Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1989. Spumingin Verslarðu á útsölum? Gerður Jónsson húsmóðir: Nei, ekki ennþá, mér finnst þetta allt svo dýrt. Ragnheiður ísaksdóttir nemi: Nei, ekki ennþá en ég hef ætlað mér það. Mig vantar buxur. Rakel Heiðarsdóttir nemi: Já, það hef ég gert og gerði mjög góð kaup í Hagkaupi þar sem ég keypti mér skó. fris H. Hólmarsdóttir húsmóðir: Eitt- hvað smávegis. Ég geröi mjög góð kaup í bamafötum í Polarn og Pyret og í Valborgu. Hjördís Magnúsdóttir defektrísa: Já, ég fór á útsölu í Benetton og geröi mjög góð kaup í fótum á börnin. Ingibjörg M. ísaksdóttir húsmóðir: Nei, það hef ég ekki gert. En ég reyni að fylgjast meö þegar veröið lækkar. Lesendur Skákin - þessi drápsíþrótt! „í skákinni gengur allt út á að „drepa“ og drepa sem mest og oftast," segir í brétinu. - Snemma beygist krókurinn, stendur einhvers staðar. Einar Sigurðsson skrifar: Það er með ólíkindum hvað við ís- lendingar, sem alltaf erum að stæra okkur af því hvaö við séum frábitnir stríði og stríðsrekstri, erum sólgnir í allt sem stríð varðar. Það er kannski ekki nema eðlilegt, okkur er kennt að umgangast sögur forfeðranna með virðingu og erum skikkaðir til að lesa þær í skólum. Eins og þær eru nú skemmtilegar eða hitt þó heldur! En látum nú þar við sitja. Hitt er mikil þverstæða, að við skulum taka flest er tengist stríði og drápi fram yflr margt annað, hvort sem er á sviði frétta, leikja eða íþrótta. Þannig eru sjónvarpsfréttir teygðar og tog- aðar á langveginn ef um stríðsreksf ur er að ræða og nærmyndum af morðum og mannfjendum slengt framan í landsmenn sem sífellt eru eins og óseðjandi hít í þessum efnum. Ekki er svo sett í gang verkefni, hvort sem það er á vegum hins opin- bera eða í einkageiranum, að ekki sé klifað á því að hér sé um „her- ferð“ aö ræða. - Við sem aldrei höf- um lagt upp í neina herferð! Og á sviði alþjóðamála þar sem varnir og ráðagerðir um hermál eru á dagskrá; hverjir eru ekki mættir til leiks? - ís- lendingar, og tilbúnir til þátttöku - í umræðunum vel að merkja - ekki varnarstarfi í reynd því við viljum ekki leggja slíkt á okkur. Það eiga aðrir að gera! Og svo er það blessuð skákin, manntafliö. Þar erum við nú fyrst í essinu okkar. í skákinni gengur allt út á að „drepa“ og drepa sem mest og oftast, allt til síðasta manns. Er það ekki alveg einstakt að við íslend- ingar skulum hafa ánetjast þessu manntafli drápsfýsnarinnar svo kirfilega að margir eru famir að tala um að þeir séu komnir með ofnæmi fyrir sjónvarpsfréttum úr skákheim- inum? Ég segi fyrir mína parta að þessari hundleiðinlegu keppni, skákinni, sem lengi hefur verið flokkuð undir íþróttir, má líkja við „dóp“ fyrir þjóð sem hefur komplexa og minnimátt- arkennd vegna þess að hún getur en þykist ekki vilja bera vopn sér til vamar en lætur aðra þjóð annast þá hlið málsins og nýtur þess því að horfa á hemaðarlistina við skák- borðið og heyra lýsingarnar sem ganga út á það eitt aö drepa, drepa og drepa. „Mjög víða hérlendis hallast vegir frá hlíð eða fjalli." Hættulegir vegir: Skjótra úrbóta þörf Gunnar hringdi: í frétt, sem birtist í sjónvarpinu í gærkvöldi (16. jan.) eftir hið hörmu- lega slys í Hvalfirði þar sem bifreið fór fram af 30 metra háu bjargi, var rætt var við fulltrúa frá Vegagerð- inni. Mig langar til að taka fram eftir- farandi. Þegar minnst var á við fulltrúa Vegagerðarinnar að grjótgarður eða hieðsla gæti komið að notum þarna taldi hann slíkt vera hættulegt, t.d. fyrir bíla sem á hana kynnu að rek- ast. Ekki taldi hann heldur ráð aö fá t.d. trégrindverk. Segja má þó að ill- skárra sé að rekast á grjótvegg við svona aðstæður en eiga á hættu að hrapa 30 metra niður í grýtta fjöru eöa ólgandi sjó fyrir neðan. Ég tel mig þekkja þarna allvel til og hef ekið fyrir Hvalfjörð svo hundr- uðum skiptir en það er á einskis manns færi aö komast hjá óhappi ef bíll manns er á annað borð farinn að renna út af veginum í mikilli hálku eins og þarna hefur verið und- anfarið. - Mjög víða hérlendis hallast vegir einmitt frá hlíð eða íjalli og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum ef engin hindrun er á veginum sjálfum, eins og t.d. grindverk eða hleðsla. Þarna á þessum vegi er einmitt mjög brýnt að koma fyrir öryggis- vegg af einhverju tagi til að fyrir- byggja svona hræðileg slys. Þessar og álíka öryggisgrindur eða girðing- ar má sjá víðast hvar erlendis þar sem svipaðar aðstæður eru á vegum. Auðvitað eru þessar framkvæmdir dýrar og sennilega engar fjárveiting- ar tiltækar fremur venju. - Það er þeim mun nauðsynlegra að taka ákvörðun um hvenær hafist verður handa um jarðgangnagerð undir Hvalfjörðinn eða aðra framtíðar- samgöngubót til að losa fólk við þau miklu óþægindi og slysagildrur sem þessi leið getur oft skapað fyrir veg- farendur. Stefán Valgeirsson og Borgaraflokknrinn: Kæru karlrembusvín. - Eg gat ekki staðist það að svara bréfi ykk- ar tveggja piparsveina sem birtist í DV hinn 17. þ.m. undir fyrirsögn- inni „Hvað kosta einstæðar mæð- ur?“. Þið talið eins og einstæöar mæð- ur séu þær einu sem fá bamabætur og barnabótaauka. Hafið þið gleymt því að það eru líka til ein- stæöir f'eður? Og þið vitið greini- lega ekki heldur að hjón og pör með börn fá líka þessar bætur en bara ekki sömu upphæð. Ímyndið þið ykkur einstætt for- eldri með, segjura tvö börn, foreldri sem leigir íbúð á almennum mark- aði fyrir upphæð sem er á miili 30 og 40 þúsund krónur á mánuði. - Sumir fá ibúð hjá hinu opinbera og greiða því miklu lægri leigu. En þar komast ekki allir aö, því slíkar íbúðir fullnægja ekki eftirspum. Lágmarkslaun eru ca 45 þúsund krónur á mánuði. Ef þið dragið 30 þús. frá þá eru efiir 15 þúsund sem ekki nægir einu sinni fyrir mat á mánuði. Dagmæður eða leikskóli taka sinn skammt. Síðan bætast ofan á þessir venjulegu heimilis- reikningar sem allir þekkja. - Og auðvitað þarf líka að klæða bömin. Ég er alveg viss um aö ef þið væruð einstæöir feður tækjuð þið við þessum bótum feginshendi og þá mynduð þið líka vita að þetta er ekki sá leikur sem þiö haldið. Að lokum. Þegar kona verður þunguð er það ekki bara á hennar ábyrgö heldur er faðirinn einnig ábyrgur. Ástæðan fy rir því að sum- ar mæður era einstæðar er oft sú að menn með svipaðan hugsunar- hátt og þið, sem segja að það sé „henni að kenna“ að verða þunguð, yfirgefa þær af því að þeir viija enga ábyrgð taka. - Ef þið ekki hafið lært það í skóia, þá þarf tvo til að búa til barn, það kemur ekki af sjálfú sér. Til karlrembusvína: Einstæð móðir skrifar: Á rauðu Ijósi Ari skrifar: Alkunnugt er að hugmynd komm- únismans var að skapa paradís á jörðu. Þannig átti að svipta þá völd- um sem stjómuðu til að fá alræðis- stjórn. Þar sem kommúnistar hafa komist til valda er þó oftar en ekki verr stjórnað en þar sem hinir vondu kapítalistar stjórnuðu áður eöa þá að hugmyndum hinna illu kapítcdista var snúið kommúnistum í hag. Lenin kaliaði það að tilgangurinn helgaði meðalið („all means justify the course"). Frelsari vor og friðarverðlauna- hafi, Ólafur Ragnar, hefur að undan- fórnu sannað það. Fyrir nokkram árum gagnrýndi hann harðlega í sjónvarpi þegar ákveðið var að láta fátæka stúdenta í Háskóla íslands borga aðgang að fyrirlestri prófessor Friedmanns. Nú er svo komið að hinn sami Ólaf- ur heldur fræðsluerindi í fundaser- iunni á rauðu ljósi og heimtar síð- ustu krónumar, sem eftir era í tóm- um vasa verkamanna, fyrir gáfuleg orð sín um „hókus pókus“ í íslensk- um fjármálum...! Vill ekki sprengja stjórnina G.P.L. hringdi: Ég var að lesa frétt um það í DV að Stefán Valgeirsson, þrítugasti og annar þingmaður ríkisstjórnarinnar eins og hann er kallaður þar, vilji fá Borgaraflokkinn inn í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar til þess að hún springi ekki. Stefán er greinilega þeirrar skoð- unar að huldumennirnir tveir, sem skotist hafa fram úr fylgsnum sínum í Borgaraflokknum, séu annaðhvort ekki þeir huldumenn sem hann reiknaði með eða þá að hann treystir ekki þessum ákveðnu einstaklingum til að bjarga stjórninni. En Stefán Valgeirsson hefur lög að mæla þegar hann staðhæfir að ef ekki verður stigið skref í réttlætisátt verði gerðar harðar kröfur til að þessi ríkisstjórn fari frá og það sem fyrst. Sem dæmi má taka að ef inn- lánsvextir fylgja ekki verðbólgustig- inu þá er brotið réttlæti á viðskipta- vinum bankanna, háum sem lágum. - Þetta er eitt dæmið. En ég get ekki séð að innkoma þeirra sem eftir eru í Borgaraflokkn- um muni að einu eða öðru leyti styrkja þessa ríkisstjórn. Stefán Val- geirsson getur því sparað sér ómakið og afskrifað aukinn styrk stjórnar- innar þótt Júlíus Sólnes, sem er far- inn að bakka með allar fyrri yflrlýs- ingar, og Aðalheiöur og Óli Þ. lýsi yfir og taki mið af viðhorfum huldu- manna í anda Stefáns. - Héðan af eru kosningar til Alþingis eina úrræðið í pólitískri stöðu á íslandi. Það sér Stefán Valgeirsson auðvitað manna best. Verslimarbaimið á Suður-Afnku: Vil ekki missa Del Monte Helga hringdi: Vegna þeirrar umdeildu ákvörðun- ar íslendinga að skipta ekki við Suður-Afriku vil ég eindregið bera fram mótmæli þvi að ég sé ekki nokkum tilgang með þessu. Ég held að þetta sé ekki til fram- dráttar hinum blökku íbúum Suð- ur-Aftíku, síður en svo. Því fleiri vöruflokkar sem settir era í versl- unarbann frá Suður-Afriku þeim mun meiri erfiðleika er verið að skapa verkafólki þar í landi í formi atvinnuleysis. En auk þess vil ég taka fram aö niöursoðnir ávextir koma ekki betri en frá Suður-Afríku. Del Monte-ávextirnir eru t.d. einhverj- ir þeir bestu sem hér hafa fengist gegnum árin. Þeir era enn til sums- staðar en eru farnir að hverfa úr hillum verslana vegna þess að vinstri stjórnin hér hefur nú sett á innflutningsbann frá Suður-Aff- íku. Ég skora á kaupmenn að fram- fylgja ekki þessu banni og flytja inn niöursoðna ávexti frá Suður-Afr- íku með einhveijum ráðum, t.d. gegnum Danmörku eða önnur lönd sem ekki líða svona heimsku sem er ekkert annaö en skerðing á mannréttindum, sérstaklega hinna blökku íbúa Suður-Afríku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.