Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
Fréttir
Einvígi Jóhanns og Karpovs í Seattle:
Karpov náði forystunni
Jóhann Hjartarson og Anatoly Karpov i Seattle: Jóhann tefldi langt undir getu í nótt. Símamynd Reuter
Jóhann Hjartarson náði aldrei að
rétta úr kútnum í 2. einvígisskákinni
við Anatoly Karpov, eftir slaka tafl-
mennsku í byijun. Karpov náði tang-
arhaldi á stöðu hans með laglegri
skiptamunsfóm og þótt úrvinnslan
heíði ekki þótt sérlega sannfærandi
lék hann sigrinum aldrei úr höndum
sér. Jóhann reyndi hvað hann gat til
að sprikla í netinu en allt kom fyrir
ekki.
Karpov hefur þá náð forystu í ein-
víginu en fyrstu skákinni lauk með
jafnteíli eftir skamma hríð. Jóhann
hefur hvítt í þriðju skákinni sem
hefst kl. 1 aðfaranótt fimmtudags, að
íslenskum tíma. Ljóst er að nú hefur
hann ekki efni á að leita eftir friðar-
samningum en ekki er hann öfunds-
verður af stöðu sinni.
Karpov hóf taflið í nótt með ensk-
um leik og í fyrstu virtist sem Jóhann
væri betur með á nótunum. Karpov
hugsaði lengur og athygli vakti er
hann hvarf af sviðinu drykklanga
stund á viðkvæmu augnabliki í byij-
uninni. Sumir sögðu að hann hefði
lítið senditæki og væri að leita ráða
hjá aðstoðarmönnunum sem eru lok-
aðir inni í bækistöðinni. Aðrir héldu
því fram að hann hefði minnisblöð í
jakkafóðrinu. Svo fór að stuttu síðar
lék Jóhann tvo hæpna leiki og
Karpov náði yfirburðastöðu. Mörg-
um fannst hann vinna fremur ráð-
leysislega úr taflinu því að hann
hefði getað haldið Jóhanni í algerri
spennitreyju. Það kom hins vegar
ekki að sök því að staðan var svo góð.
Hljóðið var dauft í herbúðum ís-
lendinganna eftir tapið enda tefldi
Jóhann langt undir getu. Vonandi
tekst honum að bæta ráð sitt.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Jóhann Hjartarson
Enskur leikur
1. c4
Karpov kýs nú að sitja hinum meg-
in við borðið í enska leiknum sem
var eftirlætisbyijun heimsmeistar-
ans Kasparovs í einvígjnu gegn hon-
um í Sevilla. Ekki má heldur gleyma
því að enski leikurinn var leynivopn
Bobby Fischer gegn Spassky í
Reykjavík 1972. Skyldu heimsmeist-
ararnir þrír hafa komist að þeirri
sameiginlegu niðurstöðu að þetta sé
besti byrjunarleikur hvíts?
1. - e5 2. g3 RfB 3. Bg2 d5 4. cxd5 Rxd5
5. Rc3 Rb6 6. Rf3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. a3
Jóhann lék fyrstu leikina hratt en
Karpov fór nú að hægja ferðina.
Hann leikur ekki 8. d3 eins og algeng-
ast er. Svartur hefur mátt vel við ima
eftir 8. - Be6 9. a3 0-0 10. b4 a5 11.
b5 Rd4 eða strax 10. - Rd4 eins og.
þeir félagar Sokolov og Salov tefldu
gegn Kasparov á sovéska meistara-
mótinu í fyrra. Karpov geymir
drottningarpeðið á upphafsreitnum
en þannig hafa nýlegar skákir teflst.
8. - Be6 9. b4 0-0 10. Hbl f6 11. d3
Loks fer peðið af stað en nú hefur
Karpov tekist að takmarka mögu-
leika svarts. Hann hafði, er hér var
Skák
Jón L. Árnason
komið sögu, notað 25 mínútur af
umhugsunartíma sínum en Jóhann
aðeins 8 mínútur.
11. - Dd7 12. Re4 Rd5
Þaö var eins og Jóhann hefði ekki
tekið síðasta leik Karpovs með í
reikninginn því að nú hugsaði hann
lengj.
13. Dc2 b6?!
Stórmeistararnir Gufeld og
Seirawan gagnrýndu þennan leik í
skákskýringasalnum. Vissulega
veikir Jóhann stöðu sína með þessu
og það er spuming hvort 13. - Hfd8
hefði ekki verið betra.
14. Bb2 Hac8?
Of hægfara - óhætt er að fullyrða
að eftir þennan leik nái Karpov yfir-
burðastöðu. Sennilega var 14. - a5!?
15. b5 Ra7 eða 15. Hbcl Rd4 besta til-
raunin til að ná gagnfærum.
15. Hbcl Rd4
Eftir 15. - Rd8 16. d4! ætti hvítur
ógnandi stöðu á miðborðinu.
16. Bxd4 exd4 17. Dc6 Dxc6 18. Hxc6
Bd7 19. Rxd4!
Karpov var tiltölulega fljótur að sjá
að skiptamunsfórnin gæfi hvítum
mikla möguleika. Hann hafði notað
alls klukkustund og 25 mínútur af
umhugsunartíma sínum, Jóhann
klukkustund og 15 mínútur.
19. - Bxc6 20. Rxc6 Hce8
Jóhann á ekki betri leik en þennan.
T.d. hefði 20. - Hfe8? verið afar slæmt
vegna 21. Bh3! og hótar hróknum og
Be6+ með riddaravinningi.
21. Hcl
Einfalt og öruggt, dæmigert fyrir
Karpov. Glettan 21. Rd6! Bxd6 22.
Bxd5+ Kh8 23. e4 og síðan 24. d4 og
25. f4 virðist þó þrengja enn meir að
svörtum.
21.- f5 22. Rd2 RfiB 23. Rxa7
Með tvö peð og riddara gegn hrók og
skothelda stöðu má Karpov vera sæll
með sitt. Jóhann situr uppi með gleð-
isnautt tafl.
23. - Bd6 24. e3 c5(?) 25. Rc4?!
Hvers vegna ekki 25. b5? Jóhann
hefur e.t.v. ætlað að blíðka goðin með
25. - Ha8 26. Bxa8 Hxa8 27. Rc6 Hxa3
með einhveijum gagnfærum. Báðir
áttu nú 20 mínútur eftir til að ljúka
40 leikjum.
25. - Bb8 26. Rc6 cxb4 27. axb4 b5 28.
R4a5 Rd7 29. d4 g5 30. Rxb8
Aftur dæmigert fyrir taflmennsku
Karpovs í þessari skák. Hann teflir
afar varfærnislega og sannast sagna
ekki mjög sannfærandi. Jóhann er
næstum sloppinn úr spennitreyj-
unni.
30. - Hxb8 31. Hc7 Rfi6 32. Rc6 Hb6 33.
Re7+ Kh8 34. Rxf5 Ha6 35. Hcl Ha2
36. h3 Hb2 37. e4 Hxb4 38. g4 h5 39. e5
hxg4
Gróf tilraun til aö flækja málin, en
nægir ekki.
40. exfB gxh.41. Bxh3 Hxf6.42. Hc8+
Kh7.43. Hc7+ Kg6.
Leikur sig beint í mát en staðan er
töpuð.
44. Hg7+
- Jóhann gafst upp því að eftir 44. -
Kh5 45. f3 ræður hótunin 46. Bg4 mát
úrslitum.
-JLÁ
Árbæjarhverfi:
Safna undir-
skriftum gegn
sorpstöðinni
Á fundi Framfarafélags Árbæjar-
hverfis í gær var samþykkt að hefja
undirskriftasöfnun gegn sorpbögg-
unarstöð sem fyrirhugað er að reisa
á iðnaðarsvæði fyrir norðan Árbæ.
Er ætlunin að hefja söfnunina í
næstu viku og ljúka henni fyrir 21.
febrúar.
Fundurinn í gær var fjölmennur
og mættu nokkrir borgarfulltrúar og
þingmenn. Greinilega kom fram á
fundinum hinn mikli ótti Árbæinga
við þessa stöð. Telja þeir að engin
trygging sé fyrir því að hún mengi
ekki út frá sér og kom fram á fundin-
um að enn er ekki búið að finna stað
til að urða sorpiö á. Þá bentu fundar-
menn á tregðu Kópavogsbúa til að
taka við stöðinni sem stafaði af því
að Kópavogsbúar ætluðu að byggja
íbúðarhúsnæði nálægt stöðinn+SMJ
Snjóflóð í Olafsflarðarmúla í gærkvöldi:
„SnjóHóðið hreif mig
niðw fyrir veginn“
- segir Ævar Klemensson sem lenti í flóðinu
Gylfi KrisSinaoan, DV, Akureyri:
„Ég var aö reyna að moka frá
bílnum þegar snjóflóð kom niður
Múlann og inn á vegjnn og þaö
hreif mig meö sér og bar mig nokk-
uð niður fýrir veginn,“ segir Ævar
Klemensson, sérleyfishafi á Dalvik,
en hann lenti í þeirri óskemmtilegu
lifsreynslu að verða fyrir snjóflóöi
í Ólafsfjarðarmúla í gærkvöldi.
Ævar og Bóas, sonur hans, fóru
fiá Dalvik áleiðis til Ólafsfiaröar í
gærkvöidi með vörur. Þegar þeir
voru komnir að Tófugjá, sem er
ofarlega í Múlanum innanverðum,
komu þeir aö snjóflóði. Þeir sneru
við vegna þess en komust ekki
langt þar sem þeir komu þá að öðru
snjóflóði. Þá fóru þeir feðgar út,
Ævar til að moka en Bóas fór að
setja keðjur á bifreiðina.
„Þaö kom þá spýja yfir veginn
og tók mig með einhverja metra
niöur fyrir veginn, ég veit ekki al-
veg hversu langt en nógu langt
þótti mér að fara til baka,“ sagði
Ævar í samtali við DV í morgun.
Hann sagðíst hafa fariö á kaf í snjó-
inn en ekki meiðst neitt, væri ein-
ungis stirður eftir volkiö.
Sonur Ævars fann hann ekki
strax og kaliaöi því á aöstoð björg-
unarsveitar frá Ólafsfirði. Hún
kom síðan á staðinn en þá hafði
Ævar komist upp á veginn. Þeir
feðgar voru síðan fluttir heim en
bifreiðina urðu þeir að skilja eftir
í TófUgjá og þar var hún enn í
morgun.
Gengissig í stað gengisfellingar?
Samkomulag er að myndast innan
ríkisstjómarinnar í gengismálum,
samkvæmt heimildum DV. Stefnt er
að lítilli lækkun gengis, um 3 til 5
prósent. Ýmsar leiðir eru kannaðar
en líklegasta niðurstaöan er að geng-
ið verði ekki lækkað í einu vetfangi
heldur yfir lengri tíma.
Samkomulag er einnig að nást í
vaxtamálum. Þær aögerðir, sem rík-
isstjómin mun grípa til, munu bera
meiri keim af samningum við bank-
ana um vaxtalækkun en því handafli
sem lesa mátti af tillögum Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra í
upphafi viðræðnanna. Þó mun ráð-
gert að Seðlabankinn geti beitt
ákvæðum seðlabankalaga til að hlut-
ast til um vaxtaákvarðanir bank-
anna. Til þess að gera þetta ákvæði
laganna virkara er ráðgert að breyta
orðalagi greinarinnar.
í kjölfar þess að núgildandi verð-
stöðvun rennur út mun taka við hart
verðlagseftirlit. Líklegt er að niður-
greiðslur á landbúnaðarvörur verði
auknar til að greiða niöur þá verð-
hækkun sem annars hefði orðið á
innlendum matvörum í kjölfar þess
að verðstöðvunin rennur út. Þá mun
og ætlunin að halda aftur að hækk-
unum á gjaldskrám opinberra fyrir-
tækja. í stað hækkana munu þau
þurfa að ganga á framkvæmdafé sitt
til að brúa reksturinn.
Mörgum af upphaflegum tillögum
Steingríms hefur verið ýtt af borö-
inu; vemdartollum á innflutning frá
láglaunasvæöum, greiðslu Seðla-
bankans á refsivöxtum síöasta árs í
hlutafjársjóð Byggðastofnunar, sér-
stökum ívilnunum til þeirra banka
sem lána mest í sjávarútveg og fleira.
-gse