Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988. Fréttir Tekjuskattsfhimvarp Ólafs Ragnars: Lækkar skattleysismörk um 3.175 krónur á mánuði - miðað við óbreytt lög Ef Alþingi afgreiðir tekju- og eign- arskattsfrumvarp Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra ekki fyrir áramót munu ákvæði núgild- andi laga um hækkun persónuaf- sláttar taka gildi 1. janúar. Afsláttur- inn hækkar samkvæmt lánskjara- vísitölu og yrði 17.842 krónur i janúar að lögunum óbreyttum. Skattleysis- mörk yrðu þá við 50.687 króna mán- aðarlaun, miðaö við 35,2 prósent tekjuskatt og útsvar. Ef frumvarp Ólafs Ragnars nær hins vegar að verða lögum mun per- sónuafslátturinn í janúar ekki verða nema 17.675 krónur. Tekjuskattur og útsvar yrðu þá um 37,2 prósent. Skattleysismörk yrðu þá við 47.513 króna mánaðarlaun. Ef Alþingi samþykkir frumvarpið munu skattleysismörk verða 3.174 krónum lægri en ef engar breytingar yrðu gerðar á lögunum. Skattbyrði minnkar ef frumvarpið fellur í greinargerð meö frumvarpinu segir að eitt af markmiðum þess, fyr- ir utan að auka tekjur ríkissjóðs um 900 milljónir, séu að skattbyrði á lægri laun hækki ekki. Það tekst sé miðað við skattbyrði eins og hún hefur verið í ár. En eins og sjá má af dæminu hér að ofan leiðir frum- varpið til hærri skattbyrði á lægri laun miðað við að núgildandi lög fengju að standa. í undirbúningsvinnu að frumvarp- inu var miðað við að persónuafslátt- ur hækkaði milli ára í takt við laun. Tveggja' prósentustiga hækkun á tekjuafgangi var bætt upp með aukn- um persónuafslætti svo skattar hækkuðu ekki á 60 þúsund króna mánaðartekjum. í núgildandi lögum er hins vegar gert ráð fyrir því að persónuafsláttur hækki í takt við lánskjaravísitölu tvisvar á ári. Allan síðari helming þessa árs hafa laun verið fryst en verðlag og þar með lánskjaravísitala hefur hins ”egar hækkað. Sam- kvæmt lögum ætti því persónuaf- slátturinn að hækka um 1.750 krónur um áramót. Óbreytt lög myndu því leiða til töluverðar minnkunar skattbyrði. Hærri persónuafsláttur myndi minnka skattbyrði á óbreyttum launum. Sveitarfélögin: Allt frá 3 upp í 7,5 prósent útsvar - hins vegar verða allir rukkaðir um sömu prósentuna Fjármálaráðuneytið reiknar með að meðaltalsútsvar sveitarfélaganna verði um 6,7 prósent á næsta ári. Einstaklingar munu því þurfa að greiða um 37,2 prósent af tekjum sín- um í tekjuskatt og útsvar. Útsvarsprósenta sveitarfélaganna er hins vegar mjög misjöfn. Að sögn Snorra Olsen, deildarstjóra tekju- deildar fjármálaráðuneytisins, verð- ur hún að líkindum á bilinu 3 til 7,5. • Þrátt fyrir þennan mun njóta þeir sem búa í sveitarfélögum sem leggja á lágt útsvar þess ekki þegar skattur- inn er tekinn af þeim. Allir greiða sömu meöaltalsskattprósentuna án tillits til álagningar sveitarfélaga. Ríkið sér síðan um að jafna út inn- komunni milli sveitarfélaganna. Þaö gerist síðan ekki fyrr en í ágúst árið eftir að einstaklingar fá aö njóta lágrar álagningar síns sveitarfélags. Þá verður framtal þeirra gert upp og þeir munu fá endurgreitt frá skattin- um oftekið útsvar. Á sama hátt munu þeir sem búa í syeitarfélögum sem leggja á hærra útsvar fá bakreikning. Þar sem þetta er fyrsta árið sem staðgreiðslukerfið er notað munu fyrstu bakreikningamir veröa send- ir út í ágúst á næsta ári. Sé miðað við tekjur vísitölufjöl- skyldunnar, sem eru um 140 til 150 þúsund á mánuði, geta þær fjölskyld- ur sem búa í sveitarfélögum sem leggja á 3 prósent útsvar búist við um 64 þúsund krónum i endur- greiðslu. Þeir sem hins vegar eiga lögheimili í sveitarfélögum sem leggja á 7,5 prósent útsvar geta búist við um 14 þúsund króna bakreikn- ingi. Sá reikningur verður innheimtur á sama hátt og eignarskattur. Ef hann verður ekki greiddur kemur hann til frádráttar bamabótum þegar þær koma fyrst til útborgunar eftir ágúst á næsta ári. -gse Hækkar tekjur ríkisins um 2,2 milljarða Ef Alþingi samþykkir frumvarp Ólafs Ragnars ekki fyrir áramót mun skattaálagning í janúar fara fram samkvæmt núgildandi lögum. Ríkis- stjórnin hefur ekki þingstyrk til þess að koma frumvarpinu í gegn án stuönings eða hjásetu einhvers þing- manns stjórnarandstöðunnar. Ef sá stuðningur fæst ekki fyrir áramót er hætt við að ríkissjóður verði af umtalsverðum tekjum. Vísitölufjölskyldan hefur um 140 til 150 þúsund krónur á mánuði. Miðað við óbreytt lög þyrfti hún að greiða um 2.900 krónum minna í skatt í jan- úar en samkvæmt frumvarpi Ólafs Ragnars. Séu 62 þúsund slíkar fjöl- skyldur í landinu jafngildir þetta um 180 milljón króna tekjutapi fyrir rík- issjóð í janúar einum. Þetta tekjutap jafngildir um 2,2 milljörðum á ári. Það þýðir að frum- varp Ólafs Ragnars hækkar tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti um sömu upphæð frá núgildandi lögum. Mis- munurinn á þeirri upphæð og þeim 900 milljónum, sem frumvarp Olafs Ragnars á að gefa samkvæmt grein- argerð þess, sýnir hversu mikið skattbyrði einstaklinga myndi minnka á næsta ári ef núgildandi lög stæðu óbreytt. -gse Núgildandi lög Skattgreiðslur einstaklinga Jan. 1989 i 1 i 1 i 1 i ■ i • ■ i ■ i ■ i ■ i ■' i 'i 50 60 70 80 90 100 120 140 160 180 200 KRÓNUR Á þessu linuriti má sjá hvernig skattstiginn mun líta út í janúar samkvæmt frumvarpi Ólafs Ragnars Grimssonar. Til samanburðar er sýnt hvernig skattstiginn samkvæmt núgildandi tekjuskattslögum mun líta út ef frumvarp Ólafs Ragnars kemst ekki í gegnum þingið. í dag mælir Dagfari Ný útflutningsvara Guðni seldur, Guðni skrifar undir, Guðni keyptur. Þannig hljóðuðu fyrirsagnirnar á íþróttasíðum dag- blaðanna alla síðustu viku og ókunnugir ráku upp stór augu og héldu að þrælasalan hefði haldið innreið sína. En þeir sem fylgjast með fótbolta vissu betur. Þeir vissu að hér var átt við Guðna Bergsson, þekktan knattspymumann úr Val, sem var um það bil aö skrifa undir atvinnumannasamning viö Totten- ham í London. Þetta er ekki lengur kallaö þrælasala heldur atvinnu- mennska sem kemur út á eitt fyrir knattspymumanninn því atvinnan er fólgin í þrælahaldi hjá útlensk- um fótboltaklúbbi í tiltekin ár þar sem klúbburinn hefur eignarhald á leikmanninum og getur selt hann eða ráðstafað honum að vild eftir að pilturinn hefur skrifað undir. íþróttamenn ganga kaupum og sölum eins og nautgripir eða mál- verk eftir Picasso og era mældir eftir gæðum sem felast í stærö og þyngd og þeim eiginleika að geta sparkað bolta lengra en aðrir. Meö þessum orðum er ekki verið að gera lítið úr samningi Guðna Bergssonar við Tottenham, enda næsta víst að Guðni græðir meira á samningnum heldur en Totten- ham. Sagan segir að Guðni hafi fengið tæplega þrjátíu milljónir króna fyr- ir aö skrifa undir. Þá eru ótalin launin sem hann fær í hverjum mánuði og mundi margur maöur- inn þiggja minna og vera harla glaöur þó. Má segja að þetta sé ein- asta gleðifregnin mitt í öllu krepp- utalinu. Dagfara dettur í hug hvort ekki sé ástæða til að selja fleiri íþrótta- menn úr landi og raunar ýmsa aðra í leiðinni. Var það kannske hugs- unin hjá ríkisstjórninni þegar hún bauð Albert til Parísar að selja hann til Frakka? Albert er heims- frægur knattspymumaður og kann áreiðanlega ýmislegt fyrir sér í þvl sporti ennþá þótt aldurinn færist yfir hann. Og hvað með Steingrím og Jón Baldvin, svo ekki sé nú talað um Ólaf Ragnar, sem allir eru heimsfrægir á sína vísu og hafa margoft gert það gott í útlandinu? Jón Baldvin er tíi dæmis orðinn svo vinsæl] erlendis aö hann kemst ekki heim þótt allt sé að fara í bál og brand í þinginu sem sannar vin- sældir hans og eftirspum hjá ann- arra manna þjóðum. Steingrímur hefúr getið sér gott orð í Jórdaníu og er í persónulegu vinfengi við Gorbatsjov og Arafat og Nató neit- aði að viðurkenna að hann væri hættur sem forsætisráðherra þegar Þorstéinn gegndi því starfi. Þor- steinn var bara kallaður Stein- grímur þegar Nató birtí myndir af þjóðarleiðtogum og þar við sat. Ólafur Ragnar hefur getíð sér frægðarorð í öllum heimsálfum og var sæmdur friðarverðlaunum meðan hans naut við í alþjóðamál- um og hefur látið þess getið að það hafi verið að hans ráðum þegar Gorbatsjov fækkaði í Rauðahern- um. Að minnsta kosti vissi Ólafur Ragnar aUt um þá fyrirætlun, enda bestí vinur besta vinar Gorbatsjov sem segir manni hvað Ólafur er mikiU vinur vina sinna sem era vinir þjóðarleiðtoganna. Af hveiju má ekki selja svona stjórnmálamenn úr landi? Hvaða sanngirni er í þvi að Tottenham sé að kaupa Guðna Bergsson fyrir þrjátíu mUljónir fyrir að sparka bolta þegar við höfum á að skipa mönnum sem hafa hæfileika langt út fyrir landsteinana? Dagfari er viss um að það yrðu nógir um boð- ið og i rauninni ættí Tottenham að taka það til athugunar hvort klúb- burinn þarf ekki á fjárhaldsmanni aö halda sem hefur reynslu í því að reka þjóðarbú með halla. Jón Baldvin er í Póllandi þessa dagana. Af hveiju kaupa Pólverjar ekki Jón Baldvin fyrir sanngjarnt verð og koma sér þannig upp öflugum tals- manni vinstra megin við miðju? Útflutningstekjur íslendinga mundu ijúka upp ef útflutnings- deUd iðnaöarins eða Sölumiðstöðin nú eða þá bara pabbi Guðna Bergs mundu taka það að sér að bjóða reynda stjómmálamenn til sölu. Það yrði ekki verri business heldur en ullarpeysurnar, saltsUdin eða lambakjötíð og þjóðin mundi ekki telja það eftir að sér að greiða út- flutningsbætur með stjórnmála- mönnunum ef það greiddi fyrir söl- unni! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.