Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 3
MTÐVIklíD'AGÍrá !«1. bÉÖBtóBEk'1988. o 9 Fréttir Strandaglópur 1 Viöey: Borðaði hamborgar- hrygg og kartöf lusalat Iðnaöarmaöur varð í fyrrinótt aö halda til í Viðey vegna þess að ekki tókst að koma honum í land um kvöldið. „Ég komst inn í íbúð ráðs- mannsins og borðaði kaldan svína- hamborgarhrygg með kartöflusal- ati,“ sagði maöurinn sem heitir ívar. ívar fór í fyrramorgun út í Viðey til að gera við loftræstikerfi Viðeyj- arstofu. Um hádegi fóru ráösmað- urinn og kona hans í land og ívar var einn í eyjunni. Síðdegis ætlaði Hafsteinn, sem heldur uppi bátsferðum milli lands og eyjar, að koma ráðsmanninum og konu hans út í eyju og taka ívar til baka. Hafsteinn varð að hverfa frá vegna sjógangs. „Vestanáttin stóð beint upp að bryggjunni og það var ekki hægt að leggja að,“ segir ívar. Um klukkan 10 í fyrrakvöld var gerð úrslitatilraun til að koma Ivari til lands. Hafsteinn kom að eyjunni og reyndi að leggja að bryggjunni. „Bryggjan hafði færst úr skorðum í sjóganginum og þaö var ekki hægt að leggja að án þess að eiga á hættu að báturinn skemmdist. Hafsteinn kastaði til mín lykli að íbúð ráðsmannsins og sigldi í land,“ sagði ívar í símtali við DV í gær. ívar hafði símasamband við land og matreiðslumaður Viðeyjarstofu gat sagt honum hvar mat væri að finna. ívar kvartaöi ekki undan fæðinu sem var kaldur svínaham- borgarhryggur og kartöflusalat. „Ég var ekki alveg einn í eyjunni því að með mér var svartur labrad- orhundur ráðsmannsins og við höfðum félagsskap hvor af öðrum.“ ívar sagðist í gær ekki hafa orðið var við reimleika enda tryði hann ekki á slíkt. IÐUNNARBÓK E R GÓ Ð BÓK DRAUMA- RÁÐNINGABÓKIN Alla dreymir, og flestum leikur forvitni á að vita hvað draumarnir tákna. Þeir eru ýmist skýrar myndir eða dulræð tákn, viðvörun, leiðsögn eða forspá. Þess vegna skiptir miklu að ráða þá rétt og túlka þann boðskap sem þeir bera okkur. í þessari bók má fletta upp á fjöl- mörgum draumtáknum og lesa um merkingu þeirra. Fjöldi íslendinga segir hér frá draumum sínum og hvernig þeir rættust. Hér eru einnig kaflar um sjó- mannadrauma og um merkingu nafna í draumi, um þjóðtrú tengda draumum, fyrirboða og fornar aðferðir til að skyggnast inn í framtíðina. íslenska draumaráðningabókin á erindi til allra sem áhuga hafa á draumum og dul- sýnum. IÐUNN Brœðraborgarstíg 16.• sími 28555 ÍSLENSKA AUGl ÝSINGASTOFAN HF um eftir Gunnlaug Guðmundsson stjömuspeking y1 *f Bjöm Karlsson \ grípur oft bókina um stjörnuspeki og notarhana til ab átta sig á þeim sem hann þekkir. En hann byrjabi á ab gera sitt eigib kort. Rjörn erfceddurí merki Steingeitar ogjroí erhann ígrunnebli jarbbundinn, leggur áherslu á ab ná áþreifanlegum árangri og standa traustum fótum í tilverunni, Steingeitin er merki uppbyggingar og efSteingeit ákvebur ab gera eitthvab vill hún láta athöfn fylgja orbum. Bjöm er einnig raunsær, sérheiminn eins og hann er og er tiltölulega laus vib óskhyggju. Plánetan Venus stjómar ástum ogtilfinningum. / stjömukorti Bjöms er Venus í Fiskamerkinu. Því hcettir Birni til ab fóma ser fyrir ástvini sína. Hann leggur tnik/a áherslu á ab skilja abra og koma til móts vib þarfirþeirra. Björn hefur allt til ab bera til ab vera ncemur og tillitssamur elskhugi og getur verib rómantískur. Tunglib hefur afgerandi áhrif á tilfinningalífib og stjörnukort Bjöms synir Tunglib í Vogarmerki. Þab táknarab hann erab öllu jöfnu rólegur ogþcegilegur í umgengni en tekur samt sem áburfmmkvœbi, sérstaklega á félags/egum oghugmyndalegum svibum. Skapferli Björns er best lýst meb því ab segja ab hann sé Ijúfur, þcegilegur, fágabur, kurteis og, mildur. Þú getur á satna hátt og Björn gert stjömukort fyrirþig og ástvini þína og aukib skilning þinn á því sem gerist. „Hver er égP“ - bókin um stjömuspeki er vöndub, ítar/eg og skemmtileg aflestrar. í bókinni em pláneturkort sem spantia árin 1910-2001. Gunnar Karlsson myndskreytti bókina. Bók allra sem láta lífib og samferbamenn sig varba. ISHSSKA Ai'CL ÝSISCASTOFAS Hf ÍÐJJNN Brœðraborgarstíg 16 ■ sími 28555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.