Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
9
Utiönd
Frelsi gísla í sjónmáli
Sýrlendingar og Iranar segja að
friðarsamningurinn milli hinna
stríðandi fylkinga shíta í Líbanon
kunni að leiða til þess að árangur
náist í tilraunum til að fá lausa
erlenda gísla í landinu.
Það voru utanríkisráðherrar
landanna sem létu í ljósi vonir um
þetta er þeir voru viðstaddir athöfn
Líbanskur hermaður stendur við flak af bíl sem eyðilagðist í sprengingu sem varð í austurhluta Beirút í gær.
Að minnsta kosti tveir biðu bana í sprengingunni og sautján særðust. Litlu munaði að einn af leiðtogum
kristinna manna í borginni biði bana er bílalest hans ók fram hjá þegar sprengjan sprakk. Simamynd Reuter
í gær þar sem skrifað var undir
friðarsamning milli amalshíta, sem
Sýrlendingar styðja, og hizbolla-
shíta, sem íranar styðja.
„Hvert jákvætt skref sem þetta
mun hjálpa til við að frelsa gísl-
ana,“ sagði Farouq Al-Shara, utan-
ríkisráðherra Sýrlands, um vest-
rænu gíslana sautján sem talið er
að séu í Líbanon.
„Enginn mun verða ánægður
með að gíslamir verði áfram í haldi
svo að við vonum að allir gíslamir
verði leystir úr haldi, þrátt fyrir
þjóðerni þeirra," sagði Ali Akbar
Velayati, utanríkisráðherra írans.
Hizbollah samtökin hafa margoft
neitað öllum tengslum við gísla-
töku.
Nabih Berry, leiðtogi amalshíta,
sagði að í friðarsamningnum væri
ekki minnst sérstaklega á gíslana,
„en ég er viss um að þetta sam-
komulag mun verða til þess að gísl-
arnir losni eins fljótt og mögulegt
er“.
Amal- og hizbollahshítar hafa
samþykkt að hætta baráttu fyrir
yfirráðum í samfélagi shíta í Líban-
on en í því eru um ein og hálf miUj-
ón manna.
Búist er við að íri og Breti verði
látnir lausir næstu daga og er sér-
stakur sendifulltrúi frá írlandi
kominn til Beirút tU að vinna að
því.
tiHögum
sínum
Vamarmálaráðherra ísraels,
Yitzhak Rabin, reynir nú af öUum
mætti að fá Palestínumenn á sitt
band. Flestir Palestínumenn hafa
haöiaö tiUögum Rabins um kosn-
ingar en leiðandi talsmaður
Frelsissamtaka Palestínumanna,
PLO, á vesturbakkanum hefur
lýsti yfir stuðningi við tUlögu
Rabins, einnig leiðtogi and-
spymuhreyfingar múhameðstrú-
armanna á Gazasvæðinu.
ísraelsmaður myrti í gær einn
mann og særöi annan þegar hann
hóf skothríö á strönd viö Tel
Aviv. Hermaður, er elti byssu-
manninn, skaut vegfaranda óvart
til bana. Lögreglunni tókst að
særa byssumanninn.
Reuter
Varmi
BlLASPRAUTUN / BlLARÉTTINGAR
AUÐBREKKU 14, KÓPAV., SÍMI 44250
Hvalrengí 515,-
Bringukollar 295,-
Hrútspungar 590,-
Lundabaggi 570,-
Sviðasulta, súr 695,-
Sviðasulta, ný 821,-
Pressuð svið 720,-
Svinasulta 379,-
Eistnavefjur 490,-
Hákarl 1590,-
Hangilæri, soðið 1555,-
Soðinn hangiframp 1155,-
Úrb. hangilæri 965,-
Úrb. hangiframp 721,-
Harðfiskur 2194,-
Flatkökur 43,-
Rófustappa 130,-
Sviðakjammar 420,-
Marineruð sild ....45,- flakið
Reykt sild 45,- stk.
Hverabrauð 78,- pk.
Seidd rúgbrauð 41,- pk.
Lifrarpylsa 507,-
Blóðmör 427,-
Blandaður súrmatur i fötu.... 389,-
Smjör, 15g 6,70
15%
AFSLÁTTUR
í
blót
30-500 manns
SÁ NÆSTBESTI
1
I \
Hvert þó
■ “ . nía.n,, baðhengj«m
«mSr"“T,®SS'»'8ei”'4‘“°n“m' jfaSSSSXf.
Enginn sinu ei
RETTARHALSI 2
Kohl varar við öfgum
68 5168.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, hvatti í gær hina hóf-
samari flokka landsins til að beijast
gegn öfgastefnum og sagði að sigrar
vinstri og hægri flokka í ríkisþings-
kosningunum í Vestur-BerUn hefðu
verið viðvörun fyrir lýðræðið.
„Þetta er beiskur ósigur,“ sagði
Kohl á fréttamannafundi daginn eftir
að flokksmenn hans, kristilegir
demókratar, og frjálslyndir demó-
kratar fengu ráðningu. „Þetta er að-
vörun til okkar allra.“
Nýnasistaflokkur, sem kaUar sig
Lýðveldisflokkinn, undir forystu
fyrrverandi foringja úr SS-sveitum
Hitlers, hlaut 7,5 prósent fylgi og
náði ellefu mönnum inn á ríkisþingið
í kosningunum í Vestur-Berlín á
sunnudag. Róttækur vinstri flokkur,
sem berst fyrir því að hersveitir
bandamanna hverfi frá Vestur-Ber-
lín, hlaut 11,9 prósent.
„Það er okkar markmið að tryggja
að kjósendur, sem færast í átt til
öfgastefnu, snúi aftur til hinna lýð-
ræðislegu flokka,“ sagði Kohl eftir
fund í flokki hans þar sem menn
reyndu að leggja mat á niðurlæging-
una.
Kohl varaði við því að orðstír Vest-
ur-Þýskalands í heiminum myndi
skaðast eftir sigur nýnasista, sem
vUja reka innflytjendur úr landi.
Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, fær sér sæti i upphafi fundar í Kristilega demókrataflokknum i gær þar sem
metin var sú staða sem komin er upp eftir afhroð flokksins í ríkisþingskosningunum i Vestur-Berlin. Að baki honum
er Eberhard Diepgen, borgarstjóri Vestur-Berlínar. Simamynd Reuter
Fátt er vestur-þýskum stjómvöld-
um jafnmikUl þymir í augum og end-
urvakning nasismans en hún hefur
verið reglubundin martröð allra rík-
isstjóma í Bonn frá því að Þriðja ríki
Hitlers leið undir lok.
Viðbrögð erlendis voru flest á einn
veg. Menn lýstu áhyggjum sínum
yfir niðurstöðum kosninganna en
sögðust hafa traust á vestur-þýskum
stjórnvöldum til að bregðast við
hættunni.
í gær voru miklar mótmælagöngur
í Vestur-Berlín vegna kosningasig-
urs nýnasista þar daginn áður. í gær
vom liðin fimmtíu og sex ár síðan
nasistar komust til valda í Þýská-
landi. Reuter