Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1989. 13 Lesendur Berum virðlngu fyrlr öldruðum: Erum öll á sömu leið Þórhildur skrifar: Lært fólk, ekki síður en aðrir, á að virða aldraða. Margt hálært fólk virðist hafa tapað virðingu fyrir venjulegu alþýðufólki. Aldrað fólk virðist samt ver ða fy rir mesta virð- ingarleysinu. Um leið og þetta fólk lendir inni á stofnun hrömar það eða að minnsta kosti er það dæmt til hrörnunar. Það verður að sætta sig við margt, sera það áður þurfti e.t.v. ekki, og taka við því sem að því er rétt. Þessu fólki er ekki ætlað að tjá sig um eitt eða annað sem máli skiptir og helst ætlast til að það sé skoðanalaust. Sem betur fer em hjá sumum öldrunarstofnunum einstaklingar sem gefa sér tíma til að leggja við hlustir og heyra hvað hinir öldraðu hafa til málanna að leggja. En alltaf komast þó inn per- sónur sem ekki ættu að vera þar í starfi. Tökum til dæmis matartímann. Harni hefur sérstök einkenni. Matnum er dreift og enginn má helst sjá eða spyrja hvað sé á boð- Hjá öldrudum á vistheimilum er matartíminn of» mikilvæg stund. stólum og því síður má fólk segja hvað það vill stóran skammt. En þetta er mikið mál fyrir hina öldr- uöu. Einnig hvað fólk vill drekka með matnum, því er ekki sama um það. Margir gera vel, ræða svolítið við mannskapinn, og slikar persón- ur skera sig úr. Og þótt hinir öldr- uðu virðist vera utan við sig streymir ánægjan úr andlitum þeirra - fólks sem ber merki mikill- ar lífsreynslu sem nútímafólk trúir ekki og getur ekki sett sig inn í. Það er hlaupið og hamast, matn- um dreift og dæit í gamla fólkið. Og það sem er þama til aö slappa af! En það er orðið svo vant þessu áhlaupi að það dembir þessu í sig og leggst svo undir feld þar til næsta áhlaup kemur. Þetta er því miður svona á alltof mörgum stofn- unum og oft era ættingjar kunnug- ir ölium hnútum en þykjast ekkert sjá eða skúja. Einnig gleymist oft að fólk þarf að fá andlega fæðu oftar en um jól og áramót, einnig meira mannlegt samhengi. Enginn má gleyma því að öli fórum við sömu leið er við flyljum yfir hafið, á strönd endis í mannheimi. - Við erum sannarlega á langferð um lífsins haf. Stöö 2: Of margar endursýningar )ARTAPI Sdaga megrun,sem VIRKAR! * ITAEJMNGAR i LÁGMARKl . NGAR AUKAVERKANIR Vandaður bæklingurmeö upp- lýsingum og leiðbeiningum á íslensku fylgir. FÆST í APÓTEKUM OG-BETRI MÖRKUÐUM. ÍEÐJANDI OG BRAGÐGOTT \LLAR MATARAHYGGJUR ÚRSÖGUNNI Heildverslun, Þingaseli 8, Sími 77311 B L AÐ BURÐARFÓLK l■- Jw&ljo ■■ Laugavegur Oddatölur Barónsstíg Eiríksgötu Fjölnisveg Mímisveg Baldursgötu Bragagötu Haðarstíg Urðarstig Nönnugötu Linda Karlsdóttir hringdi: Ég er ein af þeim sem tóku Stöð 2 feginshendi því eins og margir aörir var ég orðin hundleið á ríkissjón- varpinu. Þess vegna rauk ég til og fékk mér afruglara eða myndlykil um leiö og þeir komu. í fyrstu var ég himinlifandi því þetta var allt annað líf. En svo fór að versna er tekið var upp á þeim vana , mér og örugglega fleiri til mikils angurs, aö endursýna myndir æ ofan í æ. - Þaö væri nú svo sem í lagi ef þetta væri gert einungis síö- degis. En, nei takk, hver myndin á eftir annarri er endursýnd um helgar einnig. Á föstudags- og laugardagskvöld- um, þegar fiölskyldan hefur komið sér notalega fyrir og ætlar aö fara aö horfa, koma myndir sem maður er búinn að sjá tvisvar, jafnvel þrisv- ar áður. Að vísu segi ég þeim það til hróss að oftast eru þetta góöar mynd- ir og myndirnar um jólin voru mjög góðar, t.d. Nafn rósarinnar og þætt- irnir um Laxness. Og þá kem ég að ööru, þ.e.a.s. fram- haldsþáttunum. Þeir hafa oft verið með góða þætti hjá Stöð 2, svo sem Stríðsvinda og Hong Kong Noble House. - Er ekki hægt að fá fleiri þætti í svipuðum dúr eins og t.d. I Will Take Manhattan eftir Judith Kranz? Ég hvet þá sem eru sama sinnis og ég að láta nú í sér heyra svo að Stöð 2 verði aftur eins góð og hún var í upphafi. Nokkur orð um Kvennaframboðið Reykvíkingur skrifar: Það sem ég sé gott við þessi samtök er það að ekki mun skorta verkefni fj'rir félagsfræðinga og sálfræðinga 21. aldar þegar einstaklingar þessara stétta vilja skreyta sig með doktors- gráöunni. - Þær verða áreiðanlega skemmtilegar margar ritgerðirnar þeirra og útskýringarnar á því hvað hafi valdið því að stór hópur kvenna hafði það á stefnuskrá sinni aö „svipta" karlmenn þeim sjálfsögðu mannréttindum að hafa kjörgengi. Hvers vegna gerðist þetta í landi þar sem: - réttindi kvenna höföu verið meiri sl. 1100 ár en í nokkru öðru landi hvíta kynstofnsins? - í landi sem varð 4. í röðinni til að lög- leiða kosningarétt kvenna (gleymið ekki að geta þess í félagsmálaskóla ykkar kvenna, sem vonandi verður ekki i Alþingishúsinu, aö æði stór hluti karla haföi heldur ekki rétt til að kjósa til Alþingis) - og í landi þar sem það hefur jafngilt góöri fasteign aö ganga í pilsi. Ef þú, lesandi góður, trúir ekki þá rifiaðu upp einkamálaauglýsingar undanfarin ár, faröu í manntals- skýrslur eða spjallaðu viö einhverja á „góöum aldri“ - þær eru víðar en á Brávallagötunni. Þetta kven- mannshallæri jafngildir því að 5 milljónir Bandaríkjamanna væru dæmdar til einlífis eöa sæktu kvon- fang til annarra landa. - Viö skulum vona að Jafnréttisráð taki þetta fyrir og bendi á ráð til úrbóta. Útlendingar búsettir hér hafa bent á það séríslenska fyrirbrigði að konu er ekki mótmælt á fundi ef hún talar ekki í nafni pólitísks flokks. Þetta kann ekki góöri lukku að stýra. Heimilin eru rústuð. Atvinna hundr- uða, jafnvel þúsunda, flyst úr landi til kvenna í Bandaríkjunum, Bret- landi, Portúgal, til Austur-Evrópu og Asíu - þangaö sem ekki er búið aö eyðileggja vinnumóralinn með van- hugsuðum og einfeldningslegum upphrópunum. Aö mínum dómi er eftirfarandi rökrétt: Styöjum konur í þeirri ósk að stofna sérstök stéttarfélög, sbr. umræöur eftir fundinn á Hótel Borg sl. vetur. - Kennarar gætu byrjað hjá opinberum starfsmönnum meö karl- kennarafélag, þá lögfræöingar, verslunarfólk, o.s.frv. Gerið samt ekki þá vitleysu að vænta breytinga fyrr en með nýrri kynslóð. Það er hins vegar sígilt að rökræða hugtak- ið „kynslóð“. - Með jafnréttiskveðju. Hringið í síma 27022 milli kl. 10 og 12 eða skrifið WMO, Þú gætir fengið milljónir. Svo getur bónustalan fært þér hundr- uð þúsunda. Mundu bara að vera með. Sjálfvirkur símsvari með upplýs- ingum um vinningstölur og upp- hæðir: 681511. íþróttamiðstöðinni Laugardal. Sími 91-685111. Láttu vélina velja eða treystu á eigin tölur. Sumir nota afmælis- daga, aðra dreymir tölurnar. Kannski rætist stóri draumurinn þinn á laugardaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.