Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Page 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
Spumingin
Hvað er uppáhalds-
maturinn þinn?
Júlíana Pálsdóttir flugafgreiðslu-
maður: Þessa stundina eru þaö kútt-
magar sem ég er að útbúa í tilefni
þorrans.
Ragnhildur Elíasdóttir nemi: Það er
kjúklingur steiktur í ofni og svo auð-
vitað ís á eftir.
Kristján Kristjánsson vélaviðgerða-
maður: Það er íslenskur lamba-
hryggur - helst beint af útigrillinu.
Yngvi Ágústsson vélfræðingur: Það
er svo margt t.d. nautakjöt, svína-
kjöt, kjúklingar, lambakjöt, þetta er
allt jafngott.
Bjarni Guðnason, starfsmaður Hag-
kaups: Svínahamborgarhryggur eins
og mamma býr hann til.
Bryndís Baldursdóttir húsmóðir:
Svínakjöt soðiö og brúnað í ofni með
góðri SÓSU. : ,
nif H •II- • í ?• * li ' : > ‘ ;
Lesendur
„Það hefur verið til siðs hér að boða til ráðstefnu um málin," segir í bréfinu.
Spástefnur og ráðstefnur:
Hver er útkoman?
Jóhann Guðmundsson skrifar:
Það hefur lengi verið til siðs hér
að boða til ráðstefnu um málin.
Hvers konar vandamál, sem upp
koma, fá umíjöllun á ráðstefnu og
alltaf eru þetta meira og minna sömu
mennirnir sem eru á ráðstefnum,
fátt um konur, en þær fáu sem mæta
eru þær sömu á þeim öllum - allt frá
fundi um ársskýrslu Seðlabanka til
minni spástefna sem nú skal vikið
lítið eitt að.
Þessar „spástefnur" komu síöar til
sögunnar og sennilega ekki fyrr en
bara á þessum áratug. Nú er einni
slíkri nýlokiö. Á þessum spástefnum
er yfirleitt spáð um annaö tveggja,
bjartsýni eða svartsýni. Á þessari
síðustu var útkoman bjartsýni, alla-
Sigurjón Jónsson skrifar
Mjög hafa orðið fleyg þau orö Guð-
rúnar Helgadóttur, forseta Samein-
aðs Alþingis, að við (þ.e. alþingis-
menn og ráðherrar) „erum engir
venjulegir kontóristar". Því bæri
þeim að fá hærri dagpeninga en öðr-
um auk greiðslu hótelkostnaðar
hverju sinni. - Flestir munu nefni-
lega hafa haldið aö slíkur þanka-
gangur væri úr sögunni.
Þessi viðbrögð Guörúnar minna á
það sem oft hefur sannast að ef svo-
nefndir vinstri menn komast til
mannvirðinga, fer af þeim allur „al-
Egill vill geta borið fram bjór í flösk-
um. - „Bjór er ekki samur eftir að
hann er settur í dósir", segir hér
m.a.
vega meiri bjartsýni en hjá Þjóð-
hagsstofnun, segir í spástefnufrétt
sem gefin hefur verið út.
En til hvers eru þessar ráðstefnur
og spástefnur? Þarna eru að vísu
rædd efnahagsmál og boðiö til um-
ræðnanna, ýmist ráðherrum eöa
yfirmönnum einhverrar spástofnun-
ar úti í bæ en niðurstöður umræðn-
anna leggja sig nú ekki á mikið þegar
upp er staöið því maður verður að
byrja á því að bera saman allar spár
sem í gangi eru í það og það skiptið
og bara veðja svo á einhverja sem
manni þykir líkleg.
Nýjustu spárnar tvær, sem eru í
gangi nú, segja t.d. sitt hvað. Þjóð-
hagsstofnun spáir nú 114% sam-
drætti landsframleiöslu en spástefna
þýðu“-gljái. Ekki eru þeir heldur
minna frekir til fjárins en aðrir,
nema síður sé.
Þessi ummæli Guðrúnar Helga-
dóttur minna og á frásögn Laxness í
Gerplu af orðræðu Núíta og Þormóðs
Kolbrúnarskálds, er hann dvaldist á
Grænlandi. En ástkona Þormóðs
færði honum meira lostæti en öðrum
mönnum var ætlaö. Núitar tóku
þessu ekki vel en Þormóður kvað
slíkt sanngjarnt þar sem hann væri
maður Ólafs konungs í Noregi.
Ekki höfðu Núítar heyrt kóngs
þessa getið, enda spurðu þeir: „Hvort
Egill skrifar:
Nú er ákveðið hvaða erlendar bjór-
tegundir verða seldar í vínbúðum
ÁTVR. Þetta eru Budweiser hinn
ameríski, Tuborg hinn danski og svo
einhver „Kaiser“-bjór, sem á að vera
heimsþekktur í Austurríki. Má vel
vera að hann sé mjög góður, en nafn-
ið er a.m.k. ekki mjög þekkt hér hjá
okkur og erum við þó orðin nokkuö
bjórfróð þjóð eftir að hafa gegnum
tíðina keypt flestar tegundir öls af
farmönnum sem hingað til hafa get-
að selt okkur heimamönnum bjór úr
ýmsum heimshomum.
Það var látið að því liggja að þetta
væri meiriháttar vandi að velja hinar
erlendu bjórtegundir, og allt áttu það
að vera heimsþekktar tegundir. Ég
hefði nú frekar viljað sjá einhverja
aöra tegund sem eina þriggja aðalteg-
unda erlenda en einhvern „Kaiser"
frá Austúrríki, t.d. þýska eða
franska.
Mín skoðun er hins vegar sú, aö
Stjórnunarfélagsins spáir 14% sam-
drætti. - Þjóðhagsstofnun spáir um
4% verðhækkun á útflutningsvörum
okkar en spástefnan spáir 2% verð-
hækkun. - Spástefnan lítur aðeins á
verðbólguna og er meðaltal úr henn-
ar spám 20% hækkun framfærslu-
vísistölu til ársloka en Þjóðhags-
stofnun spáir um 11% hækkún.
Ég með mín umsvif og allir aðrir
sem reka sitt heimili og kannski eitt-
hvað til viðbótar eru bara alveg jafn-
nær eftir að hafa heyrt og lesið um
niðurstöður þessara spekinga sem
hafa það að atvinnu margir hveijir
að sitja ráðstefnur og taka þátt í
umræðum um nánast ekki neitt.
ekur Ólafur þessi hundum betur en
aðrir menn?“
Hjá okkur er að vísu ekki um aö
ræða akstur á ísum eða leikni í þeirri
list, en metnað sinn sýna menn á
ýmsa vegu hér ekki síður en á Græn-
landi forðum.
Um meintar mannvirðingar orti
hinn snjalli hagyrðingur Jón S. Berg-
mann annars ágæta vísu sem hér er
við hæfi að tilfæra í lokin:
Auður, dramb og falleg föt
fyrst af öllu þérist.
Og menn sem hafa mör og kjöt,
meira en almennt gerist.
hinn bandaríski Budweiser verði
langvinsælastur hér á landi, einmitt
vegna þess að hann er léttastur að
áfengismagni og því einfaldlega mjög
góður við þorsta. Ég er einnig mjög
ósáttur við ef allur hinn erlendi bjór
verður á dósum en ekki flöskum.
Trúi varla öðru en eitthvert magn
verði selt á flöskum. Bjór er ekki
samur eftir að hann er settur í dósir,
og eins er leiðinlegt að geta ekki bor-
iö fram bjór með mat t.d. í heimahús-
um, nema í dósum.
Mér finnst að íslenski bjórinn eigi
engan forgang framyfir þann er-
lenda, ef hann verður svona dýr í
innkaupum fyrir ÁTVR eins og sagt
er, allt að helmingi dýrari. - Hvers
vegna skyldi það nú vera? En ég býð
bjórinn velkominn í landiö og vona
að fólkið verði honum ekki tjand-
samlegt því þá er eins víst að hann
gjaldi líku líkt og verði íjandsamleg-
ur þjóðinni.
v í i i1-.' \ % vY ’ /x ~ ’S-íVv í f ■
: ^ t vi' srE C1 í »f r> n .?v i r
Fyrir ógifta karlmenn:
Drög að
reglugerð
Sveitakona skrifar:
Þegar ég las DV þriðjudaginn 17.
jan. sl. rakst ég á bréf á lesendasíðu
frá tveimur skattpíndum piparsvein-
um. Mig undrar svo sannarlega ekki
að þeir séu piparsveinar, eins fulhr
af fordómum og þeir erú í garð
kvenna sem eru einar með börn sín.
Ég tel víst að einstæðir feður fái
sömu barnabætur og mæöurnar.
Eftir skrifum þessara forpokuðu
piparsveina að dæma er svo að sjá
að karlmenn hafi hvergi komið ná-
lægt. Ef þessir furðufuglar vita það
ekki þá þarf tvo til þess aö úr verði
barn, þ.e.a.s. bæði karl og konu, og
hlýtur ábyrgðin að vera beggja, föð-
urins og móðurinnar. Allavega stend
ég í þeirri trú að börnin mín þijú
hafi ekki orðiö til af sjálfu sér og tel
föður þeirra eiga sinn þátt í tilurð
þeirra.
Ég telst ekki til einstæðra mæðra,
þar sem ég er gift, en ef við hjónin
skildum væri ég einstæð og hvem
ætti ég þá að draga til ábyrgðar?
Annars er ég hérna með drög að
reglugerð til að „stemma stigu við“
einstæðum mæðmm.
1. Bönnuð verði lausaganga ógiftra
karlmanna (sbr. bann við lausa-
göngu graðhesta, þarfanauta og
hrúta). Viö verðum víst að treysta
þeim giftu til að halda sig á mott-
unni!
2. Þeim ógiftu verði hleypt til á dans-
húsum landsins daginn eftir út-
borgun barnabóta. Veröi þeim
skaffaðar verjur sem duga meðan
þeir ganga lausir.
3. Verði ógiftum manni það á að gera
konu vanfæra dæmist hann í 16
ára fangelsi.
4. Geri ógiftur maður konu barn
öðru sinni veröi hann vanaður.
í von um góðan árangur.
Tökum öll ábyrgð
Móðir á Akranesi skrifar:
Vegna greinar sem ég las í DV fyr-
ir stuttu vil ég benda þeim karlmönn-
um sem öfunda einstæðar mæður af
barnabótum og barnabótaauka á að
þeir eru aðeins ósköp saklausir og
óupplýstir mömmudrengir.
Fyrir ykkur sakleysingjana vil ég
taka dæmi sem ekki er fjarri lagi að
sé rétt. Einstæð móðir á Akranesi
greiðir að meðaltali á mánuði hverj-
um: í húsaleigu kr. 15 þús. - hita og
rafmagn kr. 4 þús. - síma kr. 2.500 -
dagheimili kr. 4.800 - fyrir dag-
mömmu 18-20 þús. (75% endurgreitt)
- í matarkostnað kr. 22-30 þús. - fata-
kostn. á mán. kr. 3 þús. - afþreyingu
eða skemmtanir u.þ.b. kr. 3 þús. -
eða samtals milli kr. 50 og 55 þúsund.
Meðallaun hjá einstæðri móður
eru: meðlag og mæðralaun kr. 9.541,-
og útborguð laun ca. 35.000.- kr. eða
samtals kr. 44.541. Einstæð móðir á
mjög erfitt með að vinna aukavinnu
vegna þess að vinnutími hennar
markast af þeim tíma sem hún hefur
barniö í gæslu. - Svo, herrar mínir
góðir, ef þið þurfið að kvarta yfir því
að einstæðar mæður hafi það gott
þá er þaö reginmisskilningur.
Þið minntust á að konur ættu að
vera ábyrgari gagnvart kynlífinu og
nota getnaðarvamir. Það er nú þann-
ig með konur að það getur verið
vandkvæðum bundið fyrir þær að
nota slíkar varnir fyrr en eftir að þær
hafa átt sitt fyrsta barn. Hugsið því
ekki aðeins um eigið skinn. Það eruð
þiö sem otið ykkar tota og eigið því
að leggja jafnmikið af mörkum til
getnaðar nýrrar mannveru og við
konur.
Viljið þið hins vegar forðast hann,
kaupið ykkur þá veijur sem ykkur
hæfa og fást alls staðar og notið þær.
Það er ekkert til að skammast sín
fyrir og þið verðið bara ánægöari
eftir á.
Að endingu læt ég fylgja hér með
góð slagorö fyrir alla: Oruggara kyn-
líf, færri einstæðar mæður eða ein-
stæðir feður. Tökum öll ábyrgð á
gjörðum okkar.
Mannvirðingar og „alþýðu“-gljái
Heimsþekktar bjórtegundir á boðstólum:
Hvaða „Kaiser“?