Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
5
Fréttir
TiUögur Steingríms Hermannssonar:
Styrkir til fyrirtækja og
handafl á verðlag og vexti
- vemdartollar á innflutning frá láglaunasvæðum
Þær tillögur Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra sem
legið hafa til grundvallar í umræðum
innan ríkisstjórnarinnar undan-
fama daga gera ráð fyrir víðtækum
aðgerðum í efnahagsmálum. Þar er
gert ráð fyrir flölþættum og róttæk-
um breytingum á peningamálastefn-
unni, umtalsverðum aðgerðum til
stuðnings sjávarútvegi og iðnaði,
hörðu verðlagseftirliti og gengisfell-
ingu.
I tillögunum er einnig gert ráð fyr-
ir að ríkið komi inn í samninga á
almennum vinnumarkaði. Stefnt sé
að því að launahækkanir verði sem
minnstar. í stað þeirra verði boðið
upp á lækkun á innlendum matvæl-
um án þess að tilgreint sé hvort það
verði gert með auknum niðurgreiðsl-
um eða lækkun á sköttum. Þá verði
boðin lækkun vaxta og verðlagseftir-
Ut sem ígildi launahækkana.
að lána þeim eigendum fyrirtækja
sem hafnað er af Atvinnutryggingar-
sjóði svo þeir geti bætt stöðu sinna
fyrirtækja. Hlutafíársjóður fær í sinn
hlut það sem af gengur af þeim íjár-
munum sem Atvinnutryggingarsjóði
voru ætlaðir en líkur benda til að sá
sjóður komi þeim ekki út. Þá er í til-
lögunum gert ráð fyrir að hinn nýi
sjóður fái alla þá fjármuni sem við-
skiptabankamir greiddu Seðlabank-
anum í refsivexti á síðasta ári. Sú
fjárhæö mun skipta tugum ef ekki
hundruðum milljóna.
Þá viR Steingrímur að skuldir
skreiðarframleiðenda við Seðla-
banka frá 1984 og 1985 verði frystar.
Verndartollar á inn-
flutning frá
láglaunasvæðum
Til stuðnings iðnaðinum vill Stein-
grímur takmarka innflutning frá lág-
launasvæðum og þeim löndum þar
sem tilkostnaðaur er lítill. Hann vill
einnig hækka jöfnunargjald á þær
vörur sem njóta ríkisstyrkja í heima-
landinu eða ef mn er að ræða undir-
boð einhvers konar. Þá viU hann
endurskoða vörugjaldið þannig að í
framkvæmd verði þaö hagstætt ís-
lenskum iðnaði. Að lokum vill Stein-
grímur tryggja iðnaðinum sambæri-
leg bankaviðskipti og sjávarútvegur-
inn nýtur.
Ivilnanir til þeirra
sem lána í sjávarútveginn
Tillögur Steingríms í peningamál-
um er róttækar. Hann vill kýla vext-
ina niður í 4 til 5 prósent með því að
afiiema fijálsa vexti og heimila Seðla-
bankanum að ákvarða hámarksvexti.
Sama gildir umvaxtamun. Sett verði
ströng refsiákvæði ef þessi ákvæði
Seðlabanka eru brotin.
Til þess að draga úr háum tilboðum
fjármagnsfyrirtækja í innlánsfé
verði Seðlabankanum heimilt að
hækka bindiskyldu hjá þeim sem
bjóða óeðlilega háa imilánsvexti.
Lágmarkstími innlána sem beri
verðtryggð kjör verði lengdur í eitt
ár. Sams konar lágmark verði fjögur
ár varöandi útlán.
Til styrktar sjávarútvegi og iðnaði
verði þeim bönkum sem lána til þess-
ara atvinnugreina gert það auðveld-
ara með sveigjanlegri bindiskyldu og
annarri aðstoð Seðlabanka. Hætt
verði að taka refsivexti af bönkunum
og reglum um lausafjárstööu, sem
hafa verið óhagstæðar Landsbanka
íslands, verði breytt.
Auk þess gera tíllögur Steingríms
ráð fyrir að reglur um erlendar lán-
tökur verði hertar. Þá leggur hann
og til að Útvegsbankinn verði lagður
niður eða honum skipt á milii ríkis-
bankanna. .gse
Áframhaldandi
verðlagseftirlit
Steingrímur vill áframhaldandi
verðlagseftírht eftir 15. febrúar þegar
núgildandi verðstöðvun rennur úr
gildi.
í tihögunum er gert ráð fyrir að
verðlag hækki ekki umfram hækk-
anir erlendis og hlut innlendra
launahækkana. Þetta eru sömu regl-
ur og farið er eftír í núgildandi verð-
stöðvun. Sömu reglur eiga að gilda
um opinberar gjaldskrár.
Hækkanir á gjaldskrám Lands-
virkjunar og stofnana sveitarfélag-
anna verði einnig haldið innan þess-
ara marka og verði í framtíðinni
háðar ákvörðun stjómvalda.
Seðlabankinn leggi til
stofnfé í hlutafjársjóð
Til stuðnings sjávarútvegi gerir
Steingrímur ráð fyrir að tillögur
sjávarútvegsráðherra um úrelding-
arsjóð, aflamiðlun, hagræðingu og
gæðaátak nái fram að ganga.
Auk þess vill Steingrímur að skuld-
breytingu Atvinnutryggingarsjóðs
verði hraðað og hlutafjársjóði verði
komið á laggimar. Honum er ætlað
Stefán Skarphéðinsson
Óska eftir
setudómara
„Maðurinn situr í sýslunefnd og ég
er formaður nefndarinnar. Ég mun
óska eftir að setudómari verði skip-
aður til að fara með þetta mál,“ sagði
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður
í Barðastrandarsýslu. Stefán hefur
birt fyrrverandi sparisjóðsstjóra
ákæm vegna meints íjárdráttar af
innstæðum í Sparisjóði Rauðasands-
hrepps.
Eins og kunnugt er hefur Spari-
sjóður Rauðasandshrepps verið sam-
einaður Eyrarsparisjóði á Patreks-
firði. Stefán Skarphéðinsson er for-
maður sfjómar Eyrarsparisjóðs.
Stjórnarþátttaka Stefáns í Eyrar-
sparisjóði ræður engu um ákvörðun
hans að fara ekki með máhö sjálfur.
Samkvæmt heimildum DV átti
sveitarsjóður Rauðasandshrepps
eina af þeim bókum sem peningar
vom teknir af í heimildarleysi og
eins átti Saurbæjarkirkja eina af
bókunum. Orkureikningar Saurbæj-
arkirkju áttu að greiðast af bókinni.
Það var ekki gert og því hlóðust upp
vanskil og um tíma hótaði Orkubú
Vestfjarða að loka fyrir orku til Saur-
bæjarkirkju. Það var komið í veg
fyiír að til lokunar kæmi. -sme
Sterkur leikur í viðskiptum
Það er sterkur leikur, í viðskiptaferðum, að fljúga á Gullfarrými
Arnarflugs. Fyrir utan margvísleg þægindi svo sem akstur til
Leifstöðvar, sérstaka innritun og setustofur á flugvöllum, er miðinn
"opinn" þannig að þú getur fyrirvaralaust breytt ferðaáætluninni
eftir því sem þér hentar. Þú getur því sparað bæði tíma og kostnað
erlendis. P.s. þú fœrð sérhannaðan taflmann í hvert skipti sem þú flýgur á
GuUfarrými. Og þegar þú ert komin með 32 fœrðu tilheyrandi taflborð.
ARNARFLUG HF.
- Amsterdam sjö sinnum í viku
Söluskrifstofa Amarflugs og KLM Austurstræti 22, sími 623060. Söluskrifstofa Amarflugs Lágmúla 7, sími 84477.