Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Page 28
44 Andlát Áslaug Soffia Erlendsdóttir, Austur- götu 37, Hafnarfiröi, andaðist á Sól- vangi, Hafnarfiröi, 17. janúar. Einar Haukur Ásgrímsson verk- fræðingur andaðist 18. þ.m. í sjúkra- húsi í London. Þuríður Árnadóttir, Heiðargerði 7, Akranesi, lést í sjúkrahúsi Akraness þann 18. janúar. Sigurður Árnason frá Heiðarseli, Hverahlíð 12, Hveragerði, lést 18. jan- úar að Ljósheimum, Selfossi. María Vilhjálmsdóttir frá Neðri Dálksstöðum andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri miðviku- daginn 18. janúar. Jónina A. Björnsdóttir, Víkinga- vatni, lést í Borgarspítalanum 17. janúar. Jarðarfarir Sigurður Helgason lést 13. janúar. Hann fæddist í Reykjavík 8. júlí 1904, sonur hjónanna Oddrúnar Sigurðar- dóttur og Helga Magnússonar. Sig- urður stundaði pípulagnir og lauk 'sveinsprófi í þeirri iðn. Seinna tók hann að fást við kaupsýslu sem varð hans ævistarf. Hann kvæntist Guð- rúnu E. Guðmundsdóttur en hún lést árið 1967. Útför Sigurðar veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Útfór Pálínu Stefánsdóttur, Strand- arhöfða, Vestur-Landeyjum, fer fram frá Breiðabólsstaðarkirkju laugar- daginn 21. janúar kl. 14. Útför Ólafs Jónssonar, Skipholti 54, fer fram frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 24. janúar kl. 13.30. Útför Önnu Jónasdóttur, Lynghaga 4, Reykjavík, verður gerð frá Dóm- ENOURSKMSMERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRM ALLA! Best er að hengja A skjóifatnaii tvö merici, er heppilegt fyrif neftan mitti að hafa - sitt á hvora hlið. endurskinsrenninga tremst á ermum ogafaldiaft aftan og framan. UMFERÐAR RÁÐ kirkjunni mánudaginn 23. janúar kl. 13.30. Guðmundur Jónsson, skósmiður á Selfossi, verður jarösunginn frá Sel- fosskirkju laugardaginn 21. janúar kl. 13.30. Hallgrímur Ottósson, Sæbakka, Bíldudal, verður jarðsunginn frá Bíldudalskirkju laugardaginn 21. janúar kl. 14. Fundir Hádegisverðarfundur FUF Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, verður í umræðunni á hádegisverðarfundi Félags ungra fram- sóknarmanna á Gauki á Stöng mánudag- inn 23. janúar. Sverrir mun ræða um vaxtamálin og svara fyrirspurnum fund- argesta. Allir eru velkomnir á fundinn sem hefst kl. 12. Boðið verður upp á létta máltíð á góðu verði. Tapað fundið Læða í óskilum 5 mánaða grábröndótt læða með hvítar loppur og hvítan blett undir hökunni, týndist 22. desember sl. frá Klapparstíg 28. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýs- ingar um kisu vinsamlegast hringi í síma 28630. Tilkyimingar Bókamarkaður í gær hófst sameiginlegur bókamarkaður ýmissa bókaforlaga að Þingholtsstræti 2, á homi Bankastrætis. Margar forvitni- legar og eigulegar bækur hafa verið dregnar fram í dagsljósið og em nú boðn- ar á vægu verði. Seldar verða bæði nýleg- ar og garnlar bækur, svo sem skáldsögur, ævisögur, barnabækur, ástarsögur, vís- inda- og sagnfræðirit, svo eitthvað sé nefnt. Bókamarkaöur stendur til laugar- dagsins 28. janúar. Nútímalegt þorrahlaðborð að hætti Oðins Eins og kunnugt er, er þorrinn að ganga í garð. I veitingahúsinu Óöinsvéum verð- ur að þessu sinni boðiö upp á þorrahlað- borð með nýju sniði. Auk hins þjóðlega matar geta matargestir einnig vahð góm- sæta rétti úr lambakjöti og flski. Þorra- hlaðborðið sem hefst í dag, 20. jan., er á boðstólum í hádeginu en líka er hægt að hringja og _panta hlaöboröið á kvöldin fyrir hópa. I Viðeyjarstofu verður einnig boðið upp á þorrahlaðborð. Nordjobb1989 tekurtil starfa Nordjobb er miðlun sumaratvinnu milli Norðurlanda fyrir fólk á aldrinum 18-26 ára og em störfin, sem boöið er upp á, í löndunum öllum, svo og á sjálfstjórnar- svæðunum á Noröurlöndunum. Störfin, sem bjóðast, em margvísleg. Þau em á sviði iðnaðar, þjónustu, landbúnaðar, verslunar o.fl. og bæði miðuð við faglært og ófaglært fólk. Starfstíminn er frá 4 vikum upp í 3 mánuði. Það em norrænu félögin á Norðurlöndunum sem sjá um atvinnumiðlunina hvert í sinu landi. Á íslandi sér Norræna félagiö um Nordjobb-atvinnumiðlunina en í því felst að félagið veitir allar upplýsingar, tekur við umsóknum frá íslenskum umsækj- endum og kemur þeim áleiðis og sér um atvinnuútvegun, útvegun húsnæðis og tómstundadagskrá fyrir norræn ung- menni á íslandi. Allar upplýsingar um Nordjobb 1989, þar á meðal umsóknar- eyðublöð, fást hjá Norræna félaginu, Norræna húsinu, 101 Reykjavík, símar 10165 og 19670. Reiknað er með að um eða yfir 100 ungmenni komi til starfa hér á landi á vegum Nordjobb 1989 og að 120-140 íslensk ungmenni fari til starfa annars staöar á Norðurlöndunum á veg- um Nordjobb. FÖSTUÐAGUR 20. JÁNÚAR 1989. Menning_______________dv Engar ýkjur Orðiö „impromptu" þýðir án und- irbúnings, eða óvænt. Tónsmíðar meö þessu heiti komust í tísku á rómantiska tímanum. Venjulega var um að ræða spuna höfundarins með einfalda hugdettu, sérstakt mynstur eða hrynfrum. Hugdettan er síðan leidd gegnum eitthvert hljómferh því impromptu eru fyrst og fremst hljómrænar æílngar þar sem höfundarnir leita æ nýrra blæ- brigða, verkin eiga að hafa ein- hvern tiltekinn ilm. Flest imp- romptu eru fyrir píanó. Það er óhjákvæmilegt að öll orð sem við notum fá merkingu sína af fyrri notkun og við bætum ein- hverju við eöa ítrekum fyrri merk- ingu þegar við segjum orðið. Þegar nýtt tónverk er nefnt impromptu hlýtur heitið að skoðast sem tilvitn- un í rómantísku hefðina. Við eigum von á að höfundurinn segi eitthvað um efnið. í verki Áskels Mássonar fann ég hins vegar engan snerti- punkt við nefnda hefö. Verkið er kontrapunktískt og byggir að mestu á einum hljómi. Það lýsir ekki þróun einhvers efnis, er frek- ar æ ný framsaga þess sama í ýms- um tilbrigðum. Ofangreint er síður en svo sagt sjálfu verki Áskels til hnjóðs. Hann veit hvað hann vill og kann að ná því fram í hljómsveitarverki og útkoman er oft á tíðum glæsilegur hljómur en oftast er aðaláherslan á skýrri og gegnsærri hljómsveit- arskrift. Verkinu virðist ekki ætlað að lýsa ferð vitundarinnar til hel- vítis og heim aftur. Það er ráð- vendni að ætla sér ekki um of í svo stuttu hljómsveitarverki. Mér er nær að líkja hinni þrautseigu lag- línu þess við munk, sem lendir stundum í ævintýrum, en lætur ekkert hagga sér frá göngunni í átt Áskell Másson, tónskáld. Tónlist Atli Ingólfsson til eigin sannleika. Ágæt tök Franks Shipways á hljómsveitinni heyrðust strax í verki Áskels. Fimmta sinfónía Schuberts hljómaði einnig vel og var henni greinilega ætlað að ljóma af áhyggjuleysi. Sinfónía þessi er sprottin af hljóðfærahugsun ann- ars vegar og sönglögum hins vegar, klassískri tónhst og rómantík, og hefði ef til vill mátt gera meira úr þessari tvíræðni, til dæmis með því að leika annan kaflann sönglegar, meö meiri áherslum á biðtóna, og söngrænni hendingamyndun. Þetta er þó smekksmál og ekki hægt aö kvarta mikið þegar svo sannfærandi er spilað sem hér var. í sellókonsert Dvoráks fannst mér í upphafi eins og einleikarinn, Ralph Kirshbaum, og hljómsveitin önduðu ekki saman en það lagaðist fljótt og úr varð ágætur flutningur þessa sérlega vinsæla konserts sem Dvorák samdi í New York. í þess- ari tónlist er það hrifmagnið sem gildir og varla er hægt að ýkja eða ofgera þegar hún er leikin. Kirsh- baum sýndi örugga og litríka túlk- un og gott jafnvægi var milli hans og hljómsveitar. Aukalagið, sem mig grunar að hafí vérið sarabanda úr d-moll svítu Bachs, hafði sömu þrjár upphafsnótur og þekktasta stefið úr konsertinum. Það var skemmtilegt val en auövitað ekki jafn líkamlegt og aukalög eru oft- ast. Háskólabíó, fimmtudaginn 19. janúar. Sinfóníuhljómsveit íslands, Frank Shipway, stjórnandi, Ralph Kirshbaum, knéfiðla. Verk eftir Áskel Másson, Schubert og Dvorák. Atli Ingólfsson. Millileiðagróði „Að vera einn á rölti í kirkjugarðin- um leiðir til þess, að ég fer að tala við sjálfan mig.“ Þessi orð úr bók Úlfs Friðriksson- ar, Fundið og gefið, lýsa nokkuð vel baksviði þessarar litlu, geðfelldu og yfirlætislausu bókar, sem hefur und- irtitilinn: „Sundurlausir þankar á leiðum milli leiða í kirkjugarðinum við Suðurgötu." Höfundurinn er frá Kúrlandi, sem menn ættu að kannast við úr Egils sögu Skallagrímssonar, en er hluti Lettlands. Hann er þýsk-pólskrar ættar og hefur verið ríkisborgari þriggja ríkja, áður en hann hlaut fs^ lenskan ríkisborgararétt, Rússlands, Lettlands og Þýskalands. Hann, sem áður hét Wolf von Seefeld, er nú kominn á efri ár, fluttist til íslands á fimmtugscddri og hefur starfað hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur síðast- liðin 20 ár. Bók hans, sem hér verður stuttlega fjallaö um, hefur fyrst og fremst að geyma frásagnir af ýmsu því fólki, sem hlotið hefur legstað í kirkjugarð- inum við Suðurgötu ásamt ýmsum hugleiðingum, sem því tengjast. Geysilega vel lesinn Það mun víst vera alger tilviljun, að þessi bók kemur út að kalla sam- tímis hinni glæsilegu bók Bjöms Th. Björnssonar, Minningarmörk í Hóla- vallagaröi, sem mér gefst líklega tækifæri til að fjalla um síðar á öðr- um vettvangi. Það er hins vegar ekki tilviljun að í báðum þessum bókum eru efnisþættir sem snerta sömu ein- staklinga, en allt önnur sjónarmið gilda í þessum tveim bókum þrátt fyrir þaö. Þetta kemur vel fram í því, sem segir í þeirri bók, sem hér um ræðir: „Um legsteinana sjálfa hef ég ekkert fagmannlegt að segja. Svo- kölluð persónuleg skoðun dugar þá enn minna en samanborið við þekk- ingu fræðimannsins." En það er ein- mitt sú þekking, sem mér virðist uppistaðan í riti Björns. Bókmenntir Páll Líndal Það, sem mér kom mest á óvart við lestur á bók Úlfs er það, hversu geysi- lega vel lesinn hann er. Það er hreint ótrúlegt, hvað höfundurinn hefur í hjáverkum kynnt sér bæði hvað snertir sögu Islands, ekki síst per- sónusögu, svo og íslenskar bók- menntir. Þegar litið er til þess, sem áður segir um höfundinn, sem ég kannað- ist ekki við, kom mér helst í hug, að hér ætti í hlut íslenskur fræðaþulur, sem hefði kosið að skrifa undir dul- nefni! Ég meira að segja kynnti mér þetta, áður en ég lagði út í að setja þessar línur á blað! En þetta var allt saman minn misskilningur eða tor- tryggni. Notaleg heild, ánægjulegur lestur Til að rökstyðja mitt viðhorf get ég nefnt nokkur dæmi um það, sem Úlfur Friðriksson vitnar í sem heim- ildir: Hann tekur upp frásögn úr því sjaldfengna blaði Arnfirðingi árið 1902, en það blað var gefið út á Bíldudal undir ritstjórn Þorsteins Erlingssonar skálds. Hann tilfærir kafla úr grein um kirkjugarðinn,sem birtist í barnablaðiiiu Æskunni árið 1898 og grein, sem birtist í hinu kristilega blaði Bjarma árið 1922. Úlfur hefur á hraðbergi tilvitnanir í bréf Jóns Árnasonar þjóðsagna- safnara og Stephans G. Stephansson- ar, kvæði eftir Jón Trausta og Hann- es Pétursson og lætur sig ekki muna um að taka með frásagnir úr Ferða- minningum Sveinbjarnar Egilssonar ritstjóra, sjálfsævisögum Theodórs Friðrikssonar og Sigurðar Thorodds- ens verkfræðings. Þetta er aðeins nefnt sem dæmi. Nú skyldi enginn ætla, að þessu og öðru slíku sé hrúgað saman eins og um sé að ræða safn af fleygum orðum eða einhverju þess háttar. Með hugleiðingum höfundar er þetta fellt saman í notalega heild, sem verður ánægjulegur lestur. Bók- in er hins vegar ekki þannig sett upp, að hún komi að verulegu gagni sem leiðarvísir fyrir þann, sem röltir lítt kunnugur um kirkjugarðinn, nema hann hafi lesið bókina mjög rækilega. Nafnaskrá hefði bætt úr að vissu marki. Þetta haggar hins vegar ekki fróðleiksgildi bókarinnar. Með merkilegri bókum á ár- inu Mér þykir ein athugasemd höfund- ar sérlega skemmtileg. Höfundur minnist á grískunám sitt í skóla í Riga: „Gagn? Ég veit ekki. En eitt- hvað, sem er blessunarlega laust við gagn, er verulegur fengur.“ Ekki veit ég, hvort þessi skoðun er heimabök- uð eða ekki, en mjög minnir hún á þann ágæta mann Lao-Tse, sem eign- uð er Bókin um veginn. Bókin er mjög látlaus að allri gerð eins og áður er fram komið, og er það út af fyrir sig síst aðfinnsluefni. Hins vegar þykir mér prófarkalestur af- leitur, svo að ekki sé meira sagt, en ég ætla, að þar beri aðrir meiri ábyrgð en höfundur. Þeir, sem vita um mína frönskukunnáttu, munu vafalítið skella upp úr, þegar ég segi, að mér hafi í þessu sambandi einna mest runnið til rifja, að það kemur harla sjaldan fyrir, að nokkur af mörgum tilvitnunum í frönsku kom- ist ósködduð til skila. Þrátt fyrir þessi lýti held ég, að þetta sé með merkilegri bókum, sem út hafa komið á árinu 1988 a.m.k. í þeirri grein, sem við köllum þjóðleg fræði. Úlfur Friðriksson: Fundið og gefið, 110 bls. Reykjavik 1988. P.L.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.