Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1989, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1988. 9 Utlönd Skæruliðar hvattir til að sameinast íran og Pakistan munu reyna að fá afganska skæruliða til að samþykkja bráðaþirgðastjóm áður en síðasti sovésld hermaðurinn fer frá Afgan- istan. Utanríkisráðherra írans, Ali Akbar Velayati, tilkynnti þetta í morgun við komuna til Pakistan. Þar ætlar Velayati að ræða við pa- kistanska ráðamenn, þar á meðal Benazir Bhutto, sem er fyrsta konan sem gegnir forsætisráðherraembætti meðal múhameðstrúarmanna. Um- ræðuefnið verður deilurnar milli leiðtoga afganskra skæruhða í Pa- kistan og íran. Afganskir skæruhðar í íran eru óánægðir með þann sæta- fjölda sem þeim var boðið á ráðgjaf- arþingi og hótuðu að mæta ekki ef þeir fengju ekki fleiri sæti. Vegna deilnanna hefur ráðgjafarþingi þess- ara aðila verið frestað. Þingið, sem koma á saman 10. febrúar, átti að Qalla um samþykki bráðabirgða- stjómar áður en síðustu sovésku hermennirnir fara heim. Vestrænir stjórnarerindrekar í Pa- kistan sögðu í gær að verið gæti að síðustu sovésku hersveitimar gætu verið famar heim innan viku en Sovéskur hermaður gætir hveitipoka sem fluttir hafa verið til Kabúl. Þar hefur ríkt mikill skortur á matvælum. Símamynd Reuter Bandarískir sjóliðar með bandaríska fánann sem nú blaktir ekki lengur í Kabúl. Sendiráði Bandaríkjanna þar hefur verið lokað. Símamynd Reuter miðað hafði verið við 15. fehrúar. Upplýsingar þessar höfðu stjórnar- erindrekarnir eftir sovéskum emb- ættismönnum sem sögðu að síðustu hermennimir myndu fara frá Kabúl 2. til 6. febrúar. Yfirmaður sovésku hersveitanna í Afganistan sakaði í gær afganska skæruhða um að hafa feht fjölda óbreyttra borgara nálægt Salang- þjóðveginum, sem er eina aðaheiðin sem enn er opin til Kabúl. Bandarísk- ir hemaðarsérfræðingar hafa sagt að sovésku hersveitimar geti búist við hörðum átökum við skæruhða á leiðinni frá Kabúl. Starfsmenn bandaríska vamarmálaráðuneytis- ins segja að svo virðist sem flestir skæruhðar haldi loforð sitt um að hætta árásum á flutningalestamar sem halda norður frá Kabúl. Hins vegar gæti það breyst þegar þeir þijátíu þúsund hermenn sem eför em halda á brott. Ehefu bandarískir sendiráðsstarfs- menn héldu frá Kabúl í gær til Nýju Delhi. Bandaríska sendiráðinu í Kab- úl var lokað á mánudaginn af örygg- isástæðum en vegna óveðurs gátu sendiráðsstarfsmennir ekki flogið úr landi fyrr en í gær. Reuter Gífurlegir kuldar í Kanada ÁgÚ3t Hjörtur, DV, Ottawa; Versta kulda- og óveðurskast í meira en hundrað ár gengur nú yfir Albertafylki. Rúmlega þrjátíu gráða frost og stórhríð hefur stöðv- að nær allar samgöngur S fylkinu og mestöll atvinnustarfsemi hefur legið niðri síðustu tvo dagana. Hef- ur veðrið valdið að minnsta kosti fjórum dauðsfóhum nu þegar. Þá hefur veriö mikið um kal á höndum og í andhti á fólki sem ekki hefur áttaö sig á því aö þegar tillit er tek- ið th vindhraða svarar frostiö til rúmlega sextíu gráða. Ekki er búist við að rofi th í fylk- inu fyrr en eftir einn th tvo daga þegar óveðrið færir sig austur á bóginn. Jafnframt er búist við að dragi úr veörinu og kuldanum. Upptök stormsins og kuldans voru í Alaska þar sem grimmdar- frost hefur rikt aö undanfórnu. Síð- asthðinn sunnudag brotlenti Her- kúles flugvél frá kanadíska flug- hemum við lendingu í Fairbanks í Alaska ogfórast átta hermenn. Tíu slösuöust. Er slæmu skyggni og yfir fimmtíu gráða frosti kennt um flugslysið. Flugræningi handtekinn Nicaraguabúi var handtekinn í Costa Rica í gær eftir að hafa rænt kólumbískri þotu með hundrað og sextán farþega og sex áhafnarmeð- limi. Flugræninginn krafðist þess að flogið yrði með hann til Miami þar sem hann ætlaði að ganga th hðs við kontraskæruhða. Embætt- ismenn í Costa Rica sögðu að flug- ræninginn, sem er 24 ára, heföi verið handtekinn stuttu eftir að flugvélinni, sem var af gerðinni Boeing 727, hefði verið lent á flug- vellinum í San José. Að sögn flugmannsins stökk flug- ræninginn upp og hrópaði að hann ætlaði að ræna flugvéhnni stuttu eftir að hún hóf sig til flugs frá eynni San Andres í Karíbahafi. Samkvæmt áætlun átti vélin að fara til borgarinnar Medehin í Kól- umbíu. Flugræninginn var með flösku með bensíni í og bleytti hann einn farþeganna. Hótaði hann að kveikja í flugvéhnni.. Fjórir farþegar, sem handteknir vora fyrir meinta aöstoö við flug- ræningjann, voru látnir lausir eftir yfirheyrslu. Þeir munu ekki verða ákærðir. Flugræninginn hafði dvahð á San Andres en vegabréfsáritun hans var að fara úr ghdi. Flugræninginn verður leiddur fyrir rétt í Costa Rica. Reuter Lögreglumenn i Costa Rica umkringja þotuna sem rænt var á flugi yfir Karíbahafi í gær. Simamynd Reuter MEGRUNARKÚRINN ^ölt>retíttf3eóu^al 14 ljúfengar bragötegundir Fæst í apótekum og helstu heilsubúðum um land allt HÖLL HF., heildv. Kolgerði 21, 600 Akureyri Sími 96-26611 I Hrútspungar 590,- Lundabaggi 570,- Sviðasulta, súr 695,- Sviðasulta, ný 821,- Pressuð svið 720,- Svinasulta 379,- * Eistnavefjur 490,- é Hákarl Hanqilæri, soðið 1590,- 1555 - Soðinn hangitramp 1155,- Úrb. hanqilæri 965,- Urb. hangiframp 721,- i Harðfiskur 2194,- w Flatkökur Rófustappa 43,- 1 130,- 47fl- Marineruð sild Reykt síld ....45,- flakið 45,- stk. Hverabrauð........................78,- pk. Seidd rúgbrauð....................41,- pk. Lifrarpylsa......................... 507,- Blóðmör..............................427,- Blandaður súrmatur í fötu............389,- Smjör, 15g.............................6,70 I I Kjöfcsfcöðilí Glæsibæ 0 68 5168. ■ 15% AFSLÁTTUR í blót 30-500 manns SÁ NÆSTBESTI I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.