Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
9
Utlönd
Ræða Arafats:
Skref fram á við
- segja Bandaríkjamenn
Yasser Arafat bauð ísraelum í
gær að koma til Genfar til að vinna
ásamt Palestínumönnum að friði í
Miðausturlöndum. ísraelsk stjórn-
völd kölluðu boð hans stórkostlega
blekkingu og Bandaríkin sögðu að
Arafat hefði ekki uppfyllt nægilega
vel skilyrði þeirra til að viðræður
væni mögulegar.
„Ég biö leiðtoga ísraels um að
koma hingað undir forsjá Samein-
uðu þjóðanna til að við getum í
sameiningu náð fram friði," sagði
hann á sérstökum fundi allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna sem
haldinn var í Genf í gær.
Fundurinn var færður til Genfar
eftir að Bandaríkin höfðu neitað
Arafat um vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna svo að hann gæti
ávarpað þingið í New York. Voru
rökin þau að hann hefði ýtt undir
hryðjuverk gegn bandarískum
borgurum.
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, hafnaði frumkvæði
Arafats án umhugsunar og sagði
að tillögur hans væru stórkostleg
blekking og að þetta nýja hæverska
yfirbragð PLO væri ekkert annað
en sjónhverfing.
Charles Redman, tálsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði að í ræðunni hefðu kom-
ið fram áhugaverðir hlutir og þró-
unin væri greinilega jákvæð. Hann
sagði hins vegar að í lykilmálum
hefði ekki verið tekið nógu skýrt
til orða til að Bandaríkin gætu haf-
ið alvöruviðræður við PLO.
George Bush, sem tekur við emb-
ætti Bandaríkjaforseta þann 20.
janúar næstkomandi, sagði að rík-
isstjórn hans mundi ekki ræða við
PLO fyrr en mun ákveðnari yfir-
' lýsingar hefðu verið gefnar.
Skilyrði Bandaríkjanna eru
þrenns konar. PLO verður að við-
urkenna tilverurétt ísraels, for-
dæma skilyrðislaust öll hryðjuverk
og viðurkenna ályktanir Samein-
uðu þjóðanna númer 242 og 333 sem
grundvöll fyrir friðarviðræðum.
Samkvæmt ályktununum eiga
Arafat ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna i Genf i gær
Israelar að hverfa frá hemumdu
svæðunum og fá í staðinn örugg
landamæri.
Að sögn Redmans hafði þriðji
aðih tahð Bandaríkjamönnum trú
um að Arafat myndi í ræðu sinni
gefa afdráttarlausar yfirlýsingar
um þessi efni an shkt hefði hins
vegar ekki gerst. Heimildarmenn
segja að Svíþjóð sé umræddur
þriðji aðili.
Reuter
TOSHIBA örbylgjuofnum fylgja
3 valin áhöld fram til jóla.
Og eins og áður án endurgjalds:
B
Q@®
OQ®
00®
®^
Islenskar leiðbeiningar og
uppskriftir.
Matreiðslunámskeið hjá
Dröfn H. Farestveit, hús-
stjórnarkennara, sér-
menntaðri í matreiðslu í
örbylgjuofnum.
íslensk námskeiðsgögn.
Þér er boðið að ganga í
Toshiba uppskriftaklúbb-
inn.
Meira en 14 gerðir ofna - Verð við allra
hæfi. Góð greiðslukjör. Kaupið fullkominn
ofn til framtíðarnotkunar.
Simamynd Reuter
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - jjjQ BÍt-ASTÆÐf
Miklar vonir
bundnar við frið-
arsamninginn
Lending angólsk flugmanns á
MIG-21 orrustuþotu í Namibíu í gær
samtímis því sem fulltrúar frá Suð-
ur-Afríku, Angólu og Namibíu undir-
rituðu samningsdrög um sjálfstæöi
Namibíu gæti orðið deiluefni í nefnd
þeirri er fullvinna á samningsdrögin
í næstu viku. Samningurinn verður
endanlega staðfestur i New York
þann 22. desember næstkomandi og
í honum verður einnig kveðið á um
brottflutning kúbskra hermanna frá
Angólu. Gert er ráð fyrir að fimmtíu
þúsund kúbskir hermenn verði flutt-
ir frá Angólu fyrir júnhok 1991.
Yfirvöld í Suður-Afríku, sem stýrt
hafa Namibíu í trássi viö Sameinuðu
þjóöimar og verið upp á kant við
Angólastjóm í 13 ár, neituðu að segja
hvort flugmaðurinn væri liöhlaupi
eða hvaö gert yrði við hann. Utanrík-
isráðherra Suður-Afríku, Pik Botha,
neitaði á leið sinni frá Brazzavhle í
Kongó, þar sem samningsdrögin
vom undirrituð, að segja hvort hann
myndi eiga samvinnu við yfirvöld í
Angóla ef th deUna kæmi vegna at-
viksins.
Samkvæmt samningsdrögunum
verða Suður-Afríkumenn að koma
áætluninni um sjálfstæði Namibíu í
framkvæmd 1. aprfl á næsta ári. Efna
á til kosninga 1. nóvember í Namibíu
sem verið hefur undir stjórn Suður-
Afríku í nær öld.
Diplómatar, sem viðstaddir voru
undirritunina í gær, segja hana
merkasta áfangann í Suður-Afríku
frá því að Zimbabwe hlaut sjálfstæði
frá Bretlandi árið 1980. Samningur-
inn gæti bundið enda á hemað
skæmliða í Namibíu en hann hefur
staðið yflr í 22 ár. Einnig er vonast
til að borgarastríðinu í suðurhluta
Angóla, sem varað hefur í 13 ár, ljúki.
Þar hafa hermenn stjórnarinnar átt
í höggi við skæruliöa sem notið hafa
stuðnings yfirvalda í Suður-Afríku.
Swaposamtökin í Namibíu lýstu
yfir ánægju sinni með undirritun
samningsdraganna og spáðu því að
þau myndu ná meirihluta í kosning-
unum í nóvember í hinni fyrrverandi
nýlendu Þjóðverja. Unitaskæruliðar,
sem ekki tóku þátt í friöarviðræðun-
um, hótuðu því hins vegar í gær að
láta meira tU sín taka ef stjómin í
Angólasemdiekkiviðþá. Reuter
Laugavegi 164, sími 21901
eru fjarstýrðu bílarnir frá Tómstundahúsinu
Hraói og kraftur
einkenna þá, engar
hindranir standast
þá, það springur
ekki á þeim og
flestir bilstjórar frá
3ja ára og uppúr
getastjórnaö
tUROSOmc
f • 0 ‘ Wr* J
1 f V .j ' W ® l ]