Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Side 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR
Iþróttir
Níu millj-
óna hallinn
;i rekstri
KSÍ hefur
\ eriö tals-
vert til um-
ratðu und
anfariö ns
sýnist sin
hverjum
um þær
leiðir sem fara á til aö mæta hon-
um. DV sagði frá því í síðustu viku
að KSÍ gæti sektað Tottenham
Hotspur um 6,4 milljónir ef Guðni
Bergsson fengist ekki laus í lands-
leik. Það hlýtur aö vera freistandi
tiihugsun, a.m.k. tyrir gjaldkera
KSÍ, að Guðni sitji fastur í London
og komist ekki í svo sem einn
landsleik á árinu.
Listin aðrada
niður leikjum
Móta-
nefnda-
menn HSÍ
eru færir í
þeirri list
aö raða nið-
ur leikjum
l. deildar. 1
fyrra léku
V'alur og
FH hreinan
úrslitaieik í síöustu umferð og í
ár eigast við í þremur síðustu
umferðunum þau þrjú lið sem
reikna mátti meö að yrðu í topp-
baráttunni. Fyrst FH og KR, þá FH
og Valur og loks Valur og KR i
lokaumferðinni, og það er engin
tilviljun eöa töfluröð sem kemur
þessu 1 kring. Kollegamfr hjá
knattspymusambandinu, sem
hafa töfluröðina að leiðarljósi,
gætumikið af þessulært en i fyrra-
sumar óttust sigurstranglegustu
liöin, Fram og Valur, við í fyrstu
umferð og i ár er siöari viöureign
þeirra á dagskrá í 14. umferð af 18.
Sá norski stal senunni
- Furuseth sigraöi í svigi í alpatvíkeppni
Lítt þekktur Norðmaður, Ole
Christian Furuseth, stal senunni í
gær á heimsmeistaramótinu í alpa-
greinum skíðaíþrótta.
Mótið fer nú fram í Vail í Colorado.
Furuseth sigraði í svigþætti alpa-
tvíkeppninnar, fékk tímann 1:36,90
mínútur. Var sigur hans mjög naum-
ur en hann hafði hundraðshluta úr
sekúndu betri tíma en sá sem kom
honum næstur. Það var Jónas Nils-
son frá Svíþjóð en Marc Girardelli
frá Lúxemborg, sem nú virðist í gríð-
arlegu formi, varð þriðji.
Fyrir þetta keppnistímabil hafði
Furuseth aldrei hafnað mjög ofarlega
á heimsbikarmóti. Hann hefur hins
vegar komið rækilega á óvart í vetur
með frábærri framgöngu. í kjölfar
svigsins í gær sagði Furuseth að allt
hefði nú gengið að óskum þrátt fyrir
smávægilega erfiðleika en hann tók
nokkra áhættu í síðari umferðinni.
Svisslendingurinn Pirmin Zur-
briggen, sem margir spá góðu gengi
í Vail, hafnaði í 11. sæti í sviginu í
tvíkeppninni. Nánar er vikið að
gengi hans annars staðar í opnunni.
Röð efstu manna var þannig í svig-
inu:
1. Ole Chr. Furuseth (Nor.)..1:36,89
(50,12/46,77)
2. Jonas Nilsson (Sví.)......1:36,90
(50,08/46,82)
3. Marc Girardelli (Lúx.)....1:37,65
(50,02/47,63)
4. Tetsuya Okabe (Jap.)......1:37,66
(50,00/47,66)
5. Paul Frommelt (Liec.).....1:37,83
(49,96/47,87)
-JÖG
Ésfirðingar sigursælir
- á tveimur göngumótum á Siglufirði
Guðmundur Daviðsson, DV, Siglufirði:
ísfirðingar voru mjög sigursælir á
tveimur mótum í skíðagöngu sem
fram fóru hér á Siglufiröi um helg-
ina. Göngumenn frá ísafiröi sigruðu
í öllum greinum í karlaflokki. Á
föstudag fór fram bikarmót í göngu
og urðu úrslit þessi:
17-19 ára, 10 km (hefðbundin aðferð)
1. Daníel Jakobsson, í....34,41 mín.
2. Sveinn Traustason, Fljótum ...35,45
3. Sölvi Sölvason, S..........36,46
20 ára og eldri,
15 km (hefðbundin aðférð)
1. Einar Ólafsson, í........51,05 min.
2. Sigurgeir Svavarsson, Ó.....51,41
3. Baldur Hermannsson, S.......53,30
Konur, 20 ára og eldri,
5 km (hefðbundin aðferð)
1. Hulda Magnúsdóttir, S. ...21,16 mín.
• Á laugardag fór fram punktamót
SKÍ og var keppt í tveimur flokkum
íkarlaflokki og einum flokki kvenna.
Úrslit urðu þessi:
Karlar, 20 ára og eldri
10 km (frjáls aðferð)
1. Einar Ólafsson, í.......35,52 mín.
2. Sigurgeir Svavarsson, Ó....36,44
3. Baldur Hermannsson, S......40,14
17-19 ára, 7,5 km (frjáls aðferð)
1. Daníel Jakobsson, I.....28,04 mín.
2. Bjami Brynjólfsson, í......28,14
3. Guðmundur Óskarsson, Ó.....28,45
Konur, 16 ára og eldri,
2,5 km (frjáls aðferð)
1. Hulda Magnúsdóttir, S. ...11,05 mín.
Mætir lið Hartlepool
stórveldinu United?
- dregið til 5. umferðar enska bikarsins
Itær Nemeth
í lækninn?
Laszlo
Nemeth,
hinn ung-
verski
þjálfari
landsliðs
ins í körfu-
knattleik,
er foxillur
vegna að-
gerðar sem
gerð var fVrir skömmu á hávöxn-
um, 13 ára pilti í þeim tiigangi að
stöðva vöxt hans. Pilturinn mun
hafa veriö að nálgast tvo metrana
á hæð og í örum vexti. Nemeth
kvaðst á blaöamannafundi fyrir
nokkru myndu ganga hressflega í
skrokk á lækninum sem fram-
kvæmdi aðgerðina ef hann næði
til hans. Þeir væru ekki of margir,
risamir í íslenska körfuboltanum,
og þama hefði kannski verið eyði-
lagður glæstur ferili í bandarísku
atvinnudeildinni.
Bestkaf
þefati lökustu
Meira af
LarfUi Ne-
meth Efiir
sigurinn a
smáþjóða-
mótinu á
Möltu var
Nemeth
spurðurum
stöðu ís-
lensks
körfubolta. Svarið var stutt og lag-
gott: „The best in the bottom line,“
eða „Við erum bestir af þeim lök-
ustu!“ Hann bætti því við að mark-
miö sitt væri að koma íslandi í hóp
miðlungsþjóða Evrópu í íþróttinni
og tækist það væri mikill sigur
unninn.
Umsjón; Víöir Sigurðsson
Hartlepool, sem leikur í 4. deild
ensku knattspymunnar, á mögu-
leika á að fá stórlið Manchester Un-
ited í heimsókn í 5. umferð bikar-
keppninnar þann 18. febrúar. Til þess
þarf félagið þó að sigra 2. deildar lið
Boumemouth í kvöld en liðin skildu
jöfn í 4. umferðinni á laugardag.
Dregið var til 5. umferðarinnar í
gærmorgun og fljótt á litið virðast
Norwich, Wimbledon og Liverpool
eiga greiða leið í 8 liða úrslitin. Drátt-
urinn fór þannig:
Stoke/Bamsley - Plymth/Everton
Norwich - Sheff. Utd/Colchester
Charlton - Swindon/West Ham
Wimbledon - Grimsby/Reading
Hartlepool/Boumem. - Manch. Utd
Hull - Liverpool
Blackbum - Brentford
Watford - Nottingham Forest
Annar hluti Islandsmótsins í inn-
anhússknattspymu fór fram í Laug-
ardalshöllinni um helgina. Á föstu-
dag sigraði Breiðablik í meistara-
flokki kvenna, eins og sagt var frá í
DV í gær, á laugardag var keppt í 4.
deild og á sunnudag í fyrsta skipti í
5. deild.
Það vora lið Aftureldingar úr Mos-
fellsbæ, Kormáks frá Hvammstanga,
Víkings frá Ólafsvík og Snæfells frá
Stykkishólmi sem unnu riðla 4.
Clough lofar frímiðum
Brian Clough, framkvæmdastjóri
Nottingham Forest, hefur heitið því
að komist Forest í úrslitaleikinn á
Wembley fái þeir frímiða sem urðu
fyrir barðinu á honum á dögunum,
þegar hann tók hressilega á móti
áhorfendum sem hlupu inn á heima-
völl liðsins eftir bikarleik við QPR.
Þá sagði Maurice Roworth, forseti
félagsins, að Clough heföi þrívegis
boðist til þess að segja starfi sínu
lausu á síðustu dögum en þeim boð-
um hefði ávaUt verið hafnað. MikiU
fiöldi bréfa heföi streymt til Forest á
síðustu dögum, í 650 þeirra heföi ver-
ið lýst yfir stuðningi við Clough en í
52 heföi framkomu hans verið mót-
mælt.
-VS
deUdar og leika því öU í 3. deUd á
næsta ári. í 5. deildina féllu hins veg-
ar Efling úr S-Þingeyjarsýslu,
StrandaUðin HSS og Geislinn og
Neisti frá Hofsósi. ,
Riðla 5. deUdar unnu síðan Emir
frá Selfossi, Fyrirtak úr Garðabæ,
Stokkseyringar «g Hvatberar af Sel-
fiamamesi og leika þessi Uð í 4. deUd
á næsta ári.
-VS
Enn steinliggja Norðmenn
Norska handknattleikslandsUðið tapaði öðrum leik sínum í röð fyrir Dönum
í gaer, 27-20. Fyrri leiknum lauk 24-20 fyrir Dani. Norðmenn spUa tvo leiki
við íslendinga nú í vikunni, þann fyrri á fimmtudag en þann síðari á föstudag.
Afturelding, Kormákur
Víkingur og Snæfell
- unnu sæti í 3. deildlnni innanhúss
Norðmaðurinn Ole Christian Furuseth kom, sá og sigraöi í svigþætti i alpatvikeppni í gær. Þá hófst heimsmeistaramótið
alpagreinum í Vail í Coiorado. Norðmaðurinn kom mjög á óvart, hafði hundraðshluta úr sekúndu betri tíma en næsti maður.
Símamynd Reut<
Tiedemann kemur
- segir í einni v-þýsku sjónvarpsstöðvanna
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
Fréttastoía 1 einni v-þýsku
sjónvarpsstöðvanna sagði í gær
að Paul Tiedemann, fyrnim þjálf-
ari a-þýska handknattleikslands-
liðsins, mtmdi í framtíðinni þjálfa
ísienska landsUðið.
Sagði fréttastofan að Tiede-
mann yrði þannig fyrsti a-þýski
toppþjálfarinn sem fengi leyfi til
að þjálfa í V-Evrópu.
„Ég hef efasemdir um þessa
frétt því ég tel að Austur-Þjóð-
verjamir svari okkur áður en
þeir sefia fregnina í fiölmiðla,"
sagði Ólafúr Jónsson, ritari
sfiómar HSÍ, í samtali við DV S
gærkvöldi. Var hann þá spurður
um efhi fréttar v-þýska sjón-
varpsins.
„Annars yrði það nfiög merki-
legt ef samkomulag næst í þessu
máU því það er ekki hversdags-
víðburður að maður með þessa
Paul Tiedemann með islenska fánann aö baki
sér. Berst hann undir merkjum hans?
DV-mynd Jón öm
hæfilehta fái tækifæri til að þjáifa
í V-Evrópu. En þetta er ekki frá-
gengið enn. A-Þjóðverjamir eiga
enn eftir að svara tilboði okkar,"
sagði Ólafur.
Þess má geta aö Jón Hjaltalin
Magnússon, formaður HSÍ, er nú
staddur í V-Þýskalandi en hann
fór utan til samninga við ráða-
menn Adidas-verksmiðjanna í
Herzugenaurach. Að sögn eins
heimfidamanna blaðins er sá
möguleiki fyiir hendi að Jón hafi
í leiðinni átt einhverjar viðræður
við fuUtrúa a-þýska handknatt-
leikssambandsins varðandi Paul
Tiedemann og jafhvel komið
landsUðsþjálfaramálinu á veg eða
í höfn.
Þessi fregn fékkst hins vegar
ekki staðfest í gær Ifiá ráðamönn-
um handknattleikssambandsins
íslenska og ekki náöist í sjálfan
formanninn ytra.
-JÖG
17
fþróttir
Viðtal við Ásgeir 1 nýjasta hefti Fussball:
gjúkandi eldfjall
- Ásgeir Sigurvinsson fær enn hól 1 V-Þýskalandi
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi:
í vestur-þýska knattspymutímarit-
inu Fussball, sem kom út þar í landi
í gær, er löng og athyglisverð grein
um Ásgeir Sigurvinsson hjá v-þýska
knattspymustórveldinu Stuttgart.
Fyrirsögn greinarinnar er Heitur
sem eldfiall en þar er ýjað að því að
kraftur Ásgeirs sé þvíUkur að hann
sé sem rjúkandi eldjaU á leikveUin-
um.
í greininni í Fussball er byrjað á
því að rekja feril Ásgeirs sem knatt-
spyrnumanns. Er honum líkt við
gamla vestur-þýska meistara eins og
Wolgang Overath og Gunter Netzer
sem voru sfiörnur í knattspyrnu-
heiminum fyrir nokkrum árum og
fastamenn í vestur-þýska landsUðinu
til margra ára.
Ásgeir hefur alltaf
haldið sig við jörðina
Þó að Ásgeir hafi átt einn mestan
þáttinn í að gera Stuttgart að meist-
urum árið 1984 segir blaðið að hann
hafi alltaf haldið sig við jörðina.
Síðan er rætt um áframhaldandi
feril þessa geðþekka knattspyrnu-
manns en samningur hans við
Stuttgart rennur út nú í sumar. Blað-
ið segir Ásgeir eiga óvenjulegan rétt,
rétt á að framlengja samning sinn tU
ársins 1990. AUt bendir tíl að svo
verði gert.
Víkur Ásgeir fyrir
öðrum útlendingi?
Ein hugmynd hefur skotið upp koU-
inum, því aUt bendir til að Jurgen
KUnsmann yfirgefi Stuttgart eftir
þetta keppnistímabU en hann er lík-
lega á förum tU ítaUu. ViU Arie Ha-
an, þjálfari Uðsins, fyUa skarðið með
toppleikmanni og þá helst erlendum.
Reglur í Vestur-Þýskalandi segja að
aðeins megi leika með tvo útlendinga
hveiju sinni í leik. En með Ásgeiri
hjá Stuttgart leikur Júgóslavinn Kat-
anec sem einnig er einn af burðarás-
um Uðsins.
Ásgeir hefur færri tromp
á hendi en Katanec
Ásgeir þykir hafa færri tromp á
hendi en Katanec vegna hærri aldurs
en svonar hugmyndir fara í taugam-
ar á Ásgeiri því að hann segist vera
í góðri æfingu og sé samt sem áður
ómissandi fyrir Uðið. Einnig hefur
komið fram að Arie Haan hiki ekki
við að skipta Ásgeiri út af þegar
breyta þarf um leikkerfi, sérstaklega
þegar stiUt er upp í vörn. Ásgeir seg-
ist vera lélegur atvinnumaður ef
hann sætti sig ekki viö slíkar að-
ferðir þegar á þurfi að halda.
Blaðið minnist einnig á að íslend-
ingar og Hollendingar hafi oft lent
saman í undanriðlum heimsmeist-
arakeppninnar fyrir nokkrum ámm
og hafi þá Ásgeir og Haan oft leikið
hvor gegn öðmm.
Ásgeir i búningi Stuttgart.
Þarf lengri tíma til
að jafna sig eftir leiki
Ásgeir segist ekki muna sérstaklega
eftir Haan í þeim leikjum. Ennfrem-
ur viöurkennir Ásgeir að atvinnu-
mennskan undanfarin ár sé farin að
segja til sín. Hann þurfi lengri tíma
tU að jafna sig eftir leiki en á ámm
áður.
Fram og Valur í þriðja
klassa á alþjóðamælikvarða
Síðan er Ásgeir spurður hvað taki
við þegar atvinnumennskunni lýkur.
Ásgeir segir að þá sé markmiðið að
snúa aftur heim til íslands og starfa
þar sem þjálfari. í greininni eru
Fram og Valur nefnd sem bestu fé-
lagsUð á íslandi. Þau em talin vera
í þriðja klassa á alþjóðlegum mæU-
kvarða.
í hlutverki áhorfandans
Ásgeir er einnig spurður hvori aUir
draumar hans hafi ræst í atvinnu-
mennskunni. Hann segir svo vera,
þegar hann Uti til baka sé hann stolt-
. ur en þó hefði óneitanléga verið gam-
an ef honum heföi gefist kostur á aö
taka þátt í lokakeppni heimsmeist-
arakeppninnar.
En til þess er ísland enn sem kom-
ið er of Util þjóð og verður að láta
sér nægja að vera í hlutverki áhorf-
andans.
Hefði verið gaman að leika
á Ítalíu eða Spáni
Ásgeir er í lok greinarinnar spurður
hvort hann hafi aidrei langað til að
leika knattspymu á ítaUu eða Spáni.
Ásgeir játar því að eflaust heföi
verið gaman að leika þar knatt-
spyrnu, segist jafnvel hafa misst af
því tækiifæri að leika fyrir augum
aíheimsins.
Ásgeir segir að tilboðin hafi verið
fyrir hendi en hann hafi aldrei verið
neinn farfugl.
Afall hjá Zurbriggen
Óhætt er að segja að Svisslending-
urinn Pirmin Zurbriggen haíi orðið
fyrir gríðarlegu áfaUi í gær á heims-
meistaramótinu í alpakeppni skíða-
íþrótta.
í karlaflokki hófst mótið með svigi
í alpatvíkeppni en þar varð Sviss-
lendingurinn 11. í röðinni og náði sér
aldrei á strik. Nánar er sagt frá þess-
um hluta mótsins annars staðar í
opnunni.
Zurbriggen, sem varð heimsmeist-
ari árið 1985, virtist bjartsýnn og reif-
ur er hann mætti á keppnisstað í
VaU í Colorado á dögunum. Hann
brosti við ljósmyndurum á sama hátt
og landa hans, Vreni Schneider.
Henni er spáð mikUU velgengni í
brekkunum í Colorado en hún vann
svigið í alpatvíkeppni í kvennaflokki.
-JÖG
Að sögn Ingólfs Hannessonar
hjá íþróttadeild Ríkisútvarpsins
er nú ákveðið að stofnunin sýni
beint frá leikjum íslendinga í
mUliriðlum í b-keppninni í hand-
knattleik. Verður það gert svo
fremi sem allt gengur upp hjá is-
lenska liðinu í undanriöU.
_ Ætlað er að sýndir verði leikir
íslendinga gegn V-Þjóðverjum,
Norðmönnum og Svisslending-
um en þessar þjóðir leika i gagn-
stæðum riðli og em líklegastar
til að komast í miUiriðil.
Að sögn Ingólfs hefur sjón-
varpið að auki tryggt sér sýning-
arrétt á úrsUtaleUoium og einnig
leik íslendinga um annað sæti,
fari svo að þeir keppi ekki um
sigur en tryggi sér engu að síöur
rétt tU að leika í a-keppni að nýju.
TU þess þurfa íslendingar aö
leika um eitt af sex efstu sætum
i b-keppninni.
Lcdkir íslendinga í keppninni,
sem fer fram í Frakklandi, verða
milli klukkan 17 og 19 að íslensk-
um tíma. Að sögn Ingólfs er fyrir-
hugað að endursýna leikina aftur
á leikdegi, síðar um kvöldið, á
besta útsendingartíma.
í samtaU við DV sagði Ingólfur
,að öllum leikjum íslendinga í
keppninni yrði lýst beint í Ríkis-
útvarpinu.
JÖG
Heitt
í hamsi
Þótt veður sé rysjótt hér á Fróni á
þorra er því öðruvísi háttað hjá, ,and-
fætlingum" okkar í Ástralíu. Þar er
nú sumar og var hitinn þvílíkur á
ástralska meistaramótinu í tennis,
sem lauk um helgina með sigri Ivan
Lendl og Stefft Graf, að menn gripu
til hvers sem var tíl að verjast ágangi
sólar.
Þessi ástralski kumpáni, Nigel Yat-
es að nafni, var með aUsérstætt höf-
uðfat er hann sópaði keppnisvöllinn
í Melbourne í 40 stiga liita. Hattur
hans kæmi sér án efa vel hér en þó
til að verjast öðru en sóUnni.
-JÖG