Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1989. 43 Afmæli Jakob Jónsson Jakob Jónsson, fyrrv. sóknar- prestur og rithöfundur, Seljahlíð, Hjallaseh 55, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Hans Jakob er fæddur á Hofi í Alftafirði í Suður- Múlasýslu og ólst upp á Djúpavogi. Hann varð stúdent utanskóla frá MR1924 og lauk guðfræðiprófi frá HÍ1928. Jakob var í framhaldsnámi í háskólanum í Winnipeg 1934-1935 og í námi í kennimannlegri guö- fræði og Nýjatestamentisfræði í há- skólahum í Lundi 1959-1960. Hann tók licentiatpróf í guðfræði í Lundi 1961 og varð doktor í guðfræði frá HÍ1965 fyrir bók sína um kímni og skop í Nýja testamentinu. Jakob vígðist aðstoðarprestur fóður síns á Djúpavogi 22. júlí 1928 og var prest- ur á Norðfirði 1929-1935. Hann var prestur íslenskra safnaða vestan hafs 1935-1940 og í Hallgrímspresta- kalli í Rvík 1941-1974. Jakob hefur verið kennari í barnaskóla, mennta- skóla, guðfræðideild háskólans og námskeiðum í Hjúkrunarskólan- um. Hann var skólastjóri gagn- fræðaskólans í Neskaupstað 1931- 1934 og í bæjarstjórn Neskaupstaðar 1934. Jakob var í stjórn Prestafélags Austfjarða, Prestaifélags íslands og formaður þess 1954-1964. Hann var formaður slysavarnadéildarinnar Ingólfs í Rvík 1942-1953, í Skálholts- hátíðarnefnd ogí Sálmabókarnefnd 1940 og 1961. Jakob var fulltrúi ís- lensku kirkjunnar á stofnfundi al- kirkjuráðsins í Amsterdam 1948 og er félagi í hinu kunna vísindafélagi Studiorum Novi Testamenti Societ- as (SNTS). Hann hefur samið fjölda rita, m.a. leikrit, tvær ljóðabækur og bækur um Nýjatestamentisfræöi. Jakob kvæntist 17. júlí 1928 Þóru Einarsdóttur, f. 12. desember 1901. Foreldrar hennar voru Einar Ólafs- son, múrari í Rvík, og kona hans, Guðrún Jónasdóttir. Böm Jakobs og Þóru eru Guðrún Sigríður, f. 5. júlí 1929, hjúkrunarfræðingur og íransfræðingur í Kaupmannahöfn, gift Hans W. Rothenborg, sérfræð- ingi í húðlækningum; Svava, f. 4. október 1930, bókmenntafræðingur, rithöfundur og fyrrv. alþingismað- ur, gift Jóni Hnefli Aðalsteinssyni, doktor og dósent i HÍ; Jökull, f. 14. september 1933, d. 25. apríl 1978, rit- höfundur, fyrri kona hans var Jó-. hanna Kristjónsdóttir, seinni kona hans var Ása Beck; Þór, f. 5. október 1936, doktor, deildarstjóri á Veður- stofu íslands, kvæntur Jóhönnu Jóhannesdóttur, rannsóknarmanni og tæknifræðingi, og Jón Einar, f. 16. desember 1937, héraðsdómslög- maður, kvæntur Guðrúnu Jakobs- son. Bræður Jakobs: Finhur, f. 1901, lést þriggja vikna, og Eysteinn, f. 13. nóvember 1906, fyrrv. ráðherra. Fóstursystur Jakobs vom Elísabet Beck, hálfsystir móður hans, og Guðrún Sveinbjamardóttir, syst- urdóttir móður hans. Foreldrar Jakobs voru Jón Finns- son, prestur á Djúpavogi, og kona hans, Sigríður Hansdóttir. Jón var sonur Finns prests á Klyppsstað, bróður Jóhönnu, móður Sigfúsar Sigfússonar þjóðsagnasafnara. Finnur var sonur Þorsteins, skálds í Mjóanesi, Mikaelssonar, skipstjóra Matthiesens, eða Mathias, sem var sænsk-norskur í fóðurætt en enskur í móðurætt. Móðir Finns var Kristín Jónsdóttir, prests í Vallanesi, Stef- ánssonar, b. á Þverhamri í Breið- dal, bróður Sigríðar, langömmu Önnu, langömmu Þorbergs Þórðar- sonar. Sigríður var einnig lang- amma Þorbjargar, ömmu Davíðs Ólafssonar, fyrrv. seðlabankastjóra. Foreldrar Stefáns voru Magnús Guðmundsson, prestur á Hallorms- stað, og kona hans, Kristín Páls- dóttir, prófasts á Valþjófsstað, Högnasonar. Móðir Kristínar var Þóra Stefánsdóttir.prófasts og skálds í Vallanesi, Olafssonar, pró- fasts og skálds í Kirkjubæ í Tungu, Einarssonar, prófasts og skálds í Eydölum, Sigurðssonar. Móðir Kristínar Jónsdóttur var Margrét Gísladóttir, systir Halldórs, langafa Gísla, afa Jóhannesar Gunnarsson- ar, formanns Neytendasamtakanna. Annar bróðir Margrétar var Ámi, langafi Guðmundar, afa Emils Bjömssonar, fyrrv. fréttastjóra. Móðir Jóns Finnssonar var Ólöf Einarsdóttir, b. í Hellisfirði, Er- lendssonar, b. í Hellisfirði, Ámason- ar, ættföður Hellisfjarðarættarinn- ar, föður Þórarins, langafa Guðnýj- ar, móður Vals Arnþórssonar, og langafa Odds, föður Davíðs borgar- stjóra. Móðir Ólafar var Þuríður Hávarðsdóttir, b. á Hólum, Jónsson- ar og konu hans, Guðnýjar Þor- steinsdóttur, systur Jóns, afa Stein- unnar, ömmu Svavars Guðnasonar listmálara, og langafa Heimis Steinssonar þjóðgarðsvarðar. Sigríður var dóttir Hans Becks, JakobJónsson. b. og hreppstjóra á Sómastöðum í Reyðarfirði, Christianssonar Becks, verslunarmanns á Eskifirði, frá Vejle á Jótlandi. Móðir Hans var María, systir Þórarins, afa Finns listmálara og Ríkharðs myndskera Jónssona. María var dóttir Richards Longs, verslunarstjóra á Eskifirði, afenskum borgaraættum. Móðir Sigríðar var Steinunn Pálsdóttir, systir Guðnýjar, langömmu Bergs Jónssonar rafmagnseftirlitsstjóra. Jakob og Þóra taka á móti gestum , í samkomusal Hallgrímskirkju kl. 16-18 á afmælisdaginn. Þórhildur Björg Þórhildur Björg Jóhannesdóttir, Hátúni 2, Reykjavík, er níræð í dag. Þórhildur Björg er fædd á Víkinga- vatni í Kelduhverfi og ólst upp í Krossdal í sömu sveit. Hún var bú- stýra föður síns eftir lát móður sinnar, 1919-1926, og vann á Krist- nesspítala 1926-1932. Þórhildur gift- ist 12. desember 1932 Ásmundi Ei- ríkssyni, f. 2. nóvember 1899, d. 12. nóvember 1975, forstöðumanni Hvítasunnusafnaðarins. Foreldrar hans voru Eiríkur Ásmundsson, b. á Reykjarhóli í Fljótum, og kona hans, Guðrún Magnúsdóttir. Systk- ini Þórhildar voru Guðrún Þórný, f. 20. ágúst 1896, d. 15. febrúar 1935, gift Kristjáni Eggertssyni, kennari í Grímsey, og Þórarinn, f. 29. október 1905, d. 16. júlí 1970, b. í Krossdal í Kelduhverfi, kvæntur Ingveldi Guðnýju Þórarinsdóttur frá Kíla- koti. Sonur þeirra var Þórarinn, prestur í Þóroddsstaðaprestakalli, síðara skólastjóri í Skúlagarði. Foreldrar Þórhildar voru Jóhann- es Sæmundsson, frá Narfastaðaseli í Reykjadal, og kona hans, Sigríður Þórarinsdóttir frá Víkingavatni, Föðurbræður Þórhildar voru Frið- rik, faðir Sæmundar, framkvæmda- stjóra Stéttarsambands bænda, Kristjáns framkvæmdastjóra Úl- tímu, Jóhanns, framkvæmdastjóra í Rvík, og Barða, fyrrv. fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bandsins; og Torfi, langafi Höskuld- ar Þráinssonar prófessors. Jóhann- es var sonur Sæmundar b. í Narfa- staðseli, Jónssonar, b. á Höskulds- stöðum, bróður Þorkels, langafa Kristj.önu, móður Karls Strand læknis. Annar bróðir Jóns var Jó- hannes, faðir Kristínar, móður prentaranna Jóhannesar, formanns Kristniboðsfélags karla, og Páls, Sigurðssonar, föður Sigurðar prests í Hallgrímsprestakalli í Rvík. Dóttir Kristínar var Anna, móðir Salome alþingismanns og Sigurðar Þorkels- sonar ríkisféhirðis. Þriðji bróðir Jóns var Sæmundur, afi Valdimars Ásmundssonar ritstjóra, afa Bríetar Héöinsdóttur leikstjóra. Jón var sonur Torfa, b. í Holtakoti, Jónsson- ar, b. á Kálfborgará, Álfa-Þorsteins- sonar. Móðir Jóhannesar var Þórný Jónsdóttir, b. á Fjöllum, Gottskálks- Jóhannesdóttir sonar, b. á Fjöllum, Magnússonar, ættföður Gottskálksættarinnar, föð- ur Magnúsar, afa Benedikts Sveins- sonar alþingisforseta, föður Bjama forsætisráðherra. Móðir Þórnýjar var Ólöf Hrólfsdóttir, b. á Hafralæk, Runólfssonar, b. í Kílakoti, Pálsson- ar, b. á Víkingavatni, Arngrímsson- ar, af ætt Hrófunga. Móðursystkini Þórhildar voru Björn, faðir Þórarins, skólameistara á Akureyri, Jónína, móðir Björns Kristjánssonar kaupfélagsstjóra, og Ólöf, kona Benedikts Kristjánsson- ar, prófasts á Grenjaðarstað. Sigríð- ur, amma Þórhildar, var dóttir Þór- arins, b. á Víkingavatni, bróður Ólafar, konu Magnúsar Gottskálks- sonar. Þórarinn var sonur Björns, b. á Víkingavatni, bróður Þórarins, afa Jóns Sveinssonar, Nonna, og langafa Árna Óla. Annar bróðir Bjöms var Grímur, langafi Sveins Víkings prests og Sveins Þórarins- sonar listmálara. Björn var sonur Þórarins, b. á Víkingavatni, Páls- sonar, bróður Runólfs. Móðir Þórar- ins Björnssonar, var Guðleif Þórar- insdóttir, b. í Lóni Guðmundssonar, Þórhildur Björg Jóhannesdóttir. bróður Guðmundar, föður Sveins á Hallbjarnarstöðum, afa Kristjáns Fjallaskálds. Móðir Þórarins var Ingunn Pálsdóttir, systir Runólfs. Þórhildur tekur á móti gestum í neðri sal Fíladelfíukirkjunnar kl. 18-20 í dag. Birgir Guðmundsson Birgir Guðmundsson, yfirbirgða- stjóri íslenskra aöalverktaka á Keflavíkurflugvelli, til heimilis að Arnarhrauni 29, Hafnarfirði, verður sextugur á sunnudaginn. Birgir fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Samvinnuskólann í Reykjavík 1947^8, vann við verslunarstörf á Siglufirði til 1952, við birgðaumsjón á Keflavíkurílugyelli frá 1952-57 en hefur starfað hjá íslenskum aðal- verktökum frá 1957. Birgir var búsettur í Hafnarfirði frá 1952-58, í Garðabæ frá 1958-72 og síðan aftur í Hafnarfiröi frá 1972. Hann var formaður skátafélagsins Fylkis á Siglufirði 1947-51, formaður Ungmennafélagsins Stjörnunnar í Garðabæ 1970-71 og formaður for- eldra- og vinafélags Kópavogshælis frá 1979. Þá er Birgir gjaldkeri Li- onsklúbbs Hafnarfjarðar 1988-89. Kona Birgis er Mary A. Marinós- dóttir, aðstoðarstúlka sjúkraþjálf- ara á Hrafnistu í Hafnarfirði, f. 4.9. 1931, dóttir Marinós Sigurðssonar bakara, f. 1900, d. 1971, og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður, f. 1900, d. 1970. Marinó og Guðrún bjuggu lengst af á Húsavík. Börn Birgis og Mary em: Alma, f. 2.3.1951, hjúkrunarfræðingur á Hrafnistu í Hafnarfirði, gift Stein- grími Haraldssyni vélstjóra, en þau em búsett í Hafnarfirði og eiga tvö böm; Marinó Flovent, f. 4.11.1958, bakari, kvæntur Jóhönnu Ingi- marsdóttur skrifstofumanni, en þau búa í Kópavogi og eiga eitt barn, og Birgir Már, f. 10.1.1963, vistmaður áKópavogshæli. Birgir á tvo bræður. Þeir eru: Ari, f. 14.9.1927, veðurfræðingur í Sví- þjóð, kvæntur Birgit Guðmundsson, en þau eiga fimm börn, og Skarp- héðinn, f. 7.4.1930, fulltrúi Sam- vinnubankans í Hafnarfirði og fv. íslandsmeistari í skíðastökki, kvæntur Ester Jóhannsdóttur, en þau búa í Hafnarfirði og eiga sjö böm. Foreldrar Birgis voru Guðmund- ur Skarphéðinsson, f. 1895, d. 1932, skólastjóri og bæjarfulltrúi á Siglu- firði, og kona hans, Ebba G.B. Flo- ventsdóttir húsmóðir, f. 1907, d. 1935, en þau bjuggu á Hólum á Siglufirði. Systir Ebbu er Maggý, móðir Ebbu Guðrúnar, konu Ólafs Skúlasonar vígslubiskups. Guðmundur var son- ur Skarphéöins, smiðs og verkstjóra á Siglufirði, Jónassonar í Gmndar- koti, bróöur Þórdísar, langömmu Jóns Skaftasonar borgarfógeta. Jón- as var sonur Jóns í Grundarkoti, bróður Þórðar Jónassonar háyfir- dómara, föður Jónasar Jónassen landlæknis. Móðir Jónasar var Sig- ríður Jónsdóttir á Vatnsenda, Magnússonar. Móðir Jóns var Ingi- björg Þorleifsdóttir, b. og hrepp- stjóra á Siglunesi, Jónssonar og konu hans, Ólafar Ólafsdóttur. Móð- ir Ólafar var Guðrún Jónsdóttir, b. á Brimnesi, Arnórssonar, Þor- steinssonar, b. á Stóru-Brekku, Ei- ríkssonar, ættföður Stóru-Brekku- ættarinnar, föður Péturs, langafa Þóreyjar, ættmóður Thorodddsens- ættarinnar og móður Jóns, skálds og sýslumanns á Leirá. Bróðir Ingibjargar var Þorleifur, langafi Þorleifs, langafa Margeirs Péturssonar. Kona Skarphéðins var Guðlaug Guðmundsdóttir. Foreldrar Ebbu voru Flovent Jó- hannsson, kennari og bústjóri á Hólum í Hjaltadal, búsettur á Sjáv- arborg og síðar bæjarfulltrúi og Birgir Guðmundsson. brunaliðsstjóri á Siglufirði, og Margrét Jósefsdóttir. Birgir tekur á móti gestum á morgun, laugardag, frá klukkan 16-19.00 í sal Oddfellowstúkunnar að Linnetsstíg 6, Hafnarfirði. Til hamingju með afmælið, 20. janúar 70 ára Jóhanna H. Bergland, Álfheimum 32, Reykjavík. Sigurðiu- Kristinn Ármannsson, Goðheimum 17, Reykjavik. 60 ára Matthea Margrét Jónsdóttir, Selvogsbraut 19, Þorlákshöfn. Gunnar Haraldsson, Álftamýri 42, Reykjavík. Sverrir Valdemarsson, Hamragerði 27, Akureyri. Ámi Sigursteinsson, Austurvegi 29, Selfossi. 50 ára Jónas A. Kjerulf, Víðigrund 3, Akranesi. Laufey Simonardóttir, Glerá, Akureyri. Reynir Sigurðsson, Bugðutanga 19, Mosfellsbæ. 40 ára Jón Sigurmundsson, Oddabraut 19, Þorlákshöfn. Ásta Samúelsdóttir, Engihjalla 9, Kópavogi. Gísli Jóelsson, Eyrarbraut 16, Stokkseyri. Ásta Reynisdóttir, Lækjarhvammi 11, Hafnarfirði. Óskar Hansson, Gyöufelli 2, Reykjavík. Haukur Sveinsson, Krummahólum 8, Reykjavík. Birna Ágústsdóttir, Þverási 16, Reylqavík. Elin Guðmundsdóttir, Frostaskjóli 43, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.