst-
urnar. „Það er hagkvæmast að slá
þessum veislum saman.“
- Hvernig gengur að annast þríbur-
ana?
„Þaö er stundum erfltt, aðallega á
nóttunni. Við reynum að skiptast á,
halda vaktir, en oft erum viö ansi
svefnlítil. Bróðurdætur mannsins
míns, þær Hanna Dísa og Linda Rós,
koma oft hingað og hjálpa til við aö
annast frænkur sínar.“
Kolbrún segist hafa orðiö amma
fyrir rúmu ári og _er annaö barna-
barn á leiðinni. „Ég hef því varla
mátt vera að því að vera amma þar
sem maður hefur svo mikið að gera
í kringum sín eigin börn.“
Það er í mörgu aö snúast fyrir jól-
in, ekki síst þegar um þríbura er að
ræða og tveggja ára systur þar aö
auki. Kemur þessi glaðningur sér því
örugglega vel fyrir Kolbrúnu og fjöl-
skyldu. -hlh
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ:
Engin ef nisleg breyting
- allar aðgerðir bannaöar til 15. febrúar
„Það er ljóst að það hefur orðiö
grundvallarhugarfarsbreyting hjá
ríkisstjórninni, sem ber að sjálfsögöu
að fagna,“ sagði Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ. „Eins og forsætis-
ráðherra útskýrði fyrir mér þá er
stefnt aö því að öllum verði heimilt
að gera samninga og þess vegna
ganga til verkfalla og hvaða aðgerða
sem menn kjósa, þegar samningar
eru lausir samkvæmt upphaflega
samningstímanum. Það þýðir að sjó-
menn og aðrir, sem voru með lausa
samninga þegar lögin gengu yfir í
vor, munu hafa allt opið þegar þessi
breyting verður samþykkt, opinberir
starfsmenn og Sókn um áramót og
aörir síöar.“
Ásmundur sagði að eftir að hann
hefði skoðað þetta nánar sýndist
honum þetta ekki standast og því
hefði hann fariö fram á lögfræðilega
álitsgerð á þessari samþykkt ríkis-
stjórnarinnar. „Mér sýnist að það
standi það ákvæði að samningar séu
framlengdir áfram til 15. febrúar og
sé það réttur skilningur gildir sú al-
menna vinnuréttarregla aö ekki er
heimilt aö knýja fram breytingar á
samningi með aðgerðum á meðan
samningurinn er í gildi. En á gildis-
tíma samnings gildir friðarskylda.
Sé þetta rétt verður ekki séð að það
sé nein efnisbreyting fólgin í þeim
breytingartillögum sem er verið að
leggja fram. Sé svo hefur ríkisstjórn-
in ekki gengið eins langt og hún ætl-
aði að gera og hún hlýtur að færa
breytingarnar i þann búning að
hennar vilji komi fram. Þá er eölilegt
um leið að tryggja öllum sömu að-
stöðu þannig að allir geti gengið til
samninga með óbundnar hendur
strax."
Ásmundur sagði að þessar breyt-
ingar hefðu engin áhrif á þær launa-
hækkanir sem áttu að eiga sér stað
á samningstímanum, 1. september
og 1. desember. Þær myndu ekki
koma til framkvæmda eftir sem áð-
ur.
-SMJ