Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 26
50
.áðöi í.íliiMí-.íd 5i );'.,\;iiT/uVí'm/í
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
Afmæli
Þorgerður Sigurgeirsdóttir
Þorgerður Sigurgeirsdóttir, Drápu-
hlíö 46, Reykjavík, er sextug í dag.
Þorgerður fæddist á ísafirði og ólst
þar upp. Hún hefur unnið við Raun-
vísindastofnun HÍ frá 1963. Þorgerð-
ur giftist 1974 Stefáni Friðbjarnar-
syni, f. 16. júlí 1928, blaðamanni í
Rvík. Foreldrar hans eru Fnðbjörn
Níelsson, kaupmaður og bæjar-
gjaldkeri á Siglufirði, og kona hans,
Sigríður Stefánsdóttir. Synir Þor-
gerðar og fyrri manns hennar,
Svavars Sigurðssonar, vélvirkja í
Rvík, eru Hörður, f. 8. maí 1951, jarð-
fræðingur í Rvík, kvæntur Ellenu
Árnadóttur og eiga þau þrjú börn.
og Gunnar, f. 29. september 1953.
garðyrkjumaður í Rvík, kvæntur
Láru Sveinsdóttur og eiga þau tvö
böm. Sy ■ k ini Þorgerðar eru Jó-
hann Arni, bjó á ísafirði, er látinn,
Þóra, býr á Blönduósi, Svava, býr á
Akureyri, Gústav, býr í Rvík, og
Elísabet Þómnn, býr á Blönduósi.
Foreldrar Þorgerðar voru Sigurgeir
Sigurðsson, sjómaður á ísafirði, og
kona hans, Ingibjörg Þórunn Jó-
hannsdóttir. Sigurgeir var sonur
Sigurðar, leiðsögumanns erlendra
ferðamanna og jarðfræðings á Ak-
ureyri, Sumarliðasonar, landpósts á
Kjama í Eyjafirði, Guðmundssonar,
sjómanns í Malarbúð á Snæfells-
nesi, Jónssonar, b. á Hellnafelli,
Egilssonar, b. á Núpi í Haukadal,
Þiðrikssonar. Móðir Jóns var Katr-
ín Þórðardóttir, b. í Villingadal,
Halldórssonar, og konu hans,
Guðnýjar Halldórsdóttur, b. í Vill-
ingadal, Jónssonar, lögréttumanns
í Auðbrekku í Hörgárdal, Þorvalds-
sonar. Móðir Jóns var Halldóra
Jónsdóttir, sýslumanns á Holtastöð-
um, Bjömssonar, vígslubiskups á
Melstað, Jónssonar, biskups á Hól-
um, Arasonar. Móðir Sigurðar var
Guðrún Sigurðardóttir, vinnu-
manns á Leikskálum, Jónssonar, b.
í Skriðukoti, Kolbeinssonar. Móðir
Jóns var Ingibjörg Halldórsdóttir,
b. í Vilhngadal, Þórðarsonar, bróður
Katrínar. Móðir Guðrúnar var Sig-
ríðar Skeggjadóttur, b. á Svarfhóli í
Miðdölum, Jónssonar og konu hans,
Þorbjargar Þórðardóttur. Móðir
Þorbjargar var Sigríður Jónsdóttir,
systir Jóns, fóður Páls, prests og
skálds á Völlum í Svarfaðardal,
langafa Einars Olgeirssonar, fyrrv.
alþingismanns. Páll var einnig lang-
afi Katrínar, móður Jórunnar Við-
ar. Systir Sigríðar var Ástríður,
amma Saura-Gísla og Sveinbjarnar,
langafa Gunnars, föður Gísla, lekt-
ors í sagnfræði, og Jóhannesar, for-
manns Neytendasamtakanna. Móð-
ir Sigurgeirs var Kristín Pálsdóttir,
b. á Stóra-Mosfelh, Guðmundsson-
ar, b. á Keldum, Hahdórssonar.
Móðir Kristínar var Halldóra Hálf-
dánardóttir, vinnumanns á Tjörn í
Svarfaðardal, Hálfdánarsonar, og
Margrétar Bjömsdóttur, b. á Starra-
stöðum í Hörgárdal, Hahssonar.
Móðir Margrétar var Margrét Jóns-
dóttir, Johnsoníusar, sýslumanns í
Vigur, bróður Þorgerðar, móður
Hallgríms, langafa Filippíu, móður
Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra
SÍS. Hallgrímur var einnig langafi
Baldvins, föður Björns Th. Bjöms-
sonar. Þorgerður var einnig lang-
amma Lofts, langafa Jóns L. Árna-
sonar stórmeistara.
Ingibjörg var dóttir Jóhanns, skó-
smiðs á ísafirði, Árnaspnar, sjó-
manns í Brekkukoti á Álftanesi,
Jóhannssonar, b. á Arnarnesi, Jóns-
sonar, b. í Hrauntúni í Leirársveit,
Arnþórssonar.
Gunnar Guðmundsson
Friðbjörg Eyjólfsdóttir
Gunnar Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri, til heimilis að Álfta-
mýri 32, Reykjavík, er fimmtugur í
dag.
Gunnar fæddist í Reykjavík og
ólst upp á Mánagötunni en var einn-
ig á sumrin við sveitastörf hjá föð-
ur- og móðurforeldrum sínum í
Húnavatnssýslu.
Hann lauk gagnfræðaprófi 1955,
stundaöi nám við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk sveinsprófi í bif-
vélavirkjun 1959.
Gunnar hóf störf sem bifreiða-
stjóri og bifvélavirki hjá Guðmundi
Jónassyni 1958 og hefur starfað þar
síðan. Hann er nú framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofu og bifreiðafyr-
irtækis Guðmundar Jónassonar.
Gunnar starfaði á sínum yngri
árum í skátahreyfingunni og í
skíðadeild Ármanns. Hanp situr í
stjórn Bifreiðastöðvar íslands hf.,
Félags íslenskra ferðaskrifstofa og
Sérleyfisbíla Selfoss hf. Þá starfar
Gunnar í St. Georgsgildi skáta og í
Skákklúbbi Reykjavíkur.
Kona Gunnars er Auður Sveins-
dóttir húsmóðir, f. 11.2.1940. For-
eldrar hennar eru Sveinn Erlends-
son, frá Breiðabólstað á Álftanesi,
hreppstjóri Bessastaðahrepps, en
hann lést 1986, og Júlíana Bjöms-
dóttir, ættuð úr Hrútafirði. Þau
hjónin byggðu nýbýlið Grund og
bjuggu þarén fluttu á efri árum að
Blikastíg 7 í Bessastaðahreppi.
Börn Gunnars og Auöar eru Guö-
mundur, f. 30.4.1961, vélvirki og bif-
reiðarstjóri í Reykjavík, en unnusta
hans er Barbara Hamburger Zúrick;
Guðrún, f. 17.3.1966, bankastarfs-
maður í Reykjavík, hún á einn son,
Gunnar Andra, og er unnusti henn-
ar Magnús Halldórsson.
Systur Gunnars eru Signý, f. 1942,
var gift Gunnari Ólasyni og eiga þau
þrjá syni, Stefán, Árna og Guðmund
Óla, og Kristin, f. 1945, gift William
Dison og eiga þau þrjú börn, Eðvarð
Þór, Gunnar ðrn og Stefaníu Sif.
Systurnar starfa báðar hjá Guð-
mundi Jónassyni hf.
Foreldrar Gunnars voru Guð-
Gunnar Guðmundsson.
mundur Jónasson fiallabílstjóri, f.
11.6.1909, d. 5.3.1985, og Stefanía
Eðvarðsdóttir húsmóðir, f. 4.12.
1910, d.30.8.1985.
Guömundur fæddist á Sauðadalsá
á Vatnsnesi en fluttist að Múla og
ólst þar upp. Hann hóf bifreiða-
stjóraferil sinn þar en fluttist til
Reykjavíkur 1933.
Stefanía var fædd að Helgavatni í
Vatnsdal, dóttir Eðvars Hallgríms-
sonar, b. þar, frá Hvammi í Vatns-
dal, og Signýjar Böðvarsdóttur sem
ættuð var úr Hrútafirði.
Gunnar tekur á móti gestum
klukkan 17.30-20.00 á afmælisdag-
inn að Brautarholti 30.
Friðbjörg Eyjólfsdóttir húsmóðir,
til heimilis aö Dalbraut 27, Reykja-
vík,er níræðídag.
Friðbjörg fæddist í Geitareyjum á
Snæfellnesi ogólst upp í foreldra-
húsum að Dröngum á Skógarstönd,
en faðir hennar keypti þá j örð.
Er Friðbjörg var ung stúlka starf-
aði hún á Hótel Stykkishólmi hjá
Vigdísi Bjarnadóttur og Jóni Guð-
mundssyni.
Friðbjörg giftist 1922 Guðbrandi
Gíslasyni, f. 12.1.1890, d. 1975. For-
eldrar hans voru Gísli Sigurðsson,
b. í Kambsnesi í Laxárdal, og fyrri
kona hans, Þorlaug Guðbrandsdótt-
ir frá Þorgeirsstaðarhlíð.
Friðbjörg og Guöbrandur hófu
fljótlega búskap í Kambsnesi, en þar
var tvíbýli og bjuggu þau þar til
1950 er þau fluttútil Reykjavíkur.
Þar starfaði Guðbrandur hjá
Reykjavikurborg og síðan í eitt ár á
KeflavíkurflugveUi.
Friðbjörg og Guðbrandur eignuð-
ust sex syni og eina dóttur en eitt
barnið dó í fæðingu. Börn þeirra:
Gísli, bifvélavirki í Reykjavík, en
sambýliskona hans er Anna Sveins-
dóttir; Sigurður, blikksmiður í
Keflavík, en kona hans er Sigríður
Einarsdóttir og eiga þau fimm dæt-
ur og einn son; Ólafur, skrifstofu-
maður í Reykjavík, kvæntur Svan-
hildi Aðalsteindóttur, en þau eiga
þrjár dætur og einn son; Álbert,
starfsmaður hjá Shell, kvæntur
Ingibjörgu Þórólfsdóttur, en þau eru
búsett í Kópavogi og eiga fiögur
börn; Eyjólfur, starfsmaður hjá
Shell, kvæntur Sólveigu Axelsdótt-
ur, en þau eiga eina dóttur og son,
og Áslaug, húsmóðir í Kópavogi,
gift Erni Bjarnasyni lækni, en þau
eigaþrjúbörn.
Friðbjörg á þijár systur sem allar
eru á lífi. Þær eru Sigríður, sem er
níutíu og þriggja ára; Jóhanna, sem
er níutíu og tveggja ára, og Salbjörg,
sem er áttatíu og átta ára.
Foreldrar Friðbjargar voru Eyjólf-
ur Stefánsson og Sigríður Friðriks-
dóttir.
Ólafur Breiðfiörð Finnbogason
Ólafur Breiðfiörö Finnbogason, fv.
framkvæmdastjóri og starfsmaður
hjá Pennanum, til heimilis að Skóla-
braut 21, Seltjarnarnesi, er sjötugur
ídag.
Ólafur fæddist á Bíldudal en fór
þaðan tveggja ára með foreldrum
sínum til Reykjavíkur þar sem hann
ólstupp.
Ólafur hóf störf hj á Pennanum
1937 og starfaði þar á lager til 1942
en þá keypti hann Pennaviðgerðina
af Hallóri Dungal eftir að hafa lært
hjá honum pennaviðgerðir auk þess
sem hann sótti námskeið erlendis í
pennaviðgerðum.
Ólafur rak síðan Pennaviðgerðina
til ársins 1983 er hann seldi fyrir-
tækið og hóf aftur störf hjá Pennan-
um. Hann haföi síðan yfirumsjón
með pennainnkaupum hjá verslun-
umPennansenlétafstörfuml987 /
og flytur nú inn penna og teikniá-
höld fyrir teiknistofur.
Um nokkurt skeið hafði Ólafur
það sem aukavinnu að stjóma kvik-
myndasýningum, lengst af í Tjarn-
arbíói, en hann er einn af stofnend-
um Félags íslenskra sýningar-
manna.
Kona Ólafs er Kristjana Jónsdótt-
ir, f. á Stokkseyri 28.2.1920. Foreldr-
ar hennar vora Jón Kristjánsson,
verkamaður í Reykjavík, og Jóna
Jónsdóttir.
Ólafur og Kristjana eignuðust
fimm syni: Jón Breiðfiörð, f. 4.7.
1945, offsetmyndagerðarmaður hjá
DV, kvæntur Guðrúnu Ingimundar-
dóttur kennara, þau eiga tvö börn;
FinnbogiBreiðfiörð, f. 1.2.1949, í
pennaviðgerðarmaður og rekur
Fjölafl hf., kvæntur Þorleifu Drífu
Jónsdóttur kennara, þau eiga þrjú
böm; Bjöm, f. 28.10.1952, mat-
reiðslumaður, er látinn; Ólafur
Haukur, f. 1.6.1956, matreiðslumað-
ur, sambýliskona hans er Ásta
Knútsdóttir húsmóðir og eiga þau
tvöböm;ogValdimar,f.24.10.1958,
verslunarmaður í Reykjavík, sam-
býliskona hans er Steinunn Braga-
dóttirfóstra.
Ólafur átti sjö systkini en þrjú
þeirra eru látin. Systkini hans voru
Guörún, húsmóðir í Bandaríkjun-
Steinunn Svava
Steinunn Svava Snæbjörnsdóttir,
2423 Vibrant, OAK San Antonio, .
78232 Texas, er sextug í dag. Stein-
unn Svava er fædd í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hún fluttist til
Rvíkur um 1950. Steinunn giftist 30.
nóvember 1956 Morton R Jacobs, f.
30. september 1931, flugmanni í
bandaríska hernum. Böm Stein-
unnar og Mortons em Ida, f. 13. júní
1958, Pálína, f. 26. maí 1959, og Sus-
anna, f. 21. mars 1962. Systkini
Steinunnar voru átta og em þrjú á
lífi, Björn, f. 12. október 1912, d. 4.
mars 1967, forstjóri Nýja bíós í
Keflavík, kvæntur Elísabetu Ás-
berg; Fjóla, f. 15. febrúar 1915, d. 10.
desember 1981, gift Sverri Matthías-
syni, skrifstofumanni í Keflavík;'
Adolf, f. 13. maí 1920, d. 26. apríl
1967, bifvélavirki í Keflavík, kvænt-
Snæbjörnsdóttir
ur Huldu Randmp; Friðbjörn, f. 7.
janúar 1923, d. 24. desember 1940;
Valtýr, f. 24. aprfl 1924, bygginga-
meistari í Vestmannaeyjum, kvænt-
ur Erlu Gísladóttur; Kristján, f. 1925,
lést í bamæsku; Sigurvin, f. 29.
mars 1926, byggingameistari í Hafn-
arfirði, kvæntur Svanþrúði Frí-
mannsdóttur, og Guðbjörn, f. 15.
maí 1927, póstmaður í Rvík, kvænt-
ur Þuríði Ragnarsdóttur.
Foreldrar Steinunnar voru Snæ-
bjöm Sigurvin Kristinn Bjarnason,
f. 18. júlí 1892, d. janúar 1951, bygg-
ingameistari í Vestmannaeyjum, og
kona hans, Guðný Pálína Ólafsdótt-
ir, f. 9. mars 1895, d. 2. október 1950.
Snæbjöm var sonur Bjarna Ebenes-
erssonar, vinnumanns í Hergflsey,
og konu hans, Guðbjargar Jóns-
dóttur. Guðný var dóttir Ólafs Jón-
Ólafur Breiðfjörð Finnbogason.
um; Sigurður, rafvirkjameistari í
Reykjavík; Kristrún, húsmóðir í
Bandaríkjunum, látin; Valdimar,
sjómaður í Reykjavík, einnig látinn;
Steingrímur, dó í frumbemsku;
Geirþrúður, sjúkrahði í Reykjavik;
og Kristján, bifreiðarstjóri og starfs-
maður Hitaveitu Reykjavíkur.
Foreldrar Ólafs vora Finnbogi
Rútur Ólafsson, rafvirki í Reykja-
vík, f. 11.8.1890, d. 7.6.1947, og kona
hans, Jóhanna Kristjánsdóttir, f.
14.1.1882, d. 23.6.1975.
Ólafur tekur á móti gestum í Átt-
hagasal Hótel Sögu á afmælisdaginn
eftirklukkan 17.00.
Steinunn Svava Snæbjörnsdóttir.
atanssonar, járnsmíðameistara á
Akureyri.f og konu hans, Friðbjarg
ar, systur Friðfinns leikara, stofn-
anda Gutenbergs, Hins ísl. prent-
arafélags og Leikfélags Rvíkur.
Friðbjörg var dóttir Guðjóns, b. á
Hallfríðarstaðakoti í Högárdal,
bróður Friðbjamar Steinssonar,
bókbindara á Akureyri, stofnanda
Góðtemplarareglunnar.
Helga Metúsalemsdótta'r
Helga Metúsalemsdóttir húsmóð-
ir, til heimilis að Dalbraut 27,
Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Helga fæddist á Svínabökkum í
Vopnafirði og ólst þar upp í for-
eldrahúsum. Hún var á Laugarskóla
í einn vetur en giftist 1930, Sæmundi
Grímssyni, f. 12.2.1896, d. 1961. For-
eldrar Sæmundar vora Grímur
Grímsson, b. í Hvammsgerði í Vop-
nafirði, og Margrét Sæmundsdóttir.
Helga og Sæmundur hófu fljótlega
búskap á Egilsstöðum í Vopnafirði
og þar bjuggu þau meðan Sæmund-
urliföi.
Helga flutti tfl Reykjavíkur 1962
þar sem hún hélt heimili fyrir þrjá
syni sína í átta ár, en hún hefur síð-
an veriö búsett í höfuðstaðnum.
Helga og Sæmundur eignuðust
átta börn sem öll eru á lífi.
Hún átti fiögur systkini en er nú
ein eftir af systkinahópnum.
ForeldrarHelgu voru Guðlaug
Pálsdóttir og Metúsalem Jósefsson,
b. á Svínabökkum. Foreldrar Guð-
laugar voru Páll Sigurðsson, silfur-
smiður frá Eyjólfsstöðum, og kona
hans, Helga Benjamínsdóttir Þor-
grímssonar.
Foreldrar Metúsalems vora Jósef
Jónsson, b. á Svínabökkum, og kona
hans, Ingunn Sigurðardóttir frá
Hróaldsstöðum.
Til hamingju með daginn
85 ára
Jónatan Stefánsson,
Hlíðargötu 10, Akureyri.
80 ára
Bjartmar Magnússon,
Hafiiarbraut 34, Neskaupstað.
Valgerður Ingvarsdóttir,
Sandlæk 2, Gnúpveijahreppi.
70 ára
Magnús Jónsson,
Tjamarbraut 25, Hafnarfiröi.
Kristjana Kristjánsdóttir,
Jörandarholti 2, Akranesi.
60 ára
Haraldur Guðnason,
Hörðalandi 14, ReyKjavík.
50 ára
Fagrahjalla 3A, Vopnafiröi.
Ingi Engilbertsson,
Bárustíg 9, Vestmannaeyjum.
40 ára
Heiðar Jóhannsson,
Stórholti 12, Akureyri.
Guðlaug Sigmarsdóttir,
Holtaseli 20, Reykjavík.
Jóna Svana Jónsdóttir,
Blómvallagötu 13, Reykjavík.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Vorsabæ 8, Reykjavík.
Guðmundur Sigurðsson,
Grænahjalla 15, Kópavogi.
Elin Amþrúður Daníelsdóttir,
Seljabraut 72, Reykjavik.
Sigurjón Þorláksson,
Hrafnhólum 8, Reykjavík.
Helga Dóra Sigvaldadóttir,
Jaðarsbraut, 33, Akranesi.
Viðar Benediktsson,
Vesturbergi 117, Reykjavík.
Guðni Sigurðsson,
Mýrarási 1, Reykjavík.
Anton Sigurjónsson,