Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
Valsmenn
unnu Val
Valur vann Val, 38-25, í bikar-
keppni karla í handknattleik í gær-
kvöldi. Leikurinn fór aö sjálfsögðu
fram á heimavelli Vals að Hlíðarenda
en til nánari skýringar skal tekið
fram að það var A-lið félagsins sem
sigraði B-liðið og heldur því áfram í
keppninni!
Einn leikur var í 1. deild kvenna í
körfuknattleik, Stúdentar sigruðu
Njarðvíkinga með 39 stigum gegn 30.
-VS/ÆMK
Thorstvedt
til Spurs
í gær var gengiö endanlega frá því
að norski landsliðsmarkvörðurinn,
Erik Thorstvedt, færi til enska liðs-
ins Tottenham. Forráðamenn IFK
Gautaborg og Tottenham hafa und-
anfarna daga staðið í samningavið-
ræðum um kaupverðið en
Thorstvedt hafði fyrir sitt leyti sam-
þykkt að ganga til liðs við Tottenham
fyrir nokkru.
-JKS
Arnljótur
ferekki
til Irakljs
Gnkkimir komu ekki til íslands
„Grikklandsdæmið er endan-
lega úr sögunni og ég mun leika
með Fram næsta sumar. Ef af
þessum félagaskiptum hefði orðið
áttu þau aö gerast fyrir 15. desem-
ber. Forráðamenn Iraklis sáu sér
ekki fært að koma til íslands og
ganga frá samningum fyrir þann
tima.“ Þetta sagði Arnljótur Dav-
íðsson, knattspymumaður úr
Fram, í samtali viö DV í gær.
„Ég átti einnig mjög erfitt raeð
að komast til Grikklands fyrir 15.
desember vegna prófa. Forráða-
menn Fram komust ekki heldur
til að ganga frá málunum og því
rann þetta ut í sandinn. Ég er
sáttur viö þessi málalok, nú get
ég kláraö skólann og þegar hon-
um lýkur er ég opinn fyrir því
að fara í atvinnumennskuna. Það
verður þó ekki fyrr enn næsta
haust þegar keppnistímabilinu
hér heima lýkur,“ sagöi Arnljót-
ur ennfremur.
„Ég get ekki leynt því að ég
hefði helst af öllu viljað fara út
núna en því miður tókst það ekki.
En engu að síður stefnir hugur-
inn í atvinnumennskuna. Forr-
áðamenn Iraklis sögðust ætla að
setja sig í samband við mig næsta
haust,“ sagði Arnljótur Davíðs-
son.
Þessi málalok koma nokkuð á
óvart því að félögin voru í megin-
atriðum búin að komast að sam-
komulagi. Tíminn virtist einnig
setja félögunum skorður en frest-
ur fyrir grísk félög til að kaupa
leikmenn rennur út á raorgun.
-JKS
íþróttamaður ársins 1988
Nafn íþróttamanns:
íþróttagrein:
1.
2.
3.
4.
5.
Nafn:
Sími:
Heimilisfang:_
Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverliolti 11-105 Reykjavík.
• Iþróttasamband Islands heiðraði í gærkvöldi þá einstaklinga sem voru útnefndir iþróttamenn ársins 1988 af sinum sérsamböndum. í aftari röð frá vinstri eru
Einar Vilhjálmsson, frjálsíþróttamaður ársins, Broddi Kristjánsson, badmintonmaður ársins, Kjartan Briem, borðtennismaður ársins, Haukur Valtýsson, blakmaður
ársins, Haukur Gunnarsson, iþróttamaður ársins hjá fötluðum, Viglundur Jónsson, skotmaður ársins, og ísleifur Friðriksson, sem var siglingamaður ársins ásamt
Gunnlaugi Jónassyni. Fremri röð frá vinstri: Sævar Jónsson, knattspyrnumaður ársins, Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundmaður ársins, Haraldur Ólafsson, lyftingamað-
ur ársins, Sigurjón Gunnsteinsson, karatemaður ársins, unnusta Geirs Sveinssonar, handknattleiksmanns ársins, Fjóla Ólafsdóttir, fimleikamaður ársins, og Ólaf-
ur Haukur Olafsson, glímumaður ársins. Fjarverandi auk Geirs voru Úlfur Þorbjörnsson, tennismaður ársins, Guðrún H. Kristjánsdóttir, skiðamaður ársins, Valur
Ingimundarson, körfuknattleiksmaður ársins, og Úlfar Jónsson, golfmaður ársins. Auk þess vantar á myndina Bjarna Friðriksson, júdómann ársins. Með á mynd-
inni eru fulltrúar ungu kynslóðarinnar i hverri íþróttagrein fyrir sig. VS/DV-mynd Brynjar Gauti
Selfyssingar fá
góðan liðsstyrk
Selfyssingar hafa fengiö góðan liðsstyrk úr Víkingi þar
sem Éinar Einarsson og Ólafur Ólafsson.hafa ákveðið að
leik^ með þeim í 2. deildinni í knattspyrnu nfesta surngr.
Þeir hafa báðir verið fastamenn í Víkingíliðinu á undan-
fórnum áruro en léku lítið með í sumar.
Hins vegar eru miklar líkur á að tveir af reyndustu leik-
mönnum Selfyssinga dragi sig út úr hasarnum fyrir næsta
keppnistímabil. Það eru sóknarmaðurinn skæði, Heimir
Bergsson, og fyrirliðinn, Þórarinn Ingólfsson. Hörður Hilm-
arsson þjálfar Selfoss eins og áður hefur komið fram.
-VS
Kmcevic i jda
frí á Islandi
Kristján Bembnrg, DV, Belgiu:
Eddy Krncevic, félagi Araórs hjá Anderlecht, sem er
markahæsti leikmaðurinn í Belgíu, aieð 13 mö^k, ætlar að
eyða jólafríinu á íslandi í boði Arnðts Guöjohnsen. Eddy,
sem er Ástraliubúi, segir aö nú sé 30 stiga hiti í Ástralíu og
á jóladag fari allir niður á strönd með nesti. „Ég ætla hins
vegar að njóta þess að fara meö Arnóri til íslands og reyna
eitthvað nýtt.“ Belgísk dagblöö hafa að undanfórnu fjallað
talsvert um ferð Kmcevic til íslands. Einn blaöamaður sagði
viö Krncevic að nú væri myrkur allan sólarhringinn á ís-
landi. Kmcevic sagöi að það gerði ekkert til þvi haim myndi
hafa meö sér vasaljós.
Venables og Guðni
ganga frá í dag
Guðni Bergssön og Terry Venables, framkvæmdastjóri
Tottenham, ganga í dag endanlega frá samningi Guðna við
enska félagið. Hann verður síðan undirritaður síðar í vik-
unni þegar Eggert Magnússon, formaður knattsp|rnudeild-
ar Vals, verður kominn til London. „Þessar viöræður eru
formsatriði að öðru leyti en því að Venables vill að samning-
urinn gildi í fjögur og hálft ár en ég ætla að fara fram á
þrjú og hálft. Það er þó ekki krafa sem ég fer að halda til
streitu,“ sagði Guðni í samtali við DV í gærkvöldi en hann
var þá nýkominn til London á ný eftir nokkurra daga dvöl
heima á íslandi.
-VS
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlið 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Dunhagi 18, hluti, þingl. eig. Þóroddur
Skaptason og Beatrice Guido, föstud.
16. des. ’88 kl. 10.15. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
BORGARFÓGETAEMBÆTnP 1REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Akrasel 27, þingl. eig. Páll Haralds-
son, föstud. 16. des. ’88 kl. 11.30. Upp-
boðsbeiðandi er Jón Eiríksson hdl.
Asparfell 10, 4. hæð D, þingl. eig. Sig-
urður Guðmarsson, föstud. 16. des. ’88
kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Ólaf-
ur B. Ámason hdl. og Landsbanki
Islands.
Bræðraborgarstígur 1, risíbúð, þingl.
eig. Elía Bjömsdóttir, föstud. 16. des.
’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em
tollstjórinn í Reykjavík, Veðdeild
' Landsbanka íslands, Ólafiir Gústafe-
son hrl., Guðjón Amiann Jónsson
hdl. og Ásgeir Þór Ámason hdl.
Dalsel 6, jarðhæð 00-02, þingl. eig.
Amdís Theodórs, föstud. 16. des. ’88
kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur em Guð-
jón Ármann Jónsson hdl. og Baldur
Guðlaugsson hrl.
Efetaland 24, 3. hæð t.h., þingl. eig.
Kristjana Jónsdóttir, föstud. 16. des.
’88 kl. 15:00. Uppboðsbeiðandi er
Magnús Fr. Ámason hrl.
Engihlíð 14, þingl. eig. Sigurður
Sveinsson, föstud. 16. des. ’88 kl. 11.45.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki ís-
lands.
Eyjabakki 11, 1. hæð f.m., þingl. eig.
Raih Einarsson, föstud. 16. des. ’88 kl.
14.45. Uppboðsbeiðandi er Biynjólfur
Kjartansson hrl.
Flugvélin TF-SJS 589 Cessna R-172K,
talinn eig. Jón Sigurður Ólafeson,
föstud. 16. des. ’88 kl. 15.00. Uppboðs-
beiðandi er Ævar Guðmundsson hdl.
Flyðmgrandi 16, ib. B-4, þingl. eig.
Ásmundur Öm Guðjónsson, föstud.
16. des. ’88 kl. 11.15. Uppboðsbeiðend-
ur em Guðjón Armann Jónsson hdl.
og Veðdeild Landsbanka fslands.
Frostafold 149, talinn eig. Amþór Ein-
arsson, föstud. 16. des. ’88 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur em Friðjón Öm
Friðjónsson hdl., Borgarsjóður
Reykjavíkur og Gjaldskil sf.
Hólaberg 34, þingl. eig. Unnur Páls-
dóttir, föstud. 16. des. ’88 kl. 11.45,.
Uppboðsbeiðendur em Sveinn H.
Valdimarsson hrl., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Útvegsbanki ísiands hf. og Bogi
Ingimarsson hrl.
Hólmgarður 38, efri hæð, talinn eig.
Sigurður Jóhannsson, föstud. 16. des.
’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur em
Ólafur Axelsson hrl., Verslunarbanki
íslands hf„ Landsbanki íslands og
Björgvin Þorsteinsson hrl.
Hverfisgata 56, hluti, þingl. eig. Regn-
boginn, föstud. 16. des. ’88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er Iðnþróunarsjóð-
Kambasel 75, íb. 01-01, þingl. eig.
Kristinn Ólason og Harpa Hallgríms-
dóttir, föstud. 16. des. ’88 kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur em Útvegsbanki
Islands h£, Ingi Ingimundarson hrl.,
Baldvin Jónsson hrl. og Gísli Baldur
Garðarsson hrl.
Kleppsvegur 38, 3. hæð austur, þingl.
eig. Aðalheiður Benediktsdóttir,
föstud. 16. des. ’88 kl. 10.45. Uppboðs-
beiðendur em Iðnaðarbanki íslands
hf., Tiyggingastofriun ríkisins, Jón
Þóroddsson hdl. og Verslunarbanki
íslands hf.
Langholtsvegur 75, þingl. eig. Guðni
S. Guðnason, föstud. 16. des. ’88 kl.
11.30. Uppboðsbeiðendur em Guðjón
Armann Jónsson hdl. og Gjaldhéimt-
an í Reykjavík.
Laufásvegur 74, þingl. eig. Ásgeir
Ebenezersson, föstud. 16. des. ’88 kl.
15.00. Uppboðsbeiðendur em Gjald-
heimtan í Reykiavík, Hróbjartur Jón-
átansson hdl., Ólafur Gústafeson hrl„
Ólafur Axelsson hrl„ Ásgeir Thor-
oddsen hdl„ Eggert B. Ólafsson hdl„
Sigurður G. Guðjónsson hdl„ Baldvin
Jónsson hrl„ Iðnaðarbanki íslands
hf„ Verslunarbanki íslands hf„ Jón
Ingólfeson hdl„ Ragnar Aðalsteinsson
hrl. og Hallgrímur B. Geirsson hrl,
Laugavegur 81, hluti, þingl. eig. Gísli
Gunnarsson, föstud. 16. des. ’88 kl.
14.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík
Maríubakki 6, 3. hæð t.h„ þingl. eig.
Kristinn Sigurðss. og Gunnhildur
Magnúsd., föstud. 16. des. ’88 kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan
í Reykjavík og Róbert Ámi Hreiðars-
son hdl.
Neðstaberg 5, þingl. eig. Finnbogi G.
Kristjánsson, föstud. 16. des. ’88 kl.
10.45. Uppboðsbeiðendur em Eggert
B. Ólafeson hdl. og Lögmenn Hamra-
borg 12
Nökkavavogur 4, 1. hæð og ris, þingl.
eig. Gylfi Guðmundsson, föstud. 16.
des. ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur
em Gjaldheimtan í Reykjavík og Lög-
fræðiþjónustan hf.
Rauðalækur 63, 2. hæð í austurenda,
þingl. eig. Sigurður G. Sigurðsson,
föstud. 16. des. ’88 kl. 10.30. Úppboðs-
beiðendur em Verslunarbanki fslands
hf„ Veðdeild Landsbanka íslands,
Hákon Ámason hrl„ Sigríður
Thorlacius hdl„ Gjaldheimtan í
Reykjavík, Innheimtustofhun sveitar-
félaga og Róbert Ámi Hreiðarsson
hdL______________________________
Rekagrandi 6, íb. 02-04, þingl. eig. Sig-
ríður E. Hafsteinsdóttir, föstud. 16.
des. ’88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er
Sigurður Sigurjónsson hdl.
Reykás 23, íbúð 02-02, talinn eig.
Selma Hreiðarsdóttir, föstud. 16. des.
’88 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík, Guðjón
Ármann Jónsson hdl„ Veðdeild
Landsbanka íslands„ Gjaldheimtan í
Reykjavík og Bjami Ásgeirsson hdl.
Síðumúli 34, þingl. eig. Grænmetis-
verslun landbúnaðarins, föstud. 16.
des. ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur
em Borgarsjóður Reykjavíkur, Þó-
rólfur Kr. Beck hrl„ Átli Gíslason
hdl„ Gjaldheimtan í Reykjavík,
Sveinn H. Valdimarsson hrl„ Tómas
Þorvaldsson hdl. og Búnaðarbanki
íslands.
Snorrabraut 27, 3. hæð og ris, þingl.
eig. Baldur Þ. Bjamason o.fl„ föstud.
16. des. ’88 kl. 14.30. Uppboðsbeiðend-
ur em Gjaldheimtan í Reykjavík,
Veðdeild Landsbanka íslands, Lands-
banki íslands, Ólafur Gústafcson hrl.
og Ólafur Garðarsson hdl.
Starrahólar 6, efri hæð, þingl. eig.
Eggert Elíasson, föstud. 16. des. ’88 .
kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík og Sigurður
G. Guðjónsson hdf. .
Súðarvogur 20, þingl. eig. Guðjón Þór
Ólafcson, föstud. 16. des. ’88 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur em Magnús
Norðdahl hdl„ Atli Gíslason hdl„
Gjaldheimtan í Reykjavík og Gjald-
skil sf.
Sörlaskjól 6, miðhæð, þingl. eig. Sigr-
ún Halldórsdóttir, föstud. 16. des. ’88
kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Valgeir
Kristinsson hrl.
Tómasarhagi 9, ris, þingl. eig. Hólm-
fríður Hulda Mariasdóttir, föstud. 16.
des. ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er
Guðjón Armann Jónsson hdl.
Úthlíð 11, hluti, þingl. eig. Jón Hjör-
leifeson, föstud. 16. des. ’88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Sigurður G. Guð-
jónsson hdl.
Vesturberg 61, þingl. eig. Karl Jóhann
Samúelsson, föstud. 16. des. ’88 kl.
11.00. Uppboðsbeiðendur em Eggert
B. Ólafeson hdl. og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Víkurbakki 8, þingl. eig. Bjami Zop-
honíasson, föstud. 16. des. ’88 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan
í Reykjavík og Eggert B. Ólafcson hdl.
B0RGARFÓGETAEMBÆTT1Ð í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtalinni fasteign:
Brekkulækur 1, 1. hæð, þingl. eig.
Hörður Hrafhdal Smárason, fer fram
á eigninni sjálfri föstud. 16. des. ’88
kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík, Útvegs-
banki íslands hf. og Jóhannes Hall-
dórsson.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
A-Þjóðveijar bjarga
Eyrarsundsmótinu
- fer einn leikur í keppninni fram á íslandi?
Danska blaðið Pohtiken segir að hand-
knattleikslið Austur-Þjóðverja hafi komið
Eyrarsundsmótinu til bjargar en það fer
fram beggja vegna sundsins í janúar. Aust-
ur-Þjóðverjar hafa þegið boð Dana um þátt-
töku en þeir munu einnig leika í tvígang
við íslendinga hér heima upp úr áramótum
og kann annar leikjanna að verða tahnn
með viðureignum Eyrarsundsmótsins eftir
því sem heimildir DV herma.
Það er áformað að fjórar þjóðir mæti til
leiks í Eyrarsundsmötinu. Var ætlunin að
saman kæmu Spánverjar og Sovétmenn
auk liöa Svía og Dana en eitthvað kom upp
á hjá tveimur þeirra fyrrtöldu. Voru móts-
haldarar því á flæðiskeri til skamms tíma
en íslendingar og A-Þjóðverjar hlaupa í
skarðið og bjarga þannig málum.
Danir hafa lagt mikinn þunga á að þetta
mót fari fram en þeir þurfa nauðsynlega á
æfmgaleikjum að halda vegna B-keppninn-
ar í Frakklandi í febrúar. Leituðu þeir því
til Islendinga sem voru fáanlegir til að
koma, segir Pohtiken.
Politiken segir að íslendingar hyggist
einnig mæta Dönum í lok þessa mánaöar
en þeir leikir munu fara fram í Laugardals-
höll 29. og 30. desember.
íslenska liðið mun því bersýnilega hafa
í mörg horn að líta á næstu vikum þar sem
tveir leikir verða gegn Svíum í Höllinni í
næstu viku.
Þess má geta varðandi danska hðið að
Anders Dahl Nielsen, þjálfari þess, hefur
njósnaö grimmt síðustu vikurnar. Hann
hefur nú í fórum sínum upptökur af leikj-
um nokkurra þeirra liða sem Danir mæta
í Frakklandi. Þar á meðal hefur hann upp-
tökur af leikjum Kúbverja en þeir komu
mjög á óvart á dögunum er þeir höfnuðu í
2. sæti á móti í Hollandi. Þeir töpuðu þar
með einu marki fyrir Pólverjum.
-JÖG
Stórleikur KR og Vals
í Höllinni í kvöld
Leikurinn, sem handknattleiksáhuga-
menn hafa lengi beðið eftir, fyrri viðureign
KR og Vals í 1. deild karla, fer fram í kvöld.
Félögin tvö, sem bæði hafa unnið aha átta
leiki sína í deildinni til þessa, eigast við í
Laugardalshöhinni kl. 20.15.
í Digranesi hefst kl. 20.00 leikur Breiða-
bliks og ÍBV og á eftir leika Grótta og KA.
í Hafnarfirði leika FH og Fram kl. 20.15.
Lokaleikur umferðarinnar er annað kvöld
og leika þá Víkingur og Stjarnan í Laugar-
dalshölhnni. -VS
Flytur Fram
úr Safamýri
í Grafarvog?
- „Vil koma 1 veg fyrir aö stórslysið í Breiðholtinu endur-
taki sig,“ segir AJfreð Þorsteinsson sem á hugmyndina
Sú hugmynd hefur skotið upp kolhnum
-'lj að Knattspymufélagið Fram flytji starf-
semi sína úr Safamýri í Grafarvog. Engar
ákvarðanir hafa enn verið teknar í málinu
en umræður era á frumstigi. Samkvæmt heimild-
um DV era margir Framarar mjög meðmæltir
hugsanlegum flutningi höfuðstöðvanna, enda til
mikils að vinna fyrir félagið þar sem byggð í Graf-
arvogi er 1 örum vexti og framtíðarmöguleikar fyr-
•ir íþróttastarfsemi ómældir. í Grafarvogi er starf-
andi Ungmennafélagið Fjölnir en ekkert rótgróið
íþróttafélag.
veikrar aðstöðu þessara tveggja
félaga hefur íþróttahreyfingin
misst af þúsundum hugsanlegra
íþróttamanna s<?m hafa kannski
viUst út af réttri braut fyrir vikið
og snúið sér aö óaiskilegri hlutum
í auknum mæli, þar með talin
afbrot. Að þessu leyti hafa borg-
aryfirvöld orðiö fyrir tjóni. Þetta
slys er staðreynd og ég og fleiri
vfijum reyna að koma í veg fyrir
að slíkt endurtaki sig.“
Borgin fái Safamýrina
og Fram Grafarvoginn
- Nú er í gangi mnræða á frum-
stigi um hugsanlegan flutning
Fram í Grafarvoginn. Hver er
staða málsins í dag?
„Þessi hugmynd er komin fram
í dagsfjósið og hefur veriö rædd.
Umræða um þessa hluti er á al-
geru byijunarstigi. Mín persónu-
lega skoðun er hins vegar sú að
þetta gæti orðið tU mikUla bóta,
Alfreð Þorsteinsson, fyrrver-
andi formaöur Fram og borgar-
fulltrúi, á hugmyndina sem vitn-
að er til hér að framan. Alfreð
telur Víking einnig koma til
greina en telur þó raöguleika
Frara betri enda hafi Víkingur
nýverið fiárfest í miklura fram-
kvæmdum á félagssvæði sinu í
Fossvogi. Alfreð sagöi í samtali
við DV í gær: „Ég verð að viður-
kenna að ég hef verulegar áhyggj-
ur af því að sömu hlutir geti gerst
í Grafarvogi og gerðust í Breið-
holti. Mér óar við tílhugsuninni.
í Breiðholti búa nú um 20-30 þús-
und manns og þar er íþróttastarf-
semi sáralitil. i Breiðholtinu eru
starfandi tvö veikburða íþróttafé-
lög, ÍR og Leiknir, sem ekki hafa
getað haidið uppi öflugri íþrótta-
starfsemi vegna skorts á aðstöðu
og mannskap. Ég vil aö það komi
skýrt fram að hér er ekki viö ÍR
og Leikni að sakast En vegna
bæði fyrir Fram og ekki síst það
fólk sem byggir Grafarvoginn. Ég
tel að borgaryfirvöld muni hafa
mikinn áhuga á að komast yfir
svæði Fram í Safamýrinni sem
hlýtur að vera borginni mikU-
vægt í framtíðinni. Á móti kæmi
að Reykjavíkurborg myndi þá
byggja íþróttamannvirki í Graf-
arvoginum og Fram fengi þau til
afnota. Hér yrði um raakaskipta-
samning að ræða.“
„Slysið í Breiðholtinu
má ekki endurtaka sig“
Að mati Alfreös eru það aðeins
tvö íþróttafélög sem kæmu tU
greina sem burðarásar íþrótta-
starfsemi í Grafarvoginum, Fram
eða Víkingur. Alfreð sagði í gær:
„í Grafarvogi er nýstofnað ung-
mennafélag og ég er alls ekki að
gera lítið úr því. Eg tel hins vegar
að hér sé um svo gífurlegt átak
að ræða og kostnaðarsamt aö
vafalítið ráði nýstofiiað ung-
mennafélag á borö viö Fjölni ekki
við framkvæmd þess nema að tU
komi gríðarlegur styrkur fi-á
Reykjavikurborg. Aðaláherslan í
minum hugmyndum er að gróið
íþróttafélag á borð við Fram eða
V íking flytji starfsemi sína í Graf-
arvoginn og komi þar með í veg
fyrir endurtekningu á því stór-
slysi sem átti sér stað í Breiö-
holtinu og íþróttahreyfingin og
Borgaryfirvöld hafa orðið að líða
fyrir síðustu árin,“ sagði Alfreð
Þorsteinsson.
-SK
• Gratarvogur er byggð I örum vexO og kannski ekki furða að rótgróin íþróttatélög liti þangað hýru
auga. Sú hugmynd hefur skotíð upp kollinum að Fram flytji þangað athafnasvæði sitt en umræða um
málið er á frumstlgi. DV-mynd KAE