Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989. Utlönd Boeing 757 naudlendir Boeing 757 þota breska flugfélagsins British Airways, með fjörutiu far- þega innanborös, nauðlenti meö einn hreyfil í gangi á Heathrow flugvelli í London í gær. Aövörunarljós hatði komið í mælaborö vélarinnar um að eldur væri laus í öörum hreyfii vélarinnar. Flugstjórinn slökkti á öðrum hreyfli vélarinnar er vélin var á leið frá Brussel til London. Vélin lenti örugglega ogflugvirkjar fundu engin merki um bilun í hreyflinum. Talsmaður British Airways sagöi aö ekki væri vitað hvers vegna aðvö- runarljós heföi kviknað. ' Taliö er hugsanlegt að fiækjur í virum hafl leitt til þess að rangt viðvör- unarljós kviknaði í Boeing 737 þotu sem hrapaöi í Englandi í síðasta mánuöi með þeim afleiðingum aö fjörutíu og fimm manns létust. Maniey svarinn í embætti Michael Manley brosir er hann hlýðír á rfkisstjórann, Sir Florizel Glas- spole, lesa honum embaettiseióinn í Kingston á Jamaíka í gær. Simamynd Reuter Michael Manley, sem á áttunda áratugnum reyndi sem forsætisráö- herra aö ganga af kapítalismanum dauðum á Jamaíka, sór í gær embætt- iseið sem forsætisráöherra. Aö þessu sinni segist hann ætla að styðja frjálst framtak. Manley, sem er hagfræðingur, menntaður í Bretlandi, gerði Bandaríkj- unum gramt 1 geöi í fyrri stjórnartíð sinni meö því að styðja mjög Kúbu og sósialisma. Að þessu sinni segist hann vilja mynda náin tengsl viö stjórn Bush í Bandaríkjunum. Nýi forsætisráðherrann varaði við því að ef til vill þyrfti að gripa til harðra aðgerða í efnahagsmálum en að undanfómu hefur veriö upp- sveifla í efnahag Jamaíka eftir átta ára kreppu undir stjórn Manleys þar á undan. Upp á síökastið hefur margt bent til þess að efnahagsvandi sé framundan og segist Manley ætla að taka á honum af hörku. Flokkur Manleys fékk fjörutíu og fimm þingsæti af sextíu alls. Árás á argentínska herstöd Byssumenn gerðu í gær árás á argentínska herstöð í þriðja skiptið á innan við mánuði. Æðstu menn hersins vora á staðnum til að meta hvort árásin í gær væri merki um að vinstri sinnaöir skæruliðar væra aftur komnir á kreik. Talsmaöur vamarmálaráöuneytisins sagöi að fimm til sjö menn hefðu ráðist á vopnabúr hersins í Rio Cuarto, sem er sjö hundruð og fimmtán kílómetra vestan við Buenos Aires, skömmu fyrir dögun. Hermenn svör ■ uöu skothriöinni og særðist einn hermaður. Talsmaöurinn sagði að mennimir hefðu flúiö áöur en hægt var aö bera kennsl á þá. Talsmaður hersins hafði fyrr um daginn sagt aö sennilega hefði verið um vinstri sinnaða skæruliða aö ræða. Sovéskur hermaður veifar áður en hann lokar dyrunum á sovéskri flutningavél sem flutti hann heim frá Kabúl. Nú eru nær engir Sovétmenn eftir í Kabúl. Símamynd Reuter Skæruliðahóp- ar deila hart Ekki virtist í morgun vera lausn í sjónmáh í deilum sem hafa komið í veg fyrir að ráðgjafarþing afganskra skæruliöa geti komið saman. Þingiö átti aö koma saman í dag. „Við erum ekkert nær samkomu- lagi en áður,“ sagði Mohammad Kar- im Khalili, leiötogi átta hópa skæru- hða, sem hafa höfuðstöðvar í Teher- an. Deilurnar snúast sérstaklega um þaö hversu mörgum þingsætum eigi að úthluta þeim. Þingið, eöa Shura, var kallað sam- an til aö samþykkja bráðabirgða- stjórn fyrir Afganistan. Mujahedin skæruliöamir og stuðningsmenn þeirra vonuðu að slík stjórn myndi flýta fyrir friöi eftir að sovéskar her- sveitir hafa með öllu dregið sig út úr landinu, en á morgun yfirgefur síðasti sovéski hermaðurinn Afgan- istan. Ýmislegt benti í morgun til þess að enn þyrfti að fresta því að láta þingið koma saman. Það átti að hefjast 10. febrúar eftir að því hafði verið frest- að vegna deilna milli hófsamra og öfgatrúarmanna, í Pakistan, um það hvað ætti að láta hópana, sem hafa höfuðstöðvar í íran, fá mörg sæti á Shura. Taliö er að ef skæruliðahóparnir geta komiö saman og valið sér bráða- birgðastjóm muni það styrkja þá mjög sem afl sem geti gengið til samninga við Sovétmenn. Einnig er talið að sameiginleg stjórn skæruliða muni styrkja þá mjög í baráttunni gegn stjórn Najibullah forseta, sem standur mjög ótraustum fótum eftir brottför Sovétmanna. Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, vísaði í gær á bug fregn- um um að pakistanskir hermenn væru í Afganistan og berðust við hlið skæruhða ,gegn Najibuhah. Sagði hún að Pakistan heföi engan áhuga á aö blanda sér inn í Afganistan máliö. Stjórnin í Kabúl lýsti því yfir í morgun að hún hefði undanfarna daga staðið í sammngaviðræðum viö nokkra foringja úr hópi skæruliða. Ekki gáfu talsmenn stjómarinnar upp nein nöfn. Reuter Söngvar Satans valda blóðsútheliingum Pakistanar kveikja í dekkjum á vegi í Rawaipindi í gær. I gær var efnt til allsherjarverkfalfs i borgínni í mótmælaskyni við dráp lögreglu á fimm manns fyrir utan Menningarstofnun Bandaríkjanna í Islamabad. Simamynd Reuter Salman Rushdie, höfúndur bókarinnar Söngvar Satans,sem hefur vald- ið uppþotum og blóðsúthelhngura í Pakistan þar sem að minnsta kosti fimm manns hafa beðið bana, ætlar að að fara i fyrirlestraferð um Banda- rfkin í næstu viku eins og ekkert hafi ískorist. Rushdie sagðist í gær vera sieginn yfir dauöa Pakistananna fimm sem biðu bana í Islamabad. Mótmælendur gegn bókinni hafa aðallega gagnrýnt kafla í henni þar sem í draumi vændiskonur taka nöfn eiginkvenna Múhameðs. Forsætisráðheiranii heill á húfi Paul Vanden Boeynants, fyrrum forsætisráðherra Belgíu, sem var rænt fyrir einum mánuði, sneri aftur til heimfiis síns í nótt, að sögn útvarps- og sjónvarpsstöðva í Belgíu í morgun. Hann er við góöa heilsu. Ekki var skýrt nánar frá því hvemig hann eyddi undangengnum mánuði. Reuter Akvörðun um skamm- drægar eldflaugar frestað Bandaríkin og Vestur-Þýskaland hafa frestaö að taka ákvörðun um endurnýjun skammdrægra kjarn- orkueldflauga í Evrópu. Mál þetta hefur valdið nokkram taugatitringi innan Atlantshafsbandalagsins. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að loknum við- ræðum við Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, í gær að frekari viðræöna kunni að vera þörf áður en bandalagið ákveður hvort end- umýja eigi eldflaugamar eða hvort ákveðiö verður að telja þær með í afvopnunarviðræðum. Baker sagði að ekki hefði verið búist við því að viðræðurnar við Kohl myndu skila samkomulagi um skammdrægu eldflaugamar og að það heföi heldur ekki gerst. „Þetta var ekki fundur til að taka ákvarðanir," sagði hann við blaða- menn, og bætti við: „Það verða frek- ari viðræður og ég er viss um að slík atriði verða rædd áður en leiðtoga- fundur Atlantshafsbandalagsins verður,“ Sá fundur verður í maí. Þrátt fyrir ágreininginn kallaði Baker viðræðurnar við Kohl „fund milh gamalla vina“, Friedhelm Ost, James Baker, utanrikisráðherra Bandarikjanna, hélt til fundar við Thorvald Stoltenberg, utanríkisráð- herra Noregs, i Osló, strax að lokn- um fundi sinum með Helmut Kohl, karislara Vestur-Þýskalands, í Bonn í gær. Simamynd Reuter talsmaður Kohl, minntist ekki á eld- flaugarnar eftir fundinn en sagði að ákvarðanir Atlantshafsbandalagsins yrði að taka í anda vináttu og sam- vinnu. Bandaríkin og Bretland hafa reynt að þrýsta á um ákvörðun bandalags- ins um endurnýjun á áttatíu og átta Lance eldflaugakerfum, sem flest eru staðsett í Vestur-Þýskalandi, til að sýna fram á að Vesturlönd eru stað- ráðin í að halda uppi sterkum vöm- um þrátt fyrir vinalegt og heillandi viðmót Gorbatsjovs. Baker ítrekaði í gær vilja Banda- ríkjanna um að Atlantshafsbanda- lagið tæki ákvörðun um þetta mál á þessu ári en gaf í skyn að hann von- aðist til að komast að málamiðlun við stjórnina í Bonn. Baker kom tíl fundar við Kohl í kjölfar ummæla Kohls um að hugs- anlegt væri að seinka endumýjun eldflauganna fram til ársins 1991-92. Að fundinum loknum sagði Baker aö að hann heföi komist aö því að Kohl hefði ekki í neinu hvikað frá fyrri afstöðu sinni um að styðja end- urnýjunina. Kohl á nú nokkuð undir högg að sækja í Vestur-Þýskalandi eftir kosn- ingaósigurinn í Vestur-Berlín á dög- unum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.