Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1989, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989.
27
Fólk í fréttum
Pétur Þorleifsson
Pétur Þorleifsson hefur verið í frétt-
um DV vegna þekkingar á hálendi
íslands. Pétur er fæddur 2. júlí 1933
í Rvík og ólst upp á Mýrum í Sléttu-
hlíð í Skagafirði til 1945 og Keldum
í Sléttuhlíð til 1949 er hann fluttist
til Reykjavíkur. Hann lauk bama-
skólaprófi á Skálá í Sléttuhlíð 1947
og var vinnumaður á Hvammi í
Norðurárdal 1949-1951. Pétur hefur
fgngist við reiðhjólaviðgerðir frá
1951 og vann við reiðahjólaviðgerðir
hjá Óðni í Rvík 1951-1953. Pétur
vann við reiðhjólaviðgerðir í Fálk-
anum 1953-1964 og hefur rekið eigið
verkstæði ásamt öðmm frá 1964.
Hann hefur stundað hálendisferðir
frá 1954 og söng í Karlakór Reykja-
víkur 1972-1985. Pétur hefur verið í
stjórn Jöklarannsóknafélagsins frá
1982 og hefur skrifað greinar í tíma-
ritin Jökul og Áfanga. Pétur kvænt-
ist 26. ágúst 1961 Guðbjörgu Hjálm-
arsdóttur, f. 23. ágúst 1939. Foreldrar
hennar vom Hjálmar Jónsson,
vaktmaður hjá Olís, og kona hans,
Kristín Ingimarsdóttir. Sonur Pét-
urs og Guðbjargar er Hjálmar Pét-
ur, f. 7. mars 1972. Systur Péturs
eru: Anna Laufey, f. 20. ágúst 1932,
d. 25. mars 1977, gift Sigursveini
Jóhannessyni, málara á Seltjamar-
nesi; Hrafnhildur, f. 11. júlí 1935,
sambýlismaður hennar er Höskuld-
ur Magnússon sjómaður, og María,
f. 27. október 1936, gift Hreiðari An-
toni Aðalsteinssyni, verkamanni í
Straumsvík.
Foreldrar Péturs vom Þorleifur
Þorleifsson, d. 1936, verkamaður í
Rvík, og kona hans, Jónína Krist-
jánsdóttir. Þorleifur var sonur Þor-
leifs, kennara í Rvík, Jónssonar, b.
og hreppstjóra á Brimilsvöllum,
Jónssonar, b. í Landbrotum í Kol-
beinsstaðahreppi, Jónssonar. Móðir
Þorleifs Jónssonar var Ingibjörg,
systir Halldóm, ömmu Kristins Ár-
mannssonar rektors. Ingibjörg var
dóttir Jóns, b. og hreppstjóra á
Höskuldsstöðum í Laxárdal, bróður
Margrétar, langömmu Þórðar Kára-
sonar ættfræðings og Helgu, móður
Svavars Gests og langömmu Marðar
Ámasonar, ritstjóra Þjóðviljans.
Jón var sonur Jóns, b. á Höskulds-
stöðum, Þórðarsonar, bróður Þórð-
ar, langafa Kristjáns, afa Friðjóns
Þórðarsonar, fyrrv. ráðherra, og
langafa Svavars Gestssonar ráð-
herra. Annar bróðir Jóns var Berg-
þór, langafi Jóns, föður Jóns, skálds
frá Ljárskógum. Móðir Ingibjargar
var Ingibjörg, systir Þuríðar,
langömu Soffíu, langömmu Einars
Arnar Einarssonar, leikara í Nonna
og Manna. Ingibjörg var dóttir Hall-
dórs, b. á Helguhvammi á Vatns-
nesi, Samsonarsonar, bróður Jónas-
ar, langafa Karls, föður Guðlaugs
Tryggva hagfræðings. Móðir Þor-
leifs var Anna Torfadóttir, þurra-
búðarmanns í Hákonarbæ í Rvík,
Jónssonar og konu hans, Guðríðar
Helgadóttur.
Jónína var dóttir Kristjáns, verka-
manns á Seyðisfirði, Jónssonar, b. í
Víðinesi í Fossárdal, Eiríkssonar,
b. áTeigarhomi, Árnasonar. Móðir
Eiríks var Ingunn Jónsdóttir, b. á
Teigarhomi, Jónssonar og konu
hans, Þóreyjar Antoníusardóttur,
b. á Hamri í Hamarsfirði, Ámason-
ar, ættföður Antoníusarættarinnar.
Móðir Jóns var Katrín Eiríksdóttir,
b. á Geithellum, Jónssonar. Móðir
Eiríks var Steinunn Jónsdóttir,
systir Einars, langafa Guðnýjar,
ömmu Halldórs Laxness. Móðir
Katrínar var Vilborg, systir Anton-
íusar, langafa Vilborgar, ömmu
Gísla lektors og Jóhannesar, for-
manns Neytendasamtakanna, Guð-
mundssona. Vilborg var dóttir Sig-
urðar, b. í Hamarsseli, Antoníus-
sonar, bróður Þóreyjar. Móðir Vil-
borgar var Ingibjörg Erlendsdóttir,
b. á Ásunnarstöðum, Bjamasonar,
ættföður Ásunnarstaðaættarinnar,
langafa Guðrúnar, langömmu Hall-
gríms, föður Geirs seðlabanka-
stjóra. Erlendur var einnig langafi
Eyjólfs, langafa Indíönu, móður Al-
berts Guðmundssonar.
Móðir Jónínu var Hólmfríður
Skaftadóttir, verkamanns á Seyðis-
firði, Sveinssonar, bróður Katrínar,
ömmu Karls Kristjánssonar alþing-
Pétur Þorleifsson.
ismanns, föður Kristjáns skálds.
Móðir Hólmfríðar var Ólöf Bjama-
dóttir, b. í Sandvíkurseli, Hildi-
brandssonar og konu hans, Guð-
finnu Stefánsdóttur, systur Sveins,
langafa Stefaniu, móður Ármanns
Snævarr hæstaréttardómara.
Afmæli
Kristín Guðmundsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir, lækna-
fulltrúi á Sólvangi í Hafnarfirði,
Háahvammi 2, Hafnarfirði, er fertug
í dag. Kristín er fædd í Neskaupstað
en ólst upp í Hafnarfirði. Hún lauk
stúdentsprófi frá öldungadeild
Flensborgarskóla árið 1986 en er nú
formaður Starfsmannafélags Hafn-
arfjarðar. Maður Kristínar er Bjami
Hauksson, f. 3. október 1944, húsa-
smíðameistari. Foreldrar hans eru
Haukur Magnússon, d. í nóvember
1987, og kona hans, Kristín Þorleifs-
dóttir. Kristín á tvær dætur frá fyrra
hjónabandi. Þær eru Hulda Guð-
björg Gunnarsdóttir, f. 1969, starfs-
maður á Kópavogshæli, og Þyri
Gunnarsdóttir, f. 1971, nemandi í
Flensborgarskóla. Börn Kristínar
og Bjarna em Bima Dís, f. 1977, og
Fjóla, f. 1979.
Bræður Kristínar eru Baldur, f.
1938, trésmiður í Ólafsvík, kvæntur
Öldu Vilhjálmsdóttur, forstöðu-
manni Dvalarheimilisins Jaðars í
Ólafsvík, þau eiga fimm böm; Gylfi,
f. 1940, skólastjóri Gmnnskólans í
Njarðvík, kvæntur Guðrúnu Jóns-
dóttur kennara, þau búa í Keflavík
og eiga tvö börn, og Helgi, f. 1943,
formaður MFA, kvæntur Ragnheiði
Benediktsdóttur meinatækni, þau
búa í Reykjavík og eiga tvö böm.
Foreldrar Kristínar vora Guð-
mundur Helgason, f. 6. janúar 1909,
d. 6. júlí 1952, prestur á Staðastað
og síðar á Norðfirði, og kona hans,
Þorvalda Hulda Sveinsdóttir, f. 18.
febrúar 1916, d. 1983. Guðmundur
var sonur Helga, sjómanns í Ásbúð
í Hafnarfirði, Guðmundssonar, sjó-
manns á Hellu í Hafnarfirði, Guð-
mundssonar frá Gufunesi í Mos-
fellssveit. Móöir Helga var Sigríður
Helgadóttir, b. í Hlíð í Garðahverfi.
Móðir Guðmundar Helgasonar var
Guðrún Þórarinsdóttir, b. og smiðs
í Fomaseli á Mýmm, Þórarinsson-
ar.
Þorvalda var dóttir Sveins, skóla-
stjóra í Gerðum í Garði, Halldórs-
sonar, b. í Kjamholtum í Biskups-
tungum, Halldórssonar og konu
hansjngunnar Ámadóttur, b. í
Bartakoti í Selvogi, Gíslasonar.
Móðir Þorvöldu var Guðrún Pálma-
dóttir, b. á Meiri-Bakka í Skálavík,
Bjamasoijar og konu hans, Kristín-
ar Friðbertsdóttur, b. í Vatnadal,
Guðmundssonar.
Kristín Guðmundsdóttir.
SMÁAUGLÝSINGAR
Til
hamingju
með
daginn
60 ára_______
Kristján Árnason,
Skólagerði 57, Kópavogi.
40 ára
Einar Þorvaldsson,
Marbakka 14, Neskaupstað.
Þóranna Guðmundsdóttir,
Mýrarholti 5, Ólafsvík.
Sigrún Kristjánsdóttír,
Bakkahlíö 4, Akureyri,
Elin H. Jónsdóttir,
Unnarstig 4, Flateyri.
Kristófer Þorgrímsson,
Faxabraut 53, Keflavik.
Fred Schalk,
Flúðaseli 40, Reykjavík.
Þuríður Jónsdóttir,
Neðstaleiti 16, Reykjavík.