Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
3
Urvals gúmmímottur á
sérstöku kynningarverdi
Passa í allar gerðir bíla.
Mjög endingargóðar.
Auðveldar að hreinsa.
halda vel bleytu.
5eldar í settum á fram-
gólf eða afturgólf.
Fást hjá Heklu, vara-
hlutaverslun / smurstöð
og Bensínstöðvum
5Keljungs.
Laugavegi 170 -174 Simi 695500
■ííl 1 HJl 1 VH URNAR ÞÍNAR? ÞAR KOKIAÐ ÞVÍ!
© © © © (38) (u)
' S
Þetta eru tölurnar sem upp komu 28. janúar. __ Heildarvinningsupphaeð var kr. 9.948.997. 1. vinningur var kr. 5.944.215. Einn var með fimm tölur réttar. i~7 n / Bónusvinninaurinn ffiórar tölur + hnnnstala var kr 594.97R nrj driptist 4 a vinningc. / /-,. •/ --- —--y —- ( S. hafa og fær hver þeirra kr. 198.092. / íf j í //!/? /W l' < Fjórar tölur réttar, kr. 1.025.056, skiptast á 206 vinningshafa, kr. 4.976 á mann. 1 / Æ / A. /n^/í //ry ? Sölustaðireruopnirfrámánudegitillaugardagsogerlokað15minútumfyrirútdrátt. r.. it • •- £ Simi685111. Upplysmgasimsvan 681511. s
Fréttir
Akureyri:
áfjárhags-
áæHuninni
Gyffi Kristjánsscn, DV, Ataareyri;
„Þessi fjárhagsáætlun lítur
ágætlega út og er td. miklu betri
fyrir okkur en á síðasta ári þegar
mjög kreppti að okkur. Afkoma
bæjarins er betri núna og munar
þar miklu um að staögreiðsla
opinberra gjalda hefur komiö
mjög vel út,“ segir Sigfus Jóns-
son, bæjarstjóri á Akureyri, um
fjárhagsáætlun bæjarsjóös fyrir
árið 1989 sem lögð verður fram
til fyrri umræðu á fundi bæjar-
stjómar í dag.
Gert er ráð fyrir að rekstur
bæjarsjóðs á árinu kosti 938 millj-
ónir króna og gjaldfærður stofii-
kostnaður nemi 65 milfjónum.
Tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar
1158 milljónir, þar eru stærstu
liöirnir 648 miUjónir vegna út-
svara, 199 milfjónir skattar af fas-
teignum og 184 milljónir aðstöðu-
gjöld. Til viðbótar þessum tekjum
bæjarsjóðs kemur ríkisframiag
til byggingar skóla og dagvista
sem nemur 76 milljónum. Til
greiðslu skulda bæjarins verður
variö tæplega 30 milljónum
króna.
Framkvæmd fyrir
200 milljónir
Til nýframkvæmda og véla-
kaupa verður á árinu varið 201
milljón króna og þar af er rflris-
framlag 75 milljónir króna. Þetta
er rúralega tvöföldun í krónum
talið miðað við sL ár og munar
miklu um myndarlegt framlag
rflrisins tfl Verkmenntaskólans
en byggingarframkværadir við
skólann eru mestu nýfram-
kvæmdir bæjarins á árinu ásamt
framkvæmdum við sundlaug í
Glerárhverfi.
Fulltrúar Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks í bæjarráði
hafa boðað athugasemdir þegar
fiárhagsáætlunin kemur til af-
greiðslu bæjarsfjómar.
Athugasemdir
mínníhlutans
Sigríöur Stefánsdóttir, bæjar-
fuUtrúi Alþýðubandalags, segir í
bókun sinni: „Ég hef fram að
færa fjölmargar athugasemdir
við frumvarp að fiárhagsáætlun
bæjarsjóðs eins og þaö liggur nú
fyrir. Þær varða stefhuna i tekju-
öflun sem m.a. kemur fram í að
heimild til álags á fasteignaskatt
er ekki nýtt til fulls.
Aftur á móti er ætlunin aö dag-
vistargjöld hækki um 58% á ár-
inu þegar forsendur áætlunar-
innar gera ráðfyrir 14-20% verð-
lagshækkun. Einnig hef ég aðra
skoðun en meirihlutinn á ýmsum
liðum sem varða ráðstöfún fjár-
muna. Þær athugasemdir munu
koma fram á bæjarstjómarfimdi
á milli umræðna.“
Sigurður Jóhannesson, fhlltrúi
Framsóknarflokks, sagði í sinni
bókun: „Ég hef tekiö þátt í gerö
frumvarps aö fiárlmgsáætlun
bæjarsjóðs Akureyrar fyrir áriö
1989 og geri ekki athugasemd viö
að þaö veröi lagt fram til fyrri
umræðu í bæjarstjóm. Bókanir
og breytingartillögur fulltrúa
Framsóknarilokksins við fiár-
hagsáætlunina munu koma fram
við umræöur í bæjarsijóm."
ViÖ gerö fjárhagsáætlunarinn-
ar vom lagðar til grundvallar
verðlagsforsendur þar sem miðað
er viö 14% álag á gildandi launa-
taxta 1. október 1988 og 17-20%
hækkun vöm og þjónustu frá
árinu 1988. Þá hefur sú breyting
verið gerð frá fýrri áætlunum að
inn í fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
em teknar fiárhagsáætlanir dval-
arheimilanna og strætisvagna.
Konur 1 mötuneyti ratsjárstöðvar flughersins í Rockville:
Kvarta undan álagi
Konur sem starfa í ratsjárstöð
bandaríska flughersins í Rockville á
Miðnesheiði kvarta undan of miklu
vinnuálagi. Konumar starfa í mötu-
neytinu og fimm manna vakt er oft
eklri mönnuð nema að hluta.
„Við erum búnar að kvarta við
verkalýðsfélagið, vamarmáladeild
og yfirmenn okkar héma,“ segir Þor-
björg Tómasdóttir í mötuneyti rat-
sjárstöðvarinnar. í gær var Þorbjörg
á vakt og voru þrjár konur af fimm
frá vegna veikinda. „Tvær þeirra em
bakveikar og hafa verið frá því í des-
ember og ein er með flensu. Þær
bakveiku em á leiðinni á spítala.“
Þorbjörg sagði það væri erfitt aö
vinna við þessar aðstæður en engar
úrbætur hefðu fengist.
Páli Gestson, deildarstjóri starfs-
mannahalds vamarliðsins, segir
óvenju mikið um veikindi starfsfólks
mötuneytisins í Rockville. „Þetta eru
eldri konur og kannski ráöa þær
ékki við starfið. Við erum með viku-
lega fundi til að finna lausn á þessu
máli,“ segir Páll.
„Konumar héma eru flestar á milli
50 og 60 ára og búnar að vinna lengi
hjá varnarliðinu. Mér finnst það hel-
víti hart ef það á að henda fólki út
eftir áratuga starf. Auk þess er það
læknis að segja til um hvort konurn-
ar geta unniö eöa ekki,“ segir Þor-
björg um orð Páls.
Guðrún Ólafsdóttir, varaformaður
Verkalýðs- og sjómannafélagsins,
segir verkalýðsfélagið hafa fengið
þær skýringar að flugherinn eigi
ekki peninga til að ráða fólk í afleys-
ingar. „Annars er maður alltaf að
rífast í þeim og það kemur lítið út
úr því,“ segir Guðrún.
-pv