Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 5
<111/ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988. Fréttir Áfengiskaupamálið: Jón Steinar lögmaður Magnúsar Thoroddsen Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður verður lögmaður Magnúsar Thoroddsen í áfengis- kaupamálinu þar sem dómstólar verða látnir skera úr um hvort Magnús heldur embætti sínu sem hæstaréttardómari eða ekki. „Magnús Thoroddsen fór þess á leit við mig að ég yrði lögmaður hans í.málinu og það varð úr,“ sagði Jón Steinar við DV. Magnús Thoroddsen keypti á þessu ári 1440 flöskur af áfengi á sérkjörum sem einn af handhöfum forsetavalds og um 600 flöskur í fyrra. Sagði hann af sér embætti forseta Hæstaréttar í kjölfar þéss að áfengiskaupin urðu opinber. Þegar dómsmálaráðherra fór þess á leit við Magnús að hann segði af sér sem dómari í Hæstarétti neitaði Magnús. Verður því að láta reyna á málið fyrir dómstólum þar sem það fær eðlilega meðferð. -hlh Jarðardeilumar: Mál Eggerts Mál Eggerts Haukdal alþingis- manns, fyrir hönd hreppsnefndar Vestur-Landeyjahrepps, vegna jarð- arinnar Eystrahóls, hefur nú verið þingfest hjá aukadómþingi Rangár- vallasýslu. Að sögn Kjartans Þor- kelssonar, fulltrúa hjá sýslumanns- embættinu, er ekki búist við að dæmt verði í málinu fyrr en eftir jól. Þetta mál á sér talsverða sögu eins og greint hefur verið frá í DV. Þrír hestamenn úr Reykjavík höfðu fest kaup á jörðinni og undirritað samn- ing. Buðu þeir hreppsnefndinni for- kaupsrétt eins og vera ber. Sam- þykkti hreppsnefndin að nýta sér forkaupsréttinn en ákvað jafnframt á sama fundi að selja öðrum aðila í Reykjavík jörðina. Segja hinir þrír fyrstnefndu að Eggert Haukdal, odd- viti hreppsnefndar, ráði þarna ferð- inni því hann beri þungan hug til fóður eins þeirra sem hafl leigt land- spildu af séra Páh á Bergþórshvoli fyrir nokkru. Hafa þeir kært ákvörð- un hreppsnefndar til landbúnaðar- ráðuneytisins. Hreppsnefndin hefur aftur höfðað mál gegn eiganda jarð- arinnar þar sem farið er fram á að hann verði dæmdur til að gefa út afsal til hreppsnefndar en því hefur hann neitað til þessa. Kjartan sagðist ekki búast við að dómur félli í málinu fyrir jól. Frestur til að skila greinargerðum rynni út í dag, 14. desember. Síðan yrði ákveð- ið í samráði við lögmenn hver fram- gangur málsins yrði. -JSS PHILIPS ruddi brautina í framleiðslu geislaspilara árið 1980. Geisla- spilararnir frá PHILIPS hafa verið í fararbroddi sem besti og tærasti flutningsmátinn á stafrænni hljóðupptöku. - Hérna sýnum við aðeins hluta af þeim mikla fjölda geislaspilara frá PHILIPS. M M M M *-• n ,T, m ' CD880 Einn fullkomnasti geislaspilarinn á markaðnum. Alit er lagt í sölurnar hjá PHILIPS til að tryggja sem hreinasta hljóm og einfalda notkun. Ný gerð geislatónhöfuðs sem er 5% léttara en áður. Enn styttri leitartími og lágmarks bjögun. • Allir hlutar CD 880 eru úr bestu fáanlegum efnum til að tryggja hámarks hljómgæði. • Þráðlaus fjarstýring. • CD 880 geislaspilarinn er fyrir þá sem gera kröfur um gæði umfram allt. • Stór gluggi sem sýnir glöggt alla þá fjölmörgu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.