Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
Utiönd
Krefjast lausnar andófsmanns
Sjö hundruö leiðandi menntamenn í Tékkóslóvakíu hafa ritaö nafn sitt
á skjal þar sem fariö er fram á það við yflrvöld að þau láti lausan andófs-
manninn og rithöfundinn Vaclav Havel. Skjahð var sent yfirvöldum á
fimmtudaginn.
Flóttamenn í Vín greindu fréttamönnum Reuterfréttastofunnar frá inni-
haldi skjalsins. Sögðu þeir að fleiri undirskriftir streymdu hvaðanæva
ur Tékkóslóvakíu.
Spánski prinsinn Aifonso de Bour-
bon ásamt konu sinni.
Simamynd Reuter
de Bourbon, spánskur
prins, lést í gær í Vail i Colorado
eftir aö hafa rekist á lyftustreng.
Lenti prinsinn meö hálsinn á
strengnum. Slysið átti sér stað rétt
þar þjá sem heimsbikarkeppnin á
skíöum fer fram.
Prinsinn, sem var S2 ára, var
frændi Juan Carlosar Spánarkon-
ungs og barnabarn Alfonso kon-
ungs þrettánda. Prinsinn var mik-
ill skiðamaður og fyrrum forseti
spænska skíðasambandsins.
Fyrir vetrarólympiuleikana í
Sarajevo árið 1984 beið yngsti son-
ur prinsins bana í bílslysi er hann
var á ferð meö föður sínum.
Stipe Suvar, leiðtogi Kommúnistaflokks Júgóslaviu, t.h., og erkifjandi hans, Slobodan Milosevic, leiðtogi flokksins
í Serbíu, t.v., á allsherjarfundinum í Belgrad í gær. Símamynd Reuter
Margir þeirra sem skrifuöu undir eru meðlimir i kommúnistaflokknum.
Lýstu þeir fréttum yflrvalda af handtöku Havels sem móðgandi og ósönn-
um. Havel er mikils metinn leikritahöfundur í Tékkóslóvakíu en verk
hans hafa veriö bönnuð frá 1968. Hann var handtekinn í mótmælagöngu
16,janúar. Hann getur átt von á allt að tveggja ára fangelsi.
norai Tynr ren
Oiiver North, fyrrum ráðgjafi Reagans.
Simamynd Reuter
Réttarhöldin yfir Oliver North, fyrrum ráðgjafa Reagans, heijast í dag.
North aðstoðaði við að fjármagna hemað kontraskæruhða í Nicaragua
með vopnasölu til írans.
Dóraari í vopnasölumálinu úrskurðaði í gær að svo gæti farið að Reag-
an, fyrrum Bandaríkjaforseti, yrði kallaður fyrir rétt sem vitni. Dómarinn
úrskurðaöi jafnframt að Bush yrði ekki kallaður iyrir þar sem North
Játar mútuþægni
Kenzaburo Hara, forseti neðri
deildar japanska þingsins, játaði i
gær aö hafa tekið á móti framlögum
frá fyrirtæki því sem viðriðið er
flármálahneyksli í Japan. Hann
kvaðst hins vegar hafa skUað Öllum
peningunum, 145 þúsund dollur-
um, fýrr í þessum mánuði þegar
hann frétti að íýrirtækið væri við-
riöiö flármálamisferh. Hara kvaöst
ekki hafia verið beðinn um greiða
eftir að hafa tekiö við fénu. Hara
fékk greiðslumar á árunum 1983
Öl 1988.
Þrír ráöherrar hafa sagt af sér
vegna aöildar að málinu sem er
eitt raesta stjómmáláhneyksli frá
seinni heimsstyrjöldinni.
Forseti neðri deildar japanska
þingsins, Kenzaburo Hara.
Símamynd Reuter
Pólskur prestur fannst í gær látinn í ibúð sinni í borginni Bialystok.
Þótti sýnt aö hann hefði kafnað er eldur kom upp í íhúð hans. Presturinn
var einiægur stuðningsraaður Samstöðu.
Fyrir aöeins ellefú dögum fannst annar prestur dáinn á heímíli sínu.
Emhættismenn kirkjurmar halda því fram aö hann hafl veríð myrtur.
Herinn hótar
að taka völdin
Júgóslavneski herinn varaði við
því í gær að hann væri tilbúinn að
blanda sér í pólitíska valdabaráttu
sem nú hefur gengið svo langt að
landið er jafnvel á barmi borgara-
styrjaldar.
Petar Simic aðmíráll, sem er full-
trúi heraflans í stjómmálaráði
Kommúnistaflokks landsins og sá
herforingi sem hefur mest pólitísk
völd, sagði á allsherjarfundi flokks-
ins í gær að herinn myndi ekki
standa hjá aðgerðalaus á meöan
„mglingslegir stormar ýttu Júgó-
slavíu út í ófarir".
Fyrr um daginn hafði Stipe Suvar,
leiötogi Kommúnistaflokksins, spurt
fundinn: „Stendur okkur ógn af því,
nú þegar við erum á þröskuldi 21.
aldarinnar, að veröa borgarastyrjöld
að bráð?“
Fundurinn, sem var kallaöur sam-
an til aö eiga viö verstu efnahagsleg
og pólitísk vandræöi sem landiö hef-
ur lent í frá því að kommúnistar
komust til valda fyrir flömtíu og flór-
um árum, sýndi engin merki þess að
hægt væri aö brúa skoðanabilið milli
leiðtoga flokksins.
Margir notuðu orðin „Orrustan um
Júgóslavíu“ í gær en vora ósammála
um hvernig og viö hvern skyldi heyja
hana.
„Ef einhver hefur lýst yfir orrustu
um Júgóslavíu fer hún ekki fram án
júgóslavneska hersins,“ sagði Simic
aðmíráll á fundinum sem búist er við
aö standi í tvo daga hiö minnsta.
Stjórnmálafræðingar segja að aö-
vöran Simics sé sú sterkasta sem
heyrst hefur frá því Tító, fyrram leið-
togi flokksins, lést árið 1980.
Júgóslavía skuldar ellefu hundruö
milljarða íslenskra króna erlendis
og verðbólga í landinu er 250 pró-
sent. Lífskjör virðast vera aö hrynja
í landinu, á síðasta ári uröu 1700
verkfóll í landinu auk þess sem sam-
band milli landshluta stirðnaöi mjög.
Síðustu átökin uröu milli Stipe
Suvar flokksleiðtoga og hins vinsæla
flokksleiðtoga í Serbíu, Slobodans
Milosevics, sem fólk í ýmsum hlutum
landsins óttast aö kunni að ná mest-
um völdum í landinu.
Slóvanskir og króatískir leiðtogar
réöust á Milosevic fyrir að standa
fyrir götuóeirðum eftir aö flöldamót-
mæli urðu til þess að leiðtogar í
Svartflallalandi og víðar, sem and-
snúnir vora Milosevic, þurftu að
segja af sér.
Suvar, sem er Króati, sagði að lög-
legar stofnanir myndu ekki láta
stjórnast af fólkinu á götunni. Nýir
leiötogar í Svartfjallalandi og víöar,
einnig í Serbíu, kröfðust afsagnar
hans.
Milosevic segir að þær hremming-
ar sem landið er í núna séu til komn-
ar vegna þess aö leiðtogar haldi
dauðahaldi í völd sín og hann varði
rétt fólksins til að grípa til sinna ráöa
þegar löglegar stofnanir brygðust
því. Hann segir að sumir stjóm-
málamenn í landinu hafi kallað fólk-
iö skríl.
„Það virðist fáránlegt að nokkur
skuli láta slíkt út úr sér í landi þar
sem fólkið á að stjórna, samkvæmt
stjórnarskránni," sagði hann.
Reuter
Gagnrýna kaupin
á eignum SIÍC
Þingmaðurinn og formaður Atass-
utflokksins á Grænlandi, Otto Sten-
holdt, hefur neitað því að í gangi sé
undirskriftasöfnun til þess að fá
hann til að láta af formennsku. Það
vora frammámenn í flokknum sem
tilkynntu um undirskriftasöfnunina
um helgina.
Nokkrir flokksmeðlimir áttu að
hafa verið óánægðir með að Sten-
holdt skyldi í útvarpsviðtali verja þá
ákvörðun landssflórnarinnar að
bjarga launþegasamtökunum SIK frá
gjaldþroti með því að kaupa eignir
þeirra fyrir 22 milljónir danskra
króna. Landssflómin borgar tvo
þriðju hluta og Grænlandsbanki af-
ganginn. Stenholdt hélt því fram að
um góð kaup hefði verið að ræða
þrátt fyrir að aðrir hefðu lýst því
yfir að eignimar væra ekki mikils
virði.
Meirihluti fékkst fyrir kaupunum
1 sflómarflokknum Siumut og Atass-
utflokknum sem styður ríkissflóm-
ina. Sflómarandstöðuflokkurinn
Inuit Ataqatigiit greiddi atkvæði
gegn kaupunum sem hann kallar
óbeinan stuðning við Grænlands-
bankann. Inuit Ataqatigiit heldur því
fram að eignimar séu aðeins tólf
milljóna króna virði. Einnig er óttast
að SIK verði nú háð landssflóminni
sem er stærsti vinnuveitandi SIK-
meðlimanna.
Menntamálaráðherra, Jens Ly-
berth, og fyrram formaður SIK lét
af embætti innan sflómarinnar á
laugardaginn. Það var Atassutflokk-
urinn sem hafði krafist að Lyberth
léti af störfum á meðan rannsókn á
málefnum SIK fer fram.
Formaður bankaráðs Verslunar-
bankans, Egon Jensen, sagði í gær í
viðtali við grænlenska útvarpið að
Grænlandsbankinn heíði lánað SIK
20 milljónir króna gegn veðbréfúm
upp á 23 milijónir í eignum sem ekki
var hægt að selja. Landssflómin
hefði ekki ábyrgst lánið. Á laugar-
daginn sagði Jensen að landssflórnin
hefði ábyrgst lánið. Hann segir nú
að SIK hafi fengið peningana án
nokkurrar skriflegrar tryggingar og
að sflórn SIK hafi fullvissað bankann
um að landssflómin hafi staðið á bak
við fjárfestingar samtakanna í at-
vinnuleysisskrifstofum.
Bankasflóri Grænlandsbankans,
Svend-Erik Danielsen, sagði í gær að
bankinn hefði heimilað lánið vegna
þess að landsþingið heíði ákveðið að
koma ætti á fót skrifstofunum sem
SIK átti að stjóma. Tekin var ákvörð-
un um það 1986 en engin lög voru
sett. Fjárveiting til tryggingar kostn-
aði við bygginguna var heldur ekki
veitt. Samt sem áður halda menn í
Grænlandsbankanum því fram að
landssflórnin beri einnig ábyrgð á
skuld SIK sem nemur um 34 milljón-
um danskra króna. Bankinn hefur
farið fram á að sflórnin borgi 24 milij-
ónir af skuldinni.
Ritzau