Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1989. Ólafur Ragnar Grímsson: Þessi fylgis- aukning er ánægjuleg „Fylgisaukning Aiþýöubandalags- ins frá síöustu skoðanakönnun DV er veruleg og ánægjuleg tíöindi. Sér- staklega vegna þess að flokkurinn hefur þurft, vegna forystu sinnar í fjármálum ríkisins, aö beita sér fyrir erfiðum aðgeröum á undanförnum vikum. Hvaö varðar fylgi viö ríkisstjórnina þá naut hún óvenjumikils fylgis fyrstu mánuðina. Þótt það hafi minnkað nokkuð er ljóst að hún nýt- ur fylgis næstum helmings þjóðar- innar sem telur hana greinilega vænsta kostinn sem í boði er. Fylgistap Kvennalistans er að mín- um dómi aðvörun til forystuliðs hans vegna þess að Kvennalistinn hefur kosiö að standa með Sjálfstæðis- flokknum gegn þeirri félagshyggju- stjórn sem nú situr. Slík afstaða er ekki vænleg í baráttunni fyrir félags- legu réttlæti,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, um niðurstöður skoðana- könnunar DV. -S.dór Guðrún Agnarsdóttir: Endurspeglar áherslur fjölmiðlanna „Þær breytingar, sem hér verða á fylgi flokkanna, endurspegla áhersl- ur sem verið hafa í fjölmiðlum und- anfarið. Fréttaljósið hefur skinið mjög sterkt á átök og uppgjör Sjálf- stæðisflokksins við fyrri samstarfs- aðila og núverandi ríkisstjórn. Kvennalistinn hefur hins vegar verið lítið sýnilegur í þessum slag og sjón- armið okkar komist illa á framfæri. Hvaö varðar fylgi ríkisstjómarinn- ar þá undrar mig ekki þótt það fari minnkandi, bæði vegna þeirrá að- gerða sem hún hefur valið og aðgerð- arleysis,“ sagði Guðrún Agnarsdótt- ir, þingkona Kvennalistans, um nið- urstöður skoðanakönnunar DV. -S.dór NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GOÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR Efdr sameiningu tryggmgafélagarma: Ráða saman tveimur t þriðju markaðarins - verða líklega leiðandi fyrir aðra, segir Brynjólfur Sigurðsson „Það er aldrei hægt að segja með neinni vissu hvaö gerist núna á tryggingamarkaðnum. Þessi tvö stóru tryggingafélög verða þó mjög líklega leiðandi og minni trygg- ingafélögin þurfa að laga sig að því sem þau gera,“ segir Brynjólfur Sigurðsson, prófessor í viðskipta- deild, um tryggingarisana tvo á ís- lenska tryggingamarkaðnum. Samvinnutryggingar og Bruna- bót verða raeð 36 prósent af mark- aönum en Sjóvá og Alraennar meö 30 prósent. Tryggingaraiðstöðin er með 17 prósent en önnur félög 17 prósent. „Það er spurning hvort þessi tvö stóru félög lenda í jafnvægi á mark- aðnum, að þegjandi samkomulag ríki á milli þeirra um verð trygg- inga. Vegna sameininganna boðá þau bæði mikinn spamað og hag- ræðingu. En mun þessi spamaður leiða til lækkandi iðgjalda eða að afkoma félaganna tveggja verði betri?" Brynjólfúr segir ennfremur aö lendi stórufélögin tvö í harðri sam- keppni sé augljóst að verulega þrengist að smærri félögunum á markaönum. Þorsteinn Pálsson: Áfellisdómur „Ég lít svo á að þessi niðurstaða feh í sér að fólk geri sér grein fyrir því að þurft hefði að koma fram að- gerðum í september síðastliðnum, eins og við lögðum áherslu á, og að það var fyrst og fremst með tilkomu þessarar ríkisstjórnar að þessar nauðsynlegu aðgerðir voru hindrað- ar,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins. „í þessu felst mikil áfellisdómur yfir þeirri efnahags- og skattastefnu sem Alþýðubandalagið hefur mótað í þessari ríkisstjórn. Þetta sýnir að fólk gerir sér grein fyrir því að þörf er á sterkri ríkisstjóm og til þess að svo megi verða þarf að vera mögu- leiki á myndun tveggja flokka ríkis- stjórnar þar sem Sjálfstæðisflokkur- inn á aðild. Um fylgi ríkisstjórnarinnar þarf ekki annað að segja en að ríkisstjórn- in nýtur ekki trausts." -SMJ Steingrímur Hermannsson: „Fylgi okkar virðist vera á bilinu 19-25 prósent og ég er ekkert ósáttur við þessa niðurstöðu," segir Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra um niðurstöðu skoðanakönn- unar DV. „Fólk býst við því af Framsóknar- flokknum að hann geri eitthvað rót- tækt í þeim málum sem þarf að leysa og það verður gert. -pv -JGH Markaðshlutfall tryggingafélaganna Fyrsti dagur þorra er í dag, dagur sem margir hlakka til. Þá upphefst hin mesta átveisla í samfélaginu. Gómsætir þorraréttir kitla bragðlaukana svo sem ýmis súrmatur, svið, hangikjöt og harðfiskur. Hér sjáum við meistarakokka Múlakaffis tilbúna með þorramatinni. Þeir eru Stefán Stefánsson, Sigurður Ólafsson, Ingvi Jónsson og Þórður Þorgeirsson. DV-mynd Brynjar Gauti LOKI Það er sýnilega sjálf ríkisstjórnin sem er á sjúkrabeðinu! Veðriö á morgun: Snjóar fyrir norðan Á morgun verður norðanátt og sennilega hvöss norðaustan- lands. Snjókoma eða éljagangur verður um allt norðanvert landið en þurrt syðra. Frost verður um allt land, 1-6 stig. Óli Þ. Guðbjartsson: Stjórnin hefurekki treyst grunninn „Það er lítið um þetta að segja ann- að en að það er varla marktæk breyt- ing hjá okkur. Meginbreytingin er hjá Sjálfstæðisflokknum en það er að minni hyggju, eins og fyrri dag- inn, fyrirferð í íjölmiölum að þakka," sagði Óh Þ. Guðbjartsson, þing- flokksformaður Borgaraflokksins. Óli sagði að greinilega væri aðal- hreyfmgin frá Kvennalistanum til Sjálfstæðisflokksins og það væri til marks um fjölmiðlafyrirferðina. „Ríkisstjórnin er byggð á veikum grunni og hún hefur ekki treyst þann grunn ennþá. Það er augljóst." -SMJ ss i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i \ \ i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.