Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 32
F R ÉTT/\S KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988. Slysaalda í Reykjavík Slysaalda gekk yfir Reykjavík í gær. Alvarlegasta slysið varð á Skeiðarvogi. Þar urðu tvær ungar telpur. fjögurra og sex ára. fyrir bif- reið. Fjögurra ára telpan slasaöist alvarlega á höfði og gekkst undir aðgerö í gær. Hin telpan slasaðist minna. Þær liggja báðar á gjörgæslu- deild. Ekið var á sextuga konu á gangbraut á Grensásvegi í gærmorg- un. Hún fékk höfuöáverka. fótbrotn- aði og rifbrotnaði. Þá var ekið á tólf ára dreng í Norö- urfelli. Drengurinn slasaðist á fæti. Ökumaðurinn ók brott af slýsstað. Hann hefur nú gefið sig fram. Lög- reglan mun yfirheyra ökumanninn í dag. -sme STTJFUR STÚFUR heitir sá jólasueinn sem kemur röltandi í dag. Eins og nafnið ber með sér er hann ekki hár í loftinu. DAGAR TIL JÓLA LOKI Má ekki breyta nafni hljómsveitarinnar í Súrt og sætt? Sjötug kona vann 25 milljónir í HHI: Svaf ekkert of vel í nótt - segir Karítas Magnúsdóttir vinningshafi „Eg svaf nú ekkert of vel í nótt. Auðvitað leitaði þetta á hugann, því þetta er geysilega há upphæð. En fjölskyldan er samhent og það verður fariö vel með þetta,“ sagði Karítas Magnúsdóttir, sjötug kona sem í gær fékk 25 milljónir í Happ- drætti Háskóla íslands á tromp- miöa sinn nr. 20975. Þetta er hæsti vinningur sem um getur hérlendis. „Ég var búin að heita því að fengi ég vinning myndi Félag lamaðra og fatiaðra njóta góðs af. Ég hef lengi haft áhuga á að hiálpa því fólki en ég hef enn ekki ákveðið hversu stórt framlagið verður,“ sagði Karítas. Hún sagði að sig hefði dreymt fyrir þeim stóra. „Mig hefur alla tíð dreymt fyrir hlutunum. Ég var al- veg sannfærö um að eitthvað óvenjulegt myndi gerast í gær þvi að þrem sólarhringum áður hafði mig dreymt draum sem ég vil ekki greina nánar frá. Það líða venju- lega þrír sólarhringar frá því að mig dreymir og þar til draumurinn kemur fram. Svo reyndist einnig að þessu sinni.“ Karítas hefur átt iniða í HHÍ í 40 ár. En það var eiginmaður hennar, Ingólfur Guðmundsson trésmíða- meistari, sem átti þennan raiða. Ingólfur lést í október sl. „Maður- inn minn hafði átt þennan miða í mörg, mörg ár,“ sagði Karítas. „Hann átti raunar tvo miða til við- bótar en eftir að hann varð sjúkl- ingur ákvað hann að láta tvo fjúka en halda aðeins einum. Og það varð þessi trompmiði, sannkallaður lukkumiði, sem varö fyrir valinu.“ Karítas á sjö uppkomin böm. Hún starfar sem dagmamma og kvaðst myndu halda því áfram þrátt fyrir breyttar aðstæður. „Ég mun byrja á því að láta gera við húsið mitt,“ sagði hún. „Við byggð- um það 1945 og þaö þarfnast við- gerða bæði að utan og innan.“ -JSS Fyrsta barnið sem mætti til dagmömmu sinnar, Karítasar, í morgun var Einar litli Njálsson. Hann lét sem ekkert væri þrátt fyrir umstangið í Ijósmyndaranum, vissi enda ekki að dagmamman hafði orðið milljónamæringur dag- inn áður. DV-mynd GVA Veðriö á morgun: Kólnandi veður Á morgun verður suðvestanátt um land allt, víða hvassviðri eða stormur og él um vestanvert landið en stinningskaldi eða all- hvasst og skýjað með köflum um landið austanvert. Hiti verður 0-3 stig. Árásin á gömlu hjónin: Innbrots- mennirnir ákærðir Ríkissaksóknari hefur höfðað opin- bert mál á hendur mönnunum þrem- ur sem aðfaranótt sunnudagsins 25. september réðust grímuklæddir inn á heimili fullorðinna hjóna á Sel- tjarnarnesi. Mennimir veittu hjónunum áverka - maðurinn fmgurbrotnaði og konan mjaðmagrindarbrotnaði. Auk þess hlutu þau af smærri áverka. Mennirnir þrír rændu áfengi, skartgripum og peningum á heimili hjónanna. Áður en menn- irnir yfirgáfu húsiö skáru þeir síma- línuna í sundur. Gamla manninum tókst að fara á milli húsa og gera nágrönnum viðvart hvernig komiö var. Ákæruvaldiö hefur óskað eftir að gæsluvarðhaldsúrskurður yfir tveimur mannanna verði framlengd- ur til fyrsta mars 1989. Núverandi gæsluvarðhaldsúrskurður rennur úr gildi í dag. Þriðji maðurinn var ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald þar sem hann átti óafplánaðan dóm. Maðurinn lýkur afplánuninni í dag. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir þeim manni til sama tíma og krafist er yfir hinum mönnunum tveimur. -sme Sykurmolarnir Iá slæma dóma Kristján Bemburg, DV, Belgiu: Sykurmolarnir fá slæma dóma hér í Belgíu eftir tónleika sveitarinnar um helgina. Eftirvænting var mikil fyrir tónleikana og flest stærri dag- blöðin fjölluðu ítarlega um nljóm- sveitina. Belgisku blöðin eru sammála um það að hljómsveitin standi ekki und- ir nafni. Eftir tónleikana í Gent á sunnudagskvöld skrifaði gagnrýnd- andi dagblaðsins Het Nieuwsblat að hljómsveitin hefði brugðist vonum þeirra 450 sem sóttu tónleikana. Tón- list Sykurmolanna er sögð áhuga- verð en ekkert meira en það. Einar Benediktsson er sagður vera í hljómsveitinni vegna þess að hann sé bróðir plötuútgefanda sveitarinn- ar og kunni svolítið í ensku. Innbrot á Ferstiklu Innbrot var framið í Ferstikluskála í nótt. í morgun lá ekki fyrir hverju var stolið. Rannsókn málsins er ný- hafin. Fyrir fáum vikum var brotist inn í sama söluskála. Þá var peningaskáp stolið. Það innbrot er enn óupplýst. Lögreglan í Borgarnesi þiggur allar upplýsingar um mannaferðir við Ferstikluskála í nótt. -sme ;tlo>0ÍLASroo ÞRðSTUR 68-50-60 VANIR MENN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.